Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 SAKAMÁL
LYFJANOTKUN EÐA AFBRÝÐISEMI Var John Mullar-
key afbrýðisamur siðblindingi eða fórnarlamb Accutane, lyfs við gelgju-
bólum sem nú hefur verið tekið af markaði? Demi Cuccia, kærasta Johns til
tveggja ára, ákvað að binda enda á samband þeirra því hún taldi hann of
eigingjarnan á hana. Að sögn vina hennar hafði Demi reynt án árangurs að
fá hann til að láta af eigingirninni sem jaðraði við sjúkleika. Að lokum fór svo
að John banaði Demi og byggði lögfræðingur Johns vörnina á notkun hans á Accutane,
sem hann sagði hafa breytt persónuleika Johns. Lesið um morðið í næsta helgarblaði DV.
LAUNAÐI GOTT MEÐ ILLU
Susan Williams frá Rhymney-dal í Suður-Wales var þekkt sem miskunnsami Samverjinn. Allir í bænum
þekktu hana og vissu af hjálpsemi hennar við þá sem minna máttu sín. Færri vissu að hún átti nánast
jafnbágt og þeir sem hún hjálpaði.
Í heimabæ sínum, Caerphilly í
Rhymney-dal í Suður-Wales, var
Susan Williams þekkt sem hinn
miskunnsami Samverjinn. Allir
bæjarbúar vissu um gæsku henn-
ar og þá áráttu að vilja hjálpa þeim
sem minna máttu sín. Færri vissu
að hún var nánast jafn lánlaus og
þeir sem hún aðstoðaði.
Líf Susan fór úr skorðum í kring-
um 1995. Hún var mikils metin
ljósmóðir en neyddist til að láta
af störfum af heilsufarsástæðum.
Hjónaband hennar fór í vaskinn og
hún leitaði huggunar hjá Bakkusi.
Drykkjan leiddi síðan til fjár-
hagslegra örðugleika og þegar
hér var komið sögu var hún við að
missa heimili sitt. Engu að síður
reyndi hún eftir fremsta megni að
láta gott af sér leiða.
Sá síðasti sem naut greiðvikni
Susan var sautján ára unglingur,
David Matthews.
Tók hugsanlega
á móti Matthews
Í ljósi þess að Susan hafði tekið á
móti um eitt þúsund börnum sem
ljósmóðir var ekki fráleitt að ætla
að David Matthews hefði verið eitt
þeirra, því hann fæddist í Rhym-
ney-dal á þeim tíma þegar Susan
var yfirljósmóðir þar.
David átti erfiða æsku og eft-
ir að hann komst í kynni við áfengi
og eiturlyf átti hann ekki aftursnúið.
Í febrúar 2009 hafði kærasta hans
fengið sig fullsadda af afbrýðisemi
Davids og henti honum út af heim-
ili hennar.
Nokkrum kvöldum síðar fór
David á ævintýralegt fyllerí, tók inn
amfetamín og alsælu sem hann
renndi niður með átján pintum öls.
Á bar einum í bænum hitti David
mann sem kunnugur var Susan og
þar sem honum sýndist unglingur-
inn vera í frekar slæmu ásigkomu-
lagi ákvað hann að fara með hann
heim til Susan; hún myndi án efa
skjóta yfir unglinginn skjólshúsi.
Gripinn glóðvolgur
Það var auðsótt mál að fá gistingu
heima hjá Susan og þann tíma sem
vinur Susan staldraði við heima
hjá henni kjaftaði á David hver
tuska. „Ég myndi vilja vita hvernig
er að drepa einhvern,“ sagði Dav-
id þar sem hann sat og lét fara vel
um sig í sófa Susan. Vini Susan var
nóg boðið og skipaði drengnum að
láta af slíku tali og kvaddi skömmu
síðar. Susan bjó um David á svefn-
sófa og bauð honum góða nótt þar
sem hann sat og horfði á sjónvarp-
ið. Einhverju síðar ákvað uppdóp-
aði og ölvaði unglingurinn að launa
greiðviknina og fór ránshendi um
íbúðina. Hann fann ruslapoka í eld-
húsinu og tróð í þá hverju því sem
hann fann á neðri hæð hússins.
David var í óðaönn að fylla
fjórða pokann þegar Susan vakn-
aði við hávaðann í honum.
David heyrði til Susan þegar
hún kom niður stigann og greip
hann tvo eldhúshnífa.
Myrt á hroðalegan hátt
„Hann réðst aftan að henni, stakk
hana í höfuðið, handleggina og efri
hluta líkamans. Hún hljóp, en hann
elti, stingandi hana, síðan sló hann
hana í höfuðið með potti. Hann
trampaði ítrekað á höfði hennar
og þegar - slíkur var ofsi árásarinn-
ar – minni hnífurinn brotnaði, skar
hann hana á háls með brauðhnífn-
um,“ sagði fulltrúi ákæruvaldsins
síðar við réttarhöldin. Kjálki, háls
og átta rifbein brotnuðu við morð-
ið og höfuðkúpa Susan brákaðist.
David Matthews yfirgaf blóði
drifinn morðvettvanginn í morg-
unsárið og ýtti á undan sér hjólbör-
um hlöðnum góssinu úr húsinu.
Síðar fleygði hann hjólbörunum,
hnífunum tveimur og skálduðum
pottinum í á sem varð á leið hans.
Næsta dag, í félagsskap vinar,
rifjaði David upp morðið. „Hún
ætlaði bara ekki að drepast,“ sagði
David. Að lokum fór svo að David
trúði fjölskyldu sinni fyrir ódæði
sínu og hún hafði samband við
lögregluna.
Lífstíðardómur
Við réttarhöldin lýsti David Matt-
hews yfir iðrun og dómarinn benti
honum á að hann hefði sloppið
fyrir horn, því ef hann hefði fram-
ið morðið sex vikum síðar, orðinn
átján ára, hefði hann fengið að lág-
marki þrjátíu ára dóm.
Þar sem David var ekki nema
sautján ára fékk hann lífstíðar-
dóm og myndi afplána að minnsta
kosti tuttugu ár. „Þú réðist á hana
og myrtir á grimmilegan og hrotta-
fenginn hátt. Mál þitt er skýr
myndbirting áhrifa áfengis og eit-
urlyfja á mann af þínu sauðahúsi,“
sagði dómarinn.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
sem fór fyrir rannsókn málsins
sagði að Susan hefði verið misk-
unnsami Samverjinn í þeirra orða
fyllstu merkingu og henni hefði
verið launað góðverk með illsku.
„Kaldhæðnin er sú að hún kann
að hafa verið sú ljósmóðir sem að-
stoðaði við fæðingu morðingja
síns,“ sagði ættingi Susan Williams.
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is
Ég myndi vilja vita hvernig er
að drepa einhvern,“
sagði David þar sem
hann sat og lét fara vel
um sig í sófa Susan.
Miskunnsami Samverjinn Gerði
einu góðverki of mikið.
Myrti velgjörðar-
mann sinn David
Matthews var illa far-
inn vegna áfengis-
og fíkniefnaneyslu.