Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 HELGARBLAÐ
Steindór fæddist að Steinum und-
ir Austur-Eyjafjöllum og ólst þar upp
í foreldrahúsum. Hann fór til Vest-
mannaeyja ungur maður og starf-
aði þar m.a. hjá Lifrarsamlaginu og
hjá Slökkviliði Vestmannaeyja. Þá
hóf hann ungur að gera við bifreiðar
og aðrar vélar og stundaði viðgerðir í
Vestmannaeyjum. Auk þess var hann
línumaður hjá Landssímanum af og
til á sumrin og vann þá við símalagnir
víða um land.
Steindór flutti til Reykjavíkur 1939.
Hann lauk bifreiðaprófi í Vestmanna-
eyjum og hinu meira prófi þar 1929.
Hann stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk sveinsprófi í bifvéla-
virkjun 1946.
Steindór hóf störf hjá Landleiðum
í Reykjavík og starfaði þar við viðgerð-
ir á rútum fyrirtækisins á verkstæði
þess við Suðurgötu í Reykjavík.
Steindór var alla tíð mjög bók-
hneigður, þekkti land sitt og sögu vel
og var hafsjór af ýmsum þjóðlegum
fróðleik.
Fjölskylda
Kona Steindórs var Þórunn Ólafía
Benediktsdóttir, f. 24.6. 1912, d. 28.5.
1964, húsmóðir. Þórunn var dótt-
ir Benedikts Einarssonar og Jónínu
Guðmundsdóttur.
Börn Steindórs og Þórunnar eru
Grímur Marínó Steindórsson, f. 25.5.
1933, listamaður í Kópavogi, og eru
börn hans Gríma Sóley Grímsdótt-
ir, f. 9.6. 1974, og Jón Þór Grímsson,
f. 27.4. 1975; Dóra Steindórsdóttir,
f. 28.11. 1934, fyrrv. dagmóðir, bú-
sett í Reykjavík en maður hennar er
Þorvaldur Ingólfsson, fyrrv. starfs-
maður í Straumsvík, og eru börn
þeirra Steinunn Þorvaldsdóttir, f.
12.12. 1954, starfsmaður við heima-
hjúkrun, Inga Hrönn, f. 21.3. 1960,
hárskeri; Hrafn Steindórsson, f. 8.1.
1944, leigubifreiðastjóri í Reykjavík,
kvæntur Margréti Johnsen og er son-
ur þeirra Jón Hlöðver Hrafnsson, f.
6.8. 1962, rannsóknarlögreglumaður
á Selfossi.
Systkini Steindórs eru öll látin.
Þau voru Einar Jónsson, símvirki í
Reykjavík; Guðjón Jónsson, skip-
stjóri í Vestmannaeyjum; Magnús
Jónsson, dó ungur; Bergþóra Jóns-
dóttir, húsmóðir á Reykjum í Vest-
mannaeyjum; Sigurjón Jónsson,
leigubifreiðastjóri í Reykjavík; Guðni
Jónsson, útgerðarmaður í Keflavík,
faðir Karls Steinars, fyrrv. alþm. og
forstjóra Tryggingastofnunar ríkis-
ins; Guðmundur Jónsson, dó ungur.
Foreldrar Steindórs voru Jón Ein-
arsson, bóndi í Steinum undir Aust-
ur-Eyjafjöllum, og Jóhanna Magnús-
dóttir húsfreyja.
Ætt
Jón var bróðir Sigurveigar, ömmu
Guðmundar verkfræðings og Jó-
hannesar Einarssonar sem var for-
stjóri Cargolux. Jón var sonur Einars,
b. á Steinum Jónssonar, og Sigur-
veigar Einarsdóttur, b. í Kerlingardal
í Mýrdal, bróður Þorsteins, langafa
Steinunnar, langömmu Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra. Einar
var sonur Þorsteins, b. í Kerlingardal
Steingrímssonar, bróður Jóns eld-
prests. Móðir Jóns var Þórunn, systir
Guðrúnar, ömmu Guðjóns Samúels-
sonar, húsameistara ríkisins. Guðrún
var einnig langamma Leifs Sveins-
sonar lögfræðings, Haraldar Sveins-
sonar, fyrrv. framkvæmdastjóra
Árvakurs, og Sveins Björnssonar list-
málara. Bróðir Þórunnar var Odd-
ur, langafi Magnúsar Gústavsson-
ar, fyrrv. forstjóra Coldwater. Bróðir
Þórunnar var einnig Ólafur, langafi
Georgs Ólafssonar, fyrrv. forstöðu-
manns Samkeppnisstofnunar. Þór-
unn var dóttir Sveins, b. í Skógum,
bróður Árna, langafa Helga, afa Más
Gunnarssonar, fyrrv. starfsmanna-
stjóra Flugleiða. Sveinn var sonur
Ísleifs, b. í Skógum Jónssonar, lrm. í
Selkoti Ísleifssonar.
Jóhanna Magnúsdóttir var systir
Sigríðar, móður Magnúsar Á. Árna-
sonar listmálara, Ástu málara og
Ársæls, afa Ársæls Jónssonar lækn-
is. Jóhanna var dóttir Magnúsar, b.
í Tungukoti og á Arngerðarstöðum
í Fljótshlíð Þorvaldssonar, hrepp-
stjóra og ljósföður á Stóra-Klofa í
Landsveit Jónssonar. Móðir Magnús-
ar var Margrét Jónsdóttir, vinnukona
á Leirubakka á Landi.
Móðir Jóhönnu var Steinunn
Gísladóttir, b. í Miðkoti Sveinssonar,
b. í Stöðlakoti og á Arngerðarstöðum
í Fljótshlíð Arnbjörnssonar, og Þór-
nýjar Jónsdóttur. Móðir Steinunnar
var Steinunn, dóttir Þorleifs Svein-
björnssonar, og Bjargar Benedikts-
dóttur, húsfreyju í Gerðarkoti.
Steindór verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 11.3.
kl. 13.00.
Sveinn
Björnsson
FYRSTI FORSETI
ÍSLENSKA LÝÐVELDISINS
f. 27.2. 1881, d. 25.1. 1952
Sveinn fæddist í Kaupmanna-
höfn en ólst upp í Reykjavík
í foreldrahúsum í Ísafoldar-
húsinu við Austurstræti sem
nú hefur verið
flutt út í Að-
alstræti. Þar
starfrækti
faðir hans
Ísafoldar-
prentsmiðju
og var með
ritstjóraskrif-
stofu sína. Þar
var auk þess Morgunblaðið
fyrst til húsa en Ólafur, bróðir
Sveins, var ásamt Vilhjálmi
Finsen stofnandi þess árið
1913.
Sveinn var sonur hjón-
anna Björns Jónssonar, rit-
stjóra Ísafoldar, alþingis-
manns og annars ráðherra
Íslands, og k.h., Elísabetar
Guðnýjar Sveinsdóttur hús-
móður.
Sveinn lauk stúdentsprófi
aldamótaárið 1900 og hélt
síðan til Kaupmannahafn-
ar til að stunda laganám.
Því lauk hann vorið 1907 og
varð sama ár yfirréttarmála-
flutningsmaður og 1920 varð
hann hæstaréttarlögmaður. Á
árunum 1907-20 rak Sveinn
málaflutningsskrifstofu í
Reykjavík. Hann var sett-
ur málaflutningsmaður við
landsyfirréttinn 1919. Þá var
hann alþm. fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn eldri 1914-15 og síð-
an fyrir Heimastjórnarflokk-
inn 1919-20. Sveinn gegndi
starfi sendiherra í Danmörku
1920-24 og aftur árin 1926-
41.
Árið 1941 var Sveinn kjör-
inn af Alþingi ríkisstjóri Ís-
lands og þann 17. júni 1944
var hann kjörinn af Alþingi
fyrsti forseti Íslands að Lög-
bergi á Þingvöllum. Hann var
tvisvar endurkjörinn án at-
kvæðagreiðslu.
Sveinn var í rauninni
töluvert pólitískur forseti og
hafði m.a. umtalsverð áhrif á
mótun varnarmála og nýrrar
utanríkisstefnu hér á landi
með samskiptum sínum við
Bandaríkjaforseta. Hann er
eini forsetinn sem skipað
hefur utanþingsstjórn en það
gerði hann reyndar sem ríkis-
stjóri, árið 1942.
Sveinn starfaði einnig í
bæjarstjórn Reykjavíkur og
var formaður í ýmsum nefnd-
um og samtökum. Til dæmis
var hann einn af stofnendum
Rauða kross Íslands og fyrsti
formaður hans. Sveinn tók
sér ættarnafnið Björnsson
árið 1923.
Sveinn skráði endurminn-
ingar sínar sem gefnar voru
út að honum látnum, 1957.
Þá samdi Gylfi Gröndal bók-
ina Sveinn Björnsson – ævi-
saga.
MINNING
Steindór Jónsson
BIFVÉLAVIRKI Í REYKJAVÍK
MERKIR
ÍSLENDINGAR
f. 24.9. 1908, d. 16.2. 2010
MINNING
Steingrímur Þórðarson
FYRRV. AÐALBÓKARI ALÞÝÐUBANKANS
f. 23.4. 1922, d. 16.2. 2010
Steingrímur fæddist á Ljósalandi
í Vopnafirði og ólst þar upp. Hann
lærði á orgel á unglingsárunum, lauk
gagnfræðaprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri 1939 og stundaði síðar
leiklistarnám við Leiklistarskóla Lár-
usar Pálssonar.
Steingrímur sinnti búrekstri að
Ljósalandi, ásamt móður sinni og
bróður, en flutti til Reykjavíkur 1946
og starfaði þar við Landsbankann á
árunum 1946-63. Hann sinnti síð-
an eigin rekstri, starfrækti söluturn
við Bræðraborgarstíg í Reykjavík frá
1963 og rak síðan heildsöluna Fjar-
val, var starfsmaður Sparisjóðs al-
þýðu 1968-71, og var síðan aðalbók-
ari Alþýðubankans 1971-84, er hann
fór á eftirlaun. Eftir það tók hann að
sér ýmis bókhaldsverkefni um árabil.
Steingrímur lék með Leikfélagi
Reykjavíkur um skeið. Hann lék m.a.
aðalhlutverkið í hinni umdeildu
kvikmynd Óskars Gíslasonar Ágirnd.
Steingrímur var mikill áhuga-
maður um tónlist, bjó yfir gríðarlegri
þekkingu á klassískri tónlist, einkum
óperum, átti mikið safn óperutón-
listar og fylgdist vel með öllum veiga-
miklum viðburðum í óperuheimin-
um. Honum var sérstaklega annt um
að börnin lærðu á hljóðfæri og rækt-
aði mjög tónlistaráhuga barna sinna
og barnabarna.
Fjölskylda
Steingrímur kvæntist 27.2. 1960
Höllu Eiríksdóttur, f. 8.7. 1924. For-
eldrar hennar voru Eiríkur Bjarna-
son, f. 21.3. 1895, d. 8.9. 1977, fram-
kvæmdastjóri, og Else Andrea
Figved, f. 27.7. 1901, d. 15.3. 1991.
Börn Höllu og Steingríms eru Ei-
ríkur Steingrímsson, f. 19.7. 1960,
prófessor, en kona hans er Sigríður
Sigurjónsdóttir, f. 27.9. 1960, dósent,
og eru dætur þeirra Inga Guðrún, f.
14.10. 1997, og Halla, f. 18.6. 2003;
Þórður, f. 7.10. 1961, arkitekt, en
kona hans er Guðbjörg Eysteinsdótt-
ir, f. 7.10. 1961, tölvunarfræðingur, og
eru dætur þeirra Halla, f. 11.6. 1988,
og Gríma, f. 14.11. 1990; Esla Albína
Steingrímsdóttir, f. 5.8. 1967, tann-
læknir, en maður hennar er Hans
Guttormur Þormar, f. 22.1. 1970, líf-
fræðingur, og eru börn þeirra Eirík-
ur Andri, f. 24.6. 1996, og Steinunn
María, f. 21.11. 2000.
Systkini Steingríms voru Jóhanna,
f. 19.1. 1900, d. 10.12. 1969, sauma-
kona í Reykjavík; Jónas, f. 21.1. 1901,
d. 31.12. 1993, gjaldkeri Sjúkrasam-
lags Akureyrar; María, f. 27.9. 1902, d.
21.6. 1934, vann við bústörf í Winni-
peg; Ingibjörg, f. 27.11. 1904, d. 1.6.
1982, saumakona í Reykjavík; Hólm-
fríður, f. 28.1. 1907, d. 24.7. 1999,
saumakona í Reykjavík; Sigríður, f.
19.4. 1908, d. 8.5. 1997, húsfreyja á
Refstað í Vopnafirði; Guðrún, f. 3.10.
1909, d. 3.9. 1997, verslunarmaður í
Reykjavík; Sigvaldi, f. 27.12. 1911, d.
16.4. 1964, arkitekt í Reykjavík; Helgi,
f. 24.10. 1915, d. 9.6. 2006, bóndi á
Ljósalandi; Guðbjörg, f. 24.7. 1918,
d. 20.2. 2010, kennari, lengi búsett í
Stokkhólmi.
Foreldrar Steingríms voru Þórður
Jónasson, f. 13.6. 1867, d. 3.3. 1938,
bóndi á Ljósalandi, og Albína Jóns-
dóttir, f. 17.6. 1874, d. 9.5. 1966, hús-
freyja.
Ætt
Þórður var sonur Jónasar, b. á Sel-
ási í Víðidal Guðmundssonar, b. á
Refsstöðum Jónssonar. Móðir Guð-
mundar var Ingibjörg Magnúsdóttir,
sýslumanns á Geitaskarði Gíslason-
ar, biskups á Hólum Magnússon-
ar. Móðir Magnúsar var Ingibjörg
Sigurðardóttir, lögsagnara á Geita-
skarði Einarssonar, biskups á Hólum
Þorsteinssonar. Móðir Ingibjargar
Magnúsdóttur var Helga Halldórs-
dóttir, stiptsprófasts á Hólum Jóns-
sonar, og Salvarar Þórðardóttur, próf-
asts á Staðastað Jónssonar, biskups á
Hólum Vigfússonar.
Móðir Þórðar á Ljósalandi var
María, langama Gríms Valdimars-
sonar, formanns Ármanns. María var
dóttir Guðmundar, b. á Efri-Þverá
í Vesturhópi Skúlasonar, bróður
Sveins, langafa Helga Þorláksson-
ar sagnfræðings. Móðir Maríu var
Júlíana Steinsdóttir Bergmanns, b. á
Þorkelshóli Sigfússonar Bergmanns,
b. á Þorkelshóli, ættföður Berg-
mannsættar.
Albína var dóttir Jóns, b. á Ljósa-
landi, Kristjánssonar, b. á Hrauni í
Aðaldal, Sigmundssonar, b. á Breiðu-
mýri, Markússonar, b. Þorvarðs-
sonar. Móðir Jóns á Ljósalandi var
Guðrún Jónsdóttir, b. á Hamri, Ein-
arssonar, b. á Vindbelgi, Vigfússonar.
Móðir Albínu var Jóhanna Jó-
hannesdóttir, b. í Skógum í Öxnadal,
Þórarinssonar, b. í Lóni, Guðmunds-
sonar, b. á Keldunesi, Guðmunds-
sonar, prests á Þönglabakka, Þorláks-
sonar. Móðir Þórarins var Ingunn
Pálsdóttir, b. á Víkingavatni, Arn-
grímssonar, sýslumanns á Laugum,
Hrólfssonar. Móðir Jóhönnu var Þor-
björg Sigvaldadóttir, b. í Hafrafells-
tungu, Eiríkssonar, b. á Hauksstöð-
um, Styrbjarnarsonar, b. á Sleðbrjóti,
Þorsteinssonar.
Útför Steingríms fór fram frá Foss-
vogskirkju í gær.