Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2012, Page 52
I
nstagram er eitt vinsælasta
snjallsímaforritið fyrir iPhone
og brátt verður komin útgáfa
af forritinu fyrir Android. Nú
hefur lítið fyrirtæki í Banda-
ríkjunum tekið Instagram upp
á sína arma og þróað lausn sem
gerir fólki kleift að prenta út
Insta gram-myndir heima hjá sér.
Í raun virkar prentarinn þannig
að hægt er að setja hann upp til
að prenta allar myndir sem eru
merktar með ákveðnu „hashtag“
eða eru teknar á einhverjum
ákveðnum stað.
Í stöðugri þróun
Tækið sem um ræðir heitir In-
staprint og var fundið upp vorið
2011 af fyrirtækinu Breakfast. Á
síðasta ári hófu þeir svo tilraun-
ir til að gera lausnina nógu góða
til að hefja fjöldaframleiðslu á
henni. Síðan hafa tilraunaútgáf-
ur af prentaranum verið notaðar
víða, við opnun stórra verslana, á
Grammy-verðlaunahátíðinni og
einum tónleikum söng konunnar
Lady Gaga.
Enn er staðan þannig að ekki
er hægt að fara út í búð og kaupa
Instaprint-prentara. Fyrirtækið
leitar nú að fjárfestum og hefur
farið óhefðbundna leið til þess.
Fyrirtækið notar vefsíðuna Kick-
starter sem er hópsöfnunarsíða
sem gerir hverjum sem er kleift að
styrkja verkefnið með mismun-
andi háum fjárframlögum. Allir fá
eitthvað fyrir fjárframlag sitt, en
þó ekki hlut í fyrirtækinu.
Engar áhyggjur af bleki
Instaprint notar engin blek- eða
dufthylki til að prenta liti heldur
er pappírinn sem notaður er til
prentunarinnar þannig gerður að
hægt er að kalla fram liti í honum.
Það þarf því í raun bara að hafa
áhyggjur af því að eiga nóg af
pappír en ekki af því að eiga nóg
blek.
Hægt er að tengja saman fleiri
en einn Instaprint-prentara. Að
minnsta kosti einn prentaranna
þarf að virka með fjarstýringunni
sem notuð er til að setja prent-
arann upp og tengjast í gegnum
þráðlaust net. Hinir prentararnir
sem eru svo tengdir við hann fá
svo upplýsingar við aðalprentar-
ann og prenta eftir upplýsingum
frá honum. Með því að setja upp
marga prentara aukast afköstin
umtalsvert.
Samhliða prentuninni geta In-
staprint-notendur fundið myndir
sínar inni á vefsíðunni instapr-
int.me. Vefsíðan er hugsuð sem
eins konar miðstöð fyrir notendur
Instaprint og geta þeir fylgst ná-
kvæmlega með því sem þeir hafa
prentað og stillt prentarana sína.
52 Lífsstíll 30. mars–1. apríl 2012 Helgarblað
Prentaðu út
með Instaprint
n Prentar út Instagram-myndir frá hverjum sem er
Viðburðamyndir
Hingað til hafa
tilraunaútgáfur
af Instaprint verið
settar upp á ýmsum
stórum viðburðum
eins og Grammy-verð-
launahátíðinni.
Lítið fyrirtæki Breakfast er fyrirtækið sem er á bak við Instaprint en það er lítið fyrirtæki
í Bandaríkjunum.
Ekkert blek Instaprint notar ekki blek heldur er liturinn í pappírnum sjálfum.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Hægt er að setja
hann upp til að
prenta allar myndir
sem eru merktar með
ákveðnu „hashtag“ eða
eru teknar á einhverjum
ákveðnum stað.