Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 FRÉTTIR
Smíðum allar gerðir
lykla , smíðum og
forritum bíllykla.
Verslun og verkstæði
Grensásvegi 16
Sími: 511 5858
HEIÐUR INGIBJARGAR
n Samfylkingarfólk í Reykjavík virðist
ekki hafa miklar áhyggjur af væntan-
legri birtingu á
skýrslu rann-
sóknarnefndar
um hrunið. Í það
minnsta er Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur stillt
upp í heiðurssæt-
ið á listanum, því
þrítugasta og síð-
asta. Ljóst má vera að eitthvað verður
fjallað um embættisfærslu ráðherr-
ans fyrrverandi sem hefur lítið viljað
tjá sig við fjölmiðla um hrunið eftir
starfslok á Alþingi. Samfylkingarfólk
hlýtur því að vona að Ingibjörg Sólrún
fái ekki harðar umsagnir í skýrslunni
sem gætu varpað skugga á manneskj-
una í heiðurssætinu.
ÞEFVÍSIR HESTAR
n Forsíðufrétt Fréttablaðsins á mið-
vikudag vakti athygli sumra, enda
ekki á hverjum degi sem fjallað er
um þefhesta, eða
hesta sem geta
þefað uppi týnt
fólk. Reyndar
greinir menn á
um hversu gagn-
legir hestar séu
til slíkra verka.
Þannig efast
Jónas Kristjáns-
son, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðs-
ins auk fleiri miðla, um gildi frétta-
rinnar. Jónas er auðvitað hestamaður
frá fyrri tíð og var um skeið útgáfu-
stjóri Eiðfaxa. Hann viðurkennir þó
að hann viti ekki allt um hesta. „Hef
lítið vit á hestum, enda á ég svo fáa að
ég get talið þá.“
ENGAR AFSAKANIR
n Guðmundur Óskarsson kom mörg-
um á óvart þegar hann fékk tilnefn-
ingu til Íslensku bókmenntaverð-
launanna og hlaut þau síðan fyrir bók
sína Bankster. Sú verðlaunaveiting
jók áhuga á bók hans til muna, eins og
gefur að skilja, en sjálfur hefur hann
verið hógvær í yfirlýsingum um verk
sín og störf. Viðurkenningin hefur þó
meiri áhrif en þau sem verðlaunaféð
og aukin sala hafa í för með sér. Eða
eins og hann segir í viðtali á vefnum
Miðjunni: „Nú get ég hætt að útskýra
og afsaka hvað ég hef verið að gera
einn á kvöldin heima hjá mér undan-
farin ár.“
SKAMMAR HÖNNU
BIRNU
n Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi F-lista, fer enn mikinn vegna
ferðalaga borgarfulltrúa. Á fimmtu-
dag fékk hann svar við fyrirspurn um
ferðakostnað borgarfulltrúa og komst
að þeirri niðurstöðu að á meðan flest-
ir hefðu skorið niður í ferðalögum
sínum í fyrra hefði borgarstjórinn,
Hanna Birna Kristjánsdóttir, aukið
við ferðalög sín. Kjartan Magnússon
hefur þó enn verið dýrastur í ferða-
lögum, kostnaður vegna hans nemur
3,7 milljónum á kjörtímabilinu.
SANDKORN
Alls gefa 25 af þeim 63 þingmönn-
um sem nú eiga sæti á Alþingi ekki
upp neina fjárhagslega hagsmuni
á vef Alþingis. Þar að auki eru 12
þingmenn til viðbótar sem ein-
göngu gefa upp hagsmuni á borð
við þáttöku í sveitarstjórnarstarfi og
frístundahúsaeign. Ríflegur meiri-
hluti þingmanna er því í þeim hópi
á Alþingi sem ýmist telur sig hafa
mjög litla hagsmuni utan þingsins
eða hugsanlega leynir hagsmunum
sínum. Þeirra á meðal eru þing-
menn sem hafa sjálfir eða makar
þeirra verið í fararbroddi í íslensku
viðskiptalífi. Reglur Alþingis, sem
settar voru á seinasta ári, um hags-
munaskráningu þingmanna ná
hins vegar ekki til maka eða fjöl-
skyldu þingmanna. Þannig geta
nánustu aðstandendur þingmanna
staðið í stórræðum í viðskiptalífinu
án þess að þingmaður tilgreini það
sem hagsmuni sína.
Enginn kannast við styrki
Reglur um fjárhagslega hagsmuni
utan þings kveða á um að þingmenn
verði að gefa upp launaða stjórnar-
setu í félögum. Þá eiga þeir að til-
greina starfsemi sem er unnin sam-
hliða þingmennskunni og þeir, eða
félag sem þeir sjálfir eru hluthafar í,
hafa tekjur af.
Þeir verða einnig að tilgreina
fjárframlag eða stuðning frá lögað-
ilum og einstaklingum, sem fellur
utan þess stuðnings sem Alþingi eða
flokkar láta þingmönnunum í té.
Skrá verður hver veitir stuðninginn
og hvers eðlis hann er. Þetta á hins
vegar ekki við um styrki sem þing-
menn fengu áður en reglurnar tóku
gildi. Enginn þeirra þingmanna
sem upplýst hefur verið að hafi þeg-
ið milljóna styrki frá risafyrirtækjum
á borð við Baug, Landsbankann og
FL Group, hefur tilgreint slíka styrki
fyrir prófkjörs- eða framboðsbaráttu
í fortíðinni.
Þá verða þingmenn að skrá gjafir
sem þeir fá vegna setu á Alþingi þeg-
ar verðmæti þeirra er yfir 50 þúsund
krónum. Þingmenn þurfa hins veg-
ar ekki að taka fram mögulega hags-
munaárekstra vegna fjölskyldu-
tengsla eða vegna maka sinna.
Margir hafa hagsmuni
Mörg dæmi eru um að þingmenn
kunni að hafa beina eða óbeina
hagsmuni af málum sem koma
fyrir þingið. Þannig gefur Magn-
ús Orri Schram upp fjórðungshlut
í litlu víninnflutningsfyrirtæki.
Óhjákvæmilega myndi umræða á
Alþingi um sölu léttvíns og bjórs
í matvöruverslunum snerta hags-
muni hans. Ólöf Nordal er gift for-
stjóra Alcoa á Íslandi. Umræða um
málefni álvera snertir því hags-
muni eiginmanns hennar. Hún
þarf hins vegar ekki að gefa upp
þessa tengingu. Sömuleiðis snert-
ir umræða um orkumál á Alþingi
hagsmuni Bjarna Benediktssonar,
en fjölskylda hans er stærsti eig-
andi olíufélagsins N1, hið sama
gildir um Bjarna að hann þarf ekki
að gefa upp þessi tengsl.
Gefur upp hesthús en ekki
skuldir
Mörg dæmi eru um að hagsmuna-
skráning á alþingisvefnum gefi
ekki endilega rétta mynd af hags-
munum þingmanna. Í reglum um
hagsmunaskráningu segir: „Eftir-
gjöf eftirstöðva skulda og ívilnandi
breytingar á skilmálum samnings
við lánardrottin. Skrá skal lána-
drottin og eðli samningsins.“ Eng-
inn þingmaður skráir hins vegar
skuldaafskriftir.
Þannig gefur Tryggvi Þór Her-
bertsson aðeins upp þriðjungshlut
í sumarhúsi í Mjóafirði eystri og 3
bása í hesthúsi í Víðidal. DV hefur
hins vegar greint frá því að á sama
tíma og hann sinnti störfum sem
efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinn-
ar sumarið 2008, hafi hann einn-
ig þegið laun frá Askar Capital.
Hann átti jafnframt mörg hundruð
milljónir undir í kúluláni frá sama
banka og Glitni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, eiginkona Kristjáns Arasonar
sem fékk niðurfelldar persónuleg-
ar ábyrgðir á um það bil milljarðs
króna láni frá Kaupþingi, gefur
sjálf upp að hún eigi hluta í jörð í
Ölfusi, hlut í hesthúsi í Hafnarfirði
og hlut í íbúð í sama bæ, að auki sé
hún stuðningsmaður FH í íþrótt-
um. Ekki er minnst á þá fjárhags-
legu hagsmuni sem hjónin eiga
undir hjá skilanefnd Kaupþings.
LEYNDIR HAGSMUNIR
Tuttugu og fimm þingmenn segjast ekki hafa neina hagsmuni utan Alþingis. Tólf
til viðbótar gefa aðeins upp hagsmuni á borð við þátttöku í sveitarstjórnarstarfi og
sumarhúsaeign. Þingmenn þurfa ekki að telja það til hagsmuna sinna að hafa feng-
ið risastyrki í fortíðinni eða að makar þeirra séu í fararbroddi viðskiptalífsins.
VALGEIR ÖRN RAGNARSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Árni Johnsen. Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Birgir Ármanns-
son.
Birgitta
Jónsdóttir.
Björgvin G.
Sigurðsson
Guðbjartur
Hannesson
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Guðmundur
Steingrímsson
Helgi Hjörvar Höskuldur
Þórhallsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
Jón Bjarnason Katrín Jakobs-
dóttir
Katrín Júlíusdóttir Kristján L. Möller Ólína Þorvarðar-
dóttir
Ragnheiður E.
Árnadóttir
Róbert Marshall Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Þuríður Backman Össur
Skarphéðinsson
Vigdís
Hauksdóttir
Svandís
Svavarsdóttir
ÞAU SEGJAST ENGA HAGSMUNI HAFA
ÞAU SEGJAST HAFA LITLA HAGSMUNI
Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir Segist enga
hagsmuni hafa nema vera
formaður skólanefndar
Framhaldsskólans í
Mosfellsbæ.
Árni Þór Sigurðsson
Gefur aðeins upp sumar-
bústað og stjórnarsetu í
nefndum og söfnum.
Skúli Helgason Gefur
ekkert upp nema for-
mennsku Hollvinasamtaka
Minnesota-háskóla.
Ásmundur Einar
Daðason Gefur aðeins
upp þátttöku í sveitar-
stjórn Dalabyggðar og
stjórnarsetu í tveimur
félögum sauðfjárbænda.
Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir Gefur ekkert
upp nema fomennsku
stjórnar Tæknigarðs ehf.
Birkir Jón Jónsson
Gefur aðeins upp setu í
bæjarstjórn Fjallabyggðar.
Tryggvi Þór Herberts-
son Segist ekki hafa
neina hagsmuni nema
þriðjungshlut í sumarhúsi
í Mjóafirði eystri og 3 bása
í hesthúsi í Víðidal.
Bjarni Benediktsson
Aðeins seta í skipulags-
nefnd Garðabæjar.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir Segist
aðeins hafa hagsmuni í
jörðinni Ytri- Þurá í Ölfusi,
sem hún á í sameign með
systur sinni. Að auki á hún
hlut í hesthúsi í Hafnarfirði
og hlut í íbúð í bænum.
Hún tilgreinir að hún haldi
með FH.
Gunnar Bragi Sveins-
son Gefur upp setu í
sveitarstjórn Skagafjarðar.
Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir Tók sæti í stjórn
Vesturfarasetursins vorið
2009.
Margrét Tryggvadóttir
Á aukaíbúð í húsinu sínu.
Mörg dæmi eru um að hags-
munaskráning á al-
þingisvefnum gefi ekki
endilega rétta mynd
af hagsmunum þing-
manna.