Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Blaðsíða 15
Fréttir 15Jólablað 21.–27. desember 2011
Okkar þekking nýtist þér ...
Jólagjöfin í ár!
Blandarinn sem allir vilja
Verð kr. 99.900
Svunta og kanna fylgja með
meðan birgðir endast
Nánari upplýsingar í 440-1800
eða www.kaelitaekni.is
Kælitækni Rauðagerði 25 • 108 Reykjavík • Sími 440 1800 • Fax 440 1801 • cooltech@cooltech.is
www.kælitækni.is og/eða www.kaelitaekni.is
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
látum
Friðarljósið
lýsa upp aðventuna
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
Heilsudrekinn
er þitt val
Besta jólagjöfin
er góð heilsa
· heilsumeðferð
· heilsuvörur
· dekur
· leikfimi
· heilsute
· spavörur
Ó
ánægja er meðal margra
stjórnarliða með störf Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdótt-
ur, forseta Alþingis. Við-
brögð hennar við tillögu
Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, um að falla
skuli frá ákæru á hendur Geir H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, voru ekki til að auka veg
hennar meðal þingmanna meiri-
hlutans.
Tillaga Bjarna var lögð fram
löngu eftir að frestur til að koma
málum á dagskrá fyrir jól rann út.
Þrátt fyrir það vildi forseti þings-
ins ekki lýsa því yfir afdráttarlaust
að tillagan færi ekki á dagskrá.
Það hefur hleypt illu blóði í marga
stjórnarliða en samkvæmt heimild-
um DV hefur Ásta Ragnheiður leg-
ið undir ámæli fyrir skipulagsleysi á
ögurstundu, eins og það var orðað.
Í þinginu er að auki rætt um að Ásta
Ragnheiður hafi í nokkurn tíma vit-
að af tillögu Bjarna og haldið henni
frá flokksfélögum. Stjórnarliði sem
blaðamaður ræddi við sagðist telja
hugsanlegt að persónuleg skoðun
Ástu á málinu hefði áhrif á vinnu
hennar sem forseta. „Ég heyrði af
tillögunni í ræðu Bjarna Bendikts-
sonar á landsfundi, að hann hygð-
ist leggja svona mál fram. Tillöguna
sá ég fyrst þegar henni var dreift í
þinginu,“ sagði Ásta. Hún segir af
og frá að hún hafi haldið málinu frá
þingmönnum.
Álit aðallögfræðings
til á föstudag
Sama dag og tillögunni var dreift
hafði aðallögfræðingur Alþingis
tilbúið minnisblað um málið. Það
hafa viðmælendur DV sumir túlk-
að sem merki um að forseti hafi vit-
að að tillögunni með góðum fyrir-
vara. „Aðallögfræðingur var að líta
á málið vegna þess að umfjöllun
var um það í fjölmiðlum. Þar og
víðar kom sú skoðun fram að ekki
væri hægt að leggja málið fram. Þá
fer lögfræðingur að skoða málið,“
segir Ásta og bætir við að hún hafi
fyrst séð minnisblaðið um kvöld-
matarleytið.
Skortir aga og útsjónarsemi
Ásta þykir ekki hafa sýnt að hún
hafi tök á að stoppa málfþóf og tafir
þegar þingmenn kjósa að grípa til
slíks. Sagt er að hana skorti nauð-
synlegan aga og útsjónarsemi til
að takast á við þingflokksformenn
sem iðulega ýta fast eftir að fá sín
mál á dagskrá. Þar er Ragnheiður
Elín Árnadóttir, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, nefnd sér-
staklega. „Það kemur mér verulega
á óvart að heyra þetta því samstarf
okkar Ástu hefur verið með ágæt-
um,“ segir Ragheiður Elín aðspurð
hvort erfitt sé að hemja hana sem
þingformann. „Það verða aðrir að
dæma um mig. Ásta Ragnheiður
stendur sig vel í því sem hún er að
gera.“
Ekki forseti án trausts
þingmeirihluta
Blaðamaður ræddi við fjölda
stjórnarliða um afstöðu þeirra til
starfa forseta Alþingis. Samfylk-
ingin fer með ákvörðun um hver
er tilnefndur til forseta fyrir hönd
meirihlutans en Ásta Ragnheiður
var upphaflega kosin með sextíu
atkvæðum. Á það var þó bent að
enginn situr á stól forseta þings-
ins án þess að hafa traust meiri-
hluta þingmanna. „Ef þingmenn
vilja skipta um forseta þingsins
sem kosinn er til fjögurra ára þá
þarf að berast bréf með undir-
skrift 32 þingmanna um að kos-
inn verði nýr forseti. Ríkisstjórnin
er með 32, finnst þér líklegt að ég
skrifi undir slíkt plagg?“ sagði Ásta
Ragnheiður um málið og bætti við
að þessar vangaveltur jöðruðu við
að vera út í hött enda væri þingið
sjálfstætt.
Forseti
Alþingis
í vAndA
n Þykir skorta öguð vinnubrögð og útsjónarsemi
n Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks hrósar Ástu
„Hún segir af og frá
að hún hafi haldið
málinu frá þingmönnum.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Forseti Alþingis er sagður valtur í sessi.