Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Blaðsíða 48
Tíu leiðir að innri frið á 10 mínútum
n Að koma ró á sálarlífið getur kostað mikla vinnu
Fáðu þér göngutúr
Tíu mínútna göngutúr er góð leið
til að hlaða sig af orku fyrir daginn.
Farðu út, ferska loftið gerir krafta
verk.
Teygðu á
Hvort sem þú situr við borð eða ert á
þönum allan daginn getur stress leitt
til stífra vöðva. Taktu tíu mínútur til
að teygja á og legðu áherslu á háls
og bak.
Taktu frá tíma fyrir þig
Notaðu tíu mínúturnar til að panta
þér nudd, hringja í barnapíuna til að
geta farið í búðaráp á laugardaginn
eða skipuleggðu heimsókn á völlinn
með vinunum. Að vita um skemmt
un fram undan hefur undraverð
áhrif.
Leggðu þig
Fáðu þér tíu mínútna orkulúr.
Farðu frá skrifborðinu ef þú getur.
Hlæðu
Taktu tíu mínútur á hverjum
degi til að skoða fyndna vefsíðu,
hringdu í skemmtilegan vin eða
farðu í kaffi með skemmtilegasta
vinnufélaganum.
Skrifaðu dagbók
Með því að skrifa í tíu mínútur
meltir þú hugsanir þínar. Gefðu
ímyndunaraflinu lausan tauminn
– ekkert er óviðeigandi.
Þakkaðu fyrir
Ef einhver verður til þess að líf þitt
er betra, auðveldara eða ánægju
legra skaltu taka tíu mínútur til
að þakka viðkomandi fyrir. Karma
verður til þess að þú sjáir ekki
eftir því.
Andaðu
Taktu þér tíu mínútur til að ein
beita þér að önduninni til að
minnka stress.
Skipuleggðu
Er skrifborðið þitt yfirfullt af
pappírum og matarleifum? Lag
aðu til í kringum þig og minnkaðu
þannig stress og bættu einbeit
inguna.
Finndu þér sálfræðing
Notaðu tíu mínúturnar til að finna
góðan sálfræðing til að tala við
um það sem liggur þér á hjarta.
Þú ert þess virði.
48 Lífsstíll 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað
F
yrir utan allar þær syndir
sem ég leyfi mér að drýgja
þá eru bandarískir ung
lingadramaþættir minn
helsti veikleiki. Það er eigin
lega frekar vandræða
legt að ég, næstum
þrítug konan, hlakki
til strax að morgni
dags þegar ég veit
að nýjasti þátturinn
minn er dottinn inn á
vefinn og ég geti horft á hann
um kvöldið.
Við erum að tala um for
réttindakrakkana á Manhattan
í Gossip Girl, kollega þeirra
í Beverly Hills í 90210, þjáðu
stúlkurnar í Rosewood sem
leita morðingja vinkonu sinnar
og síðast en ekki síst fimleika
skvísurnar í Make It or Break It
sem stefna ótrauðar á Ólympíu
leikana í London í ár. Eins sturl
að og það kann að hljóma þá er
ég farin að líta á sögupersónur
þessara þátta sem hálfgerða vini
mína. Og læt mig því ástir þeirra
og örlög mikið varða. Eins og
sannur vinur.
É
g á góða vinkonu (sem er til
í raun og veru) og er með
mér í þessu. Oft horfum við
„saman“ á þætti og ræðum
þá á meðan. Þá á
ég við að horfum
báðar á sama
þáttinn á sama
tíma en ekkert
endilega á sama
stað. Svo notum við
hin ýmsu undrasamskiptafor
rit internetsins til rökræðna og
spáum fyrir um örlög sögupers
ónanna.
Þegar okkar eigið líf dettur
niður á það plan að verða til
breytingasnautt og viðburðalítið
og slúðrið þrýtur, þá er gott að
geta spjallað um hina sameigin
legu „vinina.“ Hjá þeim er aldrei
dauð stund.
A
ð fylgjast með dramatík
inni í óraunverulegu lífi
annarra er dásamleg leið
til að flýja eigin raunveru
leika. Það er fátt betra en að
kúpla sig aðeins út úr eigin lífi
eftir erfiðan dag, þegar allt er á
fleygiferð í hausnum á manni,
og detta inn í góðan þátt. Nú eða
þegar lífið er fullt af tómarúmi,
þá geta til dæmis krakkarnir í
Gossip Girl, með öll sín vanda
mál, glætt það einhverri spennu
í skamma stund.
Að sama skapi
þá setja svokölluð
þáttahlé allt úr
skorðum. Þessi
hlé geta varað
allt frá mánuði
upp í næstum ár. Sem
er skelfilegt því yfirleitt endar
síðasti þáttur fyrir hlé með ein
hverju magnþrungnu spennu
atriði sem fær mann bara til að
langa að horfa meira og meira.
Fáránlega illa gert hjá þátta
gerðafólkinu sem gerir mér og
mínum líkum (sem ég veit að
eru margir þarna úti) mikinn
óleik.
A
nnars þá bað vinkona mín,
sem er til í raun og veru
og deilir þessum veik
leika með mér, mig um að
ígrunda það vel hvort ég vildi
uppljóstra þessu leyndarmáli
okkar. Sem ég gerði. En ákvað að
koma bara til dyranna eins og ég
er klædd. Ég hef ekkert að fela
og skammast mín ekkert fyrir
að bíða í þessum rituðu orðum
spennt eftir nýjasta þættinum af
90210.
Að flýja
raunveruleikann
Líf mitt
í hnotskurn
Sólrún Lilja
Ragnarsdóttir
F
lestir sem stunda
líkamsrækt hafa á
einhverjum tímapunkti
tekið hlé frá æfingum.
Það getur hins vegar virst
óyfirstíganleg hindrun að koma
sér í gang aftur. Á dr.dk má finna
ráðleggingar um hvernig maður
kemur sér í æfingagírinn aftur án
vandkvæða.
Byrjaðu á byrjuninni
Þetta hljómar kannski ekki
mjög upplífgandi en til þess að fá
áhugann og hvatninguna aftur þá
er mikilvægt að byrja frá byrjun. Það
má líkja þessu við þegar þú ekur af
stað í bíl þá getur þú ekki ekið af stað
í fimmta gír heldur verður að byrja á
þeim fyrsta. Þú verður því að finna
þinn upphafsgír í líkamsræktinni
og halda af stað þaðan. Með því að
byrja á lægra æfingaplani verður
það auðveldara fyrir þig að klára
æfinguna og það mun veita þér
smá sigurtilfinningu. Á þennan hátt
kemstu líka hjá því að einblína á það
að þú sért ekki í alveg jafn góðu formi
og áður.
Fyrri æfingar voru ekki til einskis
Það jákvæða er að þú ert fljótari að
skipta upp í hærri gír en áður og það er
góð tilfinning. Líkaminn er nefnilega
ekki búinn að gleyma að þú æfðir
áður og er fljótur að aðlaga sig að
æfingunum, um leið og þú byrjar aftur
að æfa.
Farðu rólega af stað
Jafnvel þótt líkaminn sé ekki
búinn að gleyma þá er mikilvægt að
sætta sig við að vera ekki á nákvæmlega
sama stað og þegar þú hættir að æfa.
Þú þarft að leyfa líkamanum að venja
sig við æfingar. Auk þess sem þú getur
slasað þig, ef þú ferð of geyst af stað, þá
getur hvatningin verið fljót að hverfa ef
þetta er erfiðara en þú bjóst við.
Settu þér markmið og
einblíndu á það
Finndu út hvað markmið þitt er með
því að byrja að æfa aftur. Viltu ná
aftur því formi sem þú varst í eða ertu
jafnvel kominn með nýtt markmið og
nýjar æfingar? Hvort sem þú velur þá
er það afar mikilvægt að einblína á
markmiðið. Ekki halda áfram að stefna
á að hlaupa maraþon, eins og þú
stefndir á áður, ef núverandi markmið
er að hlaupa 5 kílómetra þrisvar
sinnum í viku.
Segðu vinum og
vandamönnum frá
áformum þínum
Annað gott ráð er að segja fólki frá
áætlunum þínum um að byrja að
æfa aftur. Þannig færðu stuðning frá
þeim og þau fá einnig vitneskju um
æfingaplan þitt. Með þessu færðu enn
meiri hvatningu til að halda þig við
efnið.
Þú stjórnar æfingatímanum
Mikilvægt er að þú ákveðir
fyrirfram á hvaða tímum þú ætlar
að æfa. Margir gera þau þau mistök
að ætla að æfa þegar þeir finna
tíma til þess. Það gæti hljómað
skynsamlega en í rauninni finnur
maður sjaldan tíma til að æfa. Það
skiptir því meginmáli að koma sér
upp ákveðnum æfingatímum. Merktu
þá inn á dagatal og láttu þetta komast
upp í vana. Ekki bíða með að byrja að
æfa aftur, byrjaðu í dag og stefndu á að
halda þig við efnið í 30 daga.
Gerðu æfinguna að vana
Gott er að velja sama tíma dags
til að æfa en morgnarnir, hádegið eða
eftir vinnu eru góðir tímar til að æfa.
Reyndu að halda þig við að æfa á sama
tíma dags og þá mun æfingin fljótt
komast upp í vana. Á endanum verður
æfingin eitt af daglegum verkefnum
þínum og jafnvel án þess að þú hugsir
út í það.
Lærðu af mistökunum
Nú þegar æfingar eru hafnar
að nýju þá er mikilvægt að læra af
mistökum. Mundu hver var ástæða
þess að þú hættir að æfa. Ef þú veist
ástæðuna þá getur þú reynt að koma í
veg fyrir að það gerist aftur.
Lítil æfing er betri en engin
Var nauðsynlegt að hætta að
æfa? Hefðir þú geta minnkað æfingar
um kannski helming um tíma? Það er
ekki alltaf hægt að finna lausn á þessu,
til að mynda ef um veikindi var að
ræða. Mundu þó að smá æfing er alltaf
betri en engin.
Hlaup Það er
mikilvægt að setja
sér markmið þegar
maður byrjar að
æfa aftur.
n Það er erfitt að byrja í líkamsrækt eftir hlé n Hér eru nokkur góð ráð
Aftur í líkamsrækt
1
2
3
4
5
6
7
8