Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Síða 18
18 FRÉTTIR 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
m
ag
gi
@
12
og
3.
is
4
11
.0
08
Batik • Bíldshöfða 16 • 110 Reykjavík • Sími 557 2200 • sala@batik.is • www.batik.is
Mikil gleði var í húsakynnum Fjölskylduhjálpar Íslands síðastliðinn miðvikudag þegar Hanna María Pet-
ersdóttir, 5 ára gömul, kom þar við með móður sinni, Auði Lind Aðalsteinsdóttur, og afhenti ávísun upp á
1.100.000 krónur. Auður fór af stað með verkefnið Brosum saman síðastliðið haust og hóf sölu á endurskins-
merki sem dóttir hennar teiknaði. Peningarnir eru afraksturinn af því.
FIMM ÁRA STÚLKA
GAF RÚMA MILLJÓN
Hanna María Petersdóttir, 5 ára,
afhenti Fjölskylduhjálp Íslands
1.100.000 krónur síðastliðinn mið-
vikudag. Peningarnir eru afrakst-
ur verkefnisins Brosum saman sem
móðir hennar, Auður Lind Aðal-
steinsdóttir, kom á laggirnar rétt fyrir
jólin í fyrra. Hún ákvað að hefja sölu
á sérhönnuðu endurskinsmerki sem
dóttir hennar, Hanna María, teikn-
aði. Á merkinu er mynd af broskalli
sem er táknrænn fyrir verkefn-
ið. Auður fékk fjöldamörg fyrirtæki
til liðs við sig og greiddu þau allan
kostnað við framleiðslu endurskins-
merkisins. Allur ágóðinn af sölu
merkjanna rann því beint í sjóð til
styrktar Fjölskylduhjálp Íslands, en
merkið kostaði 500 krónur stykkið.
„Ég er einstæð móðir og sá hvað
fólk í kringum mig hafði lítið á milli
handanna,“ segir Auður aðspurð um
hvað hafi orðið til þess að hún réðst í
verkefnið. Hún segir aðstæður þeirra
mæðgna vera góðar, þær eigi góða
að sem hafa komið þeim til aðstoð-
ar. Auður vildi því gera eitthvað til að
aðstoða aðra sem eru í erfiðari spor-
um en hún sjálf. „Þetta hefði aldrei
verið hægt nema af því að það var
fjöldi fyrirtækja sem styrkti þetta,“
segir Auður sem vill endilega koma á
framfæri þakklæti til allra sem hjálp-
uðu henni við að gera Brosum sam-
an að veruleika.
Útbjó ávísunina sjálf
Auður fékk hugmyndina að sjálfu
endurskinsmerkinu þegar hún sá
krakkana streyma í skólann í fyrra-
vetur. „Það þurfa allir krakkar end-
urskinsmerki og þetta þurfti að vera
eitthvað sem væri þörf á og væri
hægt að nýta,“ segir hún til að út-
skýra af hverju endurskinsmerki
varð fyrir valinu.
Hanna María útbjó sjálf risastóra
ávísun sem hún afhenti Fjölskyldu-
hjálpinni. Hún skrifaði upphæðina sjálf, myndskreytti og merkti með
nafninu sínu. Hún kinkar feimin
kolli þegar blaðamaður spyr hvort
henni þyki ekki gaman að geta
hjálpað öðrum. Hanna María gef-
ur blaðamanni svo eitt endurskins-
merki að skilnaði og það sést lang-
ar leiðir að þar er stolt ung stúlka á
ferð. Mæðgurnar lögðu peninginn
inn á reikning Fjölskylduhjálpar Ís-
lands áður en þær komu þar við til
að afhenda glæsilegu ávísunina frá
Hönnu Maríu.
Auður vinnur hörðum höndum
við að ljúka meistarnámi við Há-
skóla Íslands og vegna mikilla anna
í námi sínu hefur hún ekki haft tök
á að koma merkjunum aftur í sölu
á þessu ári en hún stefnir á að fara
með merkin aftur í sölu næsta haust.
Þá bárust Fjölskylduhjálpinni á
miðvikdaginn einnig 170 pokar af
nýbökuðum Kærleikskleinum úr
Grindvík en það var Fanný Laustsen
sem virkjaði Grindvíkinga í kleinu-
bakstur. Ásgerður Jóna Flosadóttir,
formaður Fjölskylduhjálpar Íslands,
var í skýjunum með þessar gjaf-
ir, enda öll aðstoð ómetanleg. Hún
sagði að óvenjumargir hefðu leitað
til Fjölskylduhjálparinnar í síðustu
viku, eða yfir 650 fjölskyldur. Ásgerð-
ur vonaði þó að neyðin yrði ekki eins
mikil í þessari viku, enda stutt frá
mánaðarmótum.
Fyrirtæki sem styrktu framleiðslu á Brosum saman-endurskinsmerkjunum:
STYRKTARAÐILARNIR:
n Viljandi Minningarsjóður
n Skeljungur
n Svafa Grönfeldt og fjölskylda
n Góa-Linda ehf.
n Auður Capital
n Forum Lögmenn ehf.
n Arion banki Garðabæ
n Íslandsbanki Garðabæ
n Deloitte hf
n Ópal Sjávarfang ehf.
n VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna
n Sjálandsleikskóli Garðabæ
n BSK Vífilsstöðum
n BYR
n BROS auglýsingavörur
n Hanna Ingibergsdóttir og fjölskylda
n Helga Þórey Júlíudóttir og fjölskylda
n Gunnhildur Lund
n Hagkaup
n Nóatún
n Fjarðarkaup
n Krónan
n Cintamani
SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: solrun@dv.is
Það þurfa all-ir krakkar end-
urskinsmerki og þetta
þurfti að vera eitthvað
sem væri þörf á og væri
hægt að nýta.
Stolt ung stúlka Hanna María
Petersdóttir var mjög ánægð
með að geta hjálpað öðrum.
Kærleikskleinur Fjölskylduhjálpin fékk líka sendingu af Kærleikskleinum frá Grindavík.