Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 FRÉTTIR HÚMOR Í HÁDEGISMÓUM n Það verður ekki af Davíð Odds- syni, ritstjóra Morgunblaðsins, skafið að hann býr yfir leiftrandi og afar sér- stæðum húm- or. Kímnigáfa hans kemur afar vel fram í Staksteinum en einnig í leiður- um. Morgun- blaðið glímir við mjög vaxandi vantraust lesenda sem mælist í samkvæmisleik MMR. Verst var fallið eftir að Davíð tók við af Ólafi Stephensen en það hefur heldur lagast þannig að um 25 prósent þjóðarinnar vantreysta blaðinu nú. Davíð er hins vegar ekki af baki dottinn og svarar fyrir sig í leiðara á miðvikudag þar sem hann þakkar lesendum traustið. UMBI UTAN SKÝRSLU n Þótt skýrsla sannleiksnefnd- arinnar hafi hlotið almennt lof eru þó uppi efasemdaraddir um full heilindi nefndarinnar. Davíð Oddsson, sem úrkurðaður var sekur um van- rækslu, hefur bent á meinta vanhæfni tveggja nefnd- armanna. Í því efni er bent á Tryggva Gunn- arsson, nefndarmann og um- boðsmann Alþingis. Davíð telur Tryggva hafa verið vanhæfan þar sem tengdadóttir hans starfaði hjá Fjármálaeftirlitinu. Í skýrsl- unni er sama og ekkert fjallað um árangur embættis umboðsmanns sem á að vera eftirlitsaðili með stjórnsýslunni. Einhverjir telja að full ástæða hefði verið til að kanna rækilega frammistöðu embætt- isins. KETTIR Í BÖND n Reiknað er með að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra stokki rækilega upp í ríkisstjórninni á næstu vik- um. Orðrómur er uppi um að Ögmundur Jón- asson alþing- ismaður sem hrökk frá borði ríkisstjórnar- innar fari í frí frá þingmennsku en komi síðan sem fuglinn Fönix og verði ráð- herra. Þar með er talið að Stein- grímur komi böndum á „kettina“ í órólegu deildinni í VG og friður umvefji kærleiksheimili Jóhönnu og Steingríms. Ekki er ljóst hvenær uppstokkun verður. Giskað er á að hrókering verði fyrir sveitarstjórn- arkosningar. ,,YOU AIN’T SEEN NOTHING YET“ n Orð Ólafs Ragnars Grímsson- ar, forseta Íslands, um afleiðing- arnar af mögulegu eldgosi í Kötlu vöktu mikla athygli á þriðjudag- inn. Ýmsum þótti einkenni- legt að forsetinn brygði sér í hlut- verk véfréttar á þennan hátt og varaði heims- byggðina við Kötlugosi. Um- mælin minntu dálítið á orð sem forsetinn lét falla í ræðu í London árið 2005 þar sem hann mærði íslensku útrásina. Þá sagði Ólafur: „You ain’t seen nothing yet,“ og mátti skilja hann sem svo að Íslendingar væru aðeins rétt byrjaðir á útrásinni. Þjóðremba Ólafs Ragnars virðist nú hafa færst frá útrásinni eftir hrunið og yfir á náttúru Íslands. SANDKORN Framtíð olíufélagsins N1 veltur nú alfarið á vilja Íslandsbanka sem er með félagið í gjörgæslu. Bankinn ræður nú þegar yfir tæpum helmingi í Skeljungi og hefur ekki mikinn áhuga á að bæta við sig öðru. Móðurfélagið BNT skuldaði Íslandsbanka um 30 milljarða króna. Hluthafar félagsins standa tæpt. N1 Í GJÖRGÆSLU ÍSLANDSBANKA Íslandsbanki getur tekið yfir olíufélag- ið N1 vegna skuldsetningar móðurfé- lags þess, BNT, og stöðu þeirra félaga sem standa að því. Þetta herma heim- ildir DV. BNT og N1 eru enn formlega í eigu Einars og Benedikts Sveinssona og aðila þeim tengdum. Einn af heim- ildarmönnum DV orðar samband N1 og bankans sem svo að bankinn sé með olíufélagið „í gjörgæslu“ um þessar mundir. Spurningin er hins vegar sú hvort bankinn kæri sig um að taka olíufé- lagið yfir og standa í rekstri á olíufé- lagi. Bankinn á nú þegar 49 prósent í Skeljungi sem hann eignaðist árið 2008 vegna sölutryggingar á félaginu sem Pálma í Fons hafði verið veitt. Bankinn sölutryggði olíufélagið á 8,7 milljarða í desember árið 2007 og seldi 51 prósent af því fyrir 1,5 milljarða í ágúst 2008. Síðan þá hefur bankinn haldið utan um minnihluta hlutafjár í Skeljungi og hefur olíufélagið verið bankanum til mikilla vandræða. Hlut- ur bankans er nú í söluferli og er útséð með að bankinn muni tapa enn meiru á Skeljungi þegar hann verður seldur á næstunni. Íslandsbanka þykir þess vegna ekki fýsilegur kostur að taka yfir annað olíufélag þó hann geti það út af skuldastöðu félagsins. Bankinn hefur hingað til frekar látið félagið borga af skuldum sínum til bankans í stað þess að taka það yfir. 30 milljarða skuldir Samkvæmt skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis var BNT tólfti stærsti skuldari Glitnis banka með rúmlega 30 milljarða króna skuldir við bank- ann eftir hrunið árið 2008. Einar og Benedikt áttu 7 prósenta hlut í Glitni árið 2008 en höfðu átt stærri hluta þar til í apríl 2007 þegar FL Group náði yfirhendinni í bankanum. Þar til þá var Einar jafnframt stjórnarformaður bankans. Útlánin til BNT og tengdra aðila, N1 og fasteignafélags olíufélagsins, Umtaks, námu tæpum 18 prósentum af eiginfjárgrunni Glitnis á árunum 2007 og 2008. Hæst fór þetta hlutfall upp í 20 prósent af eiginfjárgrunnin- um í ársbyrjun 2006. Lánveitingarn- ar til BNT og tengdra félaga voru því hærri þegar Einar og tengdir aðilar áttu stærri hlut í bankanum. Erfitt er hins vegar að átta sig ná- kvæmlega á stöðu BNT um þess- ar mundir þar sem félagið hefur ekki skilað ársreikningi síðan árið 2007. Hluthafar N1 standa tæpt Einstakir stórir hluthafar í BNT standa einnig tæpt um þessar mundir. Eign- arhaldsfélag Einars Sveinssonar, Hró- mundur, tapaði tæplega sex millj- örðum króna árið 2008, samkvæmt ársreikningi félagsins. Félagið á með- al annars hlut í fjárfestingafélaginu Mætti sem hélt utan um eignarhlut í BNT. Auk þess á félagið beinan eign- arhlut í BNT, sem metinn er á rúman hálfan milljarð króna í ársreikningn- um. Hrómundur varð fyrir frekari skakkaföllum í maí árið 2009 þegar Ís- landsbanki leysti til sín samanlagt 38 prósenta hlut Máttar, sem Hrómund- ur á þriðjungshlut í, og eignarhaldsfé- lagsins Nausts ehf. í flugfélaginu Ice- landair - Máttur átti rúm 23 prósent í Icelandair en Naust átti tæp 15 prósent. Hafsilfur Eignarhaldsfélag, sem er í eigu Benedikts Sveinssonar, tapaði sömuleiðis rúmum tveimur milljörð- um króna á árinu 2008, samkvæmt árs- reikningi félagsins. Skuldir þess félags nema tæpum 4 milljörðum króna og voru rúmlega 3,5 milljarðar af þessum skuldum á gjalddaga í fyrra. Þrír stærstu hluthafarnir í BNT standa því tæpt sömuleiðis og er fram- tíð N1 nær alfarið í höndum Íslands- banka nú um stundir. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is n Óþekktir hluthafar: 50 prósent (Þar af á Hrómundur hlut sem metinn er á 560 milljónir króna) n Fjárfestingafélagið Máttur ehf. (Hrómundur 33 prósent, Hafsilfur 17 prósent, aðrir hluthafar 50 prósent): 29 prósent n Hafsilfur Eignarhaldsfélag ehf. (Benedikt Sveinsson): 21 prósent Hluthafar í BNT samkvæmt Lánstrausti: n „... fyrir utan um 130 milljóna evra útlán frá Kaupþingi til Umtaks fasteignafélags, sem sjá má á mynd 109, voru aðeins veruleg lán frá Glitni til hópsins. Stærsti einstaki lántakandi Glitnis var N1 en Fjárfest- ingafélagið Máttur og BNT sjálft voru einnig stórir lántakendur, með um tæplega 100 milljóna evra lán hvort við fall bankans. Sem hlutfall af eigin- fjárgrunni bankans fóru heildarútlán Glitnis til hópsins hæst í yfir 20% í byrjun árs 2006 og voru tæp 15% við fall bankans.“ BNT í skýrslunni: Spurning um vilja bankans Einar Sveinsson er stærsti eigandi N1 og stjórnarformaður félagsins. Hann var áður stjórnarformaður Glitnis en Íslandsbanki er nú með félagið í gjörgæslu. Stuðningsmannahópur mótmæl- endanna níu, sem ríkið hefur ákært fyrir aðför að Alþingi, undirbýr und- irskriftasöfnun þeim til stuðnings. Það eru vinir þeirra sem standa að baki yfirlýsingunni og gefst almenn- ingi kostur á að skrifa undir hana. Við undirskrift er skorað á ríkið að annaðhvort falla frá málinu eða ákæra alla þá Íslendinga sem mót- mæltu við þinghúsið í búsáhalda- byltingunni. Mótmælendunum er gefið að sök að hafa gert aðför að Alþingi, brotist inn í þinghúsið, valdið uppþoti og ráðist á þingverði og lögreglumenn, mánudaginn 8. desember 2008. Fari málið á versta veg fyrir mótmæl- endurna níu gætu þeir átt yfir höfði sér 16 ára fangelsi sem er hámarks- refsing en lágmarksrefsing er eitt ár. Fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur fór fram í síðustu viku þar sem verj- endur fóru ýmist fram á sýknu eða niðurfellingu málsins. Ekki liggur fyrir hvort eða hvenær aðalmeðferð málsins fer fram. Með undirskriftasöfnuninni von- ast stuðningsmennirnir til að sýna fram á fáránleika dómsmálsins, sem sé lítið annað en pólitískar ofsókn- ar. Undirskriftasöfnunin er í fullum undirbúningi og verður á næstunni kynnt opinberlega þar sem almenn- ingur verður hvattur til að sýna mótmælendunum stuðning í verki. Með því að skrifa undir yfirlýsing- una skorar sá sem það gerir á ríkið að ákæra sig fyrir aðför að Alþingi í byltingunni eftir bankahrunið. trausti@dv.is Stuðningsmenn mótmælendanna níu undirbúa undirskriftasöfnun: Biðja um að vera ákærðir Mikill stuðningur Í síðustu viku var mál ríkisins gegn níu mótmælendum tekið fyrir og þangað mætti fjöldi fólks til stuðnings hinum ákærðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.