Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Side 24
24 ERLENT 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Kosningar fóru fram í Bandaríkjunum í vikunni. Demókratar töpuðu
miklu fylgi í mikilli hægri sveiflu í bandarískum stjórnmálum. Úrslit-
in eru mikið áfall fyrir Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Silja
Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
telur ólíklegt að Obama nái endurkjöri árið 2012.
FRAMTÍÐ
OBAMA
ÓLJÓS
Þetta þýðir að mál
komast ekki í gegnum
þingið nema með miklum
herkjum og í öldungadeildinni
geta repúblikanar notað málþóf
að vild.
Repúblikanaflokkurinn var ótví-
ræður sigurvegari í kosningunum
sem fóru fram í Bandaríkjunum
á þriðjudag. Í kosningunum, sem
kallaðar eru miðannarkosningar,
var kosið um öll 435 sætin í fulltrúa-
deild þingsins, 37 sæti af 100 í öld-
ungadeildinni og um 38 stöður rík-
isstjóra. Einnig var kosið til þings í
46 ríkjum en auk þess voru fjölda-
mörg mál tekin til kosninga á rík-
is- og sýslustigi. Í öldungadeildinni
halda demókratar naumum meiri-
hluta með 52 sæti en repúblikanar
hafa 47. Enn á eftir að skera úr um
eitt sæti. Fyrir kosningarnar höfðu
demókratar hins vegar þægilegan
meirihluta með 59 sæti og hafa þeir
því að minnsta kosti tapað sex sæt-
um. Öllu alvarlegra fyrir demókrata
eru úrslitin í fulltrúadeildinni, en
þar beið flokkurinn afhroð.
Alger viðsnúningur
Fyrir kosningarnar voru demó-
kratar með mikinn meirihluta í full-
trúadeildinni. Höfðu þeir 257 sæti
gegn 178 sætum repúblikana. Enn
á eftir að skera úr um nokkur sæti
eftir kosningarnar á þriðjudaginn,
en ljóst er að repúblikanar unnu þar
stórsigur. Þegar er ljóst að repúblik-
anar hafa unnið 239 sæti á móti 186
sætum demókrata. Það þýðir að
repúblikanar hafa að minnsta kosti
bætt hlut sinn í fulltrúadeildinni um
61 sæti. Enn á eftir að skera úr um
10 sæti. Þýðir þetta að nýr forseti
fulltrúadeildarinnar verður hinn
íhaldsami John Boehner, repúblik-
ani frá Ohio, en hann mun leysa af
hólmi hina frjálslyndu Nancy Pel-
osi, demókrata frá Kaliforníu. Segja
stjórnmálaskýrendur vestanhafs
að þetta sé skýr vísbending um þá
hægri sveiflu sem nú á sér stað í
bandarískum stjórnmálum.
Áfall fyrir Obama
Úrslit kosninganna eru mikið áfall
fyrir Barack Obama, forseta Banda-
ríkjanna. Eftir að hafa unnið örugg-
an sigur í forsetakosningunum fyrir
tveimur árum og með skilaboðum
um breytingar virtist hann hafa náð
að berja von í brjóst Bandaríkja-
manna. Hann tók við embætti þegar
demókratar höfðu meirihluta í báð-
um deildum þingsins og var því í
kjöraðstöðu til að koma á þeim um-
bótum sem hann lofaði fyrir tveim-
ur árum. Slæm staða í efnahags-
kerfinu og mikið atvinnuleysi hafa
hins vegar gert Bandaríkjamenn
óþreyjufulla og bíða þeir enn eft-
ir breytingum. Þá hafa umdeild og
kostnaðarsöm frumvörp ekki hjálp-
að til, en þar má helst nefna björg-
unaraðgerðirnar handa stærstu
bönkunum sem og heilbrigðisfrum-
varpið Medicare. Framtíð Obama
sem forseta er nú talin óljós og það
gæti reynst honum erfitt að ná end-
urkjöri í kosningunum 2012.
Framtíðin óljós
Blaðamaður DV hafði samband
við Silju Báru Ómarsdóttur, að-
júnkt í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands. Silja stundaði nám
um margra ára skeið í Bandaríkj-
unum og fylgist vel með gangi mála
í bandarískum stjórnmálum. Hún
segir að deila megi um afleiðingar
kosninganna fyrir Barack Obama.
„Persónulega hef ég alltaf talið ólík-
legt að hann myndi ná endurkjöri,
sérstaklega þegar demókratar höfðu
stjórn á „öllu“ kerfinu. En með því
að deila ábyrgðinni á ástandinu
næstu tvö árin, þá er möguleiki á
að honum verði ekki kennt jafnmik-
ið um og að hann komi betur út að
tveimur árum liðnum.“ Fordæmi
eru hins vegar fyrir því að forseti
demókrata hafi tekið við embætti
með völd í báðum deildum þings-
ins. Það var Bill Clinton þegar hann
tók við embætti 1993 en í miðann-
arkosningum ári síðar missti hann
völdin yfir þinginu, með þeim af-
leiðingum að mjög erfitt reynd-
ist að koma málum hans í gegn.
Obama bíður nú svipað verkefni:
„Þetta þýðir að mál komast ekki í
gegnum þingið nema með miklum
herkjum og í öldungadeildinni geta
repúblikanar notað málþóf að vild.
Fordæmið frá 1994 er ógnvekjandi,
en Boehner er almennt talinn nokk-
uð skynsamur og því möguleiki á
minni átökum en ella.“
Sárabót fyrir demókrata
Þrátt fyrir stórt tap demókrata í
kosningunum geta þeir huggað sig
við að hafa náð aftur völdum í Kali-
forníu, einu stærsta og ríkasta fylki
Bandaríkjanna. Eftir sjö ára setu
tortímandans Arnolds Schwarzen-
eggers á fylkisstjórastóli tókst Jerry
Brown að ná stólnum aftur fyr-
ir demókrata. Hann hefur reyndar
verið fylkisstjóri í Kaliforníu áður,
eða frá 1975 til 1983 en hann bar sig-
urorð af frambjóðanda repúblikana,
Meg Whitman, sem þó eyddi gífur-
legum fjármunum í framboð sitt en
hún er ein ríkasta kona Bandaríkj-
anna. Þá tókst demókrötum einn-
ig að verja öldungardeildarsæti
Barböru Boxer og til fulltrúadeild-
arinnar voru 32 demókratar kosnir
gegn 19 repúblikönum. Frjálslyndir
Bandaríkjamenn spyrja sig þó hvort
enn megi kalla Kaliforníu frjáls-
lynda fylkið, eftir að tillögu um lög-
leiðingu marijúana, sem einnig var
kosið um, var hafnað. Margir muna
eftir því fyrir tveimur árum, þeg-
ar tillögu um hjónaband samkyn-
hneigðra var einnig hafnað í Kali-
forníu.
Fleiri konur hjá
repúblikönum
Silju Báru er umhugað um hlut
kvenna í stjórnmálum og segir hún
að þeim hafa gengið ágætlega þrátt
fyrir að hlutur þeirra í Bandaríkjun-
um sé almennt mjög rýr. „Þeim gekk
vel hjá repúblikönum en nú voru til
að mynda fyrsta svarta konan og
fyrsta konan sem er ættuð frá Suð-
ur-Ameríku kosnar sem fylkisstjór-
ar í Suður-Karólínu annars vegar og
Nýju-Mexíkó hins vegar. Þá virðist
Lisa Murkowski ætla að halda sæti
sínu í Alaska, þrátt fyrir að hafa tap-
að í forkosningum repúblikana fyrir
karlframbjóðanda. Þau úrslit liggja
hins vegar ekki fyrir enn sem kom-
ið er.“ En hvað með Söruh Palin, er
hún orðin líklegri núna til að bjóða
sig fram til forseta? „Palin hugar ör-
ugglega að framboði og það kemur
væntanlega í ljós snemma á næsta
ári hvað hún ætlar að gera. Þá er
spurning hvort þessi árangur rep-
úblikana verður eignaður henni að
nógu miklu leyti til að gera hana
að trúverðugum frambjóðanda hjá
flokknum öllum. Um það þori ég þó
ekki að spá.“
n Ástæða þess að enn á eftir að skera úr um eitt sæti til
öldungadeildarinnar í Kaliforníu er einkennileg, svo ekki
sé meira sagt. Jennifer Oropeza, sem var kjörin árið
2006 með 62 prósent atkvæða, lést 20. október eða að-
eins tveimur vikum fyrir kosningar. Nafn hennar var hins
vegar ennþá að finna á kjörseðlum í Kaliforníu og hlaut
hún aftur brautargengi kjósenda, þótt það sé næsta víst
að kjósendur fái ekki að njóta krafta hennar í þetta sinn.
Minnir þetta óneitanlega á söguþráð kvikmyndarinnar
Distinguished Gentleman, grínmynd með Eddie Murphy.
Í myndinni kemst persóna Murphys á þing, vegna þess
eins að hann var alnafni nýlátins öldungadeildarþing-
manns. Fólk kaus bara nafnið, af gömlum vana.
DÁIN, EN SAMT KOSIN
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt
Framtíð Obama veltur mikið á
samstarfi hans við Boehner.
MYND KARL PETERSSON
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Barack Obama
Úrslit kosninganna
voru ekkert ánægjuefni
fyrir forsetann.
MYND REUTERS
Nýr þingforseti John
Boehner frá Ohio-fylki
mun taka við sem forseti
fulltrúadeildarinnar.
MYND REUTERS