Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 68

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2010, Page 68
68 FÖSTUDAGUR 26. febrúar 2010 HELGARBLAÐ Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff slógu í gegn hjá börnum í Norðlingaholti þegar þau heimsóttu Björnslund – útistofu Norðlingaskóla og leikskólans Rauðhóls. Dorrit var vel klædd, passaði upp á börnin og fékk sér kakó. „ÓLAFUR, KOMDU UPP Í“ „Ólafur, komdu upp í,“ kallaði for- setafrúin, Dorrit Moussaieff, þeg- ar hún skreið inn í skógarþykkn- ið í Björnslundi og ætlaði að klifra uppr í kojuna fyrir ofan börn úr Norðlingaskóla. Þarna höfðu börn- in haldið Survivor-gistingu í miklu frosti og lágu þau í neðri kojunni – enda erfitt að komast alla leið upp. „Nei – ég er ekki í nógu góðum skóm,“ svaraði Ólafur og var varla búinn að sleppa orðinu þegar Dor- rit tók á rás og hoppaði upp. Vel fór á með þeim hjónum og slógu þau í gegn meðal barnanna og ungling- anna. Forsetahjónin voru í heimsókn í Norðlingaskóla þar sem skólinn hafði hlotið Íslensku menntaverð- launin sem forsetinn úthlutar ár hvert. Hefð er fyrir því að forsetinn heimsæki skólana sem hljóta þessi verðlaun. Tóku krakkarnir vel á móti forsetahjónunum, voru bún- ir að laga kakó og smyrja flatkök- ur með hangikjeti. Fékk Ólafur sér tvær flatkökur og líkaði vel. Þegar hjónin komu lásu nemendur Norð- lingaskóla upp af miða eitthvað sem þeir höfðu sjálfir skrifað. Sagði ein stúlkan að skólinn sinn væri mergjaður og uppskar hlátur Ólafs. „Ég hef nú komið í marga skóla en þetta er frábært,“ sagði Ólafur þeg- ar hann skoðaði sig um í Björns- lundi – töfraveröld barnanna. Dorrit labbaði á milli krakk- anna, hafði áhyggjur af því að þeim væri svo kalt og gaf þeim heitt kakó. Þáðu börnin það með þökkum, því enda þótt Kári hafi verið rólegur voru margar mínusgráður. „Ykkur má ekki verða kalt,“ sagði forseta- frúin létt. Í Norðlingaskóla er lögð sérstök áhersla á að nota náttúruna mark- visst í námi nemenda og hjálpar Björnslundur þar til. Leikskólinn Rauðhóll notar Björnslund einnig mikið og eru börnin þar eina viku í mánuði. Dorrit hefur þann sið að stela senunni hvert sem hún kem- ur enda nærvera hennar ákaf- lega þægileg. Öllum líður vel í ná- vist hennar, hvort sem það eru stífustu sjórnmálamenn eða lít- il og einlæg börn. Dorrit fór mik- inn í heimsókninni og voru börnin hæstánægð með hana. Brostu all- an hringinn og eru enn að tala um heimsóknina þegar Dorrit gaf þeim kakó. benni@dv.is Komin upp í Dorrit sló í gegn hjá börnunum. Hér í efri kojunni. Hjálpað niður Ólafur er mikill herramaður og hjálpaði spúsu sinni niður úr efri kojunni. Þétt saman Það fór vel á með þeim forsetahjónum. Leikskólinn Rauðhóll Börnin á leikskólanum komu í heimsókn og prófaði Dorrit vettling af einu barnanna. Fáðu þér kakó Dorrit vildi ekki að börnunum úr Norðlingaskóla yrði kalt og gaf þeim heitt kakó. Eitt hangikjetsflatbrauð, takk Dorrit smakkaði á veigum sem Norðlingaskóli bar fram. Heitu kakói og flatbrauði með hangikjöti. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI Glæsitaska Dorrit bar glæsilega gula tösku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.