Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Side 20
Helgarblað 11.–14. apríl 201420 Fréttir
Edda Heiðrún segir frá því í Ham-
skiptunum að hún hafi fengið Þórar-
in Eldjárn rithöfund til að „búa til
nokkurs konar ljóð um ævi Björgólfs
og Þóru“ sem leikritið byggði á. Þórar-
inn segir að aðkoma hans að sýn-
ingunni hafi ekki verið mikil heldur
hafi hann einungis tengt saman sen-
ur úr lífi þeirra hjóna sem fjölskyldan
hafði búið til. „Börn og tengdabörn
gerðu sketsa úr lífi familíunnar með
ýmsum prívathúmor. Ég samdi út frá
þessu texta í bundnu máli sem sögu-
maður flutti til að tengja senurnar
saman.“ Þórarinn segir að einungis
hafi verið um að ræða litla vinnu fyrir
sig: „Þetta var bara örlítið textadót.“
Inntakið í verkinu var því komið frá
fjölskyldu þeirra hjóna.
Lék föður sinn
Þá er greint frá því í Hamskiptunum
að Pálmi Gestsson leikari hafi verið
fenginn til að taka þátt þar sem hann
hafði með góðum árangri hermt eft-
ir Björgólfi í Spaugstofunni og við
fleiri tækifæri. Björgólfur Thor lék
föður sinn þegar hann var ungur
og Pálmi túlkaði hann eftir að árin
höfðu færst yfir. Kristín Ólafsdóttir,
eiginkona Björgólfs, tók sömuleið-
is þátt í sýningunni, sem og Bent-
ína. „Þau léku öll hlutverkin sjálf og
langaði með því að gleðja Björgólf
og Þóru á þessum tímamótum,“ segir
Edda Heiðrún en að hennar sögn var
um að ræða „nokkurs konar þakkar-
gjörð barnanna fyrir samstöðu þeirra
í gegnum tíðina“.
Að sögn Eddu Heiðrúnar var inn-
takið í sýningunni, sem var um 40
mínútna löng, „samdráttur og samlíf
Björgólfs og Þóru“. Pálmi Gestsson
segir aðspurður um sýninguna að
um hafi verið að ræða smámyndir úr
lífi þeirra hjóna. „Þetta var lífshlaup
þeirra hjóna ef ég man rétt, allt frá
því þau giftu sig. Þetta voru einhverj-
ar persónulegar myndir úr þeirra lífi;
myndir sem ég þekki ekki vel […]
Þetta var ósköp saklaust og fallegt hjá
þeim.“
„Það var svo gaman“
Í dag segir Björgólfur að
það hafi verið ánægju-
legt að vera til á ár-
unum fyrir hrun.
„Ég er ánægð-
astur með að
hafa feng-
ið þátt í þeim
óvenjulegu
breytinga-
tímum sem
voru á þessum
árum á flestum
sviðum. Bæði í
fyrirtækjarekstri
og eins í menn-
ingarlífinu. Það
var ákaflega já-
kvætt hugarfar
á þessum tíma.
Þetta var afskap-
lega vinsamlegt og
það var ánægju-
legt að vera til.“
Þess má geta að á þessum árum
hafði Björgólfur mikil ítök í lista- og
menningarlífi landans. Vorið 2004
átti hann til að mynda frumkvæði að
samstarfi við íslenska listamenn um
starfsemi í byggingunni Brautarholti
1 sem Björgólfur lagði listafólkinu
til. Í samstarfi við galleríið Kling og
Bang opnaði Landsbankinn Klink og
Bank, þar sem 160 listamenn höfðu
síðan vinnuaðstöðu fram til ársins
2006. Dagblaðið Nei greindi síðar frá
því að Ásgeir Friðgeirsson, aðstoðar-
maður og upplýsingafulltrúi Björg-
ólfs, hafi haft milligöngu um það að
stöðva fyrir hugaðan listrænan gjörn-
ing Snorra Ásmundssonar, mynd-
og gjörningalistamanns, við opnun
vinnustofanna, og stöðva í kjölfarið
umfjöllun DV um málið. Snorri stað-
festi þetta.
Hann hafði ætlað að fremja gjörn-
inginn við opnun Klink og Bank og
átti Björgólfur einnig að vera við-
staddur opnunina og taka þátt í
gjörningi listamannsins. Björgólf-
ur hafði hins vegar ekki áhuga á því
og því voru send skilaboð til Klink og
Bank: Samstarfið við listamennina
gæti verið í hættu ef Snorri tæki þátt
í opnuninni. Í Hamskiptunum er haft
eftir Björgólfi að honum hafi fund-
ist eins og nýir tímar væru að ganga
í garð á þessum árum: „Það var svo
gaman, svo mikil jákvæðni, svo mik-
il gleði. Eins og það væru nýir tímar
sem við værum að taka þátt í og svo
mikill kraftur var í samfélaginu. Þegar
ég segi það, þá ég við á öllum sviðum.“
Það hafi að hans mati ekki bara verið í
viðskiptunum, „heldur líka í íþróttum
og menningarlífinu, þetta náði yfir allt
þjóðfélagið, þessi jákvæðni og gleði.“
Mætti á opnun Hörpu
Það vakti mikla athygli þegar Björg-
ólfur mætti á opnunarhátíð tónlistar-
og ráðstefnuhússins Hörpu ásamt
eiginkonu sinni þann 13. maí 2011,
en þar sagði hann að framtíð Íslands
væri björt: „Ísland rís úr sjó aftur.“
Björgólfur kom upphaflega að fjár-
mögnuninni á Hörpu en eftir efna-
hagshrunið og hans eigið persónu-
lega gjaldþrot þá varð ekkert af því að
hann gæfi Íslendingum bygginguna
eins og til stóð á sínum tíma.
Aðspurður sagðist hann mjög
ánægður með að hafa verið boðið
á opnunarhátíðina: „Já já já, ég er
ánægður að vera á gestalista og hún er
bara flott stemningin,“ sagði hann og
bætti við: „Þetta er gleðistund!“ Ekki
voru allir sáttir við að Björgólfi hefði
verið boðið en Birgitta Jónsdóttir, þá-
verandi þingkona Hreyfingarinnar,
sagðist næstum því hafa hætt við að
mæta á opnunina þegar hún frétti að
Björgólfi hefði verið boðið. Viðbrögð
hennar voru lýsandi fyrir viðhorf
margra Íslendinga á þessum tíma
sem voru óánægðir með Björgólf og
aðra fyrrverandi útrásarvíkinga fyrir
að hafa stuðlað að hruni íslenska fjár-
málakerfisins á einn eða annan hátt.
Gjaldþrotaskipti á næsta leyti
Gjaldþrot Björgólfs skiptir tugum
milljarða. Fram hefur komið í fjöl-
miðlum að heildarfjárhæð lýstra
krafna í þrotabú hans nemi rúm-
lega hundrað milljörðum króna.
Skilanefnd Landsbankans er
langstærsti kröfuhafinn með kröfur
upp á rúmlega sjötíu milljarða króna.
Sveinn Sveinsson, skiptastjóri þrota-
bús Björgólfs Guðmundssonar, seg-
ir í samtali við DV að senn fari að sjá
fyrir endann á skiptum í þrota-
búinu. Talar hann um vik-
ur í því samhengi en þó
hafa skiptalok ekki
verið auglýst.
Viðskiptablaðið
greindi frá því í
byrjun árs 2010 að
vonir væru helst
bundnar við að
eignir finnist í fé-
lagi Björgólfs á
Kýp-
ur, Bell Global Investment. Bell
Global hélt utan um hlut Björgólfs í
Bravó-bruggverksmiðjunum í Rúss-
landi á sínum tíma og átti helmings-
hlut í Samson, eignarhaldsfélagi
Landsbankans. Samson var stofnað
af feðgunum árið 2002 í aðdraganda
einkavæðingar Landsbankans. Í upp-
hafi og lengst af var eini tilgangur fé-
lagsins að halda utan um hlutabréf
í Landsbanka Íslands en á árunum
2005 og 2006 hóf félagið hins vegar að
fjárfesta í öðrum verkefnum.
Gjaldþrot Samson er á stærð við
persónulegt gjaldþrot Björgólfs sjálfs.
Morgunblaðið greindi frá því í haust
að kröfur í þrotabú Samson næmu
um 77 milljörðum. Helgi Birgisson,
skiptastjóri búsins, sagðist í samtali
við blaðið ætla að eignir í búinu væru
um fimm til sex milljarðar. Meðal
eigna eru hlutabréf í Eimskipum og
kröfulýsing í þrotabú Landsbankans
í Lúxemborg. Stærsta eign búsins var
eignarhald í Landsbanka Íslands hf.,
en hluturinn var metinn á 78 millj-
arða árið 2007.
„Í mikilli sjálfsskoðun“
Þrátt fyrir að Björgólfur eldri sé
eignalaus og gjaldþrota er hann
varla á flæðiskeri staddur. Sonur
hans, Björgólfur Thor, stefnir hrað-
byri að því að verða ríkasti maður Ís-
lands. Viðskiptablaðið greindi frá því
í október að hlutir Novator og Björg-
ólfs Thors hefðu hækkað um tug-
milljarða í verði mánuðina á undan
samhliða góðu gengi Actavis. Hlutur
Novator, eignarhaldsfélags sem er að
mestu í eigu Björgólfs Thors, í lyfja-
fyrirtækinu Actavis hafði þá hækkað
um tæp 45 prósent frá því að hann
var afhentur í maí 2013. Novator á um
fimm milljónir hluta í Actavis í gegn-
um félagið NDS. Virði hlutanna nam
þá um 92 milljörðum króna. Björg-
ólfur Thor mun hins vegar ekki geta
selt hlutina fyrr en vorið 2015.
Þó gætu draugar fortíðar far-
ið að minna á sig hvað úr hverju.
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, fer fyrir hópmál-
sókn gegn Björgólfi Thor til að leiða
fram upplýsingar um eignarhlut
Björgólfs í Landsbankanum fyrir
hrun. Vitnaleiðslur hófust í nóvem-
ber en að sögn lögmanns Vilhjálms,
Jóhannesar Bjarna Björnssonar, lauk
þeim fyrir um þremur vikum. Hann
segir að nú sé verið að leggja mat á
þau gögn sem komu fram í skýrslu-
tökum. Á næstu vikum verði metið
hvort tilefni sé til að fara með málið
lengra.
Hvað sem öðru líður segir
Björgólfur Guðmundsson nú að
hann noti tímann til þess að vinna
í sjálfum sér: „Ég er í mikilli sjálfs-
skoðun og rækta sjálfan mig í
ákveðnum félagsskap. Ég nýt
annarra hluta en ég gerði
þá.“ Ef það er eitthvað sem
hann hafi lært sé það að líf-
ið sé fallvalt: „Maður lærir
að lifa einn dag í einu. Ég
fer líklega ekki í marga
hluti hér eftir; ég nýt lífs-
ins á rólegri hátt.“ Ljóst
er að ýmislegt hefur
breyst í lífi Björgólfs frá
því hann stóð á stóra
sviðinu og leikhúsgest-
ir klöppuðu ákaft fyrir
honum. n
Hæðir og lægðir Björgólfs
1941
Björgólfur
fæðist.
1961 Útskrifast
úr Verzlunarskóla Íslands.
1965 Eignast
Dósagerðina hf.
1977
Verður fram
kvæmdastjóri
Hafskipa.
1985 Hafskip
verður gjaldþrota.
1986 Björgólfur
handtekinn á heimili
sínu og færður í
gæsluvarðhald
vegna Hafskips
málsins.
1993 Björgólfur
fer ásamt Björgólfi
Thor og Magnúsi
Þorsteinssyni til
Rússlands þar sem
þeir eiga síðan og
reka bruggverk
smiðjuna Bravó.
2005 Björgólfur sæmd
ur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu.
2006 Björgólfur
kaupir West Ham
í félagi við Eggert
Magnússon.
2011
Björgólfur
birtist á opnun
Hörpu þar sem
hann segir að
framtíð Íslands
sé björt.
2014
Það
styttist í
endann á
skiptum í
þrotabúi
Björgólfs.
2008
Hlutabréf í
Eimskip falla
um 90 pró
sent á fyrstu
níu mánuðum
ársins. Banka
hrunið ríður
yfir og Lands
bankinn er
þjóðnýttur.
2009 Björgólf
ur úrskurðaður
gjaldþrota.
2000
Tveir yfir
menn helsta
samkeppnis
aðila Bravó
í Pétursborg
eru myrtir.
2002 Heineken
kaupir Bravó. Feðgarn
ir koma heim og kaupa
ráðandi hlut í Lands
bankanum þegar
bankinn er einkavædd
ur. Björgólfur er
valinn maður ársins í
íslensku viðskiptalífi
hjá tímaritinu Frjálsri
verslun, Viðskipta
blaðinu, Stöð 2 og DV.
2004 Björgólfsfeðgar kaupa
stóran hlut í Eimskipum.
1991
Dæmdur í
tólf mánaða
skilorðsbund
ið fangelsi
fyrir Hæsta
rétti Íslands.
Settu upp sýningu Börn Björgólfs Guðmundssonar fengu Eddu Heiðrúnu Backman til
þess að setja upp leiksýningu í Þjóðleikhúsinu um foreldra þeirra. Þórarinn Eldjárn skrifaði
verkið og Pálmi Gestsson lék Björgólf. Þá reyndi Björgólfur Thor fyrir sér á stóra sviðinu þegar
hann túlkaði föður sinn á yngri árum.
Á góðum degi Björgólfur og
Sigurjón Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, á
góðum degi þegar allt lék í lyndi.
„Ég fer lík-
lega ekki
í marga hluti hér
eftir; ég nýt lífsins
á rólegri hátt.