Morgunblaðið - 29.05.2015, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Sepp Blatter, forseti Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins FIFA, neitar að
segja af sér vegna spillingarmála
innan sambandsins þrátt fyrir mik-
inn þrýsting. Hann heldur sínu striki
og sækist eftir endurkjöri í dag.
„Fólk segir að ég sé ábyrgur, en ég
get ekki alltaf fylgst með öllum allt-
af. Ef fólk vill breyta rangt þá mun
það einnig reyna að fela það,“ sagði
Sepp Blatter í setningarræðu árs-
þings FIFA í Sviss í gær. Hann
sagðist ennfremur vera viss um að
fleiri slæmar fréttir myndu fylgja á
næstunni. Þá ítrekaði hann stuðning
sinn við rannsóknina á spillingunni
því hann segir að hún hafi varpað
ljótum skugga á FIFA og spill-
inguna verði að uppræta. Í lokin
klykkti hann út með því að segja að í
sameiningu þyrfti að vinna traustið
til baka.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, er á meðal þeirra sem
hafa hvatt Blatter til að segja af sér,
þá hefur hann einnig hvatt stuðn-
ings- og styrktaraðila til að endur-
skoða stöðu sína ef Blatter verður
endurkjörinn sem forseti. Forseta-
kosningarnar fara fram í dag þrátt
fyrir þrýsting um að fresta þeim,
m.a. frá utanríkisráðherra Frakk-
lands, Laurent Fabius.
Michael Platini, forseti Evrópska
knattspyrnusambandsins UEFA,
krafðist afsagnar Blatters á neyðar-
fundi FIFA í gærmorgun.
Sagði að það væri of seint
„Ég bað hann um að segja af sér:
Nú er mælirinn fullur, Sepp. Hann
hlustaði en sagði mér jafnframt að
það væri of seint,“ sagði Platini um
það sem fór á milli þeirra tveggja.
„Ég segi þetta með tárin í aug-
unum. Mér líkar ekki hvernig staðan
er en það eru hreinlega of margir
skandalar,“ sagði Platini ennfremur.
Hann talaði tæpitungulaust um að
uppræta þyrfti spillinguna og breyt-
ingar væru brýnar í FIFA.
UEFA hvetur allar þjóðir til að
kjósa ekki Blatter í forsetakosning-
unum en hann hefur verið forseti síð-
ustu 17 ár. Platini fullyrti að meiri-
hluti Evrópuþjóða myndi styðja
mótframbjóðanda Blatters, prinsinn
Al bin al Hussein. Prinsinn er 39 ára
gamall Jórdani og sonur Husseins
Jórdaníukonungs. Sá hefur lýst því
yfir að hann hyggist beita sér fyrir
hreinsunum og endurskipulagningu
innan FIFA.
Til að sigra í fyrstu umferð í kosn-
ingunum þarf tvo þriðju atkvæða
fulltrúa FIFA en þeir eru 209 tals-
ins. Ef til annarrar umferðar kemur
þá dugar meirihluti atkvæða til að ná
forsetakjöri.
Evrópuþjóðirnar í UEFA munu
hittast 6. júní og fara yfir stöðuna ef
Blatter sigrar. „Við munum skoða
alla möguleika,“ sagði Platini. Hann
vildi þó ekki tjá sig um hvort þjóðir
innan UEFA myndu mögulega snið-
ganga næsta heimsmeistaramót og
draga sig út úr FIFA.
Englendingurinn David Gill,
stjórnarmaður í UEFA og fulltrúi
sambandsins í framkvæmdastjórn
FIFA, tilkynnti að hann myndi ekki
sitja áfram í framkvæmdastjórninni
ef Blatter yrði endurkjörinn. Platini
vonar innilega að til þess komi ekki.
Rannsókn á staðarvali
Styrktarfyrirtæki knattspyrnu í
heiminum, Coca-Cola, Adidas,
McDonald’s og Visa þrýsta nú á
FIFA um það að gera hreint fyrir
sínum dyrum. Fyrirtækin krefjast
þess að FIFA setji sér frekari siða-
reglur sem það vinni eftir. Fyrirtæk-
in hafa greitt hundruð milljóna
bandaríkjadala fyrir auglýsingar
tengdar HM í knattspyrnu.
Svissnesk stjórnvöld hafa tilkynnt
að lögreglurannsókn sé hafin á þeirri
ákvörðun FIFA að HM í fótbolta fari
fram í Rússlandi 2018 og í Katar
2022. Þau segja jafnframt að Blatter
verði ekki yfirheyrður vegna rann-
sóknarinnar. Bandaríska dómsmála-
ráðuneytið gaf út 14 ákærur á hend-
ur einstaklingum og fyrirtækjum á
miðvikudaginn fyrir spillingu og
mútuþægni.
„Nú er mælirinn fullur, Sepp“
UEFA krefst afsagnar Sepp Blatter, forseta FIFA, sem situr sem fastast Blatter segist ekki bera
ábyrgð á spillingu innan FIFA í setningarræðu UEFA styður jórdanska prinsinn í kjöri til forseta
AFP
Aðgangsharður Michel Platini, for-
maður UEFA, krafðist afsagnar.
AFP
Þingsetning Linda Barras situr við hlið kærasta síns, Sepp Blatter, forseta FIFA, sem sagðist í setningarræðunni
ekki bera ábyrgð á spillingu innan FIFA. Blatter (fyrir miðju) ræðir hér við Ueli Maurer, íþróttamálaráðherra Sviss.
„Núna þarf ég einn að sjá um fjöl-
skylduna mína. Guð einn veit hvern-
ig ég fer að því,“ sagði Mallayia Bad-
dula, 76 ára gamall Indverji, við
CNN eftir að hann frétti að sonur
hans hefði látist. Sonurinn, Venka-
tesham, sem var 38 ára, lést af sól-
sting sem hann hlaut þegar hann var
að ná í lyf fyrir gamla manninn. Nú
þarf afinn að sjá fyrir konu sinni og
tveimur barnabörnum, 13 ára gam-
alli stúlku og átta ára dreng, en móð-
ir þeirra lést fyrir nokkrum árum.
Venkatesham er einn af 70 sem
hafa látið lífið í Nalgonda og einn af
340 sem hafa dáið í Telanghéraði
undanfarið í hitabylgjunni sem geis-
ar á Indlandi.
Alls hafa um 1.500 beðið bana í
hitabylgjunni á Indlandi á einni viku.
Flestir hafa látist í héraðinu Andhra
Pradesh í suðurhluta landsins, þar
sem hitinn hefur orðið hvað mestur.
Þar hafa um 1.020 manns látist frá
18. maí, um helmingi fleiri en allt síð-
asta ár.
Hitinn hefur mest farið upp í 47
gráður á Celsius. Fyrr í vikunni
bráðnaði malbik á götum úti vegna
hitans.
Sjúkrahúsin á Indlandi eru yfirfull
vegna hitabylgjunnar. Þeir sem
verða verst úti eru heimilislausir og
þeir sem búa í fátækustu héruðum
landsins. Í borgunum reyna heimilis-
lausir að finna sér skjól víðs vegar og
eru dæmi um að þeir leggi sig á
steinsteyptum klumpum sem að-
greina akreinar á götum.
Undanfarið hefur meðalhitinn
verið allt að sjö gráðum hærri en
venjulega. Ekki er útlit fyrir að veðr-
ið verði bærilegra á næstu dögum.
Hitinn hefur í raun aukist þar sem
heitir og þurrir vindar blása. Ind-
verska veðurstofan telur að hita-
bylgjan verði í fjóra til fimm daga í
viðbót.
Á hverju sumri deyja hundruð
manna vegna hitans en aldrei hafa
fleiri dáið frá árinu 1995, en þá létust
alls 1.677 manns.
thorunn@mbl.is
Hitabylgjan er
ekki í rénun
Afi á áttræðisaldri orðinn fyrirvinnan
AFP
Hitabylgja Litla fólkið reynir líka
að kæla sig eins og það getur.
„Þetta er augljóslega tilraun til að koma í veg fyrir
endurkjör Sepp Blatter sem forseta FIFA og er ský-
laust brot á grundvallarreglum í starfi alþjóða-
samtaka,“ sagði Vladimir Pútín, forseti Rússlands, í
sjónvarpsávarpi í gær. Hann fordæmdi handtökur
Bandaríkjamanna á yfirmönnum FIFA. Pútín sagði
ennfremur að bandarísk stjórnvöld væru að „þröngva
eigin lögum upp á aðrar þjóðir“. Hann var ekki sáttur
við uppátækið.
FIFA hefur ákveðið að Heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu verði haldin í Rússlandi árið 2018. Pútín sagði einnig að
Blatter hefði orðið fyrir þrýstingi um að draga ákvörðunina til baka en
ekki orðið við því.
Fordæmir handtökurnar
SEGIR BANDARÍKIN ÞRÖNGVA EIGIN LÖGUM UPP Á ÖNNUR RÍKI
Vladimir Pútín