Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 34
F Ö S T U DAG U R 26 . FEB R ÚAR 201034
MP3-hátalarar
n „Það er alltaf meiri og meiri áhersla á MP3
spilara. Nú eru það aðallega MP3-hátalararn-
ir sem fólk sækist eftir. Það eru hátalarar sem
þú getur tengt spilarann við,“ segir Óttar Örn.
Ódýrustu græjurnar kosta um þrjú þúsund en
fullkomnar græjur með MP3-spilaranum má
kaupa á meira en eitt hundrað þúsund krón-
ur. Óttar segir að þetta sé ein vinsælasta gjöf-
in í ár og henti bæði þeim sem vilji gefa ódýra
gjöf en einnig dýrari og veglegri gjöf.
Playstation 3
n Playstation-tölvan er alltaf jafnvinsæl að
sögn Óttars. Salan hefur haldist stöðug þrátt
fyrir efnahagshrunið, ólíkt því sem gerist með
önnur raftæki. Playstation 3 vélin kostar um
75.000 krónur og er afar vinsæl, sérstaklega hjá
drengjum. Leikir í Playstation eru einnig vin-
sæl og vegleg gjöf að sögn Óttars, en nýr leikur
kostar á bilinu 10 til 12.000 krónur.
Sjónvarpsflakkari
n Sjónvarpsflakkarar eru þannig úr garði gerðir að þeir geta
spilað kvik- eða ljósmyndir á sjónvarpsskjá. Þannig geta þeir
sem eiga myndir á tölvutæku formi horft á þær í sjónvarpinu.
Ódýrasti sjónvarpsflakkarinn í Elko kostar 17.900 krónur, að
sögn Óttars.
Rakvélar
n Færst hefur í vöxt að fólk gefi fermingarbörnum rakvélar að
sögn Óttars. Þær fást bæði fyrir dömur og herra og kosta frá
3.000 krónum. Hægt er að kaupa veglegri vélar, með öllu, á
ríflega 18.000 til 29.000 krónur.
Rafmagnstannbursti
n Óttar segir að ekki sé óalgengt að fólk kaupi rafmagnstann-
bursta handa fermingarbörnum. Slík græja kostar á bilinu
1.500 til 25.000 krónur.
MP3-hátalarar
ERU VINSÆLASTIR
GPS-göngutæki, Playstation-tölvur, sjónvarpsflakkarar, rakvélar fyrir bæði kyn og jafnvel rafmagnstannburstar
eru á meðal þess sem fólk kaupir handa fermingarbörnum í ár. Óttar Örn Sigurbergsson, staðgengill fram-
kvæmdastjóra í Elko, segir að kauphegðun fólks hafi breyst og fleiri kaupi nú ódýrari gjafir. DV fékk að vita hver
eru vinsælustu raftækin fyrir fermingarbörn í Elko. baldur@dv.is
Rafsnyrtivörur
n Plokkarar, sléttujárn, hárblásarar og naglasnyrti-
sett eru vinsælar gjafir handa stúlkum sem eru að
fermast.
Myndavélar
n Myndavélar og videóupptökuvélar eru
vinsælar og veglegar gjafir. Myndavél-
ar kosta á bilinu 20.000 til 320.000 krón-
ur. Fyrir þá sem hafa ekki slíkt fjármagn á
reiðum höndum er hægt að kaupa alls kyns
aukahluti fyrir myndavélarnar; töskur, þrí-
fætur, linsur eða myndvinnsluforrit, svo
eitthvað sé nefnt.
Fartölvur
n Fartölvur er sívinsælar. Þær eru þó
ekki á hvers manns færi enda kosta
fartölvur að lágmarki 90.000 krónur.
Ef barnið á tölvu má gefa tösku eða
annan aukabúnað.
GPS-tæki
n GPS-tækið var valin jólagjöf
ársins fyrir fáeinum árum. Óttar
segir að nú séu tækin vinsæl hjá
ungu kynslóðinni, sérstaklega
hjá þeim sem stunda útiveru eða
ferðast erlendis. Þá getur verið gott
að hafa þetta öfluga öryggistæki
við höndina. GPS er ýmist á stærð
við GSM-síma eða jafnvel stórt
armbandsúr og kostar frá 12.000
krónum.
Farsími
n GSM-síma fyrir fermingarbarnið er hægt að
kaupa fyrir 6.500 krónur. Þeir sem hafa meiri
fjárráð geta valið úr fjölmörgum tegundum síma.
Dýrustu símarnir eru iPhone. Þeir kosta upp undir
160.000 krónur og eru ekkert slor.