Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2011, Qupperneq 40
40 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 21.–27. desember 2011 Jólablað
B
enedikt fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1951 og leiklistarprófi frá
Central School of Speach Training
and Dramatic Art í Royal Albert Hall
1954.
Benedikt starfaði hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og síðan Þjóðleikhús-
inu til 1991, lengst af sem leikstjóri.
Þá starfaði hann í eitt ár við leik-
stjórn í Danmörku þar sem hann var
fyrsti aðstoðarleikstjóri Eriks Ball-
ing, auk þess sem hann setti upp
verk í Noregi. Benedikt bjó síðan um
skeið á Englandi og starfaði þá með
svonefnda frjálsa leikhópa.
Benedikt er almennt álitinn með
fremstu leikstjórum þjóðarinnar.
Hann leikstýrði á sjötta tug leik-
verka fyrir Þjóðleikhúsið. Má þar
nefna Nashyrningana, eftir Ionesco;
Húsvörðinn, eftir Pinter; Hamlet og
Þrettándakvöld, eftir Shakespeare,
og söngleikina My Fair Lady, Fiðl-
arann á þakinu, Gæja og píur, Vesa-
lingana, Oliver og Söngvaseið.
Þá hefur Benedikt leikið í nokkr-
um íslenskum kvikmyndum og
sjónvarpsleikritum. Hann var m.a.
aðstoðarleikstjóri og framkvæmda-
stjóri kvikmyndarinnar 79 af stöð-
inni.
Fjölskylda
Kona Benedikts er Erna Guðmunds-
dóttir Geirdal, f. 2.3. 1932, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Guðmundar Geir-
dal, skálds á Ísafirði, og Vilhelmínu
Steinu Pétursdóttur húsmóður en
þau eru bæði látin.
Benedikt kvæntist 1962 Valgerði
Kristjánsson, f. 22.4. 1939, söngkonu
og kennara. Þau skildu.
Synir Benedikts og Valgerðar eru
Einar Benediktsson, f. 29.10. 1962,
BS í fjölmiðlafræði, borgarfulltrúi,
lagahöfundur og fyrrv. söngvari Syk-
urmolanna, kvæntur Sigrúnu Guð-
mundsdóttur ballettdansara og eiga
þau þrjá syni; Árni, f. 24.4. 1964, bú-
fræðingur og framkvæmdastjóri
í Reykjavík, en kona hans er Lilja
Gissurardóttir og eiga þau þrjú börn.
Systir Benedikts er Þórdís, f. 19.9.
1933, húsmóðir í Garðabæ, en mað-
ur hennar var Einar Elíasson Siem-
sen forstjóri sem er látinn og eign-
uðust þau eina dóttur auk þess sem
Þórdís á þrjá syni frá fyrra hjóna-
bandi.
Foreldrar Benedikts voru Árni
Benediktsson, f.10.3. 1897, d. 13.3.
1967, skrifstofustjóri ÁTVR og síð-
ar forstjóri Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík, og k.h., Jóna Kristjana Jó-
hannesardóttir, f. 21.7. 1911, d. 10.6.
1956, húsmóðir.
Ætt
Systir Árna var Þórhalla en bræður
hans voru Guðmundur, gullsmiður
á Seyðisfirði, og Halldór, b. á Hall-
gilsstöðum á Langanesi. Þau voru
börn Benedikts, b. á Hallgilsstöð-
um Árnasonar, frá Landamóti í Kinn
Bjarnasonar, og Arnþrúðar Guð-
mundsdóttur, b. á Hallgilsstöðum
Björnssonar.
Jóna Kristjana var systir Líneyjar
rithöfundar. Jóna Kristjana var dótt-
ir Jóhannesar Baldvins, stúdents og
óðalsb. á Laxamýri, bróður Jóhanns
Sigurjónssonar skálds og Snjólaug-
ar, móður Sigurjóns, fyrrv. lögreglu-
stjóra í Reykjavík, og Ingibjargar,
móður Magnúsar Magnússonar,
dagskrárgerðarmanns á BBC, rithöf-
undar og rektors Edinborgarháskóla,
föður Sallýjar og Önnu Snjólaugar
hjá BBC. Jóhannes Baldvin var sonur
Sigurjóns, dbrm. og óðalsb. á Laxa-
mýri Jóhannessonar, b. á Laxamýri,
ættföður Laxamýrarættar, bróður
Jóns í Sýrnesi, langafa Jónasar frá
Hriflu. Jóhannes var sonur Krist-
jáns, b. á Halldórsstöðum í Aðaldal
Jósepssonar, b. á Kasthvammi í Að-
aldal Tómassonar, bróður Jónasar í
Hvassafelli, afa Jónasar Hallgríms-
sonar. Móðir Kristjáns var Ingibjörg
Hallgrímsdóttir, systir Ólafar, ömmu
Hólmfríðar Indriðadóttur skáld-
konu, sem var amma Guðmundar,
skálds á Sandi, og Sigurjóns, skálds á
Laugum, Friðjónssona. Ingibjörg var
einnig systir Gunnars, pr. á Laufási,
afa Tryggva Gunnarssonar banka-
stjóra og langafa Hannesar Haf-
stein ráðherra. Móðir Jóhannesar
var Sesselja Bergsdóttir, pr. á Nesi
í Aðaldal Magnússonar og Sigríð-
ar, systur Ingibjargar, ömmu Brynj-
ólfs Fjölnismanns, Péturs biskups og
Jóns dómstjóra Péturssona. Móðir
Sigurjóns var Sigurlaug Kristjáns-
dóttir. Móðir Jóhannesar Baldvins
var Snjólaug Guðrún, langamma
Stefáns Gunnlaugssonar, fyrrv. bæj-
arstjóra í Hafnarfirði, föður Guð-
mundar Árna sendiherra. Snjólaug
Guðrún var dóttir Þorvalds, ættföð-
ur Krossaættar Gunnlaugssonar og
Snjólaugar, systur Hólmfríðar, lang-
ömmu Björns Th. Björnssonar list-
fræðings.
Benedikt Örn Árnason
Leikstjóri í Reykjavík
80 ára á Þorláksmessu
21. desember
40 ára
Ash Kumar Gurung Blöndubakka 20, Reykjavík
Bjarni Hrafn Ívarsson Gerðhömrum 19, Reykjavík
Bjarni Viggósson Þinghólsbraut 39, Kópavogi
Svavar Konráð Sigurðsson Laufengi 6, Reykjavík
Eiríkur Auðunn Auðunsson Klukkurima 37, Reykjavík
Steinunn Þorleifsdóttir Fjallalind 19, Kópavogi
Lilja Björk Arnardóttir Hofakri 5, Garðabæ
50 ára
Ragnhildur Vestmann Mararbyggð 37, Ólafsfirði
Þór Stefánsson Engjavegi 87, Selfossi
Þórunn Friðjónsdóttir Miðvangi 41, Hafnarfirði
Hugrún Magnúsdóttir Vigur, Ísafirði
Margrét Kristjánsdóttir Neðri-Brunná, Búðardal
Anna Margrét Elíasdóttir Kjarrhólma 34, Kópavogi
60 ára
Sóley Sturludóttir Holtateigi 1, Akureyri
Kristín Þuríður Matthíasdóttir Kleifargerði 2, Akureyri
Sigþrúður Ármannsdóttir Breiðvangi 6, Hafnarfirði
Árni Ásmundsson Norðurvöllum 22, Reykjanesbæ
Anna Ingibjörg Flosadóttir Eskihlíð 14, Reykjavík
Margrét Hilmarsdóttir Ljósheimum 6, Reykjavík
Þórður K. Magnússon Heiðarhvammi 8h, Reykjanesbæ
70 ára
Kristín R. Guðnadóttir Kúrlandi 25, Reykjavík
Þorleifur Hauksson Bauganesi 4, Reykjavík
75 ára
Karl Gunnar Marteinsson Strembugötu 25, Vestm.
Einar Eysteinsson Broddanesi 2, Hólmavík
Kristinn G. Jóhannsson Lönguhlíð 7d, Akureyri
Ragnar Ingi Haraldsson Hrannarstíg 18, Grundarfirði
85 ára
Gestheiður G. Stefánsdóttir Skálholti 11, Ólafsvík
Gísli J. Eyland Víðimýri 8, Akureyri
90 ára
Ragnheiður Pétursdóttir Sléttu 2, Akureyri
95 ára
Helena Halldórsdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík
22. desember
30 ára
Dorota Ewa Zolich Háengi 10, Selfossi
Piotr Radoslaw Lapus Hamraborg 7, Kópavogi
Ólafur Björnsson Álfheimum 19, Reykjavík
Kári Páll Óskarsson Laufásvegi 71, Reykjavík
Hrafnhildur Kristjánsdóttir Kolbeinsmýri 9, Seltj.
Sverrir Brynjar Berndsen Grettisgötu 82, Reykjavík
Sif Sigurðardóttir Kotárgerði 26, Akureyri
Óskar Sindri Atlason Stórateigi 21, Mosfellsbæ
Magnús Örn Friðriksson Holtateigi 20, Akureyri
Egill Tryggvason Víðimel 32, Reykjavík
Donna Ýr Kristinsdóttir Illugagötu 56, Vestm.
Ástrós Björk Viðarsdóttir Hamravík 56, Reykjavík
Arnar Freyr Theodórsson Þrastarási 14, Hafnarfirði
Arnar Ingi Richardsson Dvergabakka 16, Reykjavík
Anna Karen Sigurjónsdóttir Leynisbraut 6, Grindavík
40 ára
Anna Izabela Górska Hvassaleiti 64, Reykjavík
Adrian Lopez Guarneros Neðstaleiti 2, Reykjavík
Johanna Maija-Liisa Segler Gauksrima 19, Selfossi
Karl Pétursson Skálatúni Fögruhlíð, Mosfellsbæ
Elín Birna Bjarnadóttir Njálsgerði 5, Hvolsvelli
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir Bauganesi 16, Reykjavík
Karl Ægir Karlsson Vesturgötu 46a, Reykjavík
Aðalsteinn Líndal Gíslason Álftahólum 6, Reykjavík
Íris Björg Sigmarsdóttir Túngötu 4 Hvanneyri, Borgarn.
Þórunn Selma Benediktsdóttir Asparfelli 8, Reykjavík
Guðmunda Sif Davíðsdóttir Tröllateigi 19, Mosfellsbæ
Ragnar Guðmundsson Stekkholti 9, Selfossi
50 ára
Krzysztof Jan Janikula Engihjalla 9, Kópavogi
Miroslaw Uscilowski Völusteinsstræti 17, Bolungarvík
Einar Ófeigur Björnsson Lóni 2, Kópaskeri
Helgi Ragnarsson Nökkvavogi 40, Reykjavík
Einar Páll Garðarsson Jöklafold 12, Reykjavík
Hrafn Sveinbjarnarson Starhólma 6, Kópavogi
Elín Hildur Jónsdóttir Uppsalavegi 19, Húsavík
Ágústa Guðrún Gylfadóttir Heiðarbóli 29, Reykjanesbæ
Gunnlaugur A. Björnsson Akurvöllum 1, Hafnarfirði
Kristjana St. Jóhannesdóttir Stóra-Búrfelli, Blönduósi
60 ára
Baldvin Gunnlaugur Heimisson Skúlagötu 10,
Reykjavík
Þórunn Ingibjörg Reynisdóttir Fannafold 30, RVK
Ragnheiður Þórarinsdóttir Lyngheiði 23, Hveragerði
Kolbrún Þórarinsdóttir Faxatúni 22, Garðabæ
Björn Halldórsson Maríubaugi 121, Reykjavík
Helgi Hafnar Gestsson Bjargarstíg 3, Reykjavík
70 ára
Sigríður S. Rögnvaldsdóttir Sólheimum 27, Reykjavík
Páll Jónatan Pálsson Melteigi 4, Akranesi
Sigurður Haraldsson Fiskakvísl 1, Reykjavík
Sigurður Pálsson Hátúni 10, Reykjavík
Dagný Jónsdóttir Goðheimum 24, Reykjavík
Erla Ófeigsdóttir Erluhólum 6, Reykjavík
Erna Guðnadóttir Álftahólum 8, Reykjavík
75 ára
Ragnhildur Þorsteinsdóttir Úlfsstöðum 1, Reykholt
í Borgarfirði
Katrín Sigurjónsdóttir Sóleyjarima 15, Reykjavík
Ólafía Guðlaug Þórhallsdóttir Safamýri 54, Reykjavík
Ingólfur H. Ámundason Þrastahrauni 8, Hafnarfirði
Ingólfur Ármannsson Furulundi 3c, Akureyri
Aud Aune Björnsson Þórustíg 2, Reykjanesbæ
Einar Kristjónsson Engihlíð 16f, Ólafsvík
80 ára
Ragnar Lundborg Jónsson Brúsastöðum, Selfossi
Ólafur Helgi Grímsson Sautjándajúnítorgi 7, Garðabæ
85 ára
Björn Þór Pálsson Laufási 11, Egilsstöðum
Einar Bárðarson Skerjavöllum 8, Kirkjubæjarklaustri
90 ára
Jóhannes G. Jóhannesson Laugarbrekku 13, Húsavík
Svava Sigurðardóttir Ásgerði 1, Reyðarfirði
Á Þorláksmessu
30 ára
Boguslaw Jan Kozuch Strandgötu 5, Patreksfirði
Jóhanna Þórarinsdóttir Breiðuvík 27, Reykjavík
Hafsteinn Daníel Þorsteinsson Tröllakór 18, Kópavogi
Sveinn Jakob Pálsson Æsufelli 6, Reykjavík
Haraldur Björnsson Frostafold 63, Reykjavík
Frosti Sigurðsson Snjóholti, Egilsstöðum
Óskar Sæmann Axelsson Vesturhúsum 4, Reykjavík
Guðrún María Jóhannsdóttir Klukkubergi 29, Hafnarf.
Brynjar Pálsson Sólbrekku 8b, Egilsstöðum
Bragi Bragason Guðrúnargötu 3, Reykjavík
Bjarki Ingason Miðstræti 20, Neskaupstað
Eiríkur Jónsson Njálsgötu 2, Reykjavík
40 ára
Anna Ólafsdóttir Rekagranda 2, Reykjavík
Bergþór Ingi Þráinsson Starengi 108, Reykjavík
Sigríður Lóa Gissurardóttir Efstu-Grund, Hvolsvelli
Áslaug Guðmundsdóttir Vesturbergi 124, Reykjavík
Gunnhildur Sveinsdóttir Hæðargarði 44, Reykjavík
Rannveig Þórisdóttir Ólafsgeisla 57, Reykjavík
Kristinn Geir Friðriksson Suðurgötu 121, Reykjavík
Ásdís Pétursdóttir Ólafs Tómasarhaga 44, Reykjavík
Sonja Magnúsdóttir Skógarhlíð 5, Hafnarfirði
Hulda Ragna Valsdóttir Kópavogsbraut 20, Kópavogi
Sólveig Elín Þórhallsdóttir Helgamagrastræti 17, Ak.
Rúna Magnúsdóttir Glitvöllum 21, Hafnarfirði
50 ára
Úlfur Heiðar Marinósson Hvammi 1, Þórshöfn
Sigrún Böðvarsdóttir Prestsbakka, Kirkjubæjarklaustri
Jónína Sigríður Pálsdóttir Laugavegi 40a, Reykjavík
Freyr Njarðvík Hátúni 10, Reykjavík
Dagný Petra Gunnarsdóttir Ásgarði 3, Neskaupstað
Guðný Sigurðardóttir Urðartjörn 9, Selfossi
Björn Bergsteinn Guðmundsson Kópavogsbr. 104,
Magnús Hreinsson Leysingjastöðum, Blönduósi
Lúther Sigurðsson Skógarási 5, Hafnarfirði
Aðalsteinn Gíslason Holtagerði 3, Húsavík
Íris Gunnarsdóttir Látraseli 5, Reykjavík
60 ára
Ryszard Cieslewicz Hverfisgötu 57, Reykjavík
Gunnar H Hall Barðastöðum 71, Reykjavík
Þóra Björg Ágústsdóttir Gullsmára 3, Kópavogi
Magnús Magnússon Neshaga 5, Reykjavík
Þórdís G Stephensen Hverafold 96, Reykjavík
Árni Árnason Bárugötu 12, Reykjavík
Sigþór Hákonarson Arnarási 1, Garðabæ
Hjalti Jósefsson Melavegi 5, Hvammstanga
Egill Bjarnason Richardshúsi, Akureyri
Katrín Hermannsdóttir Vættagili 19, Akureyri
Soffía Jónasdóttir Álfaskeiði 82, Hafnarfirði
Valgarð Stefánsson Hraunbæ 51, Hveragerði
Hermann Kristjánsson Illugagötu 46, Vestmannaeyjum
70 ára
Trausti Guðlaugsson Víðivangi 7, Hafnarfirði
Oddfríður Lilja Harðardóttir Hörðalandi 16, Reykjavík
Jensína Sigurborg Jóhannsdóttir Hlynsölum 1,
Kópavogi
Óskar Axelsson Baughóli 38, Húsavík
Jón Sæmundsson Byggðavegi 107, Akureyri
Sólveig Hugrún Ólafsdóttir Árstíg 15, Seyðisfirði
Guðbjörg Pálmadóttir Foldahrauni 42f, Vestm.
Heiðrún Sigurjónsdóttir Grettisgötu 71, Reykjavík
Ólafur Árnason Laugateigi 16, Reykjavík
75 ára
Tryggvi Árnason Garðsstöðum 58, Reykjavík
Kristján Vigfússon Bakkastíg 3b, Eskifirði
Erling Auðunsson Löngubrekku 32, Kópavogi
Þorleifur Finnjónsson Vogagerði 28, Vogum
Örn Viðar Einarsson Faxastíg 4, Vestmannaeyjum
80 ára
Ásdís Jónína Magnúsdóttir Suðurhlíð 38a, Reykjavík
Andrés Jón Ásgeirsson Holtabyggð 6, Hafnarfirði
90 ára
Elín Ágústa Jóhannesdóttir Miðleiti 3, Reykjavík
Afmælisbörn helgarinnar
Til hamingju!
J
óhanna fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Kópavogi. Hún
var í Snælandsskóla, stund-
aði nám við Menntaskól-
ann í Kópavogi og lauk það-
an stúdentsprófi 2001, stundaði
nám í viðskiptafræði við Háskóla
Íslands og lauk þaðan prófum sl.
haust.
Þá hefur Jóhanna stundaði
söngnám.
Jóhanna hefur starfað hjá Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins frá
því í maí 2001.
Jóhanna æfði og keppti í körfu-
knattleik með Breiðabliki á ung-
lingsárunum. Hún æfir nú og
keppir í golfi fyrir GKG.
Fjölskylda
Systkini Jóhönnu eru Bjarni Georg
Einarsson, f. 28.1. 1973, starfsmað-
ur við Álverið í Straumsvík; Guð-
rún Ólöf Einarsdóttir, f. 7.4. 1974,
starfsmaður við skjalasafn Land-
spítalans; Guðbjörg Sigríður Ein-
arsdóttir, f. 3.6. 1980, lögreglukona.
Foreldrar Jóhönnu eru Alda
Breiðfjörð Indriðadóttir, f. 22.3.
1946, húsmóðir í Kópavogi, og Ein-
ar Bjarnason, f. 13.3. 1952, starfs-
maður hjá Olíudreifingu.
A
rnar fæddist í Keflavík en
ólst upp í Njarðvík. Hann
stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja,
lauk sveinsprófi í rafvirkj-
un 1981 og prófi í rafiðnaðarfræði frá
Tækniskóla Íslands 1991.
Arnar starfaði hjá Rafverkstæði IB
í Njarðvík 1976–97 með smáhléum,
starfaði hjá Brunnum hf. í Hafnarfirði
1997–2000, hjá SRS sf. 2000–2001
og hóf vinnu hjá Raftæknistofunni
hf., nú Verkfræðistofan Efla, 2001 og
er í forsvari fyrir útibú Efla í Reykja-
nesbæ.
Arnar starfaði í JC 1983–86, hefur
setið í nokkrum nefndum á vegum
Njarðvíkurbæjar og Reykjanesbæj-
ar. Hann er í Kiwanisklúbbnum Keili
og var forseti hans 2000–2001, hefur
verið umdæmisféhirðir og svæðis-
stjóri Ægissvæðis. Helstu áhugamál
eru veiðar af ýmsum toga og útivist.
Fjölskylda
Arnar kvæntist 20.7. 1985 Önnu
Birnu Árnadóttur, f. 29.10. 1958, bók-
ara hjá Isavia. Hún er dóttir Árna
Júlíussonar, fyrrv. símaverkstjóra, og
Valgerðar Sigurðardóttur, fyrrv. póst-
afgreiðslumanns.
Synir Arnars og Önnu Birnu eru
Árni Júlíus, f. 28.11. 1988; Halldór,
f. 11.11. 1991; Róbert Ingi, f. 08.10.
1997.
Systkini Arnars eru Elín Jóhanna
Livingston, f. 14.1. 1956, húsmóðir
í Flórída; Ragnhildur Helga, f. 22.2.
1965, skrifstofumaður í Reykja-
nesbæ; Brynja, f. 1.4. 1969, banka-
starfsmaður í Reykjanesbæ; Guð-
mundur Þórir, f. 2.4. 1974, rafverktaki
í Reykjanesbæ.
Foreldrar Arnars: Ingólfur Bárðar-
son, f. 9.10. 1937, rafverktaki í Njarð-
vík, og Halldóra Jóna Guðmunds-
dóttir, f. 31.12. 1937, húsmóðir.
Jóhanna Ásgerður Einarsdóttir
Aðalfulltrúi hjá LSR
Arnar Ingólfsson
Rafiðnfræðingur í Reykjanesbæ
30 ára á fimmtudag
50 ára á fimmtudag
DV1112167842