Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Side 44
1 Skerið hrámassann,1,5 kg, í bita.
Setjið í hrærivél ásamt flórsykri og
eggjahvítum.
2. Gætið þess að hræra varlega svo
flórsykurinn fari ekki út um allt, gott
er að hafa rakan klút yfir í byrjun.
Hitið ofninn í 200°C.
3. Deigið á að vera svolítið blautt
en ekki svo blautt að það festist við
hendur. Hnoðið meira af flórsykri í
masann ef ykkur finnst þurfa.
4. Deigið tilbúið
5. Penslið formin vel með matarolíu.
Það er grundvallaratriði að smyrja
formin vel svo kakan festist ekki við
þau.
6. Dýfið formunum í hveiti og sláið
síðan hveitið úr þeim. Farið vel yfir
formin og blettið ef þið sjáið auðan
blett og dustið aftur.
7. Rúllið marsípanið í jafnar fingur-
breiðar lengjur.
8. Setjið deigið í formin og raðið
formunum á ofnplötur. Endilega raðið
litlu formunum inn í stóru til að spara
pláss.
9. Byrjið á því að baka einn hring til
að athuga hvernig tekist hefur til og
til að prófa ofnhitann. Ofnar eru mis-
jafnir og erfitt að gefa upp sama hita
fyrir alla. Bakið hringina í miðjum
ofni í 8-10 mín. Fylgist vel með.
10. Mörgum þykir ómissandi að hafa
marsípanskraut á kökunni. Rúllið
marsípan í mjóar jafnlangar lengjur.
11. Formið S-laga stafi og setjið á
bökunarpappír á ofnplötu. Gætið
þess að láta helminginn af S-unum
snúa öfugt.
12. Ef þið eigið afgang af marsípani
eða viljið gera svolítið af smákökum
til að hafa í kringum kökuna, þá eru
þessar kökur fallegar. Hnoðið kúlur
og setjið á ofnplötu með bökunar-
pappír. Gerið djúpa holu í miðjuna
með áhaldi (hér kom dósaopnari að
góðum notum). Bakið kökurnar í 6-8
mín. eða þar til þær eru fallegar og
örlítið gylltar á litinn. Fylgist vel með.
13. Klippið ferhyrning úr bökunar-
pappír. Gerið tvo þríhyrninga úr
bökunarpappírnum.
14. Haldið í sitthvort 60° hornið
og snúið bökunarpappírinn upp í
kramarhúsið eins og sést á myndinni.
15. Lagið kramarhúsið svolítið til með
því að toga aðeins í hornin svo góður
spíss myndist neðst.
16. Brettið pappírinn niður þeim
megin sem samskeytin eru.
17. Hrærið 450-500 g flórsykur og
2 eggjahvítur vel saman. Gætið
þess að hafa glassúrinn í passlegri
þykkt. Of þunnur glassúr lekur út um
allt og of þykkum glassúr er erfitt
að sprauta. Þetta kemur allt með
æfingunni. Setjið glassúrinn í tvö
kramarhús, notið annað fyrst. Klippið
gat, ekki of stórt, prófið fyrst hvernig
stærðin er.
18. Sprautið sikksakk-mynstur á
hringina. Ef hringirnir eru ójafnir
eða einhverra hluta vegna ekki alveg
nógu fallegir er ekki ástæða til að
örvænta. Það er hægt að stækka
gatið aðeins á kramarhúsinu og hafa
glassúrinn svolítið þykkari, það felur
vel misfellur.
19. Flottir hringir tilbúnir.
20. Sprautið glassúr á S-in ef þið notið
þau. Á þessu stigi má frysta kökuna.
Hún geymist vel innpökkuð í allt að
9 mánuði.
21. Raðið kökunni saman á disknum
sem þið ætlið að bera hana fram á.
Diskur á fæti er alltaf glæsilegur.
Skoðið kökuna frá öllum hliðum og
gætið þess að hún sé ekki skökk.
Sumir líma kökuna saman með sykri
en þá vill oft verða erfitt að ná henni
sundur. Eins er harður sykur ekki
mjög bragðgóður.
22. Setjið 2-3 dl af sykri á pönnu. Hitið
þar til sykurinn er brúnaður en gætið
þess að hann verði ekki of dökkur.
Notið sykurinn sem lím og dýfið því
sem þið skreytið með ofan í sykurinn.
23. Festið skrautið á kökuna, reynið
að vera ekki of lengi því sykurinn
stífnar frekar fljótt.
24. Bræðið mjúkt núggat, setjið í
kramarhús og sprautið í holurnar.
F Ö S T U DAG U R 26 . FEB R ÚAR 201044
Mörgum þykja kransakökur ómissandi hluti af fermingunni. Þær kosta oft á bilinu 15.000–20.000 krónur. Efnis-
kostnaður í þær er hins vegar ekki nema um 5.000 krónur en þá er vinnan eftir. DV leitaði ráða hjá fagfólki Gest-
gjafans um hvernig ætti að baka kransakökuna. Í nýjasta tölublaði Gestgjafans sem kemur út eftir helgi er einnig
að finna uppskrift að súkkulaðikransaköku sem er ódýrari og einfaldari í framkvæmd en hefðbundin kransakaka.
Bakaðu kransakökuna
Það sem þarf í kökuna
n 1,5 kg kransakökuhrámassi
n 3-4 eggjahvítur
n 600-700 g flórsykur
n Matarolía
n Hveiti
n Bökunarpensill
n Kransakökuform
Kransakaka fyrir 35-40
25.Kransakakan tilbúin.
Það er gaman að bera fram
heimabakaða kransaköku!