Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010
NAFN OG ALDUR?
„Magnús Valdimarsson, 25 ára.“
ATVINNA?
„Engin eins og er.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Einhleypur.“
FJÖLDI BARNA?
„Engin.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Já.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Hitaði upp fyrir hljómsveitina Diktu.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Nei. Fyrir utan kannski stöðumælasekt.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Mér finnst fínt að vera í jakkanum mínum til dæmis.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Ég hef ekki farið í neinar megrunaraðgerðir. Kannski
í mesta lagi tekið mig á í ræktinni.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆLUM?
„Nei. Hef betra við tímann að gera.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já, því ekki það?“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ HAFA
HALDIÐ UPP Á?
„Ég held að ég hlusti bara á það sem mér finnst gott
og skammast mín ekkert fyrir það.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Mér finnst ný tónlist í dag ekkert alltof vönduð svo
Mixarinn hendir bara einhverju gömlu og góðu á
fóninn.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Finna mér góða kærustu, brosa framan í lífið og allt
það góða sem lífið hefur upp á að bjóða.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFTUR?
„Það er engin ein mynd sem stendur upp úr en það
eru nokkrar skemmtilegar.“
AFREK VIKUNNAR?
„Facebook-síðan mín, Maggi mix og líta björtum aug-
um fram á við.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Nei, ekki svo mig minni. Ég tel að engin manneskja
viti hvað gerist í framtíðinni. Þau segja líka alltaf það
sama, „peningar, börn, ferðalög“.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Nei, en ég hef dundað mér með gítar og farið í
nokkra tíma.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Eins og staðan er í dag er erfitt að segja til um það.
Allt er í steik í peningamálum.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Að mér og öðrum í kringum mig líði vel, vera hrein-
skilinn, koma fram við alla jafnt og gera það sem mér
finnst skemmtilegt.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Engan. Því þeim er ekki treystandi þótt þeir væru
allir edrú. Myndi frekar fara á trúnó með kettinum
mínum. He, he.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST VILJA
HITTA OG AF HVERJU?
„Ég hef hitt nokkra fræga hér á landi og það er ekkert
öðruvísi en fólkið á götunni. En væri til í að hitta ein-
hvern í Hollywood.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Já, oft upp á gamanið.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Ég man ekki eftir neinu eins og er.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST?
„Engum, held ég. Sumir eru leikarar, tónlistarmenn,
plötusnúðar eða skemmtikraftar en ég tel mig vera
allt.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Já. Mixerinn er alltaf með eitthvað í pokahorninu.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Nei, ætti að banna þetta allt saman.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Heima hjá mér, Mallorca, eða í auðninni.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Bursta tennurnar, renni yfir tölvupóstinn og hugsa
hvað ég ætli að gera næsta dag.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Hætta þessu rugli einn, tveir og þrír. Afskrá skuldir
hjá öllum Íslendingum eins og var gert við útrásavík-
ingana. Við erum hvort sem er á hausnum svo ef við
hugsum rökrétt og byrjum allt upp á nýtt þá bjargast
allt.“
Magnús Valdimarsson, Maggi mix, hefur heldur betur slegið
í gegn undanfarið. Hann gerir sín eigin matreiðslumyndbönd
og er auk þess einn heitasti skemmtikraftur landsins um
þessar mundir. Síminn stoppar ekki og pósthólfið er stappað.
VERÐUM AÐ
HUGSA RÖKRÉTT
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
smaar@dv. is