Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 2
Hornfirðingar hafa undanfarið fylgst með furðu-
verkum náttúrunnar. Hreindýr synda út í eyjarnar á Skarðs-
firðinum sem liggja úti við bæinn. Heimamenn vita ekki hvað
dregur hreindýrin á sundi út í eyjarnar.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
LEITUÐU TIL BJÖRGVINS
Milestone þrýsti á Björgvin G.
Sigurðsson, þáverandi við-
skiptaráðherra, að heimila
færslu á Tortólafélaginu Leiftra
til Íslands. Færslan var hönnuð
þannig að eigendur Milestone
hefðu ekki þurft að greiða skatt af henni.
Eigendur Milestone ætluðu sér að selja
Milestone-samstæðuna og græða vel á
því. Ekki var heimild til þess í lögum að
færa eignarhaldsfélög frá Bresku Jóm-
frúaeyjum og til Íslands en viðskiptaráð-
herra hafði heimild til að setja reglugerð
um þetta í samvinnu við fjármálaráð-
herra. Ef ráðherrarnir hefðu orðið við
þessari beiðni hefði Milestone getað fært Leiftra beint til Íslands frá
Jómfrúaeyjum. Viðskiptaráðherra sendi fjármálaráðherra bréf um
málið en það dagaði uppi í fjármálaráðuneytinu.
HARMLEIKURINN Á LAUGAVEGI
„Þetta er búin að vera löng og erfið
barátta. Það er engin spurning að
atburðurinn var hroðalegur.
Það hefur verið ofsalega
erfitt að horfast í augu við
þetta allan þennan tíma,“
segir Sigurður Kristinn
Einarsson, faðir Harðar
Heimis Sigurðssonar laganema sem
andaðist um nýliðna helgi. Hann
örkumlaðist þegar ekið var á hann á
Laugavegi í janúar í fyrra. Hann lést
aðfaranótt sunnudagsins, 27 ára að
aldri, á endurhæfingardeildinni við
Grensásveg þar sem hann hafði ver-
ið í líknarmeðferð. Ekið var á Hörð
Heimi við gatnamót Vegamótastígs
og Laugavegar laugardaginn 24.
janúar í fyrra. Jón Kristinn Ásgeirsson ók á hann með þeim afleiðing-
um að Hörður Heimir hlaut alvarlega höfuðáverka. Jón Kristinn var
dæmur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir ákeyrsluna, og önnur brot.
LÚXUSLÍF VIÐ ÍTALÍU
Starfsmenn Miles-
tone og makar þeirra
fóru í þriggja daga
siglingu um
Miðjarðar-
hafið sum-
arið 2006.
Mynd-
irnar frá
ferðinni sýna að ekki
væsti um Milestone-
mennina. Þeir áttu
kósí stundir undir
teppi, brugðu á leik í
grímubúningum, borðuðu góðan mat og nutu samvista hver við ann-
an eins og sjá má á myndum sem birtust í DV á mánudag. Sama dag
kom fram í DV að Karl og Steingrímur Wernerssynir veðsettu hluta-
bréf sínum í Lyfjum og heilsu hjá Íslandsbanka í mars í fyrra. Reikna
má með að eignarhaldsfélag þeirra, Aurláki, skuldi Íslandsbanka um
3 milljarða króna í dag. Skiptastjóri Milestone skoðar hvort hægt sé
að rifta kaupum Aurláka á Lyfjum og heilsu. Þá má áætla að bankinn
þurfi að afskrifa kröfuna á hendur Aurláka.
2
3
1
FRÉTTIR 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 3
embætti saksóknara ræði einungis
við hann sem vitni í málinu.
Bjarni ekki á radarnum
Heimildir DV herma hins vegar að
sérstakur saksóknari hyggist ekki
ræða við bróðurson Einars, Bjarna
Benediktsson formann Sjálfstæðis-
flokksins og fyrrverandi stjórnarfor-
mann BNT, en hann fékk umboð til
að veðsetja hlutabréf í eigu félaga Ein-
ars og föður síns í
Vafningi fyrir láninu frá Glitni. Í tilfelli
BNT var Bjarni einn af þremur stjórn-
armönnum BNT sem veitti sér um-
boð til að veðsetja hlutabréf BNT í
Vafningi. Þrátt fyrir þetta segir heim-
ildarmaður DV: „Bjarni er ekki inni
á radarnum,“ og verður því að teljast
ólíklegt að sérstakur saksóknari muni
ræða við Bjarna vegna Vafningsmáls-
ins.
Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna,
skellti á blaðamann DV þegar hann
hringdi í hann á þriðjudag. Ekki liggur
því fyrir hvort rætt hafi verið við hann
vegna rannsóknarinnar.
Bjarni er ekki inni á radarnum.
Rætt við Einar og Jóhannes Heimildir
DV herma að rætt hafi verið Einar Sveins-
son og Jóhannes Sigurðsson vegna
Milestone-rannsóknarinnar. Jóhannes
var aðstoðarforstjóri Milestone og
Einar var hluthafi og stjórnarmaður í
Vafningi.
YFIRHEYRÐIR UM VAFNING
Milestone þrýsti á Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
að heimila færslu á Tortólafélaginu Leiftra til Íslands. Færslan
var hönnuð þannig að eigendur Milestone hefðu ekki þurft að
greiða skatt af henni. Eigendur Milestone ætluðu sér að selja
Milestone-samstæðuna og græða vel á því.
Milestone þrýsti á Björgvin G. Sigurðs-
son viðskiptaráðherra bréfleiðis og
á fundi, að hann heimilaði samruna
eignarhaldsfélaga frá Bresku Jómfrúa-
eyjum við íslensk einkahlutafélög í
október árið 2007.
Eigendur Milestone, Karl og Stein-
grímur Wernerssynir, áttu eignar-
haldsfélagið Leiftra ltd. sem skráð var
á Jómfrúaeyjum, nánar tiltekið á Tor-
tóla, og vildu færa það heim til Íslands
og sameinga það Milestone-sam-
stæðunni. Leiftri hélt utan um tæp-
lega þriðjungshlut þeirra bræðra í
Milestone og mun félagið meðal ann-
ars hafa verið notað til að greiða laun
starfsmanna Milestone.
Ekki var heimild til þess í lögum að
færa eignarhaldsfélög frá Jómfrúaeyj-
um og til Íslands en viðskiptaráðherra
hafði heimild til að setja reglugerð
um þetta í samvinnu við fjármála-
ráðherra. Ef ráðherrarnir hefðu orð-
ið við þessari beiðni hefði Milestone
getað fært Leiftra beint til Íslands frá
Jómfrúaeyjum en í bréfinu var einnig
minnst á þann möguleika að færa fé-
lagið fyrst til Lúxemborgar og þaðan til
Íslands.
Færslan á Leiftra til Íslands var köll-
uð Project Forward hjá þeim Mile-
stone-mönnum. Endanlegt markmið
með færslunni var að eigendur Mile-
stone ætluðu sér líklega að selja Mile-
stone og græða vel á því.
Gunnar sendi bréfið
Það var Gunnar Gunnarsson, yfirmað-
ur skatta- og lögfræðisviðs Milestone
og kennari í skattarétti við Háskólann
í Reykjavík, sem sendi Jóni Ögmundi
Þormóðssyni, skrifstofustjóra við-
skiptaráðuneytisins, bréf með þessari
beiðni þann 4. október 2007.
Í bréfinu er óskað eftir því að við-
skiptaráðherra skoði ofangreindan
möguleika. Björgvin G. Sigurðsson tók
á móti Gunnari Gunnarssyni á fundi í
ráðuneytinu í kjölfar bréfsins þar sem
efni þess var rætt.
Heimildir DV herma að viðskipta-
ráðuneytinu hafi ekki litist illa á hug-
mynd Milestone þar sem verið væri að
flytja félag til Íslands sem myndi leiða
til þess að tekjur sköpuðust á Íslandi.
Erindi Milestone var því sent frá við-
skiptaráðuneytinu til fjármálaráðu-
neytis þar sem það dagaði uppi.
Heimildir DV segja að lendingu
málsins beri að skilja sem svo að ekki
hafi verið áhugi fyrir því í fjármála-
ráðuneytinu að verða við beiðni Mile-
stone.
Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra, segist í samtali
við DV muna eftir erindinu frá Miles-
tone. Hann segir að á endanum hafi
ekki verið tilefni til að verða við beiðni
Mile stone.
Mánuði áður en þetta gerðist,
þann 27. ágúst, hafði endurskoðenda-
skrifstofan KPMG sent embætti ríkis-
skattstjóra beiðni um að unnið yrði
bindandi álit um hvaða skattalegu af-
leiðingar færslan á Leiftra til Íslands
frá Jómfrúaeyjum myndi hafa fyrir eig-
endur Milestone. Eitt atriðið var til að
mynda hvort færslan á félaginu myndi
fela það í sér að skattskyldar tekjur
mynduðust hjá álitsbeiðendum.
Rökstutt með gagnsæi
Í bréfinu frá Gunnari er þessi beiðni
þeirra Milestone-manna um flutning
á Tortólafélaginu til Íslands rökstudd
með því að auka þurfi gagnsæi í eign-
arhaldi og fjármögnun Milestone og
sagt er að ekkert sé því til fyrirstöðu að
ráðherra innleiði reglugerðina. „Í ljósi
aukinna umsvifa erlendis hafa kröfur
um gagnsæi í eignarhaldi og fjármögn-
un aukist. Er því svo komið að einfalda
þarf eignarhald Milestone ehf. nánar
tiltekið að eignarhaldið sé eingöngu í
gegnum íslenska einstaklinga og lög-
aðila […] Að mati undirritaðs ættu ís-
lensk félög að fagna því að félög, sem
í flestum tilfellum eru eignarhaldsfé-
lög, vilji færa starfsemi sína til Íslands,“
sagði Gunnar í bréfinu.
Gunnar vildi í bréfinu jafnframt
leiðrétta þann misskilning, sem verið
hafði í umræðunni um skattaparad-
ísir, að tekjur félaga í þeim hefðu ekki
verið skattlagðar og að þess vegna væri
óeðlilegt að hleypa þeim með óskatt-
lagt fé heim til Íslands.
Gunnar útskýrði í bréfinu til ráðu-
neytisins að hægt væri að sleppa því
að greiða skatt af arði og söluhagn-
aði eignarhaldsfélaga á ákveðinn hátt.
„Niðurstaðan er því í raun sú að meg-
intekjur eignarhaldsfélaga eru ekki
skattlagðar,“ sagði Gunnar en mat
hans var jafnframt það að ekkert væri
því til fyrirstöðu að ráðherra innleiddi
reglugerðina um félögin frá Bresku
Jómfrúaeyjum.
Aðrar ástæður í minnisblöðum
Aðrar ástæður en gagnsæi og hagur
þjóðarbúsins virðast hins vegar hafa
legið fyrir ætlaðri færslu Leiftra til Ís-
lands, eins og fram kemur í minnis-
blöðum Milestone um Project For-
ward.
Til að mynda kemur það fram í lýs-
ingu á færslunni, sem átti að vera í sex
skrefum, að hún var hönnuð þannig
að eigendur Milestone ætluðu sér
að losna við að greiða skatta af færsl-
unni. „Allar ofangreindar aðgerðir eru
mögulegar án þess að til komi skatt-
greiðsla,“ segir Gunnar á einum stað í
minnisblaðinu „Leiftri heim“ sem DV
hefur undir höndum.
Ein af afleiðingum viðskiptanna
hefði hins vegar verið sú að kross-
eignaskuldir Leiftra í Milestone-
samstæðunni hefðu horfið. Meðal
annars rúmlega 13 milljarða króna
skuld Leiftra við félagið Milestone
limited. Sú skuld Leiftra hefði horf-
ið í einu af þrepunum í færslunni
þar sem Tortólafélagið var samein-
að íslenskum félögum. Líkt og segir
í einu af minnisblöðum Milestone:
„Þetta hverfur þegar Leiftri og MIE
II [Milestone Im port Export II, inn-
skot blaðamanns] verða samein-
uð,“ en breyta átti nafni Milestone
í Leiftra að færslunni lokinni. Af
færslunni til Íslands varð þó aldrei.
UNDIR ÞRÝSTINGI
VEGNA TORTÓLA
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Úr bréfi Gunnars
Gunnarssonar til við-
skiptaráðuneytisins:
„Að mati undirritaðs ættu
íslensk stjórnvöld að fagna því
að félög, sem í flestum tilvikum
eru eignarhaldsfélög, vilji færa
starfsemi sína til Íslands. Forsvars-
menn eignarhaldsfélaga myndu
við flutning til Íslands takast á
hendur skuldbindingar samkvæmt
íslenskum lögum og félögin væru
skattlögð samkvæmt íslenskum
skattalögum. Í umræðum um þessi
mál hefur oft komið fram að tekjur
félaga sem koma frá svokölluðum
skattaparadísum („off-shore”) hafi
ekki verið skattlagðar og vegna
þess sé óeðlilegt að hleypa þeim
með óskattlagt fé heim til Íslands.
Þetta er að mati undirritaðs
rökstuðningur sem ekki á að hafa
áhrif á umræðuna þar sem hann
er á villigötum. Staðreynd er að
megintekjur eignarhaldsfélaga eru
arður og söluhagnaður hlutabréfa
(eignarhluta í félögum) og slíkar
tekjur eru í gegnum svokallaða
„participation exemption” í
flestum löndum Evrópu undan-
þegnar skattlagningu, t.d. á öllum
Norðurlöndum. Á Íslandi kemur
ekki til skattlagningar arðs ef
uppfyllt eru skilyrði 9. tölul. 31.
gr. laga um tekjuskatt og einnig
er heimilt að fresta skattlagningu
söluhagnaðar hlutabréfa, sbr. 5.
mgr. 18. gr. laga um tekjuskatt.
Niðurstaðan er því í raun sú að
megintekjur eignarhaldsfélaga eru
ekki skattlagðar.“
Allar ofangreind-ar aðgerðir eru
mögulegar án þess að til
komi skattgreiðsla.
Þrýstu á ráðherra Gunnar Gunnarsson, yfirmaður lögfræði-
sviðs Milestone, sendi bréf til viðskiptaráðuneytisins um
haustið 2007 þar sem beðið var um að Björgvin G. Sigurðsson
ráðherra myndi heimila samruna einkahlutafélaga frá Bresku
Jómfrúaeyjum við íslensk einkahlutafélög.
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 24. – 25. febrúar 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 23. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 n FYRIRLIÐI BREIÐABLIKS Í VANDA
87 FANGAR
LÁTNIRn TÍUNDI HVER DEYR
„VIÐ FÁUM
AÐ VERA
SAMAN“
KEMST EKKI
INN Í NÝJA
BMW-INN
FRÉTTIR
FRÉTTIR
FÓLK
n MILESTONE ÞRÝSTI Á BJÖRGVIN G. VEGNA TORTÓLA
n HÖRÐUR HEIMIR SIGURÐSSON
BARÐIST Í ÁR EN GAFST SVO UPP
n VAR Á GANGI VIÐ LAUGAVEG
ÞEGAR HUMMER VAR EKIÐ Á HANN
n FAÐIRINN SYRGIR: „HANN VAR DUG-
LEGUR, KAPPSAMUR OG JÁKVÆÐUR“
n FJÖLSKYLDAN ÍHUGAR AÐ HÖFÐA
EINKAMÁL GEGN BÍLSTJÓRANUM
HARMLEIKURINN Á LAUGAVEGI:
„STRÁKURINN
MINN ER
DÁINN“
EINAR SVEINSSON
YFIRHEYRÐUR
Hörður Heimir
Sigurðsson
Fæddur:
3. júní 1982
Dáinn:
20. febrúar 2010
FENGU 4
MILLJARÐA
Í ARÐ n TÖPUÐU SVO42 MILLJÖRÐUM
VELDU
ÁVEXTI
RÉTT
TILBOÐ GILDIR TIL 28. FEBRÚAR 2010 Í SAL OG SÓTTGRENSÁSVEGI 10 HRAUNBÆ 121 www.rizzo.is
NEYTENDUR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
ERTU
MATAR-
FÍKILL?
10 MÁNUDAGUR 22. febrúar 2010 FRÉTTIR
Starfsmenn Milestone og makar
þeirra fóru í þriggja daga lúxus-
siglingu um Miðjarðhafið á stórri
snekkju sumarið 2006. Lagt var
upp frá Napólí á Suður-Ítalíu og
siglt um Miðjarðarhafið og áð í
stuttan tíma á nokkrum stöðum
áður en siglt var aftur til ítölsku
borgarinnar. Snekkjan sem siglt
var á var leigð og er að öllum lík-
indum frönsk þar sem franski
þjóðfáninn blakti við hún á fley-
inu meðan á siglingunni stóð.
Einn af gestunum sem var í
siglingunni segir að ferðin hafi
verið góð. „Þetta var virkilega
skemmtilegt,“ segir gesturinn en
hann vill ekki láta nafn síns getið.
„Þetta var ferð sem starfsmönn-
um Milestone og dótturfélaga var
boðið í,“ segir gesturinn en af orð-
um hans að dæma var það Mile-
stone sem greiddi fyrir ferðina.
Glaðværð og áhyggjuleysi
Vel fór um Milestone-fólkið á sigl-
ingunni, líkt og myndirnar sýna,
og var þjónustufólk um borð sem
þjónaði þeim meðan á ferðinni
stóð.
Á myndunum sést Milestone-
fólkið meðal annars að snæðingi
á þilfari snekkjunnar: sólin skín
í heiði, rækjur með majonessósu
virðast hafa verið bornar á borð
og vatn og vín sést í glösum. Yfir
myndunum hvílir glaðværð og
áhyggjuleysi: Milestone-fólkið er
að slaka vel á og njóta lífsins sam-
an í sólinni í suðrinu enda fátt sem
benti til þess að íslenska efnahags-
hrunið væri á næsta leyti. Íslensku
kaupsýslumennirnir eins og þeir
Milestone-menn voru ennþá tald-
ir vera galdramenn sem búið gátu
til peninga nánast úr loftinu.
Kúrðu og léku sér í búningum
Á nokkrum myndum sjást farþeg-
arnir á snekkjunni kúra saman
undir hvítum teppum á mjúkum
beddum á þilfari skipsins. Myrkr-
ið er skollið á og himinninn er
stjörnubjartur, værðin var kom-
in yfir farþegana sem flatmöguðu
á beddunum og héldu utan um
maka sína.
Á þilfari snekkjunnar var heit-
ur pottur en engar myndir eru af
Mile stone-fólkinu að lauga sig
í honum. Hvítvínsglas sést hins
vegar hálffullt og síðar tómt á
bakkanum á pottinum á meðan
eiginkonurnar bronsa sig á bikin-
íum í Miðjarðarhafssólinni.
Aðrar myndir sýna Milestone-
fólkið bregða á leik og klæða sig
upp í grímubúninga eða einhvers
konar dulargervi: Guðmundur
Ólason, forstjóri Milestone, er
með gerviyfirvaraskegg og hatt,
Þór Sigfússon er með gerviskegg
og hálsklút og eiginkonurnar eru
í alls kyns furðulegum búning-
um.
Af myndunum að dæma er
því ekki nema von að gaman hafi
verið í ferðinni, líkt og gesturinn
ónafngreindi segir enda virðist
ekkert hafa skort í aðbúnaðinum
um borð í snekkjunni. Myndirn-
ar eru enn ein staðfestingin á því
hversu gaman var hjá íslenska út-
rásarfólkinu á góðæristímunum
fyrir hrunið en jafnframt hversu
aðstæður þess hafa breyst síðan
þetta var.
Á SNEKKJU MILESTONE
Starfsmenn Milestone og makar þeirra fóru í þriggja daga
siglingu um Miðjarðarhafið sumarið 2006. Myndirnar frá ferð-
inni sýna að ekki væsti um Milestone-mennina. Þeir áttu kósí
stundir undir teppi, brugðu á leik í grímubúningum, borðuðu
góðan mat og nutu samvista hver við annan.
Steingrímur og frú Steingrímur Werners-
son sést hér ásamt konu sinni, Dina Akhmetz-
hanovu, um borð í snekkjunni. Steingrímur
hefur átt við erfið veikindi að stríða síðustu ár.
Kósí stemning Stemningin á Milestone-skútunni var afar kósí. Þeir Milestone-menn hreiðruðu um sig á þilfari snekkjunnar ásamt mökum sínum og nutu siglingarinnar. Stundin endaði á því að allir fóru undir teppi. Karl Wernersson, Jóhannes Sigurðsson, Guðmundur Ólason og Þór Sigfússon sjást hér slaka á.
Við borð Milestone Karl Wernersson,
Jóhannes Sigurðsson og Þór Sigfússon sjást hér
við borð á þilfari snekkjunnar ásamt nokkrum
mökum starfsmanna Milestone. Á boðstólum
voru rækjur og sést Þór kreista sítrónu yfir sínar.
Þjónústustúlka sést á bak við Jóhannes.
Brugðið á leik Af myndunum
frá snekkjunni að dæma virðast
Milestone-menn hafa brugðið á leik í
siglingunni og klætt sig í grímubún-
inga. Guðmundur Ólason sést hér
með pípuhatt og yfirskegg.
Engin smásmíði Snekkjan sem siglt var á var
engin smásmíði, líkt og sést á þessari mynd.
Snekkjan sést hér í Napólí-höfn. Hún mun hafa
verið leigð fyrir siglingu þeirra Milestone-manna.
Franskur fáni var á snekkjunni.
Á snekkju Milestone Þór Sigfússon, Guðmundur
Ólason og Karl Wernersson sjást hér á þilfari
Mile stone-snekkjunnar á Miðjarðarhafinu árið 2006.
Með þeim í för eru eiginkonur nokkurra starfs-
manna Milestone. Í baksýn sést önnur snekkja.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Þetta var virkilega skemmtilegt.
Bræðurnir Karl og Steingrímur
Wernerssynir, eigendur lyfjaversl-
ananna Lyfja og heilsu, komust að
samkomulagi við Íslandsbanka í
mars 2009 að bankinn tæki hlutabréf
þeirra í verslunum að veði vegna úti-
standandi skuldar þeirra við bank-
ann sem stofnað var til árið 2004.
Félagið Aurláki heldur utan um
hlutabréf þeirra bræðra í lyfjaversl-
unum en það keypti Lyf og heilsu af
öðru félagi í þeirra eigu, L&H Eign-
arhaldsfélaginu, í lok mars 2008 fyrir
rúma 3,4 milljarða króna. Skuld Aur-
láka við Íslandsbanka nemur líklega
um 3 milljörðum.
Skiptastjóri þrotabús Milestone,
Grímur Sigurðsson, skoðar nú hvort
hægt sé að rifta sölunni á hlutabréf-
um L&H Eignarhaldsfélags til Aur-
láka á þeim forsendum að félagið
hafi ekki verið gjaldfært á þeim tíma
sem viðskiptin áttu sér stað og að því
hafi salan snúist um að koma eign-
um undan búinu. L&H Eignarhalds-
félag var dótturfélag Milestone. Lyf
og heilsa eru eina eignin sem eftir er
í viðskiptaveldi þeirra Wernerssona
en meðal þess sem þeir hafa misst frá
bankahruninu 2008 eru Sjóvá, Askar,
Avant og eignarhlutur í Glitni.
Aurláki greiddi ekkert fyrir Lyf
og heilsu heldur tók félagið yfir 2,5
milljarða skuld L&H Eignarhalds-
félags við Glitni, sem í dag heitir Ís-
landsbanki, auk þess sem 900 millj-
ónir voru greiddar með skuldajöfnun
með viðskiptakröfum sem keyptar
voru í skattaskjólinu Seychelles-eyj-
um. Í kaupsamningnum á milli L&H
Eignarhaldsfélags og Aurláka kom
fram að fyrrnefnda félagið veitti því
síðarnefnda seljendalán sem greið-
ast skyldi „við fyrsta hentugleika“.
Þessi upphæð var svo greidd með
áðurnefndri skuldajöfnun.
Bankinn mun líklega tapa
Ef viðskiptunum verður rift mun
þrotabú Milestone eignast fjárkröfu
á hendur Aurláka sem nemur kaup-
verðinu á Lyfjum og heilsu, rúmlega
3,4 milljörðum króna. Þar sem Aur-
láki, sem stofnað var gagngert til þess
að kaupa Lyf og heilsu af L&H Eign-
arhaldsfélagi árið 2008, á ekki aðrar
eignir, svo vitað sé, en Lyf og heilsu
má því áætla að þrotabú Milestone
muni þurfa að leysa til sín hluta-
bréf Aurláka til að fá fjármuni upp í
kröfu sína á hendur félaginu. Þrota-
búið mun svo líklega selja lyfjaversl-
anirnar.
Sú þróun myndi hins vegar leiða
til þess að Íslandsbanki myndi ekki
fá neitt upp í um þriggja milljarða
kröfu sína á hendur Aurláka þar
sem þrotabúið væri búið að leysa til
sín hlutabréfin sem bankinn á veð í.
Því myndi bankinn þurfa að afskrifa
kröfu sína á hendur Aurláka.
Ljóst er að annaðhvort tapar
þrotabú Milestone - Lyf og heilsa var
selt út úr Milestone-samstæðunni
án þess að greiðsla hefði komið fyrir
lyfjaverslanirnar - eða bankinn sem
lánaði fyrir kaupunum á Lyfjum og
heilsu og tók veð í bréfunum.
Færði lánið til Aurláka
Ástæðan fyrir því að Aurláki, skuld-
ar Íslandsbanka þessi fjármuni er sú
að félagið tók yfir skuldir L&H Eign-
arhaldsfélags 31. mars 2008, sama
dag og Aurláki keypti Lyf og heilsu
af L&H Eignarhaldsfélagi. Skuld-
in þá nam rúmum 2,3 milljörðum
króna en L&H hafði stofnað til henn-
ar 8. júlí 2004 og var það lán til fimm
ára. Lánið nam upphaflega rúmum 2
milljörðum króna og var í erlendum
myntum.
Eftir því sem næst verður komist
fékk L&H Eignarhaldsfélag lánið frá
Íslandsbanka árið 2004 til að kaupa
Lyf og heilsu. Ólíkt öðrum lánum til
Milestone-samstæðunnar var það
lán hins vegar fært yfir til Íslands-
banka, eftir bankahrunið en varð
ekki eftir inni í þrotabúi gamla bank-
ans, Glitnis, líkt og gilti um önnur lán
félagsins.
Undir skuldayfirfærsluna 31.
mars 2008 skrifuðu lögmaðurinn
Jóhannes Sigurðsson, aðstoðarfor-
stjóri Milestone, og Guðmundur
Hjaltason, starfsmaður Glitnis, en
hann skrifaði undir nánast alla lána-
pappíra sem snertu Milestone fyrir
hönd Glitnis. Guðmundur var síðar,
á sumarmánuðum 2008, rekinn frá
Glitni og réð hann sig til Milestone
eftir það. Ástæðan fyrir því var meðal
annars sú að aðkoma Guðmundar að
lánveitingum til Milestone þótti ekki
eðlileg.
Þegar þessi lánasamningur frá
2004 rann út í fyrra þurftu Karl og
Steingrímur Wernerssynir að end-
urnýja lánasamninga við Glitni og
leggja fram haldbær veð. Þetta var
gert með því að veðsetja bréf Aurláka
í Lyfjum og heilsu sem líkast til voru
tekin út úr Milestone með ólögmæt-
um hætti.
FRÉTTIR 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 11
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is ISK 896.457.408 skal fært sem
viðskiptaskuld milli
kaupanda og seljanda
og greiðast við fyrsta
hentugleika.
FENGU FYRIRGREIÐSLU
FRÁ ÍSLANDSBANKA
Karl og Steingrímur Wernerssynir veðsettu hlutabréf sín í Lyfjum og heilsu hjá Ís-landsbanka í mars í fyrra. Reikna má með að eignarhaldsfélag þeirra, Aurláki, skuldi Íslandsbanka um 3 milljarða króna í dag. Skiptastjóri Milestone skoðar hvort hægt sé að rifta kaupum Aurláka á Lyfjum og heilsu. Þá má áætla að bankinn þurfi að afskrifa kröfuna á hendur Aurláka.
Skrifuðu undir Jóhannes Sigurðsson og Guðmundur Hjaltason skrifuðu undir yfirfærsluna á skuldum á L&H Eignarhaldsfélags við Glitni yfir til Aurláka í lok mars 2008. Skiptastjóri Milestone skoðar nú hvort rifta eigi viðskiptunum.
Bréfin veðsett hjá Íslandsbanka
Hlutabréf Aurláka voru veðsett hjá
Íslandsbanka í mars í fyrra til tryggingar
fyrir um 3 milljarða króna skuldum Wern-
ersbræðra við bankann. Karl Wernersson
var aðaleigandi Milestone og Guðmundur
Ólason var forstjóri félagsins.
2 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 FRÉTTIR
Hádegistilboð á hollustu
990 kr.
Allir réttir
Á næstu grösum Laugavegi 20b
Opið mán - lau 11:30 - 22:00, sun 17:00 - 22:00
FLUGSYND
HREINDÝR
„Þetta byrjaði í fyrravetur þegar
hreindýr hafðist við í eyju sem kallast
Hellir. Síðan voru komin dýr í Mikl-
ey í haust. Auk þess hafa verið um 15
dýr hérna á Ægissíðunni sem liggur
við austurenda bæjarins. Þau leita
stundum inn í bæinn og má segja
að þau fari alla leið upp að bakgörð-
um hjá fólki þegar mest lætur,“ segir
Björn Gísli Arnarson, safnvörður hjá
Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Bæjarbúar í Höfn í Hornafirði hafa
undanfarið séð hreindýr úti í eyj-
unum á Skarðsfirði sem liggja fyrir
utan bæinn. Þangað hafa dýrin synt
en hreindýr eru gríðarlega sundfim
að eðlisfari. Djúpir álar liggja á milli
lands og eyjanna á sumum stöðum.
Rán Halldórsdóttir, líffræðingur
hjá Náttúrustofu Austurlands segir
vel þekkt að hreindýr séu afar sund-
fim dýr. Þau séu þó miklu þekktari
fyrir að synda yfir ár inni í landi en
fyrir að synda á milli eyja í söltum
sjó.
Leita ævintýra í eyjunum
„Hreindýrin hafa verið í eyjum og
innan um rollurnar á Ægissíðunni
og alveg inni í bænum á stundum,“
segir Björn Gísli Arnarson en hann
er safnvörður hjá Menningarmið-
stöðinni á Höfn, en þar er með-
al annars rekið náttúrugripasafn.
Hann segir að Hornfirðingar hafi
orðið varir við dýrin í Mikley, en
það er stór eyja sem liggur nálægt
bæjarstæðinu. Þá hafi hreindýrin
sést á ráfi við tjaldsvæði bæjarins
sem veki oft dálitla furðu og kátínu
á meðal bæjarbúa.
Í Mikley voru starfræktar ver-
búðir fyrr á tíðum. Nú mótar fyr-
ir rústum húsanna er áður stóðu á
eynni. Á eynni er þó ekki úr miklu
að moða en þar er þó eitthvert gras-
lendi. „Menn beita þarna á sumr-
in með sauðfé. Hreindýrin eru eitt-
hvað að narta þarna en það virðist
þó ekki mikið að hafa þarna fyr-
ir þau,“ segir Björn. „Ég hef aldrei
heyrt skýringu á því hvers vegna
dýrin leita til eyjanna, þau eru
kannski í ævintýraleit. Sagt er að
tarfarnir vilji vera einir á veturna.
Manni skilst að þetta séu vel synd
dýr og ég hef oft séð þau úti á leirun-
um hér úti við.
Skemmtileg dýr
Björn segir sambýli Hornfirðinga og
hreindýranna ganga vel. „Ég hef ekki
orðið var við að fólk byrsti sig yfir
þeim en dýrunum yrði eflaust stugg-
að ef þau væru komin í húsgarða og
stæðu þar að laga runnana. En það
hefur ekki reynt á það enn þá.“
Björn segir að mjög gaman sé að
búa í þessu nána sambýli við hrein-
dýrin. „Hreindýr eru mjög skemmti-
leg dýr og það er mikið af þeim hér
austur í Lónum og vestur á Mýrum
og Nesjum. Svo er þetta mjög túrista-
vænt. Hreindýrin bíða í vegkantinum
eftir ferðamönnunum og í bakgörð-
unum,“ segir hann og nefnir að er-
lendir ferðamenn sæki Höfn í Horna-
firði og Suðaustur-landið í auknum
mæli á veturna. Ferðamennirnir virði
fyrir sér norðurljósin og lítist auðvitað
vel á að sjá hreindýrin líka.
Náttúruleg björgunarvesti
Rán Þórarinsdóttir, hjá Náttúrustofu
Austurlands, segir að hreindýr séu
af náttúrunnar hendi mjög sundfim
dýr. „Þau fljóta mjög vel og fara jafn-
vel yfir jökulár á vorin með nokkurra
daga gamla kálfa. Hreindýr eru mjög
vel einangruð af hárunum sem eru
hol að innan. Þetta myndar hálfgert
björgunarvesti utan um skrokkinn
og kuldinn fær því ekki á þau. Látin
hreindýr sjást fljóta í vatni, sem önn-
ur húsdýr gera ekki,“ segir Rán og
bætir við að á Íslandi verði ekki sér-
staklega vart við hreindýr á sumrin
þar sem stórir farartálmar hefti þeim
ekki för. „En annars staðar í heim-
inum, þar sem farleiðir þeirra eru
jafnvel nokkur hundruð kílómetrar,
þurfa þau að fara yfir mörg stórfljót.
Jökulárnar okkar blikna í saman-
burði við þau.“
Ég hef aldrei heyrt skýringu
á því hvers vegna dýrin
leita til eyjanna, þau eru
kannski í ævintýraleit.
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Hafast við í eyjum Dýrin virðast kunna vel við sig í eyjunum sem umlykja Horna-
fjarðarkaupstað. MYND: BJÖRN GÍSLI ARNARSON
Sækja í sjóinn Hreindýrin
við Hornafjörð synda glöð í
hafinu í kringum bæinn.
MYND: BJÖRN GÍSLI ARNARSON