Morgunblaðið - 29.05.2015, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Helle Thorn-ing-Schmidt,
forsætisráðherra
Danmerkur, hefur
átt á brattann að
sækja í Danmörku
að undanförnu. Þrátt fyrir að
hún persónulega sé heldur vin-
sælli meðal kjósenda en Lars
Lokke Rasmussen, formaður
Venstre, hefur fylgi ríkis-
stjórnar hennar mælst stöðugt
lægra en fylgi hægri flokkanna
að undanförnu. Kjörtímabilið
hefur reynst erfitt að mörgu
leyti, sér í lagi eftir að Sósíalíski
þjóðarflokkurinn gekk úr rík-
isstjórninni á síðasta ári, og að
óbreyttu munu hægri flokk-
arnir taka við eftir næstu kosn-
ingar.
Viðbrögð margra sem horfa
fram á ósigur í kosningum eru
þau að sitja út kjörtímabilið og
sjá hvað verða vill, en að þessu
sinni var miðað við að Danir
myndu ganga að kjörborðinu í
september. Thorning-Schmidt
ákvað hins vegar að láta reyna á
styrk sinn í júní, og eru því ein-
ungis um þrjár vikur til stefnu
til kosninga í Danmörku.
Að vissu leyti er þetta klókt
hjá forsætisráðherranum. Nýj-
ustu hagtölur komu betur út en
ríkisstjórnin hafði búist við, og
Thorning-Schmidt sló fyrr í vik-
unni vænan kosningavíxil með
tillögum um stóraukin útgjöld
til velferðarmála. Með snarpri
kosningabaráttu getur hún því
hugsanlega breytt tapaðri stöðu
í varnarsigur fyrir sig. Hugs-
anlega vonast hún einnig til
þess að kjósendur í sólskins-
skapi séu tregari til breytinga,
fremur en ef kosið
yrði um haustið.
En slíkt veðmál á
veðuráhrifin geng-
ur ekki endilega
upp, sér í lagi ef
horft er til þróun-
arinnar í nágrannalöndunum. Á
síðustu tveimur árum hefur ver-
ið kosið í Finnlandi, Svíþjóð og
Noregi – og raunar á Íslandi
líka. Í öllum þessum ríkjum hef-
ur sitjandi ríkisstjórn fallið. Það
virðist því vera nokkur breyt-
ingahugur á Norðurlöndum um
þessar mundir, sem gæti reynst
erfitt fyrir Thorning-Schmidt
að standa gegn.
Jafnframt hafa mjög þjóðern-
issinnaðir flokkar, sem oft eru
sagðir í fjölmiðlum vera yst til
hægri, jafnvel þegar fátt í
stefnuskrá þeirra bendir til
þess að slíkur merkimiði eigi
rétt á sér, sótt í sig veðrið í Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi. Í
tveimur síðastnefndu ríkjunum
komust þeir meira að segja að
ríkisstjórnarborðinu í kjölfar
kosninganna. Í Danmörku virð-
ist þróunin svipuð. Þarlendar
skoðanakannanir benda til þess
að Danski þjóðarflokkurinn
gæti bætt verulega við fylgi sitt
frá síðustu kosningum, en
flokkurinn veitti hægri stjórn
hlutleysi sitt fram til ársins
2011.
Brekkan fyrir vinstri stjórn-
ina í Danmörku er því nokkuð
brött. Líklega hefur Helle
Thorning-Schmhidt þó gefið sér
og flokki sínum besta mögu-
leikann á sigri með því að boða
til kosninganna í fyrra fallinu.
Hvort það dugir til er önnur
saga.
Dugir útspil Helle
Thorning-Schmidt
til að tryggja henni
annað kjörtímabil?}
Veðjað á sólskinsskapið
Á mánudaginnnæsta verða
Smáþjóðaleikarnir
settir í Laug-
ardalshöll og er
þetta í annað sinn í þrjátíu ára
sögu keppninnar sem Íslend-
ingar halda leikana. Frá mánu-
degi til laugardags verður því
efnt til sannkallaðrar íþrótta-
veislu í Laugardalnum, þar
sem saman koma fulltrúar níu
Evrópuríkja, sem öll hafa
færri en milljón íbúa, og etja
kappi í ellefu íþróttagreinum,
allt frá frjálsum íþróttum til
körfuknattleiks.
Leikarnir nú verða um-
fangsmesta íþróttakeppni sem
haldin hefur verið til þessa á
landinu, og er það íþrótta-
hreyfingunni íslensku ómet-
anlegt tækifæri að fá að
spreyta sig á slíku mótshaldi.
Jafnframt ætti það að vera ís-
lensku íþróttafólki hvatning,
að geta keppt um sigurlaun á
heimavelli.
Afreksfólk í
íþróttum hefur
sett sterkan svip á
sögu lýðveldisins,
og má þar til dæm-
is nefna stórglæsilegan árang-
ur okkar í frjálsíþróttum um
miðja 20. öldina, þar sem kapp-
ar á borð við Gunnar Huseby,
Vilhjálm Einarsson og Clau-
sen-bræður efldu sjálfstraust
hins unga ríkis sem þar steig
sín fyrstu skref í samkeppni
við aðrar þjóðir. Síðan þá hafa
fjölmargir Íslendingar bæst í
hóp afreksmanna í íþróttum.
Að þessu sinni á Ísland 166
keppendur á leikunum, sem
allir eru staðráðnir í að gera
sitt besta fyrir land og þjóð, en
landinu hefur jafnan gengið
vel á Smáþjóðaleikunum. Eng-
in ástæða er til að ætla annað
en að framhald verði þar á nú
og að íþróttamennirnir ís-
lensku geri landa sína utan
vallar stolta með frammistöðu
sinni.
Smáþjóðaleikarnir
aftur á Íslandi}Keppt á jafnréttisgrundvelli
H
vað væri Tinni án Tobba? Eða
Gunnar á Hlíðarenda án Sáms?
Mikki mús án Plútó? Síðasta
dæmið er reyndar svolítið skrýt-
ið (það er eitthvað ankannalegt
við að mús eigi hund) en fær þó að vera með til
að benda á hversu víða hundar koma við sögu.
Winston Churchill leitaði gjarnan til hundsins
Rufusar á ögurstundum og þá eru ótaldir allir
bandarísku forsetahundarnir sem hafa hlotið
alþjóðafrægð, m.a. fyrir að hafa verið eigendum
sínum stoð og stytta við að taka ýmsar af-
drifaríkar ákvarðanir. Næsta víst er að mann-
kynssagan væri heldur snautleg án hunda.
Hundahald var bannað í Reykjavík og mörg-
um öðrum þéttbýlisstöðum meirihluta 20. ald-
arinnar. Þetta hefur breyst, en hundahald er þó
enn bannað í nokkrum bæjum og einungis leyft
sem undantekning. Þessar hömlur á tilvist hunda hafa
m.a. ýtt undir fordóma í garð hunda og hundaeigenda og
hafa orðið til þess að hundar eru ekki sá sjálfsagði hluti af
samfélaginu sem þeir eru víða annars staðar í heiminum,
því þeir eru ekki velkomnir á mörgum stöðum. Hundar
mega t.d. ekki vera í almenningsfarartækjum, verslunum
eða á veitingastöðum. Í auglýsingum margra hátíða er
þess sérstaklega getið að hundar séu ekki velkomnir.
Sú fjörlega borgarhundamenning sem gjarnan verður
vart við erlendis, þar sem glaðlegir ferfætlingar spóka sig
með dillandi skott um stræti og torg, er því ekki til hér.
Nánast eini staðurinn þar sem öruggt er að hundur sé vel-
kominn er á hans eigin heimili. Það er að segja
ef hundahald er leyft í viðkomandi húsi.
Hvers vegna ættu íslenskir hundar ekki að
geta verið á veitingastöðum og notað almenn-
ingssamgöngur með eigendum sínum rétt eins
og hundar víða í Evrópu? Það, að halda því
fram að hundar eigi best heima úti í sveit er í
besta falli leifar gamallar samfélagsgerðar.
Önnur algeng rök gegn hundahaldi eru hunda-
ofnæmi. Með sömu rökum mætti væntanlega
krefjast þess að öll tré og gróður í borgarland-
inu yrði höggvinn niður vegna þess að tals-
verður fjöldi fólks er með gróðurofnæmi.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að
hundar hafa jákvæð áhrif á andlega og lík-
amlega heilsu fólks. Mörg dæmi eru um að
þeir heimsæki heilbrigðisstofnanir á vegum
samtaka á borð við Rauða krossinn til að bæta
heilsu og líðan fólks. Ein sorglegasta birtingarmynd þeirr-
ar hundastefnu sem hér er við lýði kom í ljós þegar íbúar í
blokkum Öryrkjabandalagsins þurftu að velja á milli þess
að láta frá sér gæludýrin sín og missa húsnæðið. Ekki var
þar við forsvarsmenn að sakast, þeir voru einfaldlega að
fara eftir lögum sem löngu er kominn tími til að endur-
skoða. Hundar og hundaeigendur hafa átt fremur fáa mál-
svara í stjórnkerfinu en nýleg tillaga borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins um að hverju sveitarfélagi verði frjálst að
ákveða hvernig það hagar reglum um á hvaða stöðum
leyfilegt sé að hafa dýr, er spor í rétta átt. Voff fyrir því!
annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
Voffvoffvoffvoffvoffvoffvoffvoff....
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þó að verulega hafi dregið úratvinnuleysi meðal ungsfólks, benda nýjar tölur úrvinnumarkaðsrannsókn
Hagstofunnar til þess að stór hópur
ungs fólks sé hvorki í námi né með
fasta atvinnu um þessar mundir. Í
apríl sl. var atvinnuleysi meðal 16-
24 ára 14,6% á meðan það var 3,7%
hjá 25 ára og eldri að því er fram
kom í könnun Hagstofunnar. Lít-
illega hefur fækkað í þessum hópi
frá í fyrra en í apríl 2014 var at-
vinnuleysi meðal 16-24 ára 15,6%.
Mikill munur er á þessum tölum
yfir atvinnuleysi ungs fólks og á at-
vinnuleysistölum Vinnumálastofn-
unar, sem sýna fjölda þeirra sem
eru á atvinnuleysisskrá á hverjum
tíma. Þær upplýsingar leiða í ljós að
alls voru 1.000 manns á aldrinum
18-24 ára atvinnulausir í lok apríl
eða um 17% allra atvinnulausra.
Skv. upplýsingum Vinnumálastofn-
unar reiknast atvinnuleysi 18-24 ára
um 3,5% í seinasta mánuði miðað
við áætlaðan mannafla fólks í þess-
um aldurshópi.
Hér munar miklu á tölum Vinnu-
málastofnunar og könnun Hagstof-
unnar, sem nær til breiðari aldurs-
hóps eða 16-24 ára og bendir til
14,6% atvinnuleysis í þessum hópi
eins og fyrr segir. Jafngildir það því
að 4.700 ungmenni á þessum aldri
séu án atvinnu í vor.
Mikill munur er á þeim aðferðum
sem Vinnumálastofnun og Hag-
stofan nota þegar lagður er mæli-
kvarði á atvinnuleysi á hverjum
tíma. Hagstofan kannar meðal svar-
enda hvort þeir eru í atvinnleit en
Vinnumálastofnun telur eingöngu
þá sem uppfylla skilyrði til skrán-
ingar á atvinnuleysisskrá. Atvinnu-
þátttaka ungs fólks hefur verið mik-
il hér á landi og á þessum árstíma
eru margir að ljúka námi og leita að
sumarvinnu og teljast því atvinnu-
lausir skv. Hagstofunni, þó þeir séu
ekki skráðir atvinnulausir. Atvinnu-
leysistölur Vinnumálastofnunar
virðast því vanmeta að einhverju
leyti raunverulegt atvinnuleysi á
sama tíma og rannsókn Hagstof-
unnar virðist ofmeta það vegna mik-
ils hreyfanleika ungs fólks á milli
skóla og vinnu á hverjum árstíma.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, segir að í
tölum um atvinnuleysi ungs fólks
komi fram sá eðlismunur sem er á
niðurstöðum Vinnumálastofnunar
og Hagstofunnar. Á þessum árstíma
sé t.d. skólafólk orðið laust við, vilji
fá vinnu og svari því til að það sé at-
vinnulaust. Þetta sé því oft tíma-
bundið ástand. Að sögn Karls sker
þessi yngsti aldurshópur sig ekki
lengur úr í yfirliti Vinnumálastofn-
unar yfir skráð atvinnuleysi. „At-
vinnuleysi ungs fólks er hverfandi
og alls ekki meira en gengur og ger-
ist,“ segir Karl.
Átaksverkefni skiptu miklu máli á
fyrstu árunum eftir hrun við að
auka atvinnuþátttöku og sum-
arstörfin sem staðið hafa náms-
mönnum til boða hafa líka haft mik-
ið að segja. ,,Staðan er orðin miklu
betri á vinnumarkaði fyrir ungt
fólk. Það er talsverða vinnu að hafa
yfir sumartímann í ferðaþjónustu
og í byggingariðnaði í auknum
mæli.“
Gert er ráð fyrir að skráð at-
vinnuleysi á landinu minnki talsvert
í maí og gæti orðið nálægt 3%, að
sögn Karls. Búast má við að tölur
Hagstofunnar hækki eftir sem áður
í maí þar sem skólafólk sem ekki er
komið með sumarvinnu er meira
áberandi. Í fyrra fór atvinnuleysi
skv. Hagstofunni upp í 7,2% í maí
en datt svo niður í 4,6% strax í júní.
Hverfandi atvinnu-
leysi en ólíkar tölur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framkvæmdir Störfum fer fjölgandi þegar líður á sumarið og er útlit fyrir
að skráð atvinnuleysi í maí fari niður í um 3%, skv. Vinnumálastofnun.
Tölur Hagstofunnar yfir at-
vinnuleysi eru notaðar í alþjóð-
legum samanburði, sem hefur
sýnt að atvinnuleysi ungs fólks
er hvað minnst hér á landi innan
OECD.
Í umfjöllun OECD um atvinnu-
vanda unga fólksins, sem birt
var í vikunni, kemur fram að að-
eins í tveimur aðildarlöndum
OECD er lægra hlutfall 15-29
ára af íbúafjölda sem eru hvorki
í námi né vinnu en hér á landi.
OECD segir atvinnuleysi hafa
komið með mestum þunga nið-
ur á ungu fólki í flestum löndum
OECD frá því að efnahags-
kreppan reið yfir 2008. Yfir 36
milljónir ungs fólks á aldrinum
16 til 29 ára eru hvorki í skóla,
starfsnámi né í vinnu í aðildar-
löndunum. Ekki bætir úr skák
að eitt af hverjum fjórum ung-
mennum, sem þó hafa atvinnu,
eru eingöngu með tímabundinn
ráðningarsamning.
Með því
minnsta hér
OECD SAMANBURÐUR