Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Blaðsíða 4
hagnast á vinnu fyrir gazprom 4 Fréttir 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað „Rosalega þakklát“ n Óheppin fjölskylda endurheimti stolinn bíl sinn V ið erum rosalega þakklát,“ segir Steinunn Ýr Jónsdóttir en hún og maður hennar hafa endurheimt jeppabifreið sem hvarf af bílastæði við heimili þeirra miðvikudag, en DV greindi frá hremmingum þeirra á fimmtudag. Hún og eiginmaður hennar urðu fyrir því að rauðum og silfurgráum Nissan Terrano-jeppa, árgerð 1998, var stolið fyrir utan heimili þeirra að- faranótt miðvikudags. Eins og gefur að skilja kom bílþjófnaðurinn sér afar illa enda hjónin með fjögur ung börn, 5 ára og yngri. Það sem meira er þá hafa þau verið sérlega óheppin undanfarinn mánuð og verið fórnar- lömb í röð innbrota og þjófnað- armála. DV barst ábending um hremmingar fjölskyldunnar og hafði samband við Steinunni. Umfjöllun DV hafði þau áhrif að vökull lesandi kom auga á bílinn og gerði lögreglu viðvart. Bíllinn hefur því skilað sér aftur til fjölskyldunnar og allt að því í heilu lagi. „Það var allt í honum, en það var búið að brjóta upp hurðina. Þannig komust þjóf- arnir inn í bílinn. Annars vitum við ekki hver tók bílinn. Við erum bara búin að endurheimta hann og erum glöð með það.“ Eins og imprað er á hér að ofan eru þetta ekki einu hremmingarn- ar sem fjölskyldan hefur orðið fyr- ir undanfarið því fyrir nokkrum dögum komust þau að því að brot- ist hafði verið inn í geymslu á Sel- fossi og ýmsum verðmætum sem þau geymdu þar stolið; verkfærum, veiðidóti og dýrmætu stofuborði, svo eitthvað sé nefnt. Skömmu fyr- ir innbrotið var brotist inn í Nissan- jeppann þeirra og þaðan stolið Ca- non-myndavél. Ýmislegt hefur því gengið á. Stríðið um Evrópusambandið: Vill merkja þætti sem ESB kostar ekki Björn Bjarnason, ritstjóri Evrópu- vaktarinnar, segir ekkert athuga- vert við að taka það sérstaklega fram að þættir séu ekki kostaðir af Evrópusambandinu. „Hvað er athugavert við að tekið sé fram í þáttum með efni á borð við það sem borið var á borð í Land- anum taki fram að það sé ekki kostað af ESB? Það kæmi í veg fyrir misskilning,“ skrifar Björn í athugasemd við pistlaskrif Teits Atlasonar, bloggara á DV.is. Hann segir að áhorfendur gætu með þeim hætti áttað sig á því hverjir kosta þættina. Þar svara nokkrir Birni og bendir einn á að það væri „harla furðulegt vinnulag að rúlla yfir skjáinn eftir hvern fréttaþátt lista yfir þá sem ekki kostuðu þáttinn.“ Björn segir hins vegar að rétt væri að þættir sem fjölluðu um Evrópusambandið gerðu grein fyrir því hvort þeir væru styrktir af ESB eða ekki. Teitur og Björn hafa átt í rit- deilu. Upphaf hennar má rekja til þess að Björn sagði það slæmt að sjónvarpsþátturinn Landinn, sem sýndur er á RÚV, hafi „bitið á ESB agnið,“ og meinti að þátturinn hefði verið kostaður af Evrópu- sambandinu. Gísli Einarsson, umsjónarmaður þáttarins, hefur neitað þessum ásökunum og segir umfjöllun þáttarins hafa verið sanngjarna og sýnt báðar hliðar málsins.  Í kjölfarið hóf Teitur skrif um Evrópuvaktina og styrk sem hún hlaut frá Al- þingi til þess að skrifa um Evrópusam- bandið, sem hann segir hafa verið varið á óæskilegan hátt. S kipafyrirtæki sem var í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, fjárfestis og fyrrverandi hlut- hafa í eignarhaldsfélag- inu Samson, hagnaðist um nærri 92 milljónir króna árið 2010. Rekstrartekjur fyrirtækisins námu þá rúmlega sex milljónum evra, tæp- um milljarði króna. Fyrirtækið heitir Neptune ehf. og er starfrækt á Akur- eyri. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2010. Magnús Þorsteinsson er búsett- ur í Rússlandi um þessar mundir en hann var úrskurðaður gjaldþrota hér á landi eftir hrunið 2008. Hann varð þjóðþekktur hér á landi árið 2002 þegar hann keypti Landsbankann af íslenska ríkinu ásamt Björgólfi Guð- mundssyni og syni hans Björgólfi Thor. Þremenningarnir höfðu hagn- ast á sölu á bjórverksmiðju í Sankti Pétursborg til hollenska bjórrisans Heineken árið 2002. Unnu fyrir Gazprom í Eystrasalti Fyrirtækið á og rekur tvö rannsókn- arskip, Neptune og Póseidon, sem meðal annars hafa unnið fyrir rúss- nesk olíu- og gasfyrirtæki í Eystra- salti sem og fyrir bresk fyrirtæki. Fyrirtækið leigir skipin til ýmiss konar rannsóknarleiðangra. Neptune hefur meðal annars unnið að lagningu á gasleiðslu fyrir Rússa í Eystrasalti. Verkefnið heitir Nord Stream og er unnið af sam- nefndu fyrirtæki sem er í eigu rúss- neska olíurisans Gazprom, sem aft- ur er í eigu rússneska ríkisins. Nord Stream-verkefnið gengur út á að leggja eina stærstu gasleiðslu sem byggð hefur verið. Gasleiðslan á að ná frá borginni Vyborg, sem stendur fyrir norðan Sankti Pétursborg og til þýsku borgarinnar Greifswald. Með gasleiðslunni mun Gazprom geta flutt gas sjóleiðina, í gegnum neðan- sjávarleiðslur, til Evrópu í stað þess að senda gasið landleiðina. Gazp- rom verður því ekki háð því að þurfa leyfi og stuðning frá löndunum sem gasleiðslurnar liggja um til að senda gasið sjóleiðina til Evrópu. Hlutverk Neptune við lagningu gasleiðsl- unnar var að stunda rannsóknir á sjávar botninum þar sem leiðslan er lögð. Fyrirtækið opnaði skrifstofu í Aberdeen í Skotlandi í fyrra. Magnús stofnaði félagið Magnús stofnaði Neptune í maí árið 2008, samkvæmt samþykktum fyrir- tækisins sem aðgengilegar eru á vef ríkisskattstjóra. Hann gekk hins vegar úr stjórn félagsins í ágúst 2009. Í stað hans settist rússneskur ríkisborgari, Alexey Mikhaylov, í stjórn félagsins í umboði eins af hluthöfum Neptune, Viatcheslav Reschikov. Hluthafar Neptune eru eignar- haldsfélag á Kýpur, Sea Investment Ltd., og eignarhaldsfélag í eigu fram- kvæmdastjóra Neptune, Ágústs H. Guðmundssonar. Það eignarhalds- félag heitir Geirseyri ehf. Í fréttinni um Neptune í Morgun- blaðinu árið 2008 kom fram að Magnús Þorsteinsson væri aðaleig- andi fyrirtækisins en að unnið væri að því að finna fleiri hluthafa til að koma að félaginu. Miðað við það sem fram kemur í gögnum félagsins tókst að finna aðra aðila til að koma að rekstri Neptune ehf. og er félagið nú að hluta til í eigu rússneskra að- ila. Ágúst Guðmundsson segir að Magnús hafi farið út úr hluthafa- hópi félagsins árið 2009 og komi ekki lengur að félaginu. Hann segir að Magnús hafi komið á sambandi á milli Neptune og tveggja rúss- neskra fjárfesta sem hafi keypt sig inn í félagið. Ágúst segir að rekstur félagsins hafi ekki gengið eins vel á síðasta ári og árið þar á undan og að annar rússnesku fjárfestanna sé ekki lengur í hluthafahópnum. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is n Neptune vann fyrir Gazprom n Rússneskur aðili kom að félaginu 2009„Nordstream-verk- efnið gengur út á að leggja eina stærstu gasleiðslu sem byggð hefur verið. Kom eins og stormsveipur Hluthafahópurinn á bak við eignarhaldsfélagið Samson kom eins og stormsveipur inn í íslenskt viðskiptalíf árið 2002 og keypti Landsbankann af íslenska ríkinu. Í torfærum Fjölskyldan er að vonum ánægð með að bíllinn skuli vera kominn í leitirnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.