Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Page 37
Viðtal 37Jólablað 21.–27. desember 2011
Hjónabandið er ekki eintómur glassúr:
hann fundið fyrir ágangi aðdáanda.
„Það voru endalausar hringingar og
læti. Ég þurfti stundum að slökkva á
símanum og kippa honum úr sam-
bandi,“ segir hann hlæjandi. „Ég er
löngu búinn að finna mér leiðir til
þess að losa mig úr þessu. Ég er alltaf
að fara eitthvert,“ segir hann sposk-
ur og heldur áfram. „Því ég get alltaf
verið að fara eitthvert, hvort sem það
er nótt eða dagur. Mér finnst gaman
að tala við sumt fólk, það er í lagi ef
það er ekki röflandi fullt. Sumt fólk er
bara einmana og vantar einhvern að
tala við. Ég hlusta oft á fólk sem vill
bara tala, opna sig aðeins. Ef ég finn
að fólk þarf að tjá sig eitthvað, er eitt
eða eitthvað, þá reyni ég að hlusta.“
Syngur fyrir jafnaldra
á elliheimilum
Þrátt fyrir að vera orðinn 77 ára
slær hann hvergi slöku við. Það er
mikið að gera hjá söngvaranum sí-
unga sem treður upp á skemmtun-
um af ýmsu tagi, afmælum, árshá-
tíðum og öðrum mannamótum og
finnst það gaman. „Ég er búinn að
vera að segja við konuna í eitt ár að
næsta skrefið sé að ég fái 24 tíma
þar sem ég þarf ekkert að fara út.
Það hefur ekki gerst núna í eitt eða
tvö ár,“ segir Raggi hlæjandi. Hann
syngur jafnt á elliheimilum sem
og á menntaskólaböllum og hefur
gaman af.
Nýlega söng hann lagið Allir eru
að fá sér með rapparanum Erpi
Eyvindarsyni og vakti það mikla
lukku, sérstaklega meðal yngri kyn-
slóðarinnar. „Krakkarnir stoppa
mig oft og vilja fá áritanir og svona.
Það er bara gaman að því. Það var
frábært að vinna með Erpi, hann
er alveg stórskemmtilegur náungi.
Þegar við vorum að vinna saman
kom það í ljós að þegar ég var að
tromma í Ingólfscafé 15 ára gam-
all var Guðmundur leigubílstjóri,
afi hans, dyravörður og dansstjóri
á staðnum. Við hlógum mikið að
þessu.“
Á elliheimilunum syngur hann
oft fyrir jafnaldra sína og segir það
voðalega misjafnt hvernig fólk eld-
ist. „Ég var að syngja á elliheimili
og þar sat voðalega sæt gömul kona
fyrir framan mig. Ég var svona að-
eins að fylgjast með henni. Þegar
ég var búinn að syngja kom maður
og bað mig að heilsa upp á hana. Þá
var hún 105 ára gömul og afi minn,
Böðvar Bjarnason sem var prestur
á Hrafnseyri við Arnarfjörð, hafði
fermt hana. Hún var mjög skýr og
voðalega sæt gömul kona,“ segir
Raggi og heldur svo áfram:
„Ef ég eldist svona vel þá vil ég
gjarnan verða 105 ára,“ segir Raggi og
segist ekki mikið pæla í aldri fólks-
ins sem hann syngur fyrir. „Ég byrj-
aði einhvern tímann skemmtun fyr-
ir eldri borgara á því að segja: Jæja,
elskurnar, við erum öll á sama aldri
hérna. Það gerði enga lukku,“ segir
hann hlæjandi.
Ætlar að fá sér tölvu þegar
hann eldist
Þjóðfélagið hefur tekið miklum
breytingum á æviskeiði Ragga.
Hann segist taka tækninýjungum
fagnandi enda hafi hann lifað tím-
ana tvenna í tæknimálum. „Mér
finnst þetta bara allt saman eins
og þetta á að vera. Fyrsta platan
sem ég söng inn á var svona lakk-
plata. Þeir notuðu pensil og þetta
var nokkurs konar segulband fyrri
tíma. Það var hægt að spila þær
tvisvar eða þrisvar og þá voru þær
ónýtar. Ég hef líka sungið inn á stál-
þráð,“ segir hann og hlær að göml-
um tækniundrum.
„Áður en teipið kom, þá kom fyr-
irbæri sem hét stálþráður, allan tím-
ann handónýtt drasl. Þetta var ein-
hver stálþráður sem tónninn átti að
fara inn á. Svo kom segulbandið og
þá breyttist allt. Þá var hægt að nota
tvö segulbönd og klippa og líma. Ég
er enn að átta mig á þessu. Gunni
Þórðar gat ekki annað en brosað
þegar ég sagði við hann: Ég get bara
tekið þetta upp aftur, Gunni minn. –
Þá sagði hann: Nei, nei, ég laga þetta
bara. Því núna er hægt bara að laga
eftir á. Það er hægt að lyfta röddinni
og gera alls konar breytingar eftir á.“
Raggi á ekki tölvu og kann skýr-
ingu á því. „Ég er búinn að segja
þeim sem spyrja að ég ætli að fá mér
tölvu þegar ég fer að eldast. Ég er
soddan frík. Ef ég fengi mér tölvu og
færi að læra á þetta þá færi ég alveg á
kaf, ég er svona fréttafrík,“ segir hann
glettinn.
Hefur gaman af gömlum
hlutum
Hann segist hafa dálæti á göml-
um hlutum og lesa mikið. „Ég hef
gaman af alls konar svona, göml-
um hlutum og bókum. Mér finnst
gaman að skoða hvernig hlutirn-
ir voru. Ég les voða mikið, það er
svona mín stund á kvöldin áður
en ég fer að sofa. Ég er að lesa alls
konar, til dæmis Einar Ben. Ég fer
til Braga bóksala og finn bækur þar.
Ég fann til dæmis hjá honum við-
talsbækur sem Matthías Johann-
essen gerði og þar koma alls kon-
ar prinsar fyrir, Steinn Steinarr og
fleiri góðir. Það er fyrst núna sem
ég hef gefið mér tíma til að grúska
í þessu, eða ég gef mér ekki tíma,
ég geri það bara áður en ég fer að
sofa,“ segir Raggi og hlær sínum
einstaka hlátri og bætir svo við:
„Ég hef reyndar farið að sofa í 77 ár
núna, svoleiðis ég hefði nú getað
gert þetta fyrr.“
Týndi bílunum úti um allan bæ
Raggi er mikill bílaáhugamaður og
rak í nokkur ár bílaleigu. „Rugluð-
ustu bílaleigu á Íslandi,“ eins og hann
lýsir henni. „Ég var ekki með skrif-
stofu og ekki neitt. Ég var bara með
þrjátíu og eitthvað bíla bara hing-
að og þangað um bæinn. Svo var ég
bara með GSM-inn og lyklana á mér,“
segir hann skellihlæjandi af sínu ein-
staka kæruleysi.
„Helle keyrði á eftir mér þegar
ég var að sækja bílana. Hún hefur
tvisvar keyrt á og í bæði skiptin var
það aftan á mig því ég stoppaði úti á
miðri götu, vissi ekki hvert ég var að
fara,“ segir Raggi og brosir út í annað.
Bílaleiguna rak hann í hátt í áratug.
„Þetta hékk svona. Ég var að þessu í
átta ár.
Það voru yfir þrjátíu bílar þegar
mest var. Svo týndi ég þeim. Ég var
alltaf að týna þeim,“ segir hann hlæj-
andi og rifjar upp eina sögu því til
staðfestingar.
„Einu sinni var strákur sem tók
bíl hjá mér og átti að gera við hann.
Svo þegar það voru liðnar þrjár vik-
ur hringdi ég og spurði hann hvort
enn væri verið að gera við bílinn og
þá sagði hann: Ertu vitlaus? Hann var
hérna í hálfan dag! Ég sagði þá: Hvað
segirðu? Hvar er bíllinn? Og strákur-
inn spurði mig á móti: Ertu búinn að
týna einum enn? Ég sagðist ekki hafa
hugmynd um það. Svo gróf ég upp
strákinn, hringdi til Ísafjarðar þar
sem hann var að vinna í frystihús-
inu og spurði hvort hann væri á bíln-
um fyrir vestan. Bílnum? sagði hann.
Ertu vitlaus, maður, þú sagðir mér
að fara með hann niður í Heklu og
setja lykilinn undir mottuna og skilja
hann eftir, sagði strákurinn. Heyrðu,
þá hafði bílinn verið þar í þrjár vikur,“
segir Raggi skellihlæjandi.
Fær aldrei leiða
Raggi Bjarna er sko langt frá því að
vera sestur í helgan stein. Hann segist
aldrei verða þreyttur á því að syngja
og koma fram. „Ég get ekki fengið
leiða á þessu, það er ekki hægt. Mér
finnst jafn gaman að þessu í dag og
þegar ég byrjaði. Ég er jafn spenntur
fyrir þessu og þá.“
Raggi er oft að skemmta á nótt-
unni og finnst það ekki mikið mál.
„Ég verð kannski stundum þreyttur
þegar ég er að spila með Millunum
og þarf að skipta um föt klukkan
eitt að nóttu en ég hef bara gaman
af því. Ég kalla þetta ekki þreytu, ég
kalla þetta leti. Og ég segi oft við
sjálfan mig: Æ, góði besti, hættu
þessari leti. Það er ekkert að þér,“
segir hann brosandi og telur svefn
skipta miklu máli. „Ég passa voða
vel að sofa almennilega, ég þarf
helst að sofa átta tíma á dag og hef
alltaf reynt að gera það. Ég er ekk-
ert endilega að passa röddina, mér
finnst bara óþægilegt ef ég sef lítið.
Ég held að hvíld sé voðalega nauð-
synleg fyrir alla, alveg sama í hverju
þú ert.“
Raggi segist munu syngja svo
lengi sem röddin leyfi honum það.
„Hún hefur haldist og ef hún heldur
áfram að gera það þá syng ég örugg-
lega eitthvað áfram, eins lengi og ég
get,“ segir hann brosandi.
Raggi er spenntur fyrir jólun-
um en þeim verja þau hjónin sam-
an með syni sínum og barnabörn-
um. „Við erum hjá stráknum okkar
yngsta á aðfangadag. Hann býr suð-
ur í Keflavík og við förum þangað og
ekkert vesen. Síðan förum við í fjöl-
skylduboð og höfum það gott sam-
an,“ segir Raggi fullur tilhlökkunar
fyrir jólahátíðinni.
„Þetta voru yfir þrjátíu bílar
þegar mest var. Svo týndi ég
þeim. Ég var alltaf að týna þeim.
„Við höfum eflaust
rifist einhvern tím-
ann og pönkast eins og
gengur í hjónaböndum.
En mér finnst þetta bara
indælt og er voða happí
með þetta.
Ballerínan og söngvarinn Hjónin
kynntust í Danmörku og hafa verið gift í
yfir fjörutíu ár. mynd eyþór árnaSon