Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 77
SVIÐSLJÓS 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 77
Landsmenn eru eindregið hvattir til að láta bólusetja sig
gegn svínainflúensu á næstu dögum og vikum til að verjast
veikinni enda eru miklar líkur á nýju áhlaupi
inflúensunnar síðar á þessu ári eða því næsta. Best er að
verjast svínainflúensunni með bólusetningu og það strax
enda nóg til af bóluefni í landinu.
Við boðum bólusetningarátak um allt land!
� Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nú gengið inn
á næstu heilsugæslustöð á almennum þjónustutíma
alla virka daga og látið bólusetja sig. Ekki þarf lengur
að skrá sig í bólusetningu fyrir fram!
� Áfram þarf hins vegar að panta tíma í bólusetningu á
heilsugæslustöðvum utan höfuðborgarsvæðisins.
Tveir Íslendingar af hverjum fimm hafa látið sprauta sig
gegn svínainflúensu á undanförum mánuðum sem er eitt
hæsta hlutfall sem þekkist meðal þjóða.
Íslendingar eiga hrós skilið fyrir að bregðast hratt og
ákveðið við inflúensufaraldrinum með því að mæta til
bólusetningar, tileinka sér tíða handþvotta, bera spritt á
hendur, nota pappírsklúta og gera fleira sem stuðlar að
heilsuvernd.
Fullvíst er að allar þessar ráðstafanir hafa komið í veg fyrir
að tugir þúsunda Íslendinga sýktust af svínainflúensunni
fyrr í vetur.
Verjumst nýju áhlaupi
svínainflúensunnar A(H1N1)!
Nánari upplýsingar um bóluefnið og bólusetningu vegna svínainflúensu A(H1N1) er að finna á influensa.is.
Tilkynningar og upplýsingar um viðbúnað vegna inflúensu A(H1N1) eru á influensa.is og á almannavarnir.is.
Landlæknisembættið
sóttvarnalæknir
Ríkislögreglustjórinn
almannavarnadeild
Nýjasta tískubylgjan í Bandaríkjun-
um er að konur láti skreyta skapa-
hárasvæði sitt með skrautsteinum
og glitri eftir að hafa farið í bikinívax.
Þessi meðferð kallast Vajazzling og
verður sífellt vinsælli þar í landi.
Konan sem sést hér á myndinni
heitir Bryce Gruber og er blaðakona
fyrir vinsæla vefsíðu vestanhafs sem
kallast theluxuryspot.com en hún
fékk sér Vajazzling til að kynna það
fyrir lesendum sínum. Hægt er að fá
alls kyns mismunandi skreytingar,
allt frá ódýrum perlum yfir í rándýra
Swarovski-kristalla.
Það er spurning hvort þetta æði
nái til Íslands áður en langt um líður.
Nýjasta tískan
í Bandaríkjunum:
Skart í stað
skapahára
Bryce
Gruber
Fékk sér
Vajazzling.
Kim Kardashian á ferð og flugi:
Það er nóg að gera hjá hinni fögru Kim Karda- shian þessa dagana. Á milli þess sem hún reyn-ir að rækta samband sitt við ruðningsmanninn
Reggie Bush heldur hún úti tveimur fatabúðum og
er byrjuð að gera líkamsræktarmyndbönd. Líkami
hennar er einn sá vinsælasti í Hollywood um þess-
ar mundir en allar konur vilja vera með eins línur og
hún. Kim er engin mjóna, heldur gullfalleg með lín-
urnar í lagi. Hún reynir nú að hjálpa konum að fá lík-
ama eins og sinn og hefur nóg að gera. Þess vegna
þarf hún ekkert minna en tvo síma og ein stærstu
sólgleraugu í manna minnum.
TVEIR SÍMAR OG
SÓLGLERAUGU
Skutla Kim
Kardashian
er gífurlega
fönguleg
stúlka.
Svona vilja þær
vera Eftir að Kim
birti þessa mynd af
sér vildu allar konur
í Hollywood vera
eins og hún.
KOMIÐ ÚT
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur