Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 15
27. OKTÓBER 2008
n Fjármálaeftirlitið
sendir Sjóvá bréf um
að félagið þurfi að
uppfylla skilyrði um
gjaldþol tryggingafé-
laga fyrir árslok
1. JAN. - 3.
MARS 2009
n Frestur Sjóvár
til uppfylla
skilyrði um
gjaldþol
tvíframlengdur
3. MARS 2009
n Sjóvá fær frest frá
Fjármálaeftirlitinu til
1. apríl til að uppfylla
skilyrði um gjaldþol
AFSKIPTIN AF BÓTASJÓÐNUM
16. MARS 2009
n Skilanefnd
Glitnis yfirtekur
Moderna og
dótturfélög þess
á Íslandi, meðal
annars Sjóvá
8. JÚLÍ 2009
n Fjármálaráðu-
neytið greinir frá
því að ríkið þurfi
að leggja Sjóvá
til 12 milljarða
króna til að
tryggingafélagið
uppfylli skilyrði
um gjaldþol.
Sjóvá er bjargað
frá gjaldþroti.
14. MAÍ 2009
n Morgunblaðið
greinir frá því að
Sjóvá uppfylli
ekki lágmarks-
skilyrði um gjald-
þol og að minnst
10 milljarða
vanti í eignasafn
félagsins
16. MAÍ 2009
n Morgunblaðið
greinir frá því
að Fjármálaeft-
irlitið hafi sent
Sjóvár-málið til
ákæruvalds
2008 2009
Glitnir leysti svo til sín hlutabréf í
sænska fjármála- og tryggingafélag-
inu Moderna, áður Invik, þann 16.
mars 2009 vegna þess að gengið var
að veðum sem stofnað hafði verið
til vegna lánveitinga upp á nærri 200
milljónir evra, rúmlega 33 milljarða
króna á þávirði, til eignarhaldsfélags-
ins Svartháfs í febrúar 2008. Þar með
var skilanefnd Glitnis búin að leysa til
sín hlutabréfin í Sjóvá þar sem Mod-
erna hélt utan um þau.
Slæma stöðu Sjóvár á þessum tíma
mátti meðal annars rekja til kaupa
Milestone á Invik fyrir um 70 milljarða
króna en eignir og skuldir voru færðar
frá Milestone inn í tryggingafélagið til
að ljúka við kaupin.
Fengu frest til 1. apríl
Sjóvá fékk einn frest til viðbótar með
bréfinu: Til 1. apríl 2009. Sá frestur var
þó ekki veittur án skilyrða, að því er
segir í bréfinu, því Sjóvá átti þegar að
grípa til ráðstafana til að styrkja fjár-
hagslega stöðu félagsins og átti Sjó-
vá að upplýsa Fjármálaeftirlitið viku-
lega um hvernig endurfjármögnunin
gengi.
Í bréfinu segir: „Þó frestur sé enn á
ný veittur, er gerð sú krafa að eigend-
ur sem og stjórnendur félagsins grípi
þegar til ráðstafana til að styrkja fjár-
hagslega stöðu félagsins. Óskað er eft-
ir því að Fjármálaeftirlitið verði upp-
lýst vikulega um framvindu þeirra
ráðstafana sem gripið verður til, á
meðan frestur þessi er í gildi.“
Eigendur og stjórnendur Sjóvá
urðu ekki við þessum ábendingum
og var greint frá því í Morgunblaðinu
um miðjan maí 2009 að Sjóvá upp-
fyllti ekki lögbundnar kröfur um gjald-
þol. Sú frétt Morgunblaðsins hóf fjöl-
miðlaumræðuna í samfélaginu um
meðferð Milestone á bótasjóði Sjóvár
sem verið hefur í gangi æ síðan, með-
al annars vegna rannsóknar sérstaks
saksóknara á meðferðinni á bótasjóði
félagsins.
Þann 8. júlí í fyrra var svo greint
frá því að íslenska ríkið þyrfti að
leggja Sjóvá til tæpa 12 milljarða
króna í formi láns til að félagið stæð-
ist lögbundin skilyrði um gjaldþol
tryggingafélaga vegna þess hvernig
Mile stone hafði gengið á eignasafn fé-
lagsins.
Ástæða fram-lengingar er sú
óvissa sem ríkt hefur
um fjárhagsstöðu fé-
lagsins og eigenda þess.