Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Qupperneq 8
Helgarblað 11.–14. apríl 20148 Fréttir
H
alla Sigrún Hjartardóttir,
fjárfestir og stjórnarfor-
maður Fjármálaeftirlitsins,
heldur áfram að auka um-
svif sín í atvinnulífinu. Líkt
og DV greindi frá í lok síðasta árs þá
tengdist hún fjórum fyrirtækjum og
eignarhaldsfélögum, meðal annars
Fjarðalaxi á Tálknafirði, en nú ligg-
ur einnig fyrir að hún var einn af
kaupendum Póstmiðstöðvarinnar
undir lok síðasta árs. Morgunblaðið
greindi frá þessu í síðustu viku.
Meðfjárfestar hennar í Póst-
miðstöðinni, sem meðal annars á
dótturfélag sem dreifir Fréttablað-
inu, eru þeir Einar Örn Ólafsson,
fyrrverandi forstjóri Skeljungs, og
Malcolm Walker, framkvæmdastjóri
og eigandi Iceland-keðjunnar
bresku, en Kristinn Þór Geirsson,
fyrrverandi starfsmaður Glitnis, er
framkvæmdastjóri félagsins sem
keypti Póstmiðstöðina.
Halla Sigrún starfaði áður í Glitni,
síðar Íslandsbanka, og Straumi. Hún
hætti í Straumi með skömmum fyrir-
vara í fyrra. Heimildir herma að upp
hafi komið vissir hagsmunaárekstrar
vegna aðkomu hennar að Fjarðalaxi
á Tálknafirði en fjárfestingarbanki
sá meðal annars um viðskipti sem
tengdust því fyrirtæki. Halla Sig-
rún eignaðist hlut í Fjarðalaxi í nóv-
ember í gegnum félagið Fiskisund
ásamt þeim Einari Erni Ólafssyni og
Kára Guðjónssyni en hann starfaði
með þeim í Glitni og Íslandsbanka.
Erlendir aðilar vildu Skeljung
Halla Sigrún er því orðin nokk-
uð umsvifamikil í atvinnulífinu og
vinnur þar meðal annars með Einari
Erni. Þau Einar Örn voru starfsmenn
fyrirtækjaráðgjafar Glitnis, síðar Ís-
landsbanka, sem annaðist meðal
annars sölu á meirihluta í olíufé-
laginu Skeljungi síðsumars 2008, rétt
fyrir bankahrunið.
Samkvæmt heimildum DV
höfðu erlendir aðilar sem starfa í
olíubransanum áhuga á að kaupa
meirihluta í Skeljungi og greiða fyr-
ir hlutinn í reiðufé. Þessir aðilar
funduðu með þeim Einari Erni og
Höllu Sigrúnu og lýstu yfir áhuga á
Skeljungi árið 2008. Ekkert varð hins
vegar af þeim viðskiptum þar sem
meirihlutinn í Skeljungi var seldur
til eignarhaldsfélagsins BG Partners,
meðal annars með láni frá Glitni og
með yfirtöku á eignum í Danmörku.
Eigendur þess félags voru þau Guð-
mundur Örn Þórðarson, Svanhildur
Nanna Vigfúsdóttir og Birgir Bielt-
vedt.
Hætti vegna trúnaðarbrests
Nokkrum mánuðum síðar varð Ein-
ar Örn svo forstjóri Skeljungs eftir að
hafa látið af störfum hjá Glitni vegna
trúnaðarbrests sem snerist með-
al annars um söluna á olíufélaginu.
Kári Guðjónsson lét þá einnig af
störfum í bankanum.
Svanhildur Nanna og Guðmund-
ur Örn seldu Skeljung svo til félags
sem Arion banki stýrir og lífeyris-
sjóðirnir eiga meðal annars hlut í á
síðasta ári. Söluverðið nam tíu millj-
örðum og margfölduðu þau Svan-
hildur Nanna og Guðmundur pund
sitt í viðskiptunum. Kaupverð þeirra
á Skeljungi nam um tveimur millj-
örðum króna á sínum tíma. Einar
Örn hagnaðist líka vel á sölunni en
hann hafði átt hlutabréf í Skeljungi
fyrir rúmlega 300 milljónir króna
sem hann seldi í viðskiptunum.
Skipuð af Bjarna Benediktssyni
Halla Sigrún var skipuð sem
stjórnar formaður Fjármálaeftirlits-
ins af Bjarna Benediktssyni í lok síð-
asta árs. DV hefur gert árangurs-
lausar tilraunir til að fá rökstuðning
Bjarna fyrir því að hafa skipað Höllu
Sigrúnu í þetta starf en strangar regl-
ur gilda um hæfi stjórnarmanna
FME og er þeim ætlað að koma í veg
fyrir hagsmunaárekstra. Í samtali við
DV í lok árs í fyrra vildi Halla Sigrún
ekki ræða fjárfestingar sínar við DV:
„Ég vil ekki tjá mig um fjárfestingar
mínar í fjölmiðlum.“
Athygli vekur að Einar Örn Ólafs-
son, einn nánasti viðskiptafélagi
Höllu Sigrúnar, er þekktur stuðn-
ingsmaður Bjarna Benediktssonar og
hýsti hann meðal annars stuðnings-
mannafélag hans fyrir kosningar á
heimili sínu í vesturbæ Reykjavíkur. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
n Stórtæk í viðskiptum n Fjárfestir með stuðningsmanni fjármálaráðherra
„Ég vil ekki tjá mig
um fjárfestingar
mínar í fjölmiðlum.
Buðu reiðufé Erlendir aðilar vildu kaupa
Skeljung og borga með reiðufé þegar Einar
Örn Ólafsson stýrði fyrirtækjaráðgjöf Glitnis
árið 2008.
Umsvifamikill
stjórnarformaður
Halla Sigrún Hjartar
dóttir, stjórnarformaður
FME, er orðin umsvifa
mikil í atvinnulífinu og
á nú meðal annars hlut
í Póstmiðstöðinni og
Fjarðalaxi.
Eykur umsvif sín
og stjórnar FME
Fjórir mánuðir frá dauða Sævars
Ríkissaksóknari hefur ekki lokið rannsókn á atburðunum í Hraunbæ
R
annsókn ríkissaksóknara
á Hraunbæjarmálinu svo-
kallaða er enn ólokið sam-
kvæmt heimildum DV. Fjórir
mánuðir eru síðan Sævar Rafn Jón-
asson lést á heimili sínu í Hraun-
bæ og fékk ríkissaksóknari öll gögn
vegna málsins í hendur sínar í febr-
úar síðastliðnum.
DV hefur sent ríkissaksóknara
erindi og fyrirspurn um rann-
sóknina, en ekki fengið svör. Fyrir
lá að saksóknari tæki sér vikur til
að skoða gögnin en liðnar eru um
það bil sjö vikur síðan ríkissak-
sóknari fékk þau í hendurnar en
fjórir mánuðir frá andláti Sævars.
Samkvæmt heimildum DV vill fjöl-
skylda Sævars fá svör og bíður þess
óþreyjufull að fá upplýsingar um
það hvað nákvæmlega gerðist í
Hraunbæ þann 2. desember síðast-
liðinn þegar Sævar Rafn lést.
Eins og fram hefur komið lést
Sævar af skotsári sem hann hlaut
í átökum við sérsveit ríkislögreglu-
stjóra. Sævar, sem lengi hafði glímt
við andleg veikindi, hafði aðfara-
nótt 2. desember ítrekað hleypt af
skotvopni inni á heimili sínu og
voru lögreglumenn og sérsveitar-
menn kallaðir til og áttu að yfir-
buga hann. Þegar þeir reyndu að
fara inn í íbúðina særðust lögreglu-
menn eftir skot frá Sævari og var þá
ákvörðun tekin um að beita skot-
vopnum gegn Sævari. Þetta er í
fyrsta sinn sem einstaklingur deyr
eftir skot frá íslenskum lögreglu-
mönnum og vakti málið því eðlilega
mikla athygli. Fjölskylda manns-
ins hefur að auki gert alvarlegar
athugasemdir við það hvernig Sæv-
ari var sinnt, en hann bjó í íbúð á
vegum félagsþjónustu Reykjavíkur-
borgar. Telur fjölskyldan að hann
hafi ekki verið í stakk búinn til þess
að búa einn. Ríkissaksóknari hefur
því verið með málið til rannsóknar
til að kanna hvort öllum verklags-
reglum hafi verið fylgt í aðgerðum
lögreglunnar þennan dag. n
astasigrun@dv.is
Enn beðið Fjölskylda
Sævars bíður enn eftir
upplýsingum frá ríkis
saksóknara um atburði
2. desembers í fyrra.
Ferðamenn
flykkjast
til Íslands
Hvert metið hefur rekið annað í
fjöldatölum um erlendra ferða-
menn sem koma hingað til
lands, eða allt frá því í ársbyrj-
un 2012. Greining Íslandsbanka
fjallaði um þetta á vef sínum í
vikunni og ályktaði að erlendum
ferðamönnum hér á landi muni
fjölga í það minnsta um 20
prósent í ár frá árinu 2013. Til
grundvallar þeirri ályktun liggja
til dæmis upplýsingar um fjölda
ferðamanna fyrstu mánuði
ársins og áætlaða flugumferð
um Keflavíkurflugvöll á næstu
mánuðum.
Brottfarir erlendra ferða-
manna frá landinu um
Keflavíkurflugvöll eru nú þegar
komnar upp í 165.200 á fyrstu
þremur mánuðum ársins, sem
er fjölgun upp á 35 prósent milli
ára. Tölur Isavia um úthlutuð
stæði yfir tímabilið 30. mars til
25. október, benda til þess að
flugumferð um völlinn verði 18
prósentum meiri á því tímabili
en hún var á sama tímabili í
fyrra. „Að því gefnu að tölur
Isavia endurspegli nokkuð vel
þá þróun sem verður á komum
erlendra ferðamanna hingað til
lands á næstu mánuðum, og að
hófleg fjölgun verði einnig á síð-
ustu tveimur mánuðum ársins,
má búast við að minnsta kosti
tuttugu prósenta fjölgun ferða-
manna milli ára,“ segir á vef
Greiningar Íslandsbanka.
Úrbæturnar
skiluðu góð-
um árangri
Nánast allir ökumenn voru til
fyrirmyndar þegar lögreglan var
við hraðamælingar á Nauthóls-
vegi í Reykjavík á þriðjudag. Það
er ánægjuleg nýbreytni, segir lög-
regla.
Fylgst var með ökutækjum
sem var ekið Nauthólsveg í
suðurátt, við leikskólann Öskju.
Á einni klukkustund, eftir hádegi,
fóru 93 ökutæki þessa akstursleið
og var þeim öllum nema einu
ekið á löglegum hraða, en þarna
er 50 kílómetra hámarkshraði.
Hinn brotlegi mældist á 60 kíló-
metra hraða, en meðalhraði allra
ökumanna var aðeins 31. Þess
ber að geta að við fyrri hraða-
mælingar lögreglu á þessum stað
hefur brotahlutfallið verið 14 til
26 prósent og hraðast ekið á 87
kílómetra hraða. Nú kveður við
annan tón og má þakka það úr-
bótum sem Reykjavíkurborg hef-
ur ráðist í, en komið hefur verið
fyrir hraðahindrunum, svonefnd-
um koddum, á Nauthólsvegi.