Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 FRÉTTIR UMDEILDUR ARI n Þessa dagana er nokkuð rætt um Ara Edwald, forstjóra fjölmiðlafyr- irtækisins 365, meðal starfsmanna félagsins. Ari er ekki allra innan 365, eins og sagt er, og þykir hann á tíðum ganga of langt við að reyna að tengja efnisval í miðlum 365 við auglýs- ingar. Eins hafa mannaráðningar Ara vakið nokkra athygli og þá sérstaklega ráðning hans á nýjum aðstoðarmanni sínum. ER JÓN ÁSGEIR RÁÐGJAFI STJÓRNAR? n Annað sem mikið er pískrað um innan 365 er hvort Jón Ásgeir Jóhannesson, eigandi 365, sitji alla stjórnarfundi félagsins sem ráðgjafi og stýri í raun fundunum. Jón Ásgeir hlaut dóm í Baugsmálinu árið 2008 og má þar af leiðandi, lögum sam- kvæmt, ekki sitja í stjórnum félaga næstu þrjú árin. Sagt er að hugsan- legt sé að Jón Ásgeir þiggi laun fyrir þessa ráðgjafarvinnu. Orðrómurinn hefur ekki aukið á ánægju starfs- manna 365 sem enn hafa ekki fengið að vita hvaða huldumenn það voru sem stóðu á bak við nýlega hlutafjár- aukningu hjá félaginu. LÚÐVÍK OG RÁÐ- HERRADÓMURINN n Þegar sú stórfrétt var sögð í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefði þegið lánafyrir- greiðslu upp á rúmlega 750 milljónir króna í íslenska banka- kerfinu fyrir hrunið rifjaðist gömul frétt upp fyrir minnugum. Sagt var frá því í fjölmiðlum í byrjun febrúar í fyrra, eftir myndun fyrri ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna, að Lúðvík hefði ekki fengið ráðherrastól út af fjármálum sínum. Ráðamenn í Samfylkingunni prísa sig líklega sæla nú, í kjölfar skýrslunnar, að hafa tekið þessa ákvörðun. STEINUNN STENDUR TÆPT n Nánast hefði verið eðlilegt fyrir Samfylkinguna að Lúðvík tæki sæti í ríkisstjórninni þar sem makkað var um myndun hennar á heimili Lúð- víks í Gnitanesi í Reykjavík. Hann var því einn innsti koppur í búri. Nánast öruggt má telja að Lúðvík hefði þurft að víkja af þingi ef hann hefði ákveðið að bjóða sig fram aftur vorið 2009. Lúðvík hefði þá orðið annar samfylkingarmaðurinn til að víkja í kjölfar skýrslunnar. Líklegt er hins vegar að á næstunni muni það falla Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, flokkssystur Lúðvíks, í skaut að hætta á þingi þar sem þrýstingurinn á hana út af styrkjamálinu hefur leitt til endurtekinna mótmæla við heimili hennar. SANDKORN Það eru ekki bara þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem skulda háar fjárhæðir heldur líka bæjarfulltrúar og framkvæmdastjóri flokksins, Jónmundur Guðmarsson. Í félagi við Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ, skuldar hann yfir fjóra milljarða í gegn- um félagið Bergið ehf. Lánin voru veitt vegna hlutabréfakaupa í Sparisjóðabankanum. JÓNMUNDUR SKULDUGUR Það eru ekki bara þingmenn Sjálf- stæðisflokksins sem koma illa út varðandi lánaskuldir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis held- ur líka framkvæmdastjóri flokks- ins og bæjarfulltrúar hans. Skuld Jónmundar Guðmarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og Steinþórs Jónssonar, bæjarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins í Reykja- nesbæ, þegar bankahrunið varð var rúmir fjórir milljarðar króna. Skuld- in liggur inni í einkahlutafélagi þeirra félaga, Berginu ehf., að því er fram kemur í skýrslunni. Skuldir þeirra félaga, í gegnum Bergið, eru tilkomnar vegna lána- töku fyrir kaupum á hlutabréfum í Sparisjóðabankanum, sem áður hét Icebank, hjá SPRON. Eftir að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekst- ur bankans varð lán félagsins eft- ir þar og eftir því sem DV kemst næst liggur skuldin þar enn. Það var vegna stöðu Steinþórs hjá Ice- bank, en hann gegndi starfi vara- formanns bankaráðs samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndarinnar, sem Bergið fékk lánaða þessa fjóra milljarða vegna bréfakaupa í sjálf- um bankanum. Jónmundur á síðan hlut í Berginu sem fékk þessa fjár- muni lánaða. Bætast í hópinn Þar með bætast Jónmundur og Steinþór í vaxandi hóp sjálfstæðis- manna sem eru í vanda þessa dag- ana. Flokkurinn er varaformanns- laus eftir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði af sér embætt- inu um síðustu helgi vegna lána- skulda hennar sem tengjast eigin- manni hennar, handboltahetjunni og fyrrverandi bankayfirmanninum Kristjáni Arasyni. Skuldirnar nema tæpum tveimur milljörðum króna. Hún er þó ekki efst á skuldalista þingmanna Sjálfstæðisflokksins því Sólveig Pétursdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, trónir á toppnum með hátt í fjögurra milljarða skuld. Þá hefur Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, verið í fullu starfi við að verja aðkomu sína að viðskiptalífinu undanfarin ár, til að mynda viðskiptasamband sitt við Milestone-bræður og útlandaboðs- ferðir í einkaþotum. Hann segist enga ástæðu sjá til afsagnar af sinni hálfu. Undirmaður Bjarna, þingmað- urinn Illugi Gunnarsson, sá aftur á móti ástæðu til afsagnar vegna að- komu sinnar að peningamarkaðs- sjóði Glitnis, svokölluðum Sjóði 9. Hann var stjórnarmaður í sjóðnum og málefni hans eru til skoðunar hjá sérstökum saksóknara. Miklar skuldir Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þurfa að svara fyrir eitt og annað en það þurfa bæjarfulltrúar flokks- ins líka að gera. Oddviti flokksins í Kópavogi, þingmaðurinn Ármann Kr. Ólafsson, skuldaði 250 milljónir króna í bönkunum við hrun þeirra síðla árs 2008. Hann hefur sjálfur svarað því til að tölurnar séu gaml- ar og staða hans í dag sé allt önnur og betri. Þá fékk áðurnefndur Steinþór, bæjarfulltrúi flokksins í Reykjanes- bæ, lánaða rúma fjóra milljarða fyr- ir hlutabréfkaupum í Sparisjóða- bankanum. Þá fékk hann lánaða í gegnum Bergið og á Jónmundur framkvæmdastjóri hlut í félaginu. Það viðurkenndi hann í samtali við DV í fyrra og við sama tækifæri sagði hann lántökurnar eðlilegar. Aðspurður segist Steinþór ekki hafa fengið uppfærða stöðu á um- ræddu láni en segir lánið ekki í van- skilum. „Við sem fjárfestar greidd- um 1/3 af kaupverði sem eigið fé eins og aðrir. Annað hefur ekki ver- ið greitt en lánið er ekki í vanskil- um og ekkert hefur verið afskrifað. Eigendur hafa ekki hist nýlega til að ræða framhaldið en ljóst er að við sem kaupendur og fjárfestar ríðum ekki feitum hesti frá þessum kaup- um frekar en aðrir. Ég lít sjálfur á að eigið fé sem ég lagði i félagið sem og allra annarra eiganda Bergsins sé að fullu tapað,“ segir Steinþór. Við vinnslu fréttarinnar var leit- að viðbragða hjá Jónmundi en án árangurs. Annað hefur ekki verið greitt en lánið er ekki í van- skilum og ekkert hefur verið afskrifað. Sólveig Pétursdóttir 3.635 milljónir Þorgerður K. Gunnarsdóttir 1.683 milljónir Herdís Þórðardóttir 1.020 milljónir Ármann Kr. Ólafsson 248 milljónir Bjarni Benediktsson 174 milljónir Ásta Möller 141 milljón Ólöf Nordal 113 milljónir Skuldir sjálfstæðismanna í bönkunum Ógreiddar skuldir? DV leitaði svara hjá Jónmundi og Steinþóri um stöðu lánanna en hjá hvorugum þeirra fengust svör. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Árétting Í nýlegri frétt DV um bág kjör Ásu Hjálmarsdóttur var ofsagt að hún svæfi í sófa í stofu í íbúð sinni. Þá hefði ranglega mátt túlka af fréttinni að hún væri skjólstæð- ingur Fjölskylduhjálpar Íslands, sem hún er ekki. Það leiðrétt- ist hér með og er Ása beðin vel- virðingar á þessu. Þess ber að geta að fréttin er unnin upp úr samtali blaðamanns við Ásu en misskilningur kom upp milli Ásu og blaðamanns um að frétt yrði skrifuð upp úr samtalinu. Það var ekki ætlun DV að birta frétt gegn hennar vilja og er Ása beðin velvirðingar á því. Það var heldur ekki ætlun DV að valda Ásu ama vegna fréttarinnar og er hún beð- in velvirðingar á því. Íslenska ríkið hefur yfirtekið Spari- sjóð Keflavíkur samkvæmt heimild- um DV og er þar með orðinn stærsti stofnfjárhluthafi sparisjóðanna. Boð- að hefur verið til starfsmannafundar klukkan 8 í dag þar sem þetta verður kynnt fyrir starfsmönnum. Yfirtaka ríkisins á Sparisjóði Kefla- víkur, sem DV.is greindi frá fyrstur fjölmiðla í gærkvöldi, er til komin eft- ir að íslenska ríkið gerði kröfuhöfum tilboð um að þeir felldu niður stóran hluta krafna sinna gegn því að ríkið kæmi inn með 12 milljarða króna í sjóðinn á grundvelli neyðarlaganna. Reikna má með að ríkið leggi á annan tug milljarða í yfirtöku sína á sjóðn- um. Ríkið er þar með orðið langstærsti eigandi sjóðsins sem er með af- greiðslustaði í sextán bæjarfélögum. Endirskipulagning íslenska spari- sjóðakerfisins hefur staðið yfir nær sleitulaust frá bankahruninu haust- ið 2008 en hefur dregist vegna erf- iðleika við að klára mál tengd Byr og Sparisjóði Keflavíkur. Ríkið hefur heimild til að leggja sparisjóðnum til nýtt stofnfé með það að markmiði að tryggja rekstur hans til framtíðar samkvæmt neyðarlögunum sem sett voru í hruninu. Stjórn sjóðsins hefur vikið og hef- ur bráðabirgðastjórn verið skipuð yfir honum. Starfsemi Sparisjóðs Kefla- víkur mun halda áfram í óbreyttri mynd og innstæður eru tryggðar. Það var krafa Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, samkvæmt skýrslu AGS sem birt var á fimmtudag, að ef kröfuhaf- ar og stofnfjáreigendur Sparisjóðs Keflavíkur myndu ekki taka tilboði íslenska ríkisins sem talað er um hér að ofan, yrði gripið til aðgerða til að vernda innstæðueigendur að fullu. Endurskipulagningarferlinu bæri að ljúka fyrir lok maí enda hefur það dregist mikið. Nú hefur dregið til tíðinda og ríkið komið að Sparisjóði Keflavíkur. Telja má víst að stofnfjáreigend- ur taki á sig talsverðan skell vegna þessarar ákvörðunar íslenskra stjórn- valda. mikael@dv.is Ríkið hefur nýtt heimild til að leggja sparisjóðnum til nýtt stofnfé. Sparisjóður Keflavíkur til ríkisins Til ríkisins Íslenska ríkið hefur yfirtekið Sparisjóð Keflavíkur. Breytingarnar verða kynntar starfsmönnum á fundi í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.