Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Brjóstakrabbamein ræðst á og
veikir beinin svo að það eigi auð-
veldara með að dreifa sér. Þetta
kemur fram í nýrri rannsókn Há-
skólans í Sheffield sem birtist í
tímaritinu Nature. Rannsóknin sýn-
ir að hægt er að verja beinin gegn
afdrifaríkum afleiðingum krabba-
meinsins og hefta útbreiðslu þess.
Um 85% brjóstakrabbameins sá
sér í beinin, þá er mun erfiðara að
lækna það auk þess sem það er lífs-
hættulegra.
„Við teljum að þetta sé þýðingar-
mikil uppgötvun og hjálpi okkur að
koma í veg fyrir að krabbamein
greinist aftur að nýju,“ sagði dr. Al-
ison Gartland við BBC.
Tilraun á músum leiddi í ljós að
lyfið bisphosphonate varði beinin
gegn árás krabbameinsins á þau og
styrkti beinin. Lyfið hefur þegar
verið gefið krabbameinssjúklingum
en rannsóknarteymið telur að lyfið
geti haft mun meiri og betri áhrif
en áður var talið. thorunn@mbl.is
Hægt að
verja beinin
mun betur
Ný rannsókn á
brjóstakrabbameini
Morgunblaðið/G.Rúnar
Röntgenmynd Hægt er að verja
beinin gegn brjóstakrabbameini.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, hóf í gær tveggja daga
ferð sína til meginlands Evrópu,
þar sem hann vildi tala fyrir nauð-
syn þess að tryggja umbætur á Evr-
ópusambandinu áður en Bretar
ákveða í þjóðaratkvæðgreiðslu
hvort þeir vilji tilheyra sambandinu
áfram.
Cameron ferðaðist fyrst til Haag
og snæddi þar hádegisverð með
Mark Rutte, forsætisráðherra Hol-
lands, áður en hann lagði af stað til
Frakklands, þar sem hann hitti
Francois Hollande Frakklands-
forseta og snæddi kvöldverð með
honum.
Í dag ferðast Cameron til Varsjár
og ræðir við Ewu Kopacz, forsætis-
ráðherra Póllands, áður en hann
heldur til Berlínar og ræðir við
Angelu Merkel kanslara.
„Hættuleg atkvæðagreiðsla“
Laurent Fabius, utanríkis-
ráðherra Frakklands, gagnrýndi
fyrirhugaða þjóðaratkvæða-
greiðslu Breta og sagði hana geta
verið stórhættulega fyrir Evrópu-
sambandið. „Þú gengur ekki í
knattspyrnulið og ætlast til þess í
hálfleik að það fari að spila ruðn-
ing,“ sagði Fabius.
Í atkvæðagreiðslunni verða Bret-
ar spurðir hvort þeir vilji að Bret-
land verði áfram hluti af Evrópu-
sambandinu, en Cameron vill semja
um breytingar áður en kosið verð-
ur. Embættismaður í forsætisráðu-
neytinu breska líkti verkefni Cam-
erons við 27 hnetur sem þyrfti að
opna með handafli. sgs@mbl.is
Þarf að „brjóta 27 hnetur“
AFP
Á ferðalagi David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og Francois Hol-
lande Frakklandsforseti takast í hendur við upphaf fundar þeirra í gær.
Cameron á ferðalagi um Evrópu Hittir Merkel í dag
Tvær fataverksmiðjur í úthverfi
Dhaka, höfuðborgar Bangladess,
urðu í gær þær fyrstu í landinu til
þess að fá sérstaka vottun um öryggi.
Samtök evrópskra fataframleiðenda
komu vottunarkerfinu á fót í kjölfar
Rana Plaza-slyssins árið 2013, þar
sem níu hæða verksmiðjubygging
hrundi fyrirvaralaust, og að minnsta
kosti 1.138 manneskjur létust. Í vott-
uninni felst að eigendur verksmiðj-
anna tveggja hafa tryggt það að hús-
næðið sé öruggt fyrir starfsfólk
þeirra.
Brad Loewen, yfirmaður öryggis-
mála hjá samtökunum, sagði að vott-
unin markaði tímamót fyrir fataiðn-
aðinn í Bangladess, en hann veltir um
25 milljörðum Bandaríkjadala á
hverju ári.
Verkalýðsfélög í landinu segja hins
vegar að vottunarferlið sé of hægfara
og að enn eigi eftir að tryggja öryggi
fjölmargra starfsmanna í fataverk-
smiðjunum. sgs@mbl.is
Fataverk-
smiðjur fá
öryggisstimpil
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir
í fötum
ObanTanton Taddley
herraskór
Frábært úrval af jakkafötum fyrir
útskriftina frá Bertoni og JAY-PI