Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Blaðsíða 25
Erlent 25Helgarblað 30. mars–1. apríl 2012
Át fórnarlömbin
n Myrti eftir að kærastan yfirgaf hann
T
uttugu og þriggja ára Rússi,
Alexander Bychkov, hefur
játað að hafa myrt sex manns
og grafið líkin í garði við hús
sitt. Bychkov er einnig grunaður
um að hafa lagt fórnarlömbin sér til
munns og borðað úr þeim hjarta og
lifur.
Svo virðist vera sem málið
hafi komist upp fyrir tilviljun. Að
því er fram kemur í frétt Reuters
var Bychkov handtekinn fyrir
þjófnað úr verslun í heimabæ
sínum. Við skýrslutöku hjá
lögreglu sagði Bychkov lögreglu
að hann hefði grafið lík í garði
við heimili sitt í bænum Belinsky
sem er 630 kílómetra suðaustur af
höfuðborginni Moskvu. Lögreglan
tók fullyrðingar Bychkovs alvarlega
og við leit í garðinum fundust
sex lík. Lögregla útilokar ekki að
fórnarlömb hans séu fleiri.
Reuters vísar í umfjöllun
rússneska fjölmiðilsins Daily Izvestia
þar sem fram kemur að Bychkov hafi
haldið dagbók. Í dagbókarfærslum
hans kom fram að hann hefði myrt
fólkið eftir að kærasta hans fór frá
honum af þeirri ástæðu að hann væri
„gunga“. „Hún sagði að ég væri gunga,
ekki úlfur. Kannski mun hún hætta
að kvarta og skilja að ég er einmana
úlfur,“ sagði Bychkov í dagbók sinni
um ástæður þess að hann myrti
fólkið. Ekki liggur fyrir hvort hann hafi
þekkt fórnarlömb sín.
Árið 2007 var Alexander
Pichushkin dæmdur í
lífstíðarfangelsi í Rússlandi fyrir
að myrða 48 manns. Pichushkin
sagðist ekki sjá eftir neinu. Hann
var kallaður taflborðsmorðinginn
af þeirri ástæðu að hann ætlaði að
myrða 64, einn fyrir hvern ferning á
taflborðinu.
Var kallaður „gunga“ Alexander Bychkov gerðist morðingi eftir að kærastan yfirgaf
hann. Hann játaði að hafa grafið líkin í bakgarði sínum.
A
ð mínu mati er hugmynd-
in um offjölgun mannkyns
á misskilningi byggð,“ segir
hin 45 ára Michelle Duggar
sem á hvorki fleiri né færri
en nítján börn með eiginmanni sín-
um, Jim Bob Duggar. Duggar-hjón-
in eru vel þekkt í Bandaríkjunum
enda nýtur raunveruleikaþáttur um
líf þeirra töluverðra vinsælda á TLC-
sjónvarpsstöðinni. Hjónin, sem eru
mjög trúuð, gengu í hjónaband árið
1984 og eignuðust sitt fyrsta barn fjór-
um árum síðar, eða árið 1988. Síðan
þá hafa átján börn komið í heiminn
en þeirra nítjánda barn, Josie Brook-
lyn Duggar, fæddist árið 2009.
Jarðarbúar ekki of margir
Michelle var í viðtali á dögunum við
Christian Broadcasting Network þar
sem hún svaraði meðal annars gagn-
rýni sem beinst hefur að henni og eig-
inmanni hennar, meðal annars um
meinta sjálfselsku þeirra. Var hún
spurð að því hvernig hún gæti réttlætt
þennan fjölda þegar heimsbyggðin
stendur frammi fyrir skorti og fram-
tíðarhorfum um offjölgun mannkyns.
Michelle svaraði því til að umræðan
um offjölgun mannkyns væri á mis-
skilningi byggð. „Í rauninni væri
hægt að koma öllum íbúum heims-
ins fyrir innan borgarmarka Jackson-
ville,“ sagði Michelle en Jacksonville
er stærsta borg Flórída-ríkis, bæði
hvað varðar flatarmál og mannfjölda,
en þar búa 1,3 milljónir íbúa. „Ef þú
skoðar það í þessu samhengi fer því
fjarri að jarðarbúar séu of margir.“
Fengið hvatningu
Michelle sagði einnig í viðtalinu að
það væri hreinlega rangt að halda því
fram að of mörg börn væru af hinu
slæma. Sagði hún að þau hjónin hafi
fengið hvatningu frá öðrum þjóðum
um að leggja sitt af mörkum til fjölg-
unar og viðhalds mannkyni. Án þess
að nefna sérstaklega einhver ríki
sagði Michelle að dánartíðni í sum-
um löndum væri hærri en fæðing-
artíðni og það skapi vandamál. Hún
tók undir orð móður Teresu, nunnu
rómversk- kaþólsku kirkjunnar, og
sagði: „Að halda því að fram að það
séu of mörg börn er eins og að halda
því fram að blómin séu of mörg.“
Missti fóstur
Þó svo að Duggar-hjónin hafi notið
mikils barnaláns hefur lífið ekki alltaf
verið dans á rósum. Michelle var ólétt
af sínu tuttugasta barni þegar hún og
Jim fóru í ómskoðun í desember. Þá
kom í ljós að barnið var ekki með púls.
„Við höfðum hlakkað mikið til að sjá
hvort þetta yrði strákur eða stelpa.
Þegar ég kom í skoðunina áttaði ég
mig strax á því að það var ekki allt með
felldu. Við vorum í algjöru rusli,“ sagði
hún. Ekki er útilokað að hjónin reyni
aftur en Jim Bob, sem er árinu eldri en
Michelle, hefur áður gefið til kynna að
þau vilji ekki hætta á oddatölu.
Ekkert að því að
eiga nítján börn
n Á 19 börn og blæs á gagnrýnisraddir sem segja hana sjálfselska
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Stór fjölskylda Duggar-
hjónin njóta mikils barnaláns
en þau eiga nítján börn.