Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 FRÉTTIR Sjö fyrrverandi toppar hjá Glitni fengu samtals fimm milljarða króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni. Lánin standa nú í 7.200 milljónum króna og eru flest á gjalddaga í maí 2012. Fimm starfa enn hjá Íslandsbanka. Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, fékk 800 milljóna króna kúlulán þegar hann starfaði hjá Glitni. Hann átti að greiða 1.200 milljónir króna í fyrra. Sjö fyrrverandi toppar hjá Glitni fengu samtals fimm milljarða króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni á árunum fyrir íslenska efnahags- hrunið. Þeir skulda Íslandsbanka nú um 7.200 milljónir króna og eru flest lánin á gjalddaga í maí 2012. Í sumum tilfellum voru lánin á gjald- daga í fyrra. Tekin var ákvörðun um að færa lánin yfir til Íslandsbanka frekar en að skilja þau eftir í gamla bankanum, Glitni. Fimm lántakendanna starfa nú hjá Íslandsbanka og þar af þrír sem framkvæmdastjórar innan bankans. Þessir fimm starfsmenn skulda núverandi vinnuveitanda sínum tæpa fimm milljarða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það innan Íslandsbanka hvernig á að gera upp kúlulánin við núverandi og fyrrverandi starfs- menn sem fengu lán til hlutabréfa- kaupa. Ljóst þykir hins vegar að starfsmannalánin voru veitt þannig að þeir sem þau fengu áttu ekki að geta tapað á þeim, aðeins grætt. Þess vegna má fullyrða að afskrifa þurfi lánin úr bókum Íslandsbanka og má búast við að það verði gert þegar þau verða á gjalddaga. Brottrekinn forstjóri skuldar 1.200 milljónir Einar Örn Ólafsson, núverandi for- stjóri Skeljungs, fékk 800 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í maí 2008 þegar hann var starfsmaður bankans. Í ársreikningi félagsins Einars- melur 18 ehf. kemur fram að skuld- ir á gjalddaga 2009 hafi numið 1.203 milljónum króna. Er um að ræða lán í evrum sem virðist hafa hækkað töluvert frá því í maí 2008 þegar Einar Örn fékk kúlulánið. Eftir bankahrunið var Einar Örn gerður að framkvæmdastjóra fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka og sá hann meðal annars um söl- una á Árvakri. Hann var síðar rek- inn frá bankanum vegna trúnað- arbrests en talið var að hann hefði átt í óheppilegum samskiptum við eigendur Skeljungs. Einar seldi nú- verandi eigendum Skeljungs félag- ið árið 2008 þegar hann var starfs- maður fyrirtækjasviðs Glitnis. Um það bil ári síðar var hann svo rek- inn frá bankanum og réð hann sig skömmu síðar til Skeljungs. Einar Örn gerði 32 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis, líkt og margir aðrir fyrrverandi starfs- menn bankans. Svipaða sögu er að segja um annan framkvæmdastjóra hjá Glitni, Magnús Arnar Arngrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyr- irtækjasviðs og núverandi starfs- mann á fyrirtækjasviði Íslands- banka. Magnús fékk 800 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í maí 2008. Hann á félag- ið Margin ehf. sem myndi útleggj- ast Veð á íslensku. Það félag skuld- ar 1.207 milljónir króna sem eru á gjalddaga í maí 2012. Magnús er einn besti vinur Lár- usar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og kom hann til starfa hjá bankanum á sama tíma og Lárus. Magnús gerði 34 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Enn í bankanum Rósant Már Torfason, fram- kvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og lögfræðisviðs Ís- landsbanka, fékk 800 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í maí 2008 í gegnum félag- ið Strandatún. „Það er ljóst að eig- infjárstaða þessa félags er verulega neikvæð,“ sagði Rósant í samtali við DV í mars 2009. Það voru orð að sönnu því að eigið fé félagsins er neikvætt um 1.203 milljónir króna. Í ársreikn- ingi félagsins fyrir árið 2008 kemur fram að vaxtaberandi skuldir nemi 1.132 milljónum íslenskra króna. Lánið er í evrum og á gjalddaga í maí 2012. Rósant gerði 37 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Jóhannes Baldursson, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta Íslandsbanka, fékk 800 milljóna króna kúlulán í evrum til hlutabréfakaupa í Glitni í maí 2008 í gegnum félagið Gnóma. Eigið fé félagsins er neikvætt um 1.203 milljónir króna. Kemur fram í ársreikningi að félagið skuldi Ís- landsbanka 1.203 milljónir króna og er lánið á gjalddaga í maí 2012. Jóhannes gerði 68 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Vilhelm Már Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Íslandsbanka, fékk 800 milljóna króna kúlulán í gegnum félag sitt AB 154 ehf. í maí árið 2008 til að kaupa hlutabréf í Glitni. Félagið fékk lán í evrum og er það á gjald- daga í maí 2012. Nemur lánið 1.207 milljónum króna. Samkvæmt árs- reikningi félagsins er eigið fé þess neikvætt um 1.206 milljónir króna. Vilhelm Már gerði 33 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Vilhelm er sonur Þorsteins Vil- helmssonar, fyrrverandi eiganda Samherja. Lægra settir fengu líka lán Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrr- verandi forstöðumaður gjaldeyris- miðlunar Glitnis, fékk 520 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í gegnum félagið Langadal. Félagið skuldar Íslandsbanka 741 milljón króna í erlendri mynt sem ekki er skilgreind í ársreikningi. Eigið fé Langadals er neikvætt um 787 milljónir króna. Magnús Pálmi er náinn vinur Jakobs Valgeirs Flosasonar, sem oftast er kennd- ur við huldufélagið Stím. Magnús Pálmi gerði 32 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Stefán Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri eignastýringar Ís- landsbanka, fékk 170 milljóna króna kúlulán í maí 2008 í gegn- um félagið AB 135 ehf. sem KPMG stofnaði. Eigið fé félagsins er nei- kvætt um 262 milljónir króna. Það er með erlent lán upp á 262 millj- ónir króna sem er á gjalddaga í maí 2012. Eggert Þór Kristófersson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri eigna- stýringar Glitnis fékk 100 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í gegnum félagið EV Holding. Það vekur athygli að lán Eggerts er tekið í íslenskum krónum. Það hef- ur því hækkað langminnst þeirra kúlulána sem starfsmenn Glitnis fengu til hlutabréfakaupa. Eigið fé félagsins er neikvætt um 132 millj- ónir króna og er lán upp á sömu upphæð á gjalddaga í maí 2012. Ingi Rafnar Júlíusson sem starf- aði í verðbréfamiðlun Glitnis fékk 100 milljóna króna kúlulán til hlutabréfakaupa í Glitni í gegnum félagið Stofnun ehf. árið 2007. Ingi Rafnar á líka félagið AB 158 ehf. sem stofnað var í maí 2008 líkt og mörg önnur eignarhaldsfélög í eigu ýmissa stjórnenda Íslandsbanka. Ingi Rafnar vinnur ekki hjá Íslands- banka í dag. Hann gerði 85 milljóna króna kröfu í þrotabú Glitnis. Yfirlitið um starfsmannalán Glitnis sýnir betur en margt annað hvers eðlis hvatakerfið í íslenska fjármálakerfinu var. Starfsmenn- irnir gátu aðeins grætt á lántök- unum og hefðu að öllum líkindum getað auðgast verulega ef hluta- bréfaverð í bankanum hefði haldið áfram að hækka og ef hrunið hefði ekki komið til. Hrun bankans og ís- lenska efnahagskerfisins hefur það hins vegar í för með sér að starfs- mennirnir geta gengið frá skuld- unum inni í eignarhaldsfélögun- um sem stofnuð voru utan um lántökurnar og hlutabréfakaup- in án þess að bíða af því nokkurn fjárhagslegan skaða. Íslandsbanki mun hins vegar þurfa að afskrifa kröfurnar á hendur félögum starfs- mannanna. Útistandandi lán Glitnis til stjórnenda bankans 2006: 5.726 MILLJÓNIR* Útistandandi lán Glitnis til stjórnenda bankans 2007: 1.832 MILLJÓNIR* Útistandandi lán Glitnis til stjórnenda bankans 2008: 9.066 MILLJÓNIR* *Tölur samkvæmt árshlutareikningi Glitnis fyrir annan ársfjórðung 2008 og ársskýrslu 2007. n JÓHANNES BALDURSSON Framkvæmdastjóri fjárstýringar og markaðsviðskipta Félag hans Gnómi ehf. fékk 800 milljóna króna kúlulán n VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Félag hans AB 154 ehf. fékk 800 milljóna króna kúlulán n RÓSANT MÁR TORFASON Framkvæmdastjóri áhættustýringar, lánaeftirlits og lögfræðisviðs Félag hans Strandatún ehf. fékk 800 milljóna króna kúlulán n MAGNÚS ARNAR ARNGRÍMSSON Starfsmaður á fyrirtækjasviði Íslandsbanka Félag hans Margin fékk 800 milljóna króna kúlulán n STEFÁN SIGURÐSSON Framkvæmdastjóri eignastýringar Félag hans AB 135 ehf. fékk 170 milljóna króna kúlulán n EINAR ÖRN ÓLAFSSON Forstjóri Skeljungs og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Félag hans Einarsmelur 18 fékk 800 milljóna króna kúlulán n MAGNÚS PÁLMI ÖRNÓLFSSON Fyrrverandi forstöðumaður gjaldeyrismiðlunar Glitnis Félag hans Langidalur fékk 520 milljóna króna kúlulán Milljarðaskuldir við Glitni ANNAS SIGMUNDSSON OG INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamenn skrifa: as@dv.is og ingi@dv.is Í ársreikningi félagsins Ein- arsmelur 18 ehf. kemur fram að skuldir á gjald- daga 2009 hafi numið 1.203 milljónum króna. Stórskuldugur forstjóri Einar Örn Ólafsson, núverandi forstjóri Skeljungs, átti að greiða 1.200 milljóna króna kúlulán í fyrra. Fullyrða má að hann hafi ekki gert það þar sem lánasamningarnir voru þannig að starfsmennirnir gátu ekki tapað á lánunum. Milljarðaskuldir framkvæmda- stjóra Fimm háttsettir starfsmenn Íslandsbanka skulda vinnuveitanda sínum rúma sjö milljarða króna. Lánin eru flest á gjalddaga árið 2012. AFSKRIFA ÞARF GLITNISLÁNIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.