Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 VIÐTAL
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 26. apríl Miðvikudagur 28. apríl
Fimmtudagur 29. apríl
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að aa, varð-
veita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00
Íslenskuhópur - Hefur þú lært íslensku en þarft að æfa
þig í að tala? Tími: 13.00 -14.00
Innanlandsstarf Rauða kross Íslands - Hvað gerir
Rauði krossinn hér á landi? Tími: 14.00-14.30
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býugurnar) - Vertu
með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00
Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00
Fluguhnýtingahópur - Komdu með uguhnýtingastand
ef þú getur. Tími: 12.00-13.30.
Saumasmiðjan - Breytt og bætt. Tími: 13.00-15.00.
Þýskuhópur - Æfðu þig í að tala þýsku. Tími: 14.00-14.45.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Áfall í ölskyldum - Það að missa barn - Vigfús Bjarni
Albertsson sjúkrahússprestur fjallar um þá þætti sem hafa
áhrif á sorgarúrvinnslu foreldra og systkina.
Tími: 12.15-13.15
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30.
Psychosocial support - In English - Sálrænn stuðning-
ur á ensku. Tími: 13.30 -15.00
Hláturjóga - Viltu losa um spennu? Tími: 15.30-16.30.
Föstudagur 30. apríl
Allir velkomnir!
Þriðjudagur 27. apríl
Rauðakrosshúsið
Sálrænn stuðningur og félagsskapur
Börn og náttúruhamfarir - Hvernig er best að tala
við börn og veita þeim stuðning þegar áföll og
náttúruhamfarir dynja yr? Tími: 12.00-13.00
Prjónahópur - Komdu og prjónaðu. Tími: 13.00 -15.00
Enskuhópur - Viltu æfa þig í að tala ensku? Komdu og
tjáðu þig og fáðu leiðsögn. Tími: 14.00-15.00
EFT og djúpslökun - Lærðu að nota tækni sem getur
bætt líf þitt. Tími: 14.30-16.30
Skákklúbbur - Komdu og tedu! Tími: 15.30-17.00
Barnið komið heim - Annar hluti. Tími: 17.00-19.00
Hjólað í vinnuna er líka fyrir atvinnuleitendur
Skráðu þig í lið og hjólaðu í virknina. Undirbúningur og
skipt í lið. Tími: 12.00-13.00
Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Komdu með fartölvu
ef þú getur. Tími: 13.30-15.30.
Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf.
Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00.
Ráðgjöf fyrir innytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð-
gjöf og stuðningur við innytjendur. Tími: 14.00 -16.00.
Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar
þig að læra bridds? Tími: 14.00-16.00.
eins og ég hef sagt við þig og er ein-
dregið mín skoðun að þjóð sem árum
saman hefur búið sig undir Kötlugos
getur ekki haldið þeirri vitneskju út
af fyrir sig þannig að það sé bannað
að tala um það við útlendinga og þar
eigi bara að ríkja uss, uss, eins og mér
skilst nú á Friðriki Pálssyni og öðrum
sem hafa haft hátt í þessari umræðu,“
segir hann og á þar við hótelhaldar-
ann á Hótel Rangá.
Pirrar það þig þegar orð þín eru
slitin úr samhengi?
„Nei, þótt einhverjir hér á Íslandi
ákveði að túlka orð mín með þess-
um hætti þá er það bara þeirra val.
Það hefur ekki haft nein áhrif á mig
og ég hef haldið framgöngu minni
áfram með því að veita fjölmörgum
erlendum miðlum viðtöl síðan ég fór
í þennan BBC-þátt.“
TÆKIFÆRIN Í HAMFÖRUNUM
Varðandi ferðaþjónustuna segir
hann þetta: „Það er mjög eðlilegt að
á meðan eldgos á sér stað verði af-
bókanir, en mér hefur verið tjáð að
þær afbókanir hafi komið áður en ég
fór í þennan sjónvarpsþátt þannig að
við skulum bara spyrja að leikslok-
um í þeim efnum og nálgast það með
öðru hugarfari.
Ég hef verið í fjölmörgum við-
tölum við erlendar sjónvarpsstöðv-
ar og fjölmiðla síðustu daga bæði í
Bandaríkjunum og Evrópu og það
sem hefur einkennt spurningarn-
ar er að þessir viðburðir muni vekja
aukinn áhuga ferðamanna og muni
gera Ísland meira spennandi á með-
al fólks vítt og breitt í veröldinni. Ég
held þess vegna að það sé alveg rétt
sem Ómar Ragnarsson hefur verið
að segja síðustu daga að þessar ham-
farir, þó að það sé þversögn að segja
það, feli í sér ef rétt er á spilum hald-
ið tækifæri fyrir ferðaþjónustuna á
Íslandi á að birta fólki vítt og breitt
úr veröldinni það sem ýmsir erlend-
ir fréttamenn kalla sköpun heimsins,
og gefa fólki tækifæri til þess að verða
vitni að sköpun heimsins og hvetja
það til að koma á vettvang.
Ég er sannfærður um það að til
lengri tíma litið geti þessir viðburð-
ir styrkt ferðaþjónustuna á Íslandi
mjög ef rétt er brugðist við.“
SÖGULEG FERÐAÞJÓNUSTA
Hann segist hafa lagt megináherslu
á einstaka náttúru Íslands og að hér
sé sambland eldfjalla og jökla, stöðu-
vatna, fossa, gróinna dala og eyði-
sanda sem geri Ísland að einstöku
náttúruundri. „Við höfum stundum
túlkað þetta á þann hátt að sköpun
heimsins sé enn í gangi hér á Íslandi
og að það sé ekkert annað land í Evr-
ópu, og kannski ekkert í veröldinni,
þar sem slíkt tækifæri gefst til þess að
verða vitni að hamförum náttúrunn-
ar. Með aukinni áherslu á umhverf-
ismál og vaxandi umhverfisáhuga
úti um allan heim er ferðaþjónust-
an í veröldinni í æ ríkari mæli bund-
in náttúrunni og umhverfinu. Amer-
íkumönnum og Evrópubúum gefst
hvergi tækifæri í slíkri nálægð við sína
heimahaga til þess að skoða og draga
ályktanir með sama hætti og hér á Ís-
landi.
Við þurfum hins vegar að hafa lag
á því að auðvelda mönnum það að
verða fyrir þeirri reynslu með því að
skipuleggja ferðir þeirra með þeim
hætti, túlka viðburðina á þann veg,
setja þá í samhengi við umhverfis-
mál í veröldinni og söguna.“
Hann bendir á að hér séu eldfjöll
í Lakagígum sem margir sérfræð-
ingar telji hafa haft áhrif á frönsku
byltinguna. „Við getum klætt þetta
í búning sem dregur fólk að. Ég veit
líka af eigin reynslu að það er mik-
ill fjöldi skóla, menntaskóla, fram-
haldsskóla og háskóla, sem vill koma
með nemendur sína í stórum stíl til
Íslands til þess að fræðast og njóta í
senn. Tengja Íslandsferð við nám-
skeið, fræðslu og próf. Þar er eldgos-
ið, bæði það sem var fyrir nokkrum
vikum og eins núna, mikill efnivið-
ur fyrir þessa miklu sveit, sem skipt-
ir tugum miljóna manna, sem hefur
aukinn áhuga á að ferðast kannski
fyrst og fremst í fræðsluskyni.“
Aðspurður hvort honum þyki
þá að Íslendingar ættu að gera eins
mikið úr eldgosinu og hægt er segir
hann: „Ég vil ekki orða það þannig
að við ættum að gera eins mikið úr
þessu og hægt er því það gæti mis-
skilist, en ég er hins vegar sammála
Ómari Ragnarssyni varðandi það
að fjölmörg tækifæri felist í þessari
miklu umfjöllun ef ferðaþjónust-
an nálgast þetta með réttum hætti.
Þau eru reyndar ekki bara bundin
hefðbundinni ferðaþjónustu. Þau
eru bundin skólum, háskólum og
fræðasamfélaginu, líka listamönn-
um og hönnuðum og öðrum sem ég
hef orðið var við að hafa áhuga á að
nálgast efni sem hafa komið upp úr
eldgosinu, og hafa orðið fræg um alla
veröld, og nýta það í listsköpun.“
FRÁBÆR LANDKYNNING
Hann segir að Ísland hafi aldrei feng-
ið aðra eins landkynningu frá því
nútímafjölmiðlun kom til sögunnar
og blæs á sögur um að það þurfi að
tóna fréttaumfjöllun niður. „Ég held
að þessar lýsingar þeirra um það að
umræðan sé æsingarkennd sé byggð
á miklum misskilningi. Ég hef fylgst
mjög rækilega með erlendum sjón-
varpsstöðvum og miðlum undan-
farna daga og það er enginn æsingur
út af þessum ummælum nema síður
sé. Ég hef einnig átt viðtöl síðan ég fór
í þennan BBC-þátt við fjölda banda-
rískra og evrópskra sjónvarpsstöðva
og það er enginn æsingur út af þess-
um ummælum og væri þó tilefni fyr-
ir þá að beina þessu til mín fyrst þeir
fengu kost á slíkum viðtölum, þannig
að ég bið nú menn hér heima að vera
ekki að ýkja þetta um of, heldur fyrst
og fremst, eins og Ómar Ragnarsson
hefur réttilega bent á, að snúa sér að
því verkefni að nýta þau tækifæri fyr-
ir ferðaþjónustuna sem þessi mikla
athygli og þetta mikla umbrot hefur
skapað.
Þessi mikla sveit fjölmiðlamanna
sem hingað hefur komið hefur kom-
ið því rækilega á framfæri að íslenskt
samfélag hefur gengið sinn vana-
gang þrátt fyrir þetta eldgos. Þeir
hafa lýst því hvernig brugðist hefur
verið við hér á landi, þannig að þvert
á móti er enginn æsingur í gangi eða
panikk í alþjóðlegri fjölmiðlun.“
ÓTTI OG EFTIRVÆNTING
Ólafur Ragnar er orðinn órólegur,
hann er með fullskipaða dagskrá
og þarf að drífa sig. Að lokum, ein
spurning, ertu hræddur við Kötlu?
„Ég hef alist upp við það eins og aðrir
Íslendingar að afstaða okkar til Kötlu
er svona tvíbent. Annars vegar ótt-
umst við Kötlu og hins vegar fangar
hún huga okkar og skapar ákveðna
eftirvæntingu og spennu. Það er
kannski einkenni þjóðarsálarinnar
að Katla hefur þessi tvíþættu áhrif
á okkur og hefur gert í sögunni. Við
erum hér á Bessastöðum með mál-
verk eftir Ásgrím Jónsson af Kötlu-
gosinu 1918 sem sýnir hvernig sá
merki listamaður notaði það til þess
að skapa frábært málverk þar sem
bændur eru að flýja undan gosinu
með hesta sína þannig að Katla hefur
haft áhrif á listina en hún hefur líka
skapað hörmungar og áþján fyrir Ís-
lendinga um aldir.“
Ég er mjög ánægður
með skýrsluna í
heild sinni og hef
hvatt þjóðina til
að draga lærdóm
af henni.
Vegna þess að ég er ekki þeirr-ar skoðunar eins og sumir virð-
ast vera að það megi bara ræða Kötlu-
gos hér á Íslandi og í þröngum hópi
Íslendinga en það megi alls ekki
ræða Kötlugos við útlendinga.
Gleymir aldrei eldgosinu í Vestmannaeyjum
Ólafur Ragnar heimsótti Vestmannaeyjar skömmu
eftir gosið og horfði upp á eyðilegginguna og
fylgdist síðan með endurreisninni. Hann vonar
að íbúar undir Eyjafjallajökli finni fyrir stuðningi
þjóðarinnar líkt og Eyjamenn gerðu þá.
Segir bara sannleikann Hafi
Ólafur Ragnar lært eitthvað
af bankahruninu þá er það
að hlusta á viðvörunarorð,
vera gagnrýninn og vara við
hamförum, hvort sem þær eru af
völdum manna eða náttúrunnar.