Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Íslenska tónlistarhátíðin Extreme
Chill Festival – Undir jökli verður
haldin 7.-9. ágúst næstkomandi á
Hellissandi við rætur Snæfellsjök-
uls og verður það í sjötta sinn sem
hátíðin er haldin.
Dagskrá hennar liggur nú fyrir
og hvaða tónlistarmenn og hljóm-
sveitir koma fram, þ.á m. Biosp-
here, Hilmar Örn Hilmarsson,
Steindór Andersen, Mixmaster
Morris, Studnitzky, Stereo Hypnos-
is, Dj Flugvél og geimskip, Jónas
Sen, Tonik Ensemble, Future-
grapher, Ruxpin, Skurken og
Jóhann Eiríksson. „Þetta verður
leyndardómsfullt ferðalag um raf-
rænt landslag,“ segir Pan Thorar-
ensen, skipuleggjandi hátíðarinnar.
Biosphere hinn norski, réttu nafni
Geir Jenssen, er meðal virtari tón-
listarmanna heims á sviði sveim-
tónlistar og þykir plata hans Subst-
rata frá árinu 1997 sígild í sveim-
heimi.
Frekari upplýsingar og dagskrá
er að finna á heimasíðu hátíðarinnar
www.extremechillfestival.com.
Biosphere á Extreme Chill
Festival – Undir jökli
Íslandsvinur Biosphere hefur áður leikið á Extreme Chill Festival.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Óperufélagið Norðuróp frumsýnir í
kvöld og aftur á morgun gaman-
óperuna Brúðkaup Fígarós eftir
Wolfgang Amadeus Mozart í Hjóma-
höll í Reykjanesbæ en óperan er ein
af þeim vinsælustu sem Mozart
samdi. Norðuróp setur óperuna upp í
samvinnu við Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar og Hljómahöll og er hún
flutt við píanóundirleik, í leikmynd og
búningum með leikhúslýsingu. Fram
koma margir af bestu og efnilegustu
söngvurum af Suðurnesjum, Akra-
nesi og höfuðborgarsvæðinu.
Brúðkaup Fígarós er líflegur farsi
sem segir af greifa nokkrum, konu
hans og þjónustufólki. Hún gerist á
brúðkaupsdegi Fígarós, sem er
þjónn greifans, og Súsönnu, þernu
greifafrúarinnar. Greifinn er leiður á
konu sinni og leitar að ævintýrum
annars staðar, þá aðallega hjá Sús-
önnu, og þá hefst mikil og skemmti-
leg atburðarás.
Kennaraverkfall seinkaði öllu
Söngvarinn Jóhann Smári Sæv-
arsson er listrænn stjórnandi Norð-
uróps, leikstjóri verksins og tónlist-
arstjóri. Hann segir tvær frum-
sýningar á verkinu þar sem báðir
söng- og leikendahóparnir séu jafn-
góðir. Þar á meðal eru Júlíus Karl
Einarsson og hinn nýútskrifaði Dav-
íð Ólafsson, sem fara með hlutverk
Fígarós, Jelena Raschke og Guð-
björg Hilmarsdóttir, sem fara með
hlutverk Súsönnu, Júlíus Karl Ein-
arsson og Magnús Guðmundsson í
hlutverki greifans og í hlutverki
greifafrúarinnar þær Bylgja Dís
Gunnarsdóttir og Hanna Þóra Guð-
brandsdóttir.
„Hugmyndavinnan hófst síðast-
liðið vor og átti frumsýningin að
vera í mars. Við ætluðum að byrja í
haust en út af kennaraverkfallinu í
skólunum gátum við ekki byrjað fyrr
en í febrúar,“ segir Jóhann Smári og
bætir við að sökum tímaleysis hafi
verið ákveðið að sýna aðeins tvo
þætti verksins, fyrsta og fjórða.
„Með nemendur í hlutverkum sem
hafa aldrei staðið á sviði áður gátum
við ekki æft í venjulegu æfinga-
prógrammi. Þá urðum við að finna
lausn,“ segir hann.
Sagan gengur upp
Jóhann Smári segir þá sem ekki
þekkja verkið ekki endilega átta sig
á því að sleppt sé öðrum og þriðja
þætti verksins, enda sami hluturinn
oft endurtekinn í óperum. „Sagan
gengur upp. Það vantar í hluta, eins
og í venjulegu óperunni er löng sena
þar sem Súsanna plottar hvernig
hún ætlar að leika á greifann eftir að
hann biður hana að hitta sig úti í
garði. Maður verður bara að leysa
hlutina,“ segir hann.
Alls verða sýningarnar fjórar,
tvær nú um helgina og hinar tvær
sýningarnar 3. og 4. júní, allar í
Bergi í Hjómahöll sem tekur eitt
hundrað manns í sæti. Jóhann segir
samstarfið við Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar og Hljómahöll
hugsað sem vott af óperustúdíói,
fyrir þá sem eru búnir með söng-
nám til þess að afla sér reynslu.
„Ég sit og stjórna þótt við séum
bara með píanó,“ segir hann en
Kristján Karl Bragason leikur á
hljóðfærið.
„Það er fullt af nemendum sem
eru ekki vissir hvort þeir vilji fara út
í þetta og þeir vilja kynnast aganum
sem þarf til þess að syngja og leika.
Að syngja óperu er eins að stunda
íþrótt á sama tíma og þú ert að leika,
það tekur á og það er margt sem óp-
erusöngvari þarf að huga að,“ segir
Jóhann og bætir við að fyrir sér snú-
ist þetta aðallega um að ungir söngv-
arar fái tækifæri til þess að kynnast
ferlinu og því að undirbúa sig fyrir
hlutverk á sviði. Hægt er að nálgast
miða á óperuna á vefsíðunni
www.hljomaholl.is.
Brúðkaup Fígarós
flutt í Hljómahöll
Norðuróp í Reykjanesbæ setur upp gamanóperu Mozarts
Ljósmynd/Haraldur Árni Haraldsson
Óperuflytjendur Jóhann Smári Sævarsson, leikstjóri verksins, segir ungu
söngvarana, sem hér eru, afla sér reynslu með þátttöku í uppfærslunni.
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
FORSÝND Í KVÖLD
KL. 22:35
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/