Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Qupperneq 14
14 Fréttir 21.–27. desember 2011 Jólablað É g sagði henni að þetta væru peningarnir mínir, þeir væru löglega fengnir og inni á mín- um eigin launareikningi,“ seg- ir kokkurinn Tariq Gondal frá Pakistan í samtali við DV. Tariq var mjög brugðið þegar honum var neit- að um að millifæra peninga af banka- reikningi sínum í Landsbankanum og yfir á reikning hjartveikrar eiginkonu sinnar í Pakistan. Atvikið átti sér stað fimmtudaginn 15. desember, í Lands- bankanum í Austurstræti. Eftir að hafa ítrekað spurt banka- starfsmann hvaða ástæður lægju þarna að baki var hann færður út úr bankanum í fylgd öryggisvarðar. Hann er afar óánægður með fram- komuna sem honum var sýnd og hefur að eigin sögn lokað reikningi sínum í Landsbankanum í mótmæla- skyni. Lögfræðingur hans segir fram- komu bankans ekki eðlilega. Upplýs- ingafulltrúi Landsbankans segir hins vegar að farið hafi verið eftir öllum reglum bankans. Kynþáttamismunun Tariq segist hafa beðið starfsmann bankans um skriflega útskýringu á því hvers vegna hann mætti ekki milli- færa peningana. Honum hafi ítrek- að verið neitað um það. Þegar hann endurtók fyrirspurn sína og reyndi að fá viðunandi svör segir hann öryggis- vörð hafa gengið upp að honum, tek- ið í jakkann hans og fært hann út úr bankanum með valdi. „Ég bað hann um að sleppa mér, sagði honum að ég gæti alveg gengið út sjálfur en hann hélt í mig allan tímann,“ segir Tariq sem upplifði eins og það væri litið á hann sem ótýndan glæpamann eða „bankaræningja.“ „Ég vil helst ekki segja það, vegna þess hversu vel Íslendingar hafa al- mennt reynst mér hingað til, en þetta atvik virkar á mig sem kynþáttamis- munun.“ Tariq kom sem flóttamað- ur til Íslands árið 2010 og fékk seinna sama ár atvinnuleyfi til ársins 2012. Hann hefur síðan starfað sem aðstoð- arkokkur á Kaffi Reykjavík og stund- um hefur hann millifært peninga yfir á reikning eiginkonu sinnar, Attia Ta- riq, í Pakistan. Hann á afrit af þrem- ur slíkum millifærslum, sú síðasta var framkvæmd þann 30. nóvember síð- astliðinn. Hann segist engan veginn skilja hvers vegna hann mátti milli- færa peninga í nóvember en ekki í desember, einungis 15 dögum síðar. Skilríki frá Útlendingastofnun nægja ekki „Ég held að þetta sé nú aðallega bara misskilningur sem við leysum,“ seg- ir Kristján  Kristjánsson, upplýsinga- fulltrúi Landsbankans, í samtali við DV. Hann segist ekki geta tjáð sig um einstaka mál en ítrekar að í þessu til- viki hafi verið farið nákvæmlega að öllum reglum sem gilda. Tariq er með gild persónuskilríki sem gefin eru út af Útlendingastofn- un, en þau gilda til ársins 2012. Þeg- ar hann stofnaði bankareikninginn í Landsbankanum framvísaði hann þessum skilríkjum. Það gerði hann einnig í þau þrjú skipti sem hann millifærði peninga yfir á eiginkonu sína fyrr á þessu ári. Hann segist því engan veginn skilja hvað hafi breyst. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum eru slík skilríki, út- gefin af Útlendingastofnun ekki stað- festing á því hver viðkomandi er. Til að fylgja ströngustu reglum um „al- þjóðlegt peningaþvætti“ hafi því ekki verið hægt að framkvæma millifærsl- una eins og Tariq bað um. Þetta segir Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur Ta- riqs, að standist einfaldlega ekki nán- ari skoðun: „Þessar reglur um pen- ingaþvætti gilda þegar verið er að millifæra þúsund evrur eða meira, en þetta voru bara 50 þúsund krón- ur sem hann bað um að millifæra og á meðan honum var bannað það beið konan hans fárveik heima. Þetta er al- veg fáránlegt.“ Hún bætir því við að það verði að skoða slík mál heildstætt og í samhengi. „Að henda manni út sem er í þessari aðstöðu er einfald- lega ekki rétt.“ Hent út „eins og hundi“ „Hann fékk nákvæmlega sams konar afgreiðslu og allir aðrir í sams konar stöðu,“ segir Kristján. Aðspurður um þau viðbrögð öryggisvarða bankans að færa Tariq út úr bankanum með valdi segir Kristján að það séu tvær hliðar á öllum málum. „Það er ágætt að muna að viðskiptavinir verða að sýna starfsmönnum kurteisi,“ segir Kristján. Hann segir að úr málinu verði leyst á næstunni, annað hvort sýni Tariq fram á betri skilríki eða hann verði að fara aðrar leiðir. Tariq hefur sjálfur hætt viðskipt- um sínum við Landsbankann: „Ég er búinn að loka launareikningnum mínum í Landsbankanum og opna nýjan í Arion banka, þar koma þeir ekki svona fram við fólk.“ Hann seg- ist ekki geta orðið við beiðni bank- ans um að sýna fram á önnur skil- ríki eins og til dæmis vegabréf: „Öll mín skírteini eru í geymslu hjá ríkis- lögreglustjóra, skírteinið frá Útlend- ingastofnun er það eina sem ég hef, hvernig get ég sýnt þeim skilríki sem eru í vörslu ríkisins?“ Réttmæt reiði Tariq viðurkennir að hann hafi reiðst þegar honum var neitað um milli- færsluna, þá sérstaklega þegar hon- um var neitað um að fá skriflega út- skýringu á því hvers vegna svo væri. Katrín segist hafa fullan skilning á reiði Tariqs: „Hann er þarna með fullkomlega réttmæta beiðni um að fá skriflega skýringu á synjun- inni og lætur í sér heyra þegar hon- um er neitað um það. Myndi maður ekki bregðast alveg eins við í sömu stöðu?“ Hún hefur reynt að komast til botns í málinu en engin viðunandi svör fengið frá bankanum. „Ef skil- ríkin hans voru nógu góð til þess að stofna reikninginn á sínum tíma og til að millifæra nokkrum sinnum áður, þá er auðvitað fjarstæðukennt að segja allt í einu nei og henda hon- um svo út eins og einhverjum hundi,“ segir hún. Katrín segir að skilríki Út- lendingastofnunar séu gefin út af ríkinu til þess að fólk geti unnið og stundað eðlileg bankaviðskipti, það sé óeðlilegt að íslenskur banki ákveði að hafna slíkum skilríkjum. Önnur vinnubrögð Katrín fór með Tariq í Landsbank- ann í Austurstræti seinna sama daga og beiðni hans um millifærslu var hafnað. „Þá fengum við skjal í hend- urnar þar sem staðfest var að milli- færslunni væri hafnað,“ segir Katrín og bætir við að sömu vinnubrögð viðgangist ekki í öðrum bönkum, þar sé fólki „ekki hent svona út.“ Hún segir líka mikilvægt að átta sig á því að þarna inni hafi verið fólk sem Ta- riq þekkir „og hann dauðskammast sín núna af því það var eins og hann væri einhver bankaræningi eða glæpon.“ Katrín segir að Tariq leiti nú rétt- ar síns gagnvart bankanum. Sjálfur segist hann ekki vilja búa til vanda- mál: „Mér líkar svo vel við hið frið- sæla og góða íslenska samfélag, ég vil ekki særa Íslendinga með því að segja neikvæða hluti. Ég á marga vini hérna sem kalla mig bróður og vin, en það eru alltaf einhverjir sem koma illa fram við mann, sem betur fer eru þeir í miklum minnihluta.“ Meinað að millifæra á veika eiginkonu n Pakistani mátti ekki millifæra hluta af launum sínum á hjartveika eiginkonu n Lögfræðingur hans segist ekki hafa fengið viðunandi skýringar n Farið eftir reglum, segir talsmaður Landsbankans„Ég vil helst ekki segja það, vegna þess hversu vel Íslending- ar hafa almennt reynst mér hingað til, en þetta atvik virkar á mig sem kynþáttamismunun. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Ósáttur Tariq Gondal frá Pakistan segist ekki skilja hvers vegna hann má ekki lengur millifæra peninga á hjartveika eiginkonu sína. mynd SigtRygguR aRi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.