Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Page 24
Helgarblað 11.–14. apríl 201424 Fréttir Erlent
Þetta eru 10 bestu lönd í heimi
n Aðeins í tveimur löndum er betra að búa en á Íslandi n Norðurlöndin og löndin í Eyjaálfu í efstu sætunum n Horft til lífsgæða og tækifæra íbúa
1 Nýja-Sjáland
Heildareinkunn: 88,24
Grunnþarfir: 91,74 (18. sæti)
Velferð: 84,97 (6. sæti)
Tækifæri: 88,01 (1. sæti)
Íbúar: 4,4 milljónir (103. sæti)
n Nýsjálendingar eru efstir á lista
þjóðanna þegar kemur að grunn-
þörfum fólks. Aðgangur að vatni
og hreinlætisaðstaða er hvergi
betri en þar er tekið tillit til vatns-
dreifingar og vatnsgæða svo eitt-
hvað sé nefnt. Nýsjálendingar gætu
gert betur þegar kemur að húsa-
skjóli en þar er meðal annars átt við
framboð á húsnæði á viðráðanlegu
verði, stöðugleika rafmagns og loft-
ræstingu. Aðgengi að upplýsingum
er framúrskarandi í landinu en
Nýsjálendingar gætu fjárfest betur í
sjálfbærni vistkerfisins. Nýja-Sjáland
er land tækifæranna og er í fyrsta
sæti þegar þeir mælikvarðar sem þar
eru lagðir til grundvallar eru skoð-
aðir.
2 Sviss
Heildareinkunn: 88,19
Grunnþarfir: 94,87 (2. sæti)
Velferð: 89,78 (1. sæti)
Tækifæri: 79,92 (12. sæti)
Íbúar: 8,0 milljónir (83. sæti)
n Rétt eins og á Nýja-Sjálandi búa
Svisslendingar við fyrsta flokks vatn
og góða hreinlætisaðstöðu en gætu,
eins og Nýsjálendingar staðið sig
betur þegar kemur að húsaskjóli. Ef
Svisslendingar vilja komast upp fyrir
Nýja-Sjáland þyrftu þeir að ráðast í
fjárfestingar á innviðum heilbrigðis-
þjónustunnar. Sá flokkur tekur mið
af lífslíkum, offitu, loftmengun og
sjálfsvígum. Svisslendingar standa
sig betur en aðrir í því að
veita þegnum sínum tæki-
færi til þess að bæta stöðu sína í
samfélaginu og þar er frelsi einstak-
lingsins mikið. Aðgengi að hágæða
menntun er þó nokkuð ábótavant.
3 Ísland
Heildareinkunn: 88,07
Grunnþarfir: 94,32 (7. sæti)
Velferð: 88,19 (2. sæti)
Tækifæri: 81,71 (9. sæti)
Íbúar: 320.137 (132. sæti)
n Ísland kemst á topp tíu lista yfir
alla grunnmælikvarðana þrjá. Hér
er aðgangur að drykkjarvatni og
hreinlætisaðstaða eins og best gerist
í henni veröld. Þegar kemur að öðr-
um grunnþörfum stendur Ísland sig
síst í húsaskjóli, en þar er til dæmis
tekið tillit til framboðs á húsnæði
á viðráðanlegu verði. Þegar horft
er til velferðarmála stendur Ísland
sig frábærlega í aðgengi að upplýs-
ingum og samskiptamöguleikum.
Hvað flokkinn tækifæri áhrærir er
Ísland framarlega í þremur mæli-
kvörðum af fjórum. Mannréttindi,
umburðarlyndi og frjálsræði er hér
með besta móti, en Ísland er aðeins
í 21. sæti þegar kemur að aðgengi að
menntun í hæsta gæðaflokki.
4 Holland
Heildareinkunn: 87,37
Grunnþarfir: 93,91 (8. sæti)
Velferð: 87,56 (3. sæti)
Tækifæri: 80,53 (11. sæti)
Íbúar: 16,8 milljónir (54. sæti)
n Hollendingar eru í góðum mál-
um. Eins og á Íslandi er í Hollandi
frábært aðgengi að hreinu drykkjar-
vatni og hreinlætisaðstöðu. Þegar
kemur að öðrum grunnþörfum
mættu Hollendingar standa sig bet-
ur í öryggismálum. Miðað við stöðu
landsins er glæpatíðni nokkuð há.
Aðrir mælikvarðar sem draga landið
Ó
víða er betra að búa en á Ís-
landi ef tekið er tillit til fé-
lagsþátta og umhverfisþátta.
Þetta er samkvæmt svokall-
aðri Sociel Progress-vísi-
tölu sem teymi hagfræðinga, þar á
meðal við Harvard-háskóla, hefur
tekið saman. Ef heildarniðurstöður
eru skoðaðar er Ísland í 3. sæti á list-
anum á eftir Sviss og Nýja-Sjálandi
sem trónir á toppnum.
Í útreikningum er sem fyrr segir
tekið tillit til annarra þátta en hefð-
bundinna hagfræðilegra þátta eins
og launa, hagvaxtar og kaupmáttar,
en þess í stað er litið til lífsgæða
og félagslegra tækifæra eins og
menntunar og mannréttinda. Ná-
kvæma útlistun á því hvaða mæli-
kvarða er notast við má finna hér til
hliðar á opnunni.
Ísland fær 88,07 stig af 100 mögu-
legum, Sviss 88,19 stig og Nýja-Sjá-
land 88,24 stig. Norðurlandaþjóð-
irnar skora nokkuð hátt og eru allar
í tíu efstu sætunum. Noregur er í 5.
sæti á listanum með 87,12 stig,
Svíþjóð í 6. sæti með 87,08
stig, Finnland í 8. sæti
með 86,91 stig og Danmörk í 9. sæti
með 86,55 stig.
Í neðstu sætunum eru Afríku-
þjóðir. Lægst á blaði er Tsjad með
32,60 stig, Mið-Afríkulýðveldið með
34,17 stig, Búrúndí með 37,33 stig
og Gínea með 37,41 stig. Banda-
ríkin eru í 16. sæti með 82,77
stig og fjölmennasta ríki
heims, Kína, er í 94.
sæti listans með
58,67 stig. n
Baldur Guðmundsson
Einar Þór Sigurðsson
baldur@dv.is / einar@dv.is
Heilsusamlegt umhverfi? Loftmengun er á með
al þess sem lagt er til grundvallar.
Heilbrigðisþjónusta Aðgengi að læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki er æði misjafnt eftir löndum.
Hamingja Ísland er
á meðal þeirra ríkja
heims þar sem best er
að búa. mynd SHuTTErSTock