Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Blaðsíða 27
verksins og kannast við mannskap-
inn á sviðinu - sem er jákvætt.“
Leikaradeildin tekur tíma
Stefán útskrifaðist frá Guildhall School
of Music and Drama í London fyrir
rúmlega tveimur áratugum eða árið
1989. Að loknu námi lék Stefán hjá
Leikfélagi Reykjavíkur en réð sig til
Þjóðleikhússins 1991. Hann hefur leik-
ið í fjölda verka meðal annars Helmút
veislustjóra í Veislunni sem tilnefnt var
til Grímunnar og þá lék einnig titilhlut-
verkið í Erling í Loftkastalanum en fyr-
ir það hlutverk var Stefán tilnefndur til
Grímunnar.
Á hvíta tjaldinu hefur Stefán birst
í kvikmyndunum Ryði, Inguló, Strák-
unum okkar, Kaldri slóð og nú síðast í
Reykjavík Whale Watching Massacre.
Af sjónvarpsverkum má nefna Jóhann
Sigurjónsson í Leiftrinu bjarta, titil-
hlutverkið í Baróninum, Viktor, End-
urreisnin og almúginn, Hamarinn og
Réttur 1 og 2.
Á seinni árum hefur Stefán haslað
sér völl sem leikstjóri. Hann var val-
inn leikstjóri ársins fyrir Kvetch, þegar
Gríman var veitt í fyrsta sinn árið 2003
og var einnig tilnefndur til sömu verð-
launa fyrir Sporvagninn girnd, Héra
Hérason, Forðist okkur og Óhapp.
Hjá L.R. leikstýrði hann sömuleiðis;
Draugalest, Sekt er kennd, Belgísku
Kongó og Terrorisma.
Í Þjóðleikhúsinu hefur Stefán leik-
stýrt verkunum: Herjólfur er hættur
að elska, Túskildingsóperunni, Fagn-
aði, Óhappi, Baðstofunni og Legi sem
hlaut 12 Grímutilnefningar, þar á með-
al fyrir leikstjórn.
„Maður er alltaf að reyna skipu-
leggja sig betur til að hafa vaðið fyr-
ir neðan sig. Ég er fagstjóri leikara-
brautar Listaháskólans og það tekur
upp mikið af mínum tíma. Þar er ég
að kenna og skipuleggja starfið,“ seg-
ir Stefán en hann er einn af þeim sem
ákveður hver kemst inn í skólann og
hver ekki.
Leikhúsið er skepna
Stefán hefur mikið álit á Braga, höf-
undi verksins. Segir hann mikinn
meistara. „Leikhúsið er þannig skepna
að hún er oft lengi að melta hlutina og
vinna úr þeim. Þetta er stór vél - leik-
húsið. Mér finnst hins vegar gleðilegt
hvernig íslenskt leikhús er að komm-
entera á stöðu mála um þessar mund-
ir.
Í þessu verki er það ekki beinlínis
á yfirborðinu, frekar en venjulega hjá
Braga, það marar undir. Umfjöllunar-
efnið er þjófnaður á kjúklingum í fjöl-
býlishúsi og hvernig það mál vindur
uppá sig. Þetta snýst um sakbending-
ar og selektíft minni – þarna rekumst
við á íslenskan flóttamann, sem þykist
standa fyrir eitthvað en kemur upp um
sig á meðan hann forðast að líta í eig-
inn barm. Á þann hátt fjallar verkið um
Ísland í dag. Samræðurnar eru í senn
fáránlega fyndnar og óþolandi enda er
sannleikurinn fimlega sniðgenginn.
Þótt Bragi hafi ekki lagt þetta
þannig upp, segir hann, að skrifa um
samtímann, um hrunið, Icesave eða
hvað þetta heitir nú allt saman þetta
leiðindadót, þá er hann það næmur
að hann kemst ekki hjá því að endur-
spegla tímann á sinn hátt. Hann hef-
ur svo fína tilfinningu fyrir breiskleika
mannskepnunnar. Þetta er eiginlega
kostuleg úttekt á þrætubókarlistinni á
þessum síðustu og verstu - það má al-
veg segja það.
Það er ekki auðsótt að skipa þessu
verki í hefðbundinn dramatískan
flokk. Það eru vissuega farsa tilþrif í því
en líka mikill undirliggjandi tregi og
absurd element. Svo er þetta líka saka-
málaleikrit. Þarna er glæpur framinn,
kjúklingum stolið úr frystikistu og það
er haldinn húsfundur og þá eru allir
tilkallaðir eins og hjá Agöthu Christie.
Svo geta áhorfendur reynt að ráða gát-
una - það er ekki einfalt mál þegar eng-
inn vill axla ábyrgð.“
Linda eða Birta
Stefán segir að það hafi verið ljúft að
leikstýra vinum sínum - meira mál sé
að velja sér föt fyrir frumsýninguna.
„Hér er ég með úrvalslið, Eggert Þor-
leifs, Ragnheiði Steindórs sem leik-
ur konu hans og gimsteinninn Krist-
björg Kjeld sem sýnir stórleik. Svo eru
þarna Frikki, Vigdís Hrefna og sjálfur
Pálmi Gestsson. Ég hef þekkt þetta fólk
og unnið með því lengi og þetta hefur
verið yndisleg samvera.
Það er meiri spurning í hverju ég
eigi að vera á frumsýningarkvöldinu,
hvort ég fari í Lindu eða Birtu,“ segir
Stefán og hlær. benni@dv.is
... Invictus
Frábær mynd
um umbrot-
stíma í sögu
Suður-Afríku.
... Brothers
Góð mynd
sem sýnir
aðrar hliðar á
Írakstríðinu.
... Percy Jackson &
the Olympians: The
Lightning Thief
Illa gerð með
grafík sem
minnir á Playsta-
tion 2-tölvu.
... plötunni Algjör
Sveppi - Dagur í lífi
stráks
Of flóknir
söngvar fyrir
börn - mark-
hóp plötunnar.
26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 27
FÖSTUDAGUR
n Dresscode á Nasa
Það verður tískuhátíð í kvöld þar sem
nokkrar af tískuverslunum borgarinnar
sýna nýjar vörur á flottustu módelum
landsins. Húsið verður opnað klukkan
22 og verður fordrykkur í boði Martini
fyrir fyrstu gesti. Tískusýningin hefst svo
stundvíslega klukkan 23. Eftir sýninguna
verður svo slegið upp heljarinnar
dansleik.
n Todmobile á Græna hattinum
Eitt af stóru númerunum í íslenskri
tónlistarsögu, hljómsveitin Todmobile,
verður með „Best of“-tónleika á Græna
hattinum á Akureyri. Alltaf má treysta
á stuð þegar Andrea Gylfadóttir er
annars vegar. Um að gera að rifja upp
gamla takta. Forsala aðgöngumiða er
í Eymundsson Hafnarstræti. Miðaverð
2.500 kr.
n Siggi Hlö á Spot
Sjóðheit Boogienights-stemning sem
aldrei fyrr! Það er engin annar en „Veistu
hver ég var“ meistari Siggi Hlö sem
verður í öllu sínu veldi á Spot í kvöld. Það
þarf vart að taka það fram að það verður
var allt vitlaust. Húsið verður opnað kl.
23 og kostar 1.200 krónur inn.
LAUGARDAGUR
n XXX Rottweilerhundar á Selfossi
Það eru töffararnir í XXX Rottweilerhund-
um sem ætla heiðra Selfyssinga með
nærveru sinni með tónleikum á 800
Bar í kvöld. Hundarnir fagna um þessar
mundir tíu ára starfsafmæli og mumnu
meðal annars frumflytja ný lög. Það
kostar 1.000 krónur inn.
n Grímuball á Snæfellsnesi
Það verður fantagóð stemning á
Snæfellsnesi í kvöld. Á skemmtistaðnum
Kaffi 59 sem staðsettur er á Grundarfirði
verður haldið grímuball með Rock n´roll-
þema. Hljómsveitin Napoleon mun sjá til
þess að dansgólfið verði pakkað fram á
nótt. Það kostar 1.500 krónur inn.
n Greifarnir á Spot
Á Spot í kvöld verða hinir einu sönnu
Greifar í húsinu og verður sérstök
dagskrá í gangi. Klukkan 22 opnar húsið
með forpartíi þar sem hljómsveitin
Special Treatment kemur fram en hún
hefur ekki komið fram í 25 ár. Óvænur
gestur skýtur upp kollinum.
n Einstakt kvöld á Batteríinu
Það verður fjölbreyttur kokteill á
Batteríinu en þar mun reykjavík! koma
fram í fyrsta skipti á áratugnum ásamt
bandinu Florita, Borgari Magnasyni og
Legend. Húsið opnar klukkan 22:30.
Ekki láta þetta undur fram hjá þér fara.
Hvað er að
GERAST?
Leikritinu Góðir Íslendingar, sem
sýnt hefur verið í Borgarleikhús-
inu, hefur verið boðið á leiklist-
arhátíðina Ný leikrit frá Evrópu,
Neue Stücke aus Europa. Þarna
hafa fjöldi leikskálda verið kynnt-
ur í fyrsta sinn utan heimalands
síns. Hafa sumir hverjir hlotið
heimsfrægð enda kemur þarna
saman fjöldi leikhúsfólks auk út-
sendara leiklistarhátíða og um-
boðsmanna víða að úr heiminum.
Góðir Íslendingar hlaut mikið lof
gagnrýnenda þegar sýningin var
frumsýnd í janúar.
Góðir Íslendingar er nýtt ís-
lensk leikverk eftir þá Hall Ing-
ólfsson, Jón Pál Eyjólfsson og
Jón Atla Jónasson. Verkið er hár-
beitt ádeila á íslenskt samfélag og
hvernig við glímum við afleiðing-
ar efnahagshrunsins sem á okkur
dundi. Í Góðir Íslendingar er ver-
ið að skoða sjálfsmynd íslensku
þjóðarinnar sem birtist meðal
annars í húsunum sem við byggð-
um og bílunum sem við keyptum
en einnig í því hvernig við kom-
um fram og tjáum okkur á verald-
arvefnum og í lífinu yfirleitt. Við
erum öll undir smásjánni í verk-
inu, það sem áður þótti merki um
velgengni vekur nú óhug okkar.
Síðasta sýning hérlendis er föstu-
daginn 26. febrúar.
... tölvuleiknum
Heavy Rain
Einstakur
leikur þar
sem þú
ræður
ferðinni.
... tölvu-
leiknum
Handball
Manager
Misheppnaður
leikur og of
flókinn.
„FRUMSÝNING EKKERT SÉRSTAKLEGA
Þetta virðist hafa breiða skírskotun.
Það er eitthvað í þessu.
Í sviðsmyndinni Stefán í hinni
glæsilegu sviðsmynd sem Börkur
Jónsson á heiðurinn af.
ÁNÆGJULEGT FYRIRBÆRI“
Djassgeggjari Aðalpersónan
í verkinu er mikill djassgeggjari.
Á stórt plötusafn.
Að gera góða hluti Jón Atli Jónasson
samdi verkið ásamt Halli Ingólfssyni og
Jóni Páli Eyjólfssyni. MYND GÚNDI
Leikritið Góðir Íslendingar á leið á leiklistarhátíð í Evrópu:
Evrópa heilsar Íslendingum