Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 11
Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Fréttir 11
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
HEILSU-
SPRENGJA
20% afsláttur
Grænn apríl í Lifandi markaði
G
il
d
ir
f
rá
3
. -
1
0
. a
pr
íl
2
01
4
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
„Fólk getur ekkert
flutt til Grindavíkur“
n Íbúar á Þingeyri uggandi yfir flutningi Vísis n Framkvæmdastjórinn segir tímann nægan
M
ikill hiti var í fólki á íbúa
fundi sem haldinn var í
félagsheimilinu á Þing
eyri á miðvikudagskvöld.
Tilefni fundarins var sú
ákvörðun útgerðarfyrirtækisins Vísis
að flytja starfsemi sína á Þingeyri, og
víðar á landinu, til Grindavíkur. Fyrir
tækið tilkynnti um þetta í lok mars
en í tilkynningu frá fyrirtækinu seg
ir: „Áform stjórnenda Vísis eru að
færa allan tækjabúnað fyrirtækisins á
einn stað. Þannig verður sveigjanleiki
í starfseminni meiri og framleiðni
eykst því auðveldara verður að stýra
framleiðslunni í verðmætustu afurða
flokka hverju sinni og bregðast við
kröfum erlendra fiskkaupenda. Fyrir
tækið telur Grindavík kjörinn stað fyr
ir fiskvinnsluna meðal annars vegna
nálægðar við alþjóðaflugvöll og út
flutningshöfn.“
„Sjávarútvegurinn
er grunnurinn“
Áform fyrirtækisins hafa verið harð
lega gagnrýnd og það heyrðist meðal
annars vel á fundinum í gær. Á með
al þeirra sem tóku til máls var Gunn
hildur Elíasdóttir, formaður Verka
lýðsfélagsins Brynju á Þingeyri. „Þetta
er gríðarlegt áhyggjuefni hjá stéttarfé
laginu þegar svona staða kemur upp
hjá verkafólkinu. Grunnstoðirnar eru
ekki sterkar og ein af þeim er sjávar
útvegurinn. Það er talað um ferða
mannaiðnað, en sjávarútvegurinn er
grunnurinn að öllu hér. Ég held ég geti
fullyrt það að fiskveiðistjórnunarkerfið
er rótin að öllum þessum vandræðum.
Kannski þykir einhverjum það þvælin
tugga, en það er bara staðreynd,“ segir
Gunnhildur í samtali við DV.
Enn einn löðrungurinn
Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi al
þingiskona svæðisins, tekur und
ir þessi orð Gunnhildar. „Þörfin á
því að breyta kvótakerfinu og um
gjörðinni um sjávarútveginn er mik
il. Þessi atburður er enn ein áminn
ingin um það að það er ekki hægt að
búa við óbreytt kvótakerfi, sem felur í
sér að atvinnulífið í heilu byggðarlagi
er eins og fjöregg í höndunum á ein
um atvinnurekanda. Þegar hann fer
skilur hann byggðarlagið eftir í blæð
andi sárum. Fólk getur ekkert flutt til
Grindavíkur og farið að vinna hjá Vísi,
það getur ekki losnað við eignirnar
sínar. Það situr eftir með verðlausar
eignir, fjölskyldu sína og allt sem er
bundið byggðarlaginu. Þetta er enn
einn löðrungurinn sem sýnir hvílíkar
hörmungar geta hlotist af óbreyttu
kvótakerfi,“ segir Ólína.
„Ég vil vera hér áfram“
Starfsmaður Vísis á Þingeyri, Davíð
Davíðsson, tók til máls og fundinum
og í samtali við DV lýsir hann þung
um áhyggjum af stöðu mála. „Ég var
helst að gagnrýna þá aðstoð sem þeir
hafa fengið við að koma starfseminni
hér upp. Á fundinum sem haldinn
var með starfsmönnum í fiskvinnsl
unni var rætt um flutning starfsfólks
ins og ég spurði hvað húsnæði kost
aði í Grindavík. Miðað við verðið hér
á Þingeyri þá er það mun hærra og
við fáum ekki greiðslumat á þessum
launum sem við erum á. Hingað hafa
flutt fjölskyldur til að vinna hjá Vísi,
sumar fyrir stuttu síðan, hvað eiga þær
að gera? Sjálfur vil ég vera hér áfram,“
segir Davíð.
Áttu góðan fund
með bæjarstjóranum
„Við höfum ekki kannað verðsaman
burð á húsnæði á Þingeyri og Grinda
vík. Hins vegar hefur það verið gert
vegna Húsavíkur og samanburður
inn þar var ekki óhagstæður þeim
sem velja það að flytja sig um set,“
segir Pétur Hafsteinn Pálsson, fram
kvæmdastjóri Vísis. „Í tilkynningunni
okkar segir að við ætlum að vinna
með því fólki, sem hefur fasta bú
setu, að nýjum störfum. Það er margt í
gangi sem við erum að vinna að og við
áttum mjög góðan fund með bæjar
stjóranum og formanni Atvinnu
þróunarfélags Vestfjarða á föstu
daginn síðastliðinn. Þar voru lagðar
ákveðnar línur og við ætlum að vinna
að því næstu mánuði, við vorum
sæmilega bjartsýnir á það sem er þar í
spilunum,“ segir Pétur. Einhverrar óá
nægju gætti meðal fundargesta á mið
vikudagskvöld vegna þess að ekki var
hægt að segja frá því hvað hefði komið
út úr fundinum með bæjarstjóranum
og formanni Atvinnuþróunarfélags
ins. Pétur segir að ekki hafi verið tíma
bært að segja opinberlega frá þeim
verkefnum um rætt var um. Nægur
tími væri til stefnu enda ár í að flutn
ingar frá Þingeyri verði að veruleika.
„Spyrjum að leikslokum“
„Ég hvet fólk á Þingeyri til að vera ró
legt, það er ákveðin vinna í gangi og
við höfum eitt ár til stefnu. Um leið og
við höfum eitthvað í höndunum þá
verður sagt frá því. Ég vill hins vegar
ítreka það að við vitum að starfsfólkið
skiptist í tvo hópa, þá sem eiga auðvelt
með að færa sig um set og hins vegar
þá sem eiga mjög erfitt með það. Verk
efnið er, og ég vil að fólk trúi því, að
vinna með þeim hópi,“ segir Pétur.
Fyrirtækið hefur verið gagnrýnt
fyrir að sinna ekki samfélagslegri
ábyrgð sinni. „Ég hef sagt það áður að
samfélagsleg ábyrgð felst ekki í því að
reka eitthvað sem ekki gengur heldur
að gera nauðsynlega breytingar í sátt
við samfélagið og fólkið sem vinnur
hjá þér. Fyrir mér er ekki greinar
munur á því að stór tæknifyrirtæki
færi sig um set, hvort sem það er á
milli landa eða innanlands, og bjóði
sínu starfsfólki að fylgja með. Alveg
eins erum við að bjóða okkar sér
hæfða fiskvinnslufólki að fylgja okk
ur,“ segir Pétur. Hvað með þá gagn
rýni að fyrirtækið hafi fengið meðgjöf
í formi byggðarkvóta? „Við erum bún
ir að skila þeim byggðarkvóta aftur
inn í samfélagið. Hins vegar skal spurt
að leikslokum hvernig við förum frá
þessum stöðum, verði af þessu. End
anleg ákvörðun verður tekin í lok apr
íl og við vitum af okkar samfélagslegu
ábyrgð. Að okkar mati erum við ekki
að bregðast henni,“ segir Pétur Haf
steinn. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Vel mætt Ríflega 100 manns
mættu á íbúafundinn á Þingeyri
á miðvikudagskvöld. Mikill hiti
var í fólki, en umræðuefnið
var áætlun Vísis um að flytja
starfsemi fyrirtækisins til
Grindavíkur. Mynd RóbERt REyniSSon
Kvótakerfið er ástæðan Ólína
Þorvarðardóttir tók til máls og segir að
málið sé áminning um að breyta þurfi
kvótakerfinu. Mynd RóbERt REyniSSon
„Ég hvet fólk á
Þingeyri til að vera
rólegt.
„Þetta er enn einn
löðrungurinn