Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 17
26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 17
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 1. mars
Miðvikudagur 3. mars
Fimmtudagur 4. mars
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að aa, varð-
veita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00.
Hvað má læra af þeim færustu í samskiptum? -
Ingrid frá Þekkingarmiðlun allar á skemmtilegan hátt
um hvernig þeir færustu í samskiptum bera sig að.
Tími: 13.30 -14.30.
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býugurnar) - Vertu
með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00.
Baujan sjálfstyrking - Fullt! Tími: 15.00 -17.00.
Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00.
Fluguhnýtingar fyrir byrjendur - Skráning nauðsyn-
leg. Komdu með statíf ef þú getur. Tími: 12:00 -13.30.
Saumasmiðjan - Gamalt verður nýtt. Tími: 13.00-15.00.
Þýskuhópur - Við æfum okkur í að tala saman á þýsku.
Tími: 14.00-14.45.
Frönskuhópur - Við æfum okkur í að tala frönsku.
Tími: 15:00 -15.45.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Meðvirkni og mikilvægi þess að setja mörk - Ráð-
gjafar Lausnarinnar (lausnin.is) bjóða upp á einstaklings-
ráðgjöf að fyrirlestri loknum. Tími: 12.30-13.30.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30.
Afmælisveisla - Við fögnum afmælinu með uppistandi,
dúettnum Klukk þú ert´ann með Bödda og Dabba úr
Dalton og auðvitað verður boðið upp á ljómandi góða
afmælistertu. Tími: 15.00-17.00.
Föstudagur 5. mars - Rauðakrosshúsið er 1 árs í dag!
Sálrænn stuðningur - Hver eru áhrif alvarlegra at-
burða á andlega líðan fólks? Tími: 12.30 -14.00.
Prjónahópur - Lærðu að prjóna. Tími: 13.00 -15.00.
Enskuhópur - Æfðu þig að tala ensku. Tími: 14.00 -15.00.
Myndvinnsla með Picasa - Kennt á myndvinnslu-
forritið Picasa. Tími: 15.00 -16.30.
Skákklúbbur - Komdu og tedu. Tími: 15.30 -17.00.
Allir velkomnir!
Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf.
Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00.
Ráðgjöf fyrir innytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð-
gjöf og stuðningur við innytjendur. Tími: 14.00 -16.00.
Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar
þig að læra bridds?Tími: 14.00-16.00.
Líf án hindrana - Árelía Eydís talar um mikilvægi þess
að meta hindranir vel áður en maður samþykkir þær inn
í líf sitt. Tími: 15.00-16.00.
Þriðjudagur 2. mars
Rauðakrosshúsið
Líðan atvinnuleitenda - Umræður - Félagsvinir at-
vinnuleitenda alla um líðan sína eftir langa leit að vinnu.
Hvað getum við gert í sameiningu til að bæta líðan okk-
ar? Tími: 12.30 -14.00.
Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Tími: 13.30-15.30.
Á næstunni: 13.mars hefst fyrsti hluti af þremur í nám-
skeiðinu Barnið komið heim fyrir verðandi og nýorðna
foreldra. Skráning í síma 570 4000
Rauðakrosshúsið er eins árs. Fagnaðu með okkur!
Námskeið Garðyrkja og garðahönnun Arkitektúr og skipulag
Ræktun ávaxtatrjáa, tvö kvöld
n Mánudaginn 1. og 8. mars kl. 19:00 - 21:30.
Verð kr. 12.800.- Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.
Matjurtaræktun, tvö kvöld
n Miðvikudaginn 3. og 10. mars kl. 19:00 - 21:30.
Verð kr. 12.800.- Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.
Ræktun berjarunna
n Mánudaginn 8. mars kl. 17:00 - 18:30.
Verð kr. 3.900.- Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.
Kryddjurtaræktun
n Miðvikudaginn 10. mars kl. 17:00 - 18:30.
Verð kr. 3.900.- Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.
Klipping trjáa og runna og víðinytjar
n Miðvikudaginn 24. febrúar kl. 17:00 - 18:30.
Verð kr. 7.900.- Leiðb: Auður I. Ottesen og Jón Guðmundsson.
Sumarhús frá draumi til veruleika
n Tvö kvöld, mánudaginn 1. og 8. mars kl. 19:00 - 21:30.
Verð kr. 12.800.-
Leiðb: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar.
Handbók húsbyggjandans
- frá hugmynd til veruleika
n Tvö kvöld, miðvikud. 10. og 17. mars kl. 19:00 - 21:30.
Verð kr. 12.800.-
Leiðb: Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann Stefánsson arkitektar
Maður og umhverfi
n Mánudaginn 15. mars kl. 19:00 - 21:30.
Verð kr. 7.900.- Leiðb: Páll Jakob Líndal nemi í umhverfissálfræði.
Leiðbeinendur á námskeiðunum
Auður I Ottesen garðyrkjufræðingur, Jón Guðmundsson
garðyrkjufræðingur, Hlédís Sveinsdóttir arkitekt, Gunnar
Bergmann Stefánsson arkitekt, Björn Jóhannsson
landslagsarkitekt og Páll Jakob Líndal doktorsnemi í
umhverfissálfræði.
©
P
ál
l J
ök
ul
l 2
01
0
Hvar eru námskeiðin haldin?
n Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, 111 Reykjavík.
Einnig bjóðum við upp á námskeið úti á landi.
Skráning
n Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 578 4800,
á heimasíðu okkar www.rit.is og á netfang rit@rit.is
M erkurlaut ehf
Hamrahl íð 31
105 Reyk jav ík
S ími 578 4800
Skráning í síma 578 4800 eða á www.rit.is
Tímaritið Sumarhúsið og garðurinn
n Skemmtilegt lífstílstímarit fyrir alla sem hafa áhuga á
garðyrkju, útiveru og sumarhúsalífi.
Áskriftarverð
2010
kr. 3.560 (Kort)
og kr. 3.800.- (Gíró).
Fjögur blöð koma út á árinu,
í mars, maí, ágúst og nóv.
Með gíró er greitt fyrir allt árið í
einu + sendingarkostnaður, en
með korti er greitt fyrir hvert
tölublað fyrir sig.
n Tvö eldri blöð fylgja frítt með áskrift.
væðinguna sjálfa náðu þau ekki til
þessara mála.
Hvað segir þú um orð Sólons Sigurðs-
sonar, fyrrverandi bankastjóra Bún-
aðarbankans, um að þú hafir þrýst á
lánveitingar til Samson ehf. til kaupa
á Landsbankanum?
Vegna umræðu um þessar lánveit-
ingar vorið 2003 til kaupa á hluta-
bréfum í Búnaðarbanka Íslands hf.
og Landsbanka Íslands hf. vil ég taka
sérstaklega fram að ég bað ekki um
þetta umrædda lán. Það er rangt.
Lántakendur gerðu það sjálfir. Per-
sónulega finnst mér ummæli Sólons
sérstök og gera of lítið úr hans per-
sónu. Ég hef ekki viljað tjá mig um
okkar samtöl sem voru mörg í gegn-
um árin, enda alltaf mikið og gott
samstarf milli bankanna. Slík sam-
töl breyttu hins vegar engu um þá
faglegu ábyrgð sem hver um sig bar
á eigin störfum og ég starfaði ekki á
annan veg. Lánveitingar Búnaðar-
bankans vegna hlutafjárkaupa voru
á forræði og ábyrgð stjórnenda hans.
Áttum að hemja vöxt bankanna
Vorið 2006 urðu miklar umræð-
ur um bankakerfið og gagnrýni sett
fram. Var brugðist nægilega við þeirri
gagnrýni?
Ég hef einmitt hugleitt hvers vegna
ekki hafi verið hægt á bankastarf-
seminni veturinn 2006 til 2007, eftir
gagnrýnar umræður vorið og sum-
arið 2006 um íslenska bankakerf-
ið. Bankarnir höfðu að vísu brugðist
við þeirri gagnrýni með margvísleg-
um hætti. Ingimundur Friðriksson,
fyrrverandi seðlabankastjóri, vék að
þessu í greinargerð um aðdraganda
efnahagshrunsins og sagði með-
al annars: „Bankarnir leituðust við
að bregðast við gagnrýninni á ýms-
an hátt. Þeir juku upplýsingamiðlun
sína til alþjóðlegra markaða og þar
með gagnsæi í rekstri sínum, þeir
leituðust við að draga úr krosseign-
arhaldi, bæta lausafjárstöu sína og
eiginfjárhlutföll og hófu að undir-
búa sókn á innlánamarkað til þess að
auka hlut innlána á skuldahlið efna-
hagsreikninga sinna... Vegna við-
bragða sinna voru íslenskir bankar ef
til vill betur en ella búnir undir þær
miklu og skyndilegu breytingar sem
urðu á alþjóðlegum fjármálamarkaði
upp úr miðju ári 2007.“
Við í Landsbankanum tókum
umræðuna vorið 2006 alvarlega og
bankinn greip þegar í stað til aðgerða,
meðal annars þeirra sem Ingimundur
nefndi. Mistökin þá voru hins vegar
að halda ekki aftur af vextinum. Þarna
var tækifærið hjá öllum aðilum máls-
ins að bregðast við og draga úr vand-
anum á Íslandi. Ég ítreka að við vor-
um lítill hluti af alþjóðlegri þróun.
Til að gæta sanngirni ber þó að
minna á að veturinn 2006 og 2007
og fram á sumarið 2007 voru efna-
hagshorfur metnar afar góðar og al-
menn bjartsýni ríkjandi. Spár helstu
alþjóðastofnana um efnahagshorf-
ur vorið 2007 voru þær bjartsýnustu
um áraraðir. Í efnahagsspá sinni vor-
ið 2007 sem birt var í apríl sagði Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn: „Þrátt fyr-
ir óróa á fjármálamörkuðum mun
alþjóðlegt efnahagslíf einkennast af
mjög miklum vexti árin 2007 og 2008.“
Í viðbótarspá sem birt var 25. júlí
2007 birti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
eina bjartsýnustu efnahagsspá sem
sjóðurinn hafði nokkru sinni birt.
Í spá sinni hækkaði sjóðurinn mat
sitt um hagvöxt í heiminum frá apr-
ílskýrslunni úr 4,9% í 5,2% fyrir bæði
árin 2007 og 2008.
Bankar og skortsölu-
menn ábyrgir
Hreiðar Már Sigurðsson kom fram
í sjónvarpi í fyrra og sagðist skulda
hluthöfum Kaupþings, starfsfólki og
lánardrottnum bankans afsökunar-
beiðni. Finnst þér að þú ættir að gera
það sama?
Allir þeir sem voru í forystu banka-
stofnana um allan heim ættu að biðj-
ast velvirðingar á þeirra þætti í því
sem úrskeiðis fór. Það verður hins
vegar að vera innihald í því sem hver
hefur að segja. Ég geri það sem að
mér snýr sjálfur, þegar allar upplýs-
ingar liggja fyrir.
Förum yfir þetta út frá víðtækara
sjónarmiði og byggt á óháðu mati. Á
nýliðnu ári birtist í Financial Times
athugun á því hverjir teldust helst
bera ábyrgð á þessari dýpstu efna-
hagskreppu allra tíma. Flestir telja
viðskipta- og fjárfestingarbanka bera
ábyrgð á alheimskreppunni, eða með
rúmlega 80% vægi, en fast á hæla
þeim koma seðlabankar með tæplega
80%, þá skortsölumenn hlutabréfa
og hlutabréfaeigendur, um 70%. Um
60% vægi er lagt á störf og ábyrgð eft-
irlitsaðila og stjórnmálaleiðtoga. At-
hygli vekur að ábyrgð fasteignasala
á fjármálakreppunni mælist 40%, en
fasteignafélaga, byggingaverktaka og
íbúðareigenda rúmlega 30%.
Þannig að ef þetta er skoðað hlut-
lægt þurfa margir að meta sína stöðu
FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU
Afsökunarbeiðni
„Allir þeir sem voru
í forystu banka-
stofnana um allan
heim ættu að biðjast
velvirðingar á því
sem úrskeiðis fór.“