Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2014, Blaðsíða 38
Helgarblað 11.–14. apríl 201438 Neytendur
5 ósannindi
um eldsneytis-
sparnað
Það er óhætt að fullyrða að all
ir væru til í að eyða minna fé í
eldsneyti. Margar leiðir eru til
þess, besta leiðin líklega að keyra
minna. Buisness Insider tók
saman fimm algengar leiðir til
bensínsparnaðar sem haldið er á
lofti en virka ekki.
Að keyra lítinn bíl
Þó að litlir bílar bílar séu að
mörgu leyti
þægilegir er
ekki endi
lega víst
að þeir
spari eins
mikið
og látið
hefur verið
í veðri vaka.
Athugun á nýjum
bílum á markaðnum leiðir í ljós
að þó sífellt sé þróuð ný tækni
sem stuðla eigi að eldsneytis
sparnaði er um helmingur spar
neytnustu bílanna miðlungsstór
og stærri.
Að losa sig við gamla bílinn
Því hefur verið haldið fram að
bílar eyði meira eldsneyti eftir því
sem þeir eldast. Það er ekki rétt.
Hafir þú ekki lagst í rannsóknir á
sparneytni nýrra
bíla er ekkert
víst að þú
fáir bíl
sem eyðir
minna
en 10–15
árum eldra
módel að
því gefnu að
viðhaldið sé í lagi.
Gæðabensín
Margir halda að gæðabensínið
komi þeim lengra en þegar kem
ur að því að fylla á tankinn eru
gæði ekki mikilvægari en magn.
Ef handbók bílsins eða innflytj
andi mælir ekki sérstaklega með
því er alveg eins gott að nota
ódýrara bensín.
Kaupa merkjavöru
Það er engin
ástæða til
að óttast
það að
kaupa
eldsneyti
sem
ekki er
selt und
ir ákveðnu
vörumerki.
Keyra hraðar
Ef þú vilt spara eldsneyti og pen
inga er betra að halda sig í hægari
umferð. Rannsókn frá árinu 2013
sýnir fram á að ef hraðinn er auk
inn úr 80 km/klst. í 100 km/klst.
þýðir það 12% fækkun kílómetra
fjölda pr. eldsneytislítra og nýt
ingin minnkar bara eftir því sem
hraðinn eykst. Þetta er þó auðvit
að misjafnt eftir bílategundum og
undirtegundum en sjálfsagt mál
að finna út á hvaða hraða bíllinn
nýtir bensínið best.
Notaðu frystinn rétt
n Feitur matur endist skemur n Dökkar umbúðir betri en ljósar
M
argir neytendur eiga það
til að fylla frystinn af
matvöru af því að þeim
finnst tilhugsunin um
að eiga eitthvað í frystin
um góð en eru svo ekki jafn góð
ir í að muna hvað er til í frystinum
og taka út í tæka tíð. Sumir frysti
skápar og kistur virðast þeirrar
náttúru að gleypa það sem einu
sinni er sett í þær.
Þetta er slæmt því frystir getur
gegnt lykilhlutverki í skipulögðu
og hagsýnu heimilishaldi því hann
lengir líftíma matvöru umtalsvert.
Ekki endalaust
En þó frystirinn lengi líftímann
geymist matur ekki endalaust í
frystinum. Það fer eftir því um
hvaða mat er að ræða hversu lengi
hann geymist en sumt skemmist
hreinlega við að vera geymt of
lengi á meðan bragðgæði annars
eða áferð slappast.
Fita þránar
Geymsla á kjöti og fiski í frysti
veltur að miklu leyti á fituinnihaldi
en feitt kjöt og fiskur geymast að
jafnaði styttra en magurt. Þó get
ur önnur meðhöndlun spilað inn
í, þannig getur reyktur og grafinn
fiskur geymst í allt að ári í frysti
sé honum pakkað vel og roðinu
snúið upp. Kjöt og fiskur eru einnig
viðkvæm fyrir ljósi og ætti því að
pakka í dökkar umbúðir.
Þíða í kæli
Best er að láta frosin matvæli þiðna
í ísskáp en ekki við stofuhita og svo
skal elda þau eins hratt og kostur
er. Matarafganga þarf alltaf að hita
vandlega til að tryggja að engar
bakteríur lifi í þeim.
Leiðbeiningarmiðstöð heim
ilanna gefur upplýsingar um
geymsluþol matvæla sem hér fara
á eftir:
n Kjöt
Kjöt, feitt: 3–6 mán.
Kjöt, magurt: 6–10 mán.
Kjöthakk, feitt: 2–3 mán.
Kjöt, magurt: 4–6 mán.
n Fuglakjöt
Fuglakjöt: 6–10 mán.
n Fiskur
Fiskur, magur: 3–6 mán.
Fiskur, feitur: 1–2 mán.
Skelfiskur: 2–3 mán.
Graflax: allt að 12 mán.
Reyktur lax: allt að 12 mán.
n Villibráð
Villibráð: 6–8 mán.
n Grænmeti
Grænmeti: 10–12 mán.
n Ber
Ber (og ávextir): 10–12 mán.
n Ís
Rjómaís: 3–6 mán.
n Brauð
Brauð: 4–6 mán.
Kökur: 4–6 mán.
n Afgangar
Súpur: 2–3 mán.
Kássur: 2–3 mán.
Pítsa: 2–3 mán.
n Feitmeti
Feitar pylsur: 1–2 mán.
Beikon: 1–2 mán.
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Að nota frysti
Nokkur atriði, sem fengin eru að láni
af heimasíðunni gorenje.is, varðandi
geymslu í frysti.
1 Hafðu í huga að ekki er hægt að frysta allt.
2 Matur þarf að vera ferskur áður en hann er frystur
3 Pakkaðu vel og vandlega
4 Matur ætti að vera í vandlega lokuðum, ólekum ílátum. Leki
rýrir vítamíninnihald matarins og veldur
þornun.
5 Umbúðir ættu að vera merktar innihaldi, magni og dagsetningu.
6 Það er mikilvægt að matur sé frystur hratt og því er mælt með
því að skammturinn sem frystur er sé
ekki of stór.
7 Gæta ætti þess að troðfylla ekki frystinn því það hefur áhrif á
gæði matvörunnar.
8 Ekki geyma mat lengur en ráðlagt er.
9 Þiðin eða hálfþiðin matvæli ætti að matreiða og snæða eins fljótt
og hægt er.
10 Afþíddu frystinn reglulega. Helst þegar ísingin á honum er 3–5
sentimetra þykk. Þrífðu og þurrkaðu
innan úr frystinum. Því oftar sem hann
er afþíddur því auðveldara er það. Ekki
nota oddhvöss verkfæri eða mikinn hita
við að bræða klakann.
Verkfall Mikil örtröð var
á Keflavíkurflugvelli þegar
starfsmenn þar lögðu niður vinnu
síðastliðinn þriðjudag. Mynd AMG
Eiga rétt á mat og hóteli
Réttindi flugfarþega vegna verkfalls
F
lugfarþegar eiga rétt á endur
gjaldslausum máltíðum,
hressingu og einnig hótel
gistingu ef þörf er á og ber
flug rekanda að útvega þeim það
ef töf verður á flugi en flugvallar
starfsmenn lögðu niður vinnu þann
8. apríl síðastliðinn og hafa boðað
verkfall að nýju milli klukkan 4.00
og 9.00 að morgni 23. og 25. apríl
næstkomandi verði ekki samið fyrir
þann tíma. Þetta er áréttað í frétt á
heimasíðu Neytendasamtakanna.
Skyldur flugrekanda vegna tafa
eru, ef töfin er meiri en 2 klukku
stundir á flugi sem er 1.500 kíló
metrar eða styttra (t.d. allt innan
landsflug), töfin er 3 klukkustundir
eða meira á flugi sem er 1.500–3.500
kílómetrar (t.d. flug frá Íslandi til
Norðurlandanna og Evrópu) eða
4 klukkustundir eða meira á flugi
sem er lengra en 3.500 kílómetrar
(t.d. allt flug frá Íslandi til Banda
ríkjanna).
Einnig þarf flugrekandi að bjóða
farþegum flutning til og frá flugvelli
sé þess þörf, ásamt því að gefa far
þegum möguleika á að hringja tvö
símtöl eða senda skilaboð. En þó
verkfall raski innanlands og milli
landaflugi þurfa flugrekendur að
virða réttindi flugfarþega auk þess
sem þeim ber skylda til að upplýsa
farþega um réttindi sín.
Valdi verkfall því að flugi sé af
lýst getur flugfarþegi átt rétt á að fá
endurgreiðslu eða breytingu á flug
miða. Flugfarþegar geta leitað til
Samgöngustofu með kvartanir ef
þeir telja flugrekendur brjóta gegn
rétti sínum. n