Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Page 32
32 Viðtal 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað
É
g saknaði þess að vera ekki
nær fólkinu mínu og ég vildi
ekki að börnin mín misstu af
því að þekkja ömmu sína og
afa. Þetta var heldur aldrei
einhver æviráðning,“ segir fjöl-
miðlakonan Þóra Sigurðardóttir
sem er flutt heim frá Bahamaeyjum
eftir tæplega sex ára dvöl á eyjunum
fögru í Karíbahafinu.
Alkomin heim
Eiginmaður Þóru, kokkurinn og
veitingahúsaeigandinn Völundur
Snær Völundarson, hefur dvalið á
Bahamaeyjum í tólf ár en hann er
einnig væntanlegur heim með vor-
inu. Þóra segir ákvörðunina um að
flytja heim hafa verið tekna í góðu
tómi. „Það var engin dramatík
eða sársauki sem leiddi að þessari
ákvörðun. Við vorum bara komin
með leiða. Það er rosalega gaman
að búa þarna þegar maður er ný-
giftur og hefur ekkert að gera nema
að hugsa um sjálfan sig. En ég mæli
ekki með því fyrir fólk sem á börn og
fjölskyldur.“
Þóra og Völundur eiga tvö börn,
Baldvin Snæ, sem verður fjögurra
ára í sumar, og Móeyju Mjöll, eins
og hálfs árs. Eftir töluvert flakk á
milli Bahamaeyja og Íslands er
Þóra alkomin heim. „Ég hafði ein-
hvern veginn aldrei skilgreint hvort
ég byggi hér eða þar – hef bara
verið þar sem ég hef verið hverju
sinni. Enda höfum við alltaf verið
með íbúð hérna heima líka,“ seg-
ir Þóra sem flaug heim til að fæða
börnin þar sem heilbrigðiskerfið á
Bahamaeyjum er ekki upp á marga
fiska.
Paradís fyrir sterkefnaða
Hún segir dvölina úti hafa kennt sér
margt. „Það er hollt að fá að kynn-
ast erfiðum aðstæðum og átta sig í
leiðinni á því í hvað peningarnir fara
hér heima. Bahamaeyjar eru virki-
lega fallegar og hafa oft verið nefnd-
ar Feneyjar Karíbahafsins. Þarna er
yndislegt að vera enda hefur gríðar-
lega mikið af sterkefnuðu fólki kom-
ið sér þarna fyrir með bátana sína.
Þetta er skattaparadís og fyrir þá ríku
skiptir ekki máli þó að heilbrigðis-
kerfið sé í molum. Þeir stíga bara
upp í einkaflugvélar sínar og fljúga til
Bandaríkjanna ef eitthvað amar að.
Hinir sitja eftir.“
Hún segist hafa farið að líta ástand-
ið í landinu öðrum augum þegar hún
varð móðir. „Ég áttaði mig ekki al-
mennilega á því fyrr en ég eignaðist
sjálf barn. Þegar ég var ófrísk að Bald-
vin kynntist ég fjórum konum sem
höfðu allar missti börn í fæðingu. Oft
er um hjartagalla að ræða eða annað
sem er vel hægt að laga hér heima en
þarna eru engin úrræði,“ segir hún og
bætir við að börnin séu alsæl með að
vera komin heim.
„Á Bahamaeyjum byrja börnin að
læra eins árs. Þá eru þau strax látin
sitja við borð og eru flest orðin læs
fyrir þriggja ára aldur. Baldvin var
ekki orðinn tveggja ára þegar hann
kunni allt stafrófið. Hann er hins veg-
ar orkumikill drengur sem þarf að fá
sína útrás og átti mjög erfitt með að
vera lokaður inni allan daginn.
Hlutunum er allt öðruvísi háttað
þarna. Þótt veðrið sé gott eru börn-
in ekki höfð úti. Sólin er líka svo
sterk, hann myndi skaðbrenna eftir
klukkutíma. Ég saknaði þess að geta
ekki leyft honum að fara út að leika
og hann var farinn að gráta á morgn-
ana af því að hann vildi ekki fara í
skólann. Hér heima er miklu meira
frjálsræði. Hann fær að leika sér all-
an daginn og vera barn.“
Ofbeldi daglegt brauð
Þóra segir þjóðarvitund-
ina á Bahamaeyjum mjög
skrítna. Það sé erfitt að fá
gott starfsfólk og þjófnað-
ur sé landlægt vandamál.
„Eftir einn fellibylinn lán-
aði Völli konu sem vann
hjá honum íbúðina sína.
Hún og fjölskylda henn-
ar dvöldu í íbúðinni í sex
vikur en þegar þau fóru
tóku þau megnið af inn-
búinu með sér. Það þyk-
ir ekkert tiltökumál. Ég
gleymi líka aldrei fyrsta
matarboðinu því þá
missti ég helminginn af
Tupperware-vörunum
mínum og alla mataraf-
gangana,“ segir hún og bætir við að
ofbeldi sé einnig daglegt brauð.
„Ofbeldið er alltaf að aukast og
til þess er gripið út af smávægileg-
um hlutum. Við vorum ofboðslega
varkár. Við bjuggum á afgirtri land-
areign við sjóinn og vorum með sex
hunda sem voru okkar þjófavörn.
Mælikvarði okkar var að þegar okkur
var hætt að blöskra vorum við kom-
in með eyjasóttina og þá þurftum við
að komast burt. Þetta var nefnilega
oft svo súrrealískt.
Bókarinn minn, frábær kona,
skaut manninn sinn sex sinnum og
sonur hennar drap annan mann.
Hann var sendur í fangelsi sem er
eitt það alræmdasta í heimi. Mamma
hans eyddi jólunum þar því kokkur-
inn í fangelsinu tók sér frí og fang-
arnir hefðu soltið í hel ef hún eða
einhver önnur mamma hefði ekki
komið og eldað,“ segir hún og bæt-
ir við að Völundur hafi gert mik-
ið fyrir veitingahúsamenninguna á
Bahamaeyjum.
„Þarna voru engir menntaðir
kokkar en Völli hefur verið að senda
sína kokka út um allt, bæði til Ís-
lands, Frakklands og Bandaríkjanna.
Ein kona sem fór í slíka vettvangsferð
til Íslands kom til baka í hálfgerðu
menningarsjokki. Það merkilegasta
við Ísland, að hennar mati, var að
hér væru allir að vinna í vinnunni.
Þeir sem hlustuðu á þessa frásögn
voru mjög hissa enda er slíkt afar
ólíkt starfsandanum á Bahamaeyj-
um. Konurnar eru gjarnan að lakka
á sér neglurnar í vinnunni og það
er mjög algengt að þurfa að bíða allt
upp í korter eftir afgreiðslu á meðan
afgreiðslumanneskjan er að spjalla í
símann. Það þykir mjög eðlilegt. En,
eins og ég segi, ef manni var hætt
að blöskra var maður kominn með
eyjasóttina.“
Nýgift á tímamótum
Þrátt fyrir allt segist hún ekki hafa
orðið fyrir menningarsjokki þeg-
ar hún fyrst kom til eyjanna. „Ég er
rosalega „ligeglad“ í eðli mínu. Ég
er ýmsu vön, hef búið hér og þar og
fór til að mynda sem skiptinemi til
Bólivíu á sínum tíma. Það þarf mjög
mikið til að raska ró minni,“ segir hún
og bætir við að þrátt fyrir frumstæð-
ar aðstæður hafi síðustu sex ár verið
yndislegur tími.
„Þegar ég flutti út stóð ég á tíma-
mótum. Ég var nýgift og hætt í Stund-
inni okkar og langaði að fara að gera
eitthvað allt annað. Ég hafði kviðið
því hvað tæki við eftir Stundina og
það var yndislegt að fá að prófa eitt-
hvað algjörlega nýtt,“ segir hún en
bætir við að eftir þessa lífsreynslu
hafi hún lært að meta Ísland betur
og þann kraft sem býr í Íslendingum.
„Hér eru allir að gera eitthvað en fólk-
inu úti fannst ég mjög skrítin. Ég var
alltaf eitthvað að bauka,“ segir Þóra
sem skrifaði Foreldrahandbókina að
mestu úti en bókin kom út árið 2010.
„Það var alveg dásamlegt og
vinnufriðurinn algjör. Heimili mitt
var alveg við sjóinn og pálmatrén í
kring. Á hverjum morgni veifaði ég til
höfrungaþjálfaranna sem létu höfr-
ungana hoppa upp úr sjónum fyrir
mig á meðan ég gæddi mér á tóm-
atauppskerunni. Þetta er náttúrulega
alveg stórkostlegt landsvæði.“
Giftu sig eftir korter
Þau Völundur höfðu ekki verið lengi
saman þegar þau giftu sig. „Við
kynntumst og giftum okkur kort-
eri seinna,“ segir hún hlæjandi en
bætir við að hún mæli ekkert sérstak-
lega með því að fólk giftist án þess að
þekkjast almennilega.
„En þetta blessaðist allt hjá okkur.
Og gott betur. Ég man samt svipinn á
fólki þegar ég tilkynnti því að ég væri
að fara að gifta mig. Enda var ég oft
spurð: Giftast hverjum?
Athöfnin var í Fríkirkjunni og
veislan var haldin á Hótel Borg.
Svona höfum við gert hlutina – bara
látið vaða. Ef maður er að velta hlut-
unum of mikið fyrir sér verða þeir
bara erfiðari,“ segir hún og grín-
ast með að það hafi verið skortur á
sjálfsbjargarviðleitni sem hafi orðið
til þess að hún féll fyrir Völundi þar
sem hún sé sjálf vita vonlaus kokkur.
„Völli er frábær og stórkostlega
skemmtilegur. Það er alltaf mikil
orka í kringum hann. Hann er alls
óhræddur og hefur hjálpað mér mik-
ið. Þegar hann gerir hlutina verða
þeir 100%. Hann getur að vísu orðið
óþolandi á meðan en lokaniðurstað-
an er alltaf frábær. Hann slær aldrei
af,“ segir hún og bætir við að þau séu
miklir vinir.
„Ég held að við séum bæði mjög
heppin. Það er erfitt að hafa hann
svona lengi í burtu en það venst, eins
og allt. Við köllum hann tölvupabba
og hann talar við krakkana í gegn-
um tölvuna í hverjum matartíma
svo hann er með okkur eins mikið og
hann getur. Ég veit samt að honum
finnst ekki létt að vera svona langt í
burtu frá okkur.“
Sérfræðingur í egglosi
Þótt þau hafi gift sig fljótt urðu þau
að bíða eftir fyrsta barninu. „Það
gerðist ekki neitt en við enduðum á
að fara í glasameðferð. Það var virki-
lega erfitt ferli sem fór meira á sálina
á mér en honum. Þetta er svakalegur
pakki sem gekk upp í fyrstu tilraun.
Ég get ekki ímyndað mér líðan fólks
sem reynir aftur og aftur án árangurs,
það hlýtur að vera versta tilfinning í
heimi.“
Fjölmiðlakonan Þóra Sigurðardóttir er flutt heim
frá Bahamaeyjum með fjölskylduna. Þóra segist
hafa gifst eiginmanninum, kokkinum Völundi Snæ,
eftir aðeins korters samband. Þrátt fyrir tilraunir
urðu hjónin að bíða eftir börnunum en Þóra segir
lífið hafa gjörbreyst eftir að hún varð móðir. Indíana
Ása Hreinsdóttir ræddi við Þóru um lífið í skatta
paradísinni, baráttuna við ófrjósemina, ástina og
börnin sem skipta hana mestu máli í lífinu.
Varð
óvænt
ófrísk
„Pabbi
vildi allt
af hafa okkur öll
nálægt sér og
ég eyðilagði það
plan þegar ég
fór á flandur.
„Þegar ég var ófrísk
að Baldvin kynnt
ist ég fjórum konum sem
höfðu allar missti börn í
fæðingu.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
Paradís Þóra ásamt Baldvin Snæ á ströndinni á Bahamaeyjum.
Varðhundar Mikið er um ofbeldi og þjófnað á e
yjunum en Þóra og
Völundur voru með nokkra hunda sem vörð
u húsið.
Feðgar Völundur Snær og Baldvin í sólinni.