Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 15
Helgarblað 11.–14. apríl 2014 Fréttir 15 Hjallahraun 2 - 220 Hfj. s. 562 3833 - 852 4556 www.asafl.is asafl@asafl.is FPT bátavélar frá 20-825 hö. Misnotkun sparisjóðanna n Skýrslan um sparsióðina gefin út n Lýsingar á grófri misnotkun á sparisjóðunum n Varfærnar ályktanir dregnar í skýrslunni og nafnaleynd viðhöfð Á þeim fundi hefði Hreiðar Már „hreinlega [beðið Jón Þorstein] um að hætta þessu“. Jón Þorsteinn gerði sér grein fyrir því að göm- ul viðskipta- og vinatengsl væru á milli Hreiðars Más og Guðmundar Haukssonar, sparisjóðsstjóra Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis,“ segir í skýrslunni um sameiningar- viðræður sem áttu stað á milli Spari- sjóðs vélstjóra og SPRON. Ummæli eru höfð eftir Jóni Þorsteini Jóns- syni, þáverandi formanni stjórnar Sparisjóðs vélstjóra. Þar lýsir Jón Þorsteinn þeirri tilfinningu sinni að Guðmund- ur Hauksson og Hreiðar Már Sig- urðsson, forstjóri Kaupþings, hefðu unnið að því saman að reyna að haga sameiningu sjóðanna þannig að hún væri sem hagkvæmust fyrir SPRON. Vitnaði hann til vinasam- bands Hreiðars Más og Guðmundar í því sambandi. Ein stærsta og afdrifaríkasta ákvörðunin í sparisjóðakerfinu á árunum fyrir hrun var sú ákvörðun að stofna fjárfestingafélagið Kistu utan um hlutabréfaeign nokkurra sparisjóða í Exista, stærsta hluthafa Kaupþings. Nokkuð er fjallað um þessa ákvörðun í skýrslunni. Með henni voru hagsmunir Kaupþings og sparisjóðanna tengdir saman. Guðmundur, sem hafði verið for- stjóri Kaupþings, var lykilmaður í þeirri ákvörðun þar sem SPRON var stærsti hluthafi Kistu. Um tengsl Sparisjóðs Reykjavík- ur við Kaupþing segir meðal annars í skýrslunni: „Frá því sparisjóðirn- ir fjárfestu í Kaupþingi hf. árið 1986 voru töluverð eignarhaldsleg og stjórnunarleg tengsl milli þeirra, þó hluti sparisjóðanna ætti í litlu sam- starfi við aðra um eignarhald í fé- laginu.“ Þessi tengsl sparisjóðanna við Kaupþing endurspegluðust vel í fjárfestingunni í Kistu. Ein birtingar- mynd tengslanna var svo lánveiting upp á tvo milljarða króna til Exista 30. september 2008. Sparisjóður- inn var stór hluthafi í Exista í gegn- um Kistu og því mikilvægt fyrir sjóð- inn að treysta stöðu Exista á erfiðum tíma í miðju bankahruni. Orðrétt segir um lánveitinguna til Exista í skýrslunni: „Exista hf. var fjárfestingarfélag sem var að stærstum hluta í eigu Bakka- bræðra Holding B.V. og Kistu – fjár- festingarfélags ehf. Erlendur Hjalta- son, stjórnarformaður Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, var ann- ar tveggja forstjóra Exista hf. og átti eignarhlut í félaginu. Þá var Guð- mundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn- is, í stjórn Exista hf. og átti jafnframt eignarhlut í félaginu. Á stjórnarfundi sparisjóðsins 30. september 2008 var lögð fram beiðni um heimild stjórnar til að lána 2 milljarða króna til Exista hf. Eftir- farandi var bókað á fundinum: Áður en þessi liður var tekinn til umfjöllunar vék Erlendur Hjalta- son af fundi. Óskað var eftir heim- ild stjórnar til lánveitingar til Ex- ista að upphæð 2 ma.kr. í 30 daga. Áhætta vegna Exista er þá tæplega 2,5 ma.kr., sem er 20% af CAD hlut- falli. Þetta var samþykkt. Samdægurs veitti Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Exista hf. 2 milljarða króna peningamarkaðs- lán með gjalddaga 31. október 2008. Þá lagði dótturfélag Exista hf., Vá- tryggingafélag Íslands hf., 2 millj- arða króna peningamarkaðsinnlán inn í Sparisjóð Reykjavíkur og ná- grennis hf. með sama upphafs- og lokadag og lánið til Exista hf. Pen- ingamarkaðsinnláni Vátryggingafé- lags Íslands hf. var breytt í almennt innlán á gjalddaga þess, 31. október 2008. Ekki kom til uppgjörs á láninu í lok október 2008, heldur var það framlengt. Hinn 30. október 2008 var tilkynnt um afskráningu Ex- ista hf. úr Kauphöll Íslands. Á fundi endurskoðunarnefndar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis 6. janúar 2009 kom fram að þegar umrætt lán var veitt, höfðu íslensk stjórnvöld lýst því yfir að gripið yrði til aðgerða til að verja bankakerfið og að ekki væri gert ráð fyrir að aðrir bankar en Glitnir yrðu fyrir skakkaföllum. Endurskoðunarnefndin taldi því eignir Exista hf. vera traustar. Einnig kom fram á fundinum að þetta hefði verið „óheppileg lánveiting“. 134 Lagt var 1,6 milljarða króna fram- lag í sérgreindan afskriftareikning vegna skuldbindinga Exista hf. í lok árs 2008. Lánið var aftur framlengt 29. janúar 2009, með gjalddaga 16. mars 2009 og 22,5% vöxtum, en lán- ið var enn útistandandi í júlí 2009. Exista hf. og tengdir aðilar voru ekki á meðal stórra áhættuskuld- bindinga hjá sparisjóðnum sam- kvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins nr. 216/2007, og var því ekki tilkynnt um fyrirgreiðslur til félagsins í skýr- slum sparisjóðsins til Fjármála- eftirlitsins. Heildarskuldbinding Exista hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis nam 2,5 milljörðum króna í lok árs 2008 og var sérgreint afskriftaframlag 1,6 milljarða króna 31. desember 2008.“ n Guðmundar þáttur Haukssonar S jóðurinn var í lausafjárvanda og þurfti að fá fjármagn inn á bækur sínar. Í því augna- miði var stofnaður reikning- ur í Sparisjóði Keflavíkur og runnu skattgreiðslur frá sveitarfélög- um inn á hann. Að öllu jöfnu hefðu þessir fjármunir átt að renna inn á reikning ríkisins í Seðlabanka Ís- lands. Í skýrslunni um sparisjóðina fetta höfundarnir fingur út í þessa ákvörðun. Orðrétt segir um málið í skýrsl- unni: „Í október reyndu hagsmunaað- ilar og sveitarfélögin á Suðurnesjum að styrkja sparisjóðinn eftir fremsta megni. Þannig færði Grindavíkur- bær þriggja milljarða króna innlán til Sparisjóðsins í Keflavík frá ein- um af föllnu viðskiptabönkunum og Reykjanesbær hugðist leggja andvirði nýrrar skuldabréfaútgáfu í sparisjóð- inn sem innlán en skuldabréfið var síðar nýtt sem trygging fyrir daglán- um frá Seðlabanka Íslands, sbr. um- fjöllun hér aftar. Innlán frá ríkissjóði var tilkom- ið vegna greiðslu fjármagnstekju- skatts sveitarfélaga á Reykjanesi af söluhagnaði eignarhluta þeirra í HS Orku sem þau áttu að standa skil á í lok nóvember. Þessar greiðslur hefðu átt að koma af reikningum sveitarfé- laganna í sparisjóðnum en á þessum tíma átti sparisjóðurinn í alvarlegum lausafjárvanda og gat ekki skilað fénu til Seðlabanka Íslands eins og honum bar að gera. Í október 2008 leitaði sparisjóður- inn til fjármálaráðuneytisins og fór þess á leit að ríkissjóður Íslands stofn- aði sérstakan innlánsreikning hjá Sparisjóðnum í Keflavík til að taka á móti skattgreiðslum frá sveitarfé- lögunum. Vænt útflæði úr sparisjóðn- um í nóvember og desember 2008 vegna fjármagnstekjuskattsins var tæpur milljarður króna. Lausafjár- staða sparisjóðsins 31. október 2008 var hins vegar ekki nema tæpar 255 milljónir króna samkvæmt lausa- fjárskýrslu. Því var ljóst að sjóðurinn stefndi í lausafjárþurrð og yrði ekki rekstrarhæfur ef til útgreiðslunnar kæmi. Fjármálaráðuneytið heimilaði stofnun reikningsins að höfðu sam- ráði við Seðlabanka Íslands og gaf Fjársýslu ríkisins fyrirmæli um að setja sig í samband við sparisjóðinn 30. október 2008. […] Í skýrslu fyrir rannsóknarnefndinni vegna málsins kom fram að fjár- málaráðuneytið hefði metið stöðu sparisjóðsins þannig að um lausa- fjárvanda væri að ræða en ekki eigna- vanda. Opinber pólitískur vilji hefði staðið til þess að halda sparisjóða- kerfinu gangandi og því hefði verið ákveðið að grípa til þessarar ráðstöf- unar til að brúa bilið þar til viðvar- andi lausn á lausafjárvanda spari- sjóðsins lægi fyrir. Seðlabanki Íslands hafði þegar gengið eins langt og heim- ildir bankans leyfðu í lánveitingum til sparisjóðsins. Ríkissjóður stofnaði reikning hjá Sparisjóðnum í Keflavík vegna þessa og barst fyrsta greiðsla inn á reikninginn 28. nóvember 2008. Í lok nóvember 2008 átti Sparisjóður- inn í Keflavík laust fé sem nam 79,4 milljónum króna, að meðtöldu því fé sem ríkissjóður átti á reikningum hjá sparisjóðnum og greitt hafði verið inn 28. nóvember sama ár. Þeir fjármun- ir hefðu að öllu réttu átt að greiðast til Seðlabanka Íslands.“ n Lífi haldið í Sparisjóðnum í Keflavík Breytt út frá venju Íslenska ríkið stofnaði reikning í Sparisjóði Keflavíkur. Árni Mathiesen var þá fjármálaráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.