Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 43
ar í dag“ Ég svaraði kallinu, sótti um
og var hjá IBM til 1984.“
Með kaupum Erlings og Gunnars
Ólafssonar á Gísla J. Johnsen hf. það
ár og síðar á Skrifstofuvélum hf.
hófst 30 ára tímabil hjá Erling við
framkvæmdastjórn tæknifyrir-
tækja. Erling var framkvæmdastjóri
Radíóstofunnar hf. og Norsk Data á
Íslandi hf. 1990-92, varð síðan einn
af framkvæmdastjórum Nýherja hf.,
en Nýherji varð til við samruna IBM
á Íslandi og Skrifstofuvéla hf. Þann-
ig var Erling kominn aftur á fornar
slóðir.
Við stofnun Sense ehf., sem er
dótturfélag Nýherja, varð Erling
framkvæmdastjóri þess. Þar lýkur
hann nú hálfrar aldar starfsferli við
tölvur og tæknibúnað. „Frá samtal-
inu við meistara minn, Einar J.
Skúlason, og til dagsins í dag hef ég
aldrei gefið mér tíma til að líta um
öxl. Fyrir framan mig hafa stöðugt
verið ný og spennandi verkefni. Ég
get þess vegna gert núverandi ein-
kunnarorð Nýherja að mínum: „Við
höfum góða reynslu af framtíðinni.““
Erling sat í bæjarstjórn Garða-
bæjar 1990-2014 er hann dró sig í
hlé. Hann sat í bæjarráði í 24 ár, þar
af formaður í 17 ár, var oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ á árunum
2006-2014, gegndi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir sveitarfélagið og á nú
sæti í siðanefnd Sambands sveitar-
félaga og stjórn Hönnunarsafns Ís-
lands.
Erling var formaður Siglinga-
klúbbsins Vogs í Garðabæ, sat í
stjórn Siglingasambands Íslands, í
stjórn UMF Stjörnunnar, formaður
knattspyrnudeildar og sat í lands-
liðsnefnd KSÍ. Hann er Paul Harris-
félagi í Rotaryklúbbnum Görðum,
formaður Landeigendafélags Sléttu-
og Grunnavíkurhrepps og á sæti í
Hornstrandanefnd.
Erling var sæmdur gullmerki ÍSÍ,
gullmerki GKG, gullmerki Stjörn-
unnar, starfsmerki UMSK, heiðurs-
viðurkenningu frá ÍTG og er heið-
ursfélagi UMF Stjörnunnar.
Fjölskylda
Eiginkona Erlings er Erla Þor-
láksdóttir, f. 23.1. 1947, fyrrv.
bankastarfsmaður. Foreldrar henn-
ar voru Elísabet Pétursdóttir, f. 8.9.
1922, d. 5.2. 2007, húsfreyja, og Þor-
lákur Sigurðsson, f. 29.8. 1922, d.
9.12. 2005, sjómaður og netagerð-
armaður. Þau bjuggu í Hafnarfirði.
Börn Erlings og Erlu eru Heimir
Erlingsson, f. 1969, viðskiptafræð-
ingur í Garðabæ, en kona hans er
Soffía Ketilsdóttir lögfræðingur og
eru barnabörnin Hrannar, f. 1993
(móðir hans er Hrund Grétars-
dóttir), Axel Örn, f. 2003, Eva Mar-
grét, f. 2005, Aron Freyr, f. 2009, og
Thelma Lind, f. 2012; Viðar Erlings-
son, f.1975, verkfræðingur í Garða-
bæ en kona hans er Ágústa Björg
Bjarnadóttir mannauðsstjóri og eru
barnabörnin Dagur Ingi, f. 2003,
Andri Felix, f. 2006, og Erla Björg, f.
2010; Elfa Björk Erlingsdóttir, f.
1982, viðskiptafræðingur í Garðabæ
en maður hennar er Sigurður Bjarni
Sigurðsson viðskiptafræðingur, og
eru barnabörnin Ingibjörg Erla, f.
2006, og Rósa María, f. 2010.
Systkini Erlings: Anna Ásgeirs-
dóttir, f. 22.3. 1947, stjórnar-
formaður í Kópavogi; Ingibjörg Ás-
geirsdóttir, f. 12.4. 1953, hjúkrunar-
forstjóri í Hafnarfirði; Ásgeir
Ásgeirsson, f. 7.10. 1960, MBA.
Foreldrar Erlings: Ásgeir Jóns-
son, f. 7.12. 1920, d. 28.9. 2010, skó-
kaupmaður, og Guðríður Jónsdóttir,
f. 29.7. 1924, fyrrv. verslunarmaður
og húsfreyja. Þau bjuggu lengst af í
Kópavogi.
Úr frændgarði Erlings Ásgeirssonar
Erling
Ásgeirsson
Hermann Sigurðsson
b. á Læk og Sæbóli
Guðrún
Finnbjarnardóttir
húsfr. á Læk og Sæbóli
Jón Sigfús Hermannsson
útvegsb. á Sæbóli og Læk
Elenóra
Guðbjartsdóttir
húsfr. á Sæbóli og
Læk í Aðalvík
Ásgeir Jónsson
kaupm. í Kópav. og Grb.
Guðbjartur
Guðmundsson
b. á Hesteyri
Þorbjörg Finnsdóttir
vinnukona á Hesteyri
Þórður Guðlaugsson
frá Bröttuhlíð á
Rauðasandi
Helga Guðmundsdóttir
frá Seljalandi,
A-Barðaströnd
Jón Þórðarson
skipstj. og útgerðarm.
á Patreksf.
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfr. á Patreksfirði
Guðríður Jónsdóttir
verslunarm. í Kóp. og Grb.
Ólafur Björnsson
b. í N-Botni
Málfríður Arngrímsdóttir
húsfr. í N-Botni í Sperlahlíð
Jón Már
Héðinsson
skólam. MA
á Akureyri
Elín
Héðinsdóttir
bankam.
á Akureyri
Jóhannes
Héðinsson
skipstj. á.
Patreksf.
Freyr
Héðinsson
vélstj. á
Patreksf.
Guðrún
Jónsdóttir
húsfr. á
Patreksf.
Héðinn
Jónsson
skipstj.á
Patreksf.
Erling Formaður undirbúnings-
nefndar um sameiningu Garða-
bæjar og Álftaness.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Finnur fæddist á Akureyri29.5. 1858. Foreldrar hansvoru Jón Borgfirðingur, bók-
bindari, fræðimaður og lögreglu-
maður í Reykjavík, og k.h., Anna
Guðrún Eiríksdóttir.
Meðal systkina Finns voru Klem-
ens, landritari og ráðherra, og Vil-
hjálmur Borgfjörð, cand. phil. og
póstmeistari í Reykjavík.
Kona Finns var Emma Heraczek,
en sonur þeirra var Jón kaupmaður í
Óðinsvéum.
Finnur varð stúdent frá Reykja-
víkurskóla 1878, tók próf í málfræði
við Kaupmannahafnarháskóla 1883
og varð dr. phil. þar 1884 með rit-
gerðinni Kritiske studier over en del
af de ældste norske og islandske
skjaldekvad.
Finnur kenndi við Hafnarháskóla
frá 1885, varð dósent þar 1887 og
prófessor í norrænni textafræði
1898, skipaður 1911, en fékk lausn
frá störfum sökum aldurs 1928.
Finnur sinnti fræðistörfum og
umfangsmiklu útgáfustarfi og má
þar nefna Egils sögu, Konungsbók
eddukvæða, ljósprentun handritsins
með nákvæmri útgáfu textans,
Hauksbók, og Heimskringlu í fjór-
um bindum. Eitt mesta stórvirkið á
útgáfusviðinu var dróttkvæðaútgáf-
an mikla, Den norsk-islandske
skjaldedigtning, útg. 1912-15, og
Lexicon poeticum antiquae linguae
septentrionalis, útg. 1913-16. Þá er
fornbókmenntasaga Finns í þremur
bindum afar ítarlegt grundvallarrit:
Den oldnorske og oldislandske litte-
raturs historie. Auk þess vann hann
að fornleifarannsóknum á hofrústum
hér á landi, einkum norðanlands.
Finnur var einn afkastamesti nor-
rænufræðingur síns tíma og var í
áratugi talinn fremstur fræðimanna
í þeirri grein. Hann varð heiðurs-
doktor við Háskóla Íslands 1921, í
Vísindafélaginu danska 1898, Kung-
liga Vetenskaps- och vitterhets-
samhället i Göteborg 1905, bréfa-
félagi í Kungliga Vitterhets-,
Historie- och Antikvitetsakademien
1908 og í fjölda annarra vísinda-
félaga, sat í stjórn fornritadeildar
Fornfræðafélagsins, var formaður
þess og stjórnar Árnasafns.
Finnur lést 30.3. 1934.
Merkir Íslendingar
Finnur
Jónsson
100 ára
Þorkell Zakaríasson
90 ára
Andrés Þ. Guðmundsson
Sólveig Eggerz Pétursdóttir
Svava Brynjólfsdóttir
85 ára
Erla Jakobsdóttir
Guðrún Jóhannesdóttir
Ólafur Kr. Guðmundsson
80 ára
Jónína Sigríður
Óskarsdóttir
Olga Ingibjörg Ólafsdóttir
Stefanía Bergþóra
Önundardóttir
75 ára
Eygló Kortsdóttir
Flosi Ingólfsson
Sigurbjörg Viggósdóttir
Sóley Björk Ásgrímsdóttir
70 ára
Arína Guðmundsdóttir
Axel Axelsson
Bjarni Guðmundsson
Guðmundur Eyjólfsson
Hans Agnarsson
Hjörtur Ingólfsson
Kristinn Sveinbjörnsson
Kristján Ævar Arason
Maria Elvira da Silva
Oddur Valur Möller
Gunnlaugsson
60 ára
Anna Lilja Pálsdóttir
Bergur Mekkinó Jónsson
Guðlaugur Þór Pálsson
Jón Finnur Ögmundsson
Oddný Hafdís Jónsdóttir
Sigurður Pétur Eiríksson
Skúli Einarsson
Sveinn Daniel K. Lyngmo
50 ára
Björg Traustadóttir
Erna S. Jóhannsdóttir
Guðmundur Flosi
Guðmundsson
Gylfi Engilbert Rafnsson
Halldór Jónasson
Hanna Kristín Pétursdóttir
Hrafnhildur Haraldsdóttir
Hrönn Kristinsdóttir
Jóhannes B. Þórarinsson
Magnea B. Magnúsdóttir
Margrét Gróa Björnsdóttir
Rúnar Már Jónsson
Sigríður Gunnarsdóttir
Sigríður Klara Árnadóttir
Tao Kongsbak
40 ára
Árni Björn Helgason
Árni Örvar Daníelsson
Brynhildur M. Sölvadóttir
Daníel Már Sigurðsson
Elínrós Erlingsdóttir
Haraldur Guðnason
Hulda Guðný Jónsdóttir
Ingi F.H. Ágústsson
Linda Rán Ómarsdóttir
Pálína Árnadóttir
Róbert Styrmir Helgason
Sólveig Anna Jónsdóttir
Trausti Veigar Hilmarsson
Þórey Árnadóttir
30 ára
Björg Gunnarsdóttir
David Garcia-Balbuena
Egill Halldórsson
Hákon Jónsson
Kristín M. Guðmundsdóttir
Martina Skultétyová
Nikolajs Dambitis
Scott Ryan Clary
Trausti V. Gunnlaugsson
Til hamingju með daginn
30 ára Marella ólst upp á
Akranesi, býr þar, lauk
prófum í tískuljósmyndun
í London College of Fash-
ion og er ljósmyndari.
Maki: Valgeir Sigurðsson,
f. 1978, upptökumaður og
tölvufræðingur.
Foreldrar: Steinn Helga-
son, f. 1954, húsasmíða-
meistari og kennari við
FVA, og Elín Klara Svav-
arsdóttir, f. 1953, kaup-
maður í Römmum og
myndum.
Marella
Steinsdóttir
30 ára Hjörtur ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófum frá leiklistardeild
LHÍ og er leikari hjá Borg-
arleikhúsinu.
Maki: Brynja Björnsdóttir,
f. 1982, leikmyndahönn-
uður.
Sonur: Óskírður, f. 2015.
Foreldrar: Jón Hjartar-
son, f. 1942, leikari í
Reykjavík, og Ragnheiður
Tryggvadóttir, f. 1958,
framkvæmdastjóri Rithöf-
undasambandsins.
Hjörtur Jóhann
Jónsson
30 ára Atli Freyr ólst upp
í Reykjavík, býr í Kópa-
vogi, lauk prófum sem
tækniteiknari og starfar
hjá Mannviti verkfræði-
stofu.
Systkini: Hafdís Runólfs-
dóttir, f. 1976, og Daði
Arnar Runólfsson, f.
1980.
Foreldrar: Runólfur Run-
ólfsson, f. 1950, banka-
maður, og Gerður Hulda
Hafsteinsdóttir, f. 1957,
athafnakona.
Atli Freyr
Runólfsson
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Allt fyrir eldhúsið
• AMT eru hágæða pönnur úr 9mm þykku áli.
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita.
• 3 ára ábyrgð á verpingu.
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari
en Teflon og án eiturefna.
• Nothæf fyrir allar eldavélar.
• Má setja í
uppþvottavél.
Íslenska og þýska
kokkalandsliðið nota
AMT pönnur.
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan” according to VKD, largest German Chefs Association
*
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.