Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Side 50
50 Lífsstíll 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað Gullæði í sumar n Í sumar verða gylltir tónar ráðandi Í sumar verða gylltir tón- ar ráðandi, í fatnaði, skarti og til heimilisins. Einhverjum þykir þetta til marks um að kreppunni sé lokið, öðrum þykir gullið einkennandi fyrir kreppu, enda missir gull aldrei gildi sitt og er öruggt í verð- mæti. Hér eru nokkrir hlutir sem gefa tón- inn í sumar. Vandaðir álsólskálar og glerhýsi Beikon- bollakökur Bollakökuæðinu sem gripið hefur landann virðast engin takmörk sett. Þeir sem vilja reyna eitthvað aðeins karl- mannlegra geta búið til þessar girnilegu beikon- bollakökur og borið fram í góðum brönsi. Gæðabeikon er skorið til og bollaköku- form úr áli fóðruð að innan með beikoni og síðan sett í ofn. Þegar beikonið hefur bakast er eggi hellt ofan í og látið bakast ofan í beikon- bollanum. Takið varlega úr mótinu og berið fram. Heimþrá og hreinræktuð norræn karlmennska Um helgina skellur á stærsti tískuviðburður ársins, Reykjavík Fashion Festival. Hátíðin er nú haldin þriðja árið í röð og ellefu hönnuðir kynna fatalínur sínar. Þau Guðmundur Jörundsson hjá Kormáki og Skildi og Borghildur Gunnarsdóttir, hönnuður Millu Snorrason, taka þátt í fyrsta skipti. B orghildur Gunnars- dóttir er fatahönnuð- urinn á bak við merk- ið Milla Snorrason. Í ár hannar hún litla línu auk fylgihluta svo sem sokka og eyrnalokka. Borg- hildur, eða Hilda eins og hún er jafnan kölluð, lærði fata- hönnun í Listaháskóla Ís- lands en hefur mikið starfað í London, meðal annars fyrir hið virta merki Erdem. Hilda vann með heimþrá sína til Reykjavíkur með- an hún bjó í London og sótti meðal annars innblástur í byggingarlistaverk Guðjóns Samúelssonar. Hvernig myndir þú lýsa þessari línu sem sýnd verður á RFF? „Ég myndi lýsa henni með orðinu heimþrá. Ég bjó úti í London þegar ég var að skissa upp hugmyndir og var haldin mikilli heimþrá til Reykjavík- ur. Línan er að hluta til unnin út frá borginni sem slíkri og því sem mér finnst vera reyk- vískt. Það eru fyrir mér bygg- ingar Guðjóns Samúelssonar sem vísaði í íslenska náttúru. Ég sendi systur mína og móður í leiðangra um borg- ina og hingað og þangað að taka myndir af helstu húsum hans og ýmsum smáatriðum í byggingu þeirra. Ég get nefnt sem dæmi Þjóðleikhúsið, Sundhöllina og Hallgríms- kirkju. Ég notaði formin sem eru geómetrísk og skemmti- leg. Ég ákvað líka að bæta við sjávarsýn borgarinnar til að fá flæðandi form með. Ég vinn svo með þessi form og vinn mynstur sem eru ekki greinanleg en kveikja fremur ákveðin hughrif. Seinna í ferlinu lagði ég Reykjavík til hliðar, ég vildi ekki að borgin yrði allsráð- andi. Ég skoðaði gamlar götumyndir frá stríðsárunum og alls kyns smáatriði sem ég notaði í hönnunina.“ Úr hvaða efnum eru flíkurnar og hver er litapallettan? „Ég vinn bara með ull og silki og ég myndi segja að lita- pallettan sé sterk, vínrauðir, gráir og appelsínugulir litir, ásamt kremuðum og bleikum tónum.“ Ertu með fylgihluti? „Já, í ár verð ég með stutta sokka og eyrnalokka.“ Hvaða tækifæri hefur það í för með sér að taka þátt í RFF? „Ég í rauninni veit það ekki ennþá. Ég lít á þátttöku mína sem ákveðið tækifæri. Fyrir mig er þetta frumsýning á merkinu Milla Snorrason og ég held að það sé mikilvægt að hún sé hér á Íslandi. Ég vona að þátttakan hafi eitthvað gott í för með sér en ég er mjög þakklát fyrir að fá að vera með því ég er frekar ný í bransan- um.“ Hvernig færðu hugmyndir og innblástur og hvernig verður stemningin? „Ég skoða horfinn heim og hrífst líka af litum og óvenju- legum litas amsetningum. Ég er nostalgísk, þrátt fyrir að mér skiljist að það sé ekki sérlega hollt. Litir sem hrífa mig koma oft úr mínu nánasta umhverfi og auðvitað úr íslenskri nátt- úru þótt það sé klisja.“ F atahönnuðurinn Guð- mundur Jörundsson er handhafi Menn- ingarverðlauna DV í flokki hönnunar fyr- ir árið 2011. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands úr fatahönnun í fyrra. Í vetur var frumsýnd fyrsta herrafatalína Kormáks & Skjaldar en á RFF verður sýnd önnur herrafata- lína merkisins og er hún líkt og sú fyrsta hönnuð af Guðmundi. Úr hvaða efnum eru flíkurnar og hver er litapallettan? „Ég nota ullina mestmegnis og áferðin er bæði fínleg og gróf. Þá nota ég leður í brúnum tón- um og líka létt efni svo sem hör. Litapallettan er í gulum, brúnum og gráum tónum og er afar ánægður með hana.“ Hvernig myndir þú lýsa línunni sem verður sýnd á RFF? „Ég verð með stóra línu, jakkaföt, vesti, frakka og jakka. Ég myndi segja línuna einkennast af nor- rænni karlmennsku, sem er gróf með fínlegum tilbrigðum.“ Ertu með fylgihluti? „Já, það verða ívið fleiri fylgi- hlutir með þessari línu. Ég verð með bindi, slaufur, klúta og axlabönd og svo má segja að ég sé með lífstykki úr leðri, en það verður að koma síðar í ljós,“ segir hann sposkur. Hver er innblásturinn og hvernig verður stemningin? „Ég sæki í ákveðna ímynd karlmennsku. Það hefur skap- ast ákveðin stemning og sam- félag í kringum herratísku Kormáks og Skjaldar. Ég sæki í klassík og norræna karl- mennsku, veiðar og útivist og þessir bangsar og dívulegu herramenn sem eru í kringum verslunina gefa mér innblást- ur á hverjum degi,“ segir hann og skellir upp úr. Sýning Guðmundar Jörunds- sonar verður á föstudaginn í Hörpu og lokar hann þeirri sýningaröð. „Það er gaman að því að loka sýningunni, það er svona partí fílingur.“ Myntugrænt er vænt Samkvæmt tískuspekúlönt- um víða um heim er myntu- grænn heitasti liturinn í tískunni í vor- og sumar- línunum 2012. Búðirnar eru að fyllast af fötum í þessum skemmtilega lit sem hefur ekki verið í tísku í langan tíma, hvort sem um er að ræða kjóla, buxur, boli, jakka og meira að segja fylgi- hluti. Allt er vænt sem vel er myntugrænt í tískunni um þessar mundir. Mynstur úr húsum Guðjóns Samúelssonar Hér sést hvernig Hilda vinnur með hughrifin á silki. Hughrifin fær hún úr reykvísku borgar- og sjávar- landslagi. Ný í bransanum Hilda vonar að þátttakan í RFF skili tækifærum. Með stóra línu Lína Guðmundar í ár er stór og umfangsmikil og prýðir hana fjöldi aukahluta. Úr línu Guðmundar Guðmundur segist sækja innblástur í norræna karlmennsku og þá bangsa og herralegu dívur sem eru í kringum verslun Kormáks og Skjaldar. Nýr ilm ur Robert o Cavalli Gyllt nagla­ lakk frá Chanel Gylltur augnskuggi Gylltar súkkulaði­ trufflur Gyllt þema

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.