Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Qupperneq 19
að það skuli vera eitthvert atriði. Þú
getur rætt ýmislegt út frá ákveðn-
um upplýsingum. Ég sé ekki betur
en að það hafi verið gerð kynning
á frumvarpinu og við fengum þá
kynningu,“ segir Friðrik.
„Við áttum fund með sjávarút-
vegsráðherra eins og kom fram, á
sunnudagskvöldið. Það var trún-
aðarfundur. Um slíkan fund ræð-
ir maður ekkert. Þar er ýmislegt
sem var rætt.“ Friðrik vildi ekki
tjá sig um hvort frumvarpið hafi
verið fengið eftir óhefðbundnum
leiðum. Hann bar fyrir sig trúnaði
um hvað fór fram á fundinum og
skipti engu þótt LÍÚ, Steingrímur,
Jóhanna og aðrir hagsmunaaðil-
ar hafi víða tjáð sig um efni sem
kynnt var á fundinum.
Starfsmenn og almanna-
tengslafyrirtæki
Á Beinni línu DV á miðvikudag-
inn kom fram í svari Friðriks að
umsögnin sem birtist á mánu-
dag hafi verið unnin af starfsfólki
LÍÚ og almannatengslafyrirtæki.
Þegar DV spurði hvernig vinnu
við umfjallanir og umsagnir væri
háttað hjá landssamtökunum
sagði Friðrik það gert með lestri
frumvarpa og gagna. Þá leiti LÍÚ
til endurskoðenda, lögfræðinga
og hagfræðinga í tilfelli frum-
varpa um breytingar á fiskveiði-
stjórnun. „Deloitte er að vinna
fyrir okkur úttekt á afleiðingum
og áhrifum frumvarpsins. Bæði
á sjávarútveg í heild og einstaka
fyrirtæki.“
Fréttir 19Helgarblað 30. mars–1. apríl 2012
n Björgvin G. ætlar að beita sér fyrir einstæða móður
É
g er alveg ótrúlega þakklát
fyrir öll þau viðbrögð sem ég
hef fengið. Ég bjóst ekki við
þeim og það var alls ekki ætl-
unin með bréfinu. En ég er
alveg ótrúleg þakklát og ég ætla
að svara þeim öllum persónulega,“
segir Aníta, ung einstæð móðir
sem DV sagði frá í vikunni. Aníta
hafði átt erfitt uppdráttar fjárhags-
lega, var atvinnulaus, tekjulaus og
var að bíða eftir því að komast á at-
vinnuleysisbætur, en þannig fengi
hún aðstoð frá sveitarfélaginu
sínu, sem hún annars fengi ekki.
Þrátt fyrir að Aníta hefði sér-
staklega tekið það fram að hún
væri ekki að leita eftir aðstoð al-
mennings, heldur vildi benda á
þennan galla í kerfinu settu fjöl-
margir sig í samband við blaða-
mann DV og voru allir boðnir og
búnir til þess að aðstoða Anítu,
hvort sem það væri fjárhagslega
eða á annan máta.
Meðal þess sem Anítu bauðst
var að flytja út á land. Ein þeirra
sem setti sig í samband benti
Anítu á að í bæjarfélagi henn-
ar væru engir biðlistar eftir leik-
skólaplássi og hún vissi um tvö
störf sem Aníta gæti gengið í. „Ef
konan sem um ræðir vill má hún
heyra í mér, ég gæti hjálpað henni
að fá vinnu, hjálpað henni að fá
inni á leikskóla og finna húsnæði,“
skrifaði hún. Tvær ábendingar um
íbúð bárust og að minnsta kosti
tvær um störf. Einn aðili áfram-
sendi bréf Anítu til þingmanna
og fékk viðbrögð Björgvins G. Sig-
urðssonar þingmanns. Björgvin
skrifaði: „Mun senda bréfið áfram
og spyrja um viðbrögð við þeirri
stöðu sem þú ert í, sérstaklega
er varðar félagslegt húsnæði hjá
sveitarfélaginu, sem er mikilvæg-
asta málið sýnist mér gagnvart þér
og þinni stöðu.“
Þá buðu tveir sjómenn fram fisk
fyrir Anítu og aðrir kjöt. Forsvars-
maður matsölustaðar hafði sam-
band og óskaði eftir því að njóta
nafnleyndar en gaf Anítu inn-
eign hjá staðnum. Þá hafði hóp-
ur starfsmanna á vinnustað einn-
ig samband og óskaði eftir því að
fá að aðstoða konuna á einhvern
hátt. Þá vildi ein setja sig í sam-
band við Anítu og veita henni að-
stoð til að koma undir sig fótunum
með góðum ráðum og aðstoð.
Af þessum viðbrögðum að
dæma er augljóst að margir eru
tilbúnir að gefa af sér til sam-
félagsins og leggja sitt af mörkum
til þess að aðstoða þá sem minna
mega sín.
Mikil viðbrögð
við neyðarkalli
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Boðnir og búnir Á fjórða
tug vildi aðstoða ungu
konuna í vanda.
n „Ég sýndi mönnum frumvarpið á skjá,“ segir Steingrímur n LÍÚ segir frumvarpið afhent þeim á sunnudagskvöldið
LÍÚ fordæmdi óbirt frumvarp
Tímalína yfir
birtingu frumvarpsins
Föstudagur 23.03
n Frumvarp sjávarútvegsráðherra afgreitt
á ríkisstjórnarfundi
Sunnudagur 25.03
Kl: 20.00
n Sjávarútvegsráðherra og fulltrúar ráðu-
neytisins kynna innihald frumvarpsins
fyrir fulltrúum LÍÚ. Kynning á frumvarpinu
var í formi glærukynningar. Trúnaður
gildir um efni fundarins til fjögur næsta dag
þegar kynna á frumvarpið fyrir almenningi.
Ráðherra segir frumvarpið ekki hafa verið
afhent til vörslu aðeins kynnt lauslega á
fundinum. Fulltrúar LÍÚ segja frumvarpið
hafa verið afhent með trúnaði fram á næsta
dag.
Mánudagur 25.03
Kl: 09.00
n Frumvarp kynnt fyrir hagsmunaaðilum í
greininni. Kynningu háttað með sama hætti
og á fundi LÍÚ. Frumvarpið var ekki afhent
til vörslu.
Kl: 13.00
n Frumvarp kynnt fyrir þingmönnum
stjórnarflokka og tekið við athugasemdum
og því dreift til þingmanna. Skjaladeild
Alþingis fékk frumvarpið afhent að loknum
þingflokksfundum stjórnarflokka til að
undirbúa birtingu þess á vef Alþingis og
dreifingu til þingmanna.
Kl: 15.43
n „Ríkið tekur yfir 70% af hagnaði útgerðar
og fiskvinnslu.“ Umfjöllun LÍÚ birtist á vef
landssambandsins.
Kl: 16.00
n Blaðamannafundur sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra ásamt forsætisráð-
herra hefst. Þar eru helstu markmið frum-
varpsins kynnt. Frumvarpið er þó ekki birt
fjölmiðlum heldur tilkynning ráðuneytisins
þar sem stiklað er á stóru. Tilkynningin er
birt á vef ráðuneytisins að fundi loknum.
Kl: 22.33
n Skjal nr. 1053 - mál 658: veiðigjöld
(heildarlög) birtist á vef Alþingis. Heildarlög
um stjórn fiskveiða er birt stuttu áður á vef
þingsins.
„Þú verður að at-
huga að það hef-
ur verið fréttaleki og leki
á frumvarpinu.
Adolf Guðmundsson
Kynning frumvarpsins
Jóhanna Sigurðardóttir og
Steingrímur J. Sigfússon
á blaðamannafundi þar
sem innihald frumvarps-
ins var kynnt.