Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2011, Blaðsíða 41
Lífsstíll | 41Helgarblað 22.–24. júlí 2011
KORPUOUTLET, KORPUTORGI • Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18 • Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400
R
áð
an
d
i -
a
ug
lý
si
ng
as
to
fa
e
hf
.
Verið með í leiknum á Facebook, flottir vinningar!
Girnilegasti lagermarkaður landsins!
25% AFSLÁTTUR AF FATNAÐI!*
Ú T S A L A
REA
SALE
SALDI
SOLDES
ÚTSALA
UDSALG
REBAJAS
WYPRZEDA ’Z
UITVERKOOP
AUSVERKAUF
REA
SALE
SALDI
SOLDES
ÚTSALA
UDSALG
REBAJAS
WYPRZEDA ’Z
UITVERKOOP
AUSVERKAUF
*A
fs
lá
tt
ur
in
n
re
ik
na
st
a
f o
ut
le
t
ve
rð
i.
Buxur fyrir
ferðalanga
Það var líklega bara tímaspursmál
hvenær gallabuxnaframleiðendur
áttuðu sig á því að vespueigendur
þyrftu kannski aðeins betri buxur en
venjulegar gallabuxur til að vera í á
leið sinni um bæinn, án þess að vera
í mótorhjólagalla. Levi‘s hefur nú
sent frá sér Commuter Jeans byggð-
ar á 511-hönnun fyrirtækisins. Eru
buxurnar ætlaðar þeim sem ferðast
um á léttum hjólum eða vespum
í borgum. Eru buxurnar gerðar úr
sterkari þráðum sem hrinda frá sér
vatni og drullu betur en venjuleg-
ar buxur og koma í veg fyrir að lykt
festist í buxunum og eru með aðeins
meiri teygju en venjulegar buxur til
að auka þægindin.
Blúndur og leður
Leikkonan Katie Holmes sýnir á sér
nýja hlið á forsíðu spænska Vogue.
Þar klæðist hún djörfum blúnduk-
jól úr smiðju hönnuðarins Lanvin og
með ögrandi leðurhatt á höfði, svart
naglalakk og dökka augnmálningu.
Holmes er þekkt fyrir að vera yfirleitt
frekar dönnuð í klæðaburði og minnir
yfirleitt frekar á ábyrga húsmóður en
þá djörfu konu sem prýðir forsíðuna.
Góð ráð við
þynnku
Margir þekkja það leiða vandamál
að vakna með mikla timburmenn
eftir drykkju kvöldið áður. Sérfræð-
ingar segja að það sé ekki til neitt
töfraráð við þynnkunni hvimleiðu
en þó séu nokkur ráð sem hjálpi til
við að losna við hana. Númer eitt sé
svefn. Þynnkan verður mun verri ef
maður er svefnlaus í þokkabót. Það
er um að gera að sofa nóg og reyna
þannig að sofa úr sér þynnkuna. Það
er líka mikilvægt að drekka mikinn
vökva og eiga vatn og appelsínu-
safi að gagnast best en kaffi hvað
síst. Það getur líka verið gagnlegt að
drífa sig út, á æfingu eða í sund og
reyna þannig að hressa sig við. Tím-
inn læknar síðan öll sár og þynnkan
hverfur að lokum.
Regnbogakökurnar gleðja unga sem aldna
n Skemmtilegar kökur í öllum regnbogans litum
S
kemmtilegar kökur í öllum
regnbogans litum geta varla
klikkað. Kökurnar er hægt að
baka í lögum þar sem hvert lag
hefur sinn lit eða gera marmaraköku
þar sem litunum er blandað saman
og útkoman getur orðið mjög flott.
Kaka:
n 2 bollar hveiti
n 2 tsk. lyftiduft og 1/2 tsk salt
n 115 g mjúkt smjör
n 1 bolli sykur
n 3 egg
n 2 tsk. vanilludropar
n 3/4 bolli nýmjólk
n Litarefni
Byrjað er á því að þeyta sykur-
inn og smjörið vel saman, eggjum
er síðan bætt við einu í einu. Síðan
er vanilludropunum bætt út í. Þurr-
efnin eru sigtuð saman og blandað
saman við. Best er að hafa smjörið
vel mjúkt því þá verður kakan mýkri.
Að endingu er svo mjólkin sett út
í. Kakan er svo bökuð á 170°C í um
það bil 20 mínútur. Best er að skipta
deiginu í nokkrar mismunandi skál-
ar og blanda einum lit við deigið í
hverri skál. Síðan er hellt úr skálun-
um hverri á eftir annarri í kökuform-
ið og sett beint í ofninn svo að litirnir
blandist ekki saman.
Krem:
n 2 1/2 bolli flórsykur
n 1 egg
n 120 g lint smjör
n 1 tsk. vanilludropar
n 2–3 msk. sýróp
Þegar gera á deigið er gott að
byrja á að hræra fyrst eggið og flór-
sykurinn saman. Síðan er smjörinu
og vanilludropunum bætt við og svo
er sýrópið sett út í. Kjósi maður að
hafa lit í kreminu þá er hann settur
út í síðast.