Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 39
Neytendur 39Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
Ertu með ofnæmi fyrir farsímanum?
Sprenging í útbrotum tengdum farsímanotkun
E
f þú færð reglulega óútskýrð
útbrot í andliti þá þarf það
ekki endilega að vera eitthvað
sem þú hefur borðað eða
eitthvað sem þú klæðist. Ofnæm-
istilfellum sem rakin eru til auk-
innar farsímanotkunar hefur fjölg-
að verulega á undanförnum árum
samkvæmt niðurstöðu nýrrar rann-
sóknar. Svo virðist sem nikkel og
króm sem notað er í símana sé að
framkalla ofnæmisviðbrögð í mörg-
um tilfellum.
Málmarnir framkalla í aukn-
um mæli sársaukafull bráðaútbrot,
blöðrur eða þurrkabletti á kinn,
höku og eyrum fólks. Útbrot sem
þessi hafa í gegnum tíðina verið
tengd ódýrum skartgripum, beltis-
sylgjum og rennilásum.
Rannsóknin var gerð af banda-
rískum og dönskum vísindamönn-
um og birtust niðurstöðurnar í
fagtímaritinu Pediatric Allergy,
Immunology and Pulmonology.
Fram kemur meðal annars í
skýrsl unni að samhliða aukinni
farsímanotkun hafi orðið 1.250 pró-
senta aukning á tilkynntum húð-
vandamálum á árunum 2000–2010.
Vísindamennirnir fundu 37 tilfelli af
símaofnæmi en þar af hafði helm-
ingur þeirra komið upp hjá börnum
undir 18 ára aldri. Nefnt er dæmi um
táningsstúlku sem fékk alvarleg út-
brot á bringuna eftir að hún geymdi
farsímann sinn inni á brjóstahaldara
sínum.
„Þrátt fyrir tilraunir til að koma
böndum á ofnæmisvalda í símum þá
innihalda og losa ákveðnir símar á
markaði enn nægilegt magn af nikk-
eli til að framkalla bráðaofnæmisvið-
brögð á húð,“ segir Clare Richardson,
einn höfunda rannsóknarinnar.
Meðal þeirra síma sem fengið
hafa falleinkunn í þessum efnum
í eldri rannsóknum eru símar frá
BlackBerry, Samsung, Sony Erics-
son, Motorola og LG en símar Apple
og Nokia komu betur út. n
mikael@dv.is
Útbrot og óþægindi Einn af
fylgifiskum aukinnar farsíma
notkunar er aukinn fjöldi tilfella
útbrota og bráðaofnæmisvið
bragða við málmum í símunum.
iPhone ögn betri en galaxy
n iPhone 5S rétt marði Samsung Galaxy S5 í einvígi snjallsímarisanna n Sérfræðingarnir kveða upp dóm n Þetta er það sem máli skiptir við val á nýjum síma
1. Rafhlaða aaaa
2. Skjár (Upplausn, litir o.fl.) a a aa
3. Örgjörvi (Hvor er öflugari) a aa 4. Myndavél (Upplausn, flass o.fl.) a aaa
5. Hvor tekur fallegri/betri myndir aaa 6. Gæði símtala a aaa
7. Hraði á netvafra aa aa
8. Þægilegri í daglega notkun a aa 9. Hönnun/Útlit aaaa
10. Fyrir nýgræðinginn mæli ég með aa aa
ATKVÆÐI
jafnt Niðurstaða
Niðurstaða: iPhone 5S hefur betur í þremur flokkum,
Samsung Galaxy S5 þremur og í fjórum flokkum er ómögu
legt að gera upp á milli símanna af margvíslegum ástæðum.
Einvígi snjallsímarisanna
Svona meta sérfræðingarnir símana:
16 10 14
Heildareinkunn:
iPhone 5S: 8,12 Samsung Galaxy S5: 7,97
jafnt
jafnt
jafnt
jafnt Þetta sögðu þeir um símana
Eiginleikar iPhone 5S Samsung Galaxy S5
Rafhlaða LiPo 1560 mAh Liion 2800 mAh
Örgjörvi Apple A7 Qualcomm MSM8974AC Snapdragon 801
Hraði örgjörva Dualcore 1.3 GHz Cyclone Quadcore 2.5 GHz Krait 400
Skjáupplausn 640x1136 1080x1920
Stýrikerfi iOS 7 Android OS v4.4.2 KitKat
Myndbandsupptaka 1080p á 30fps 2160p á 30fps, 1080p á 60fps
Upplausn myndavéla 8Mpix + 1,2Mpix að framan 16Mpix + 2,0Mpix
Skjágerð LED baklýstur IPS LCD Super AMOLED
Skjástærð 4.0 tommur 5.1 tomma
Stærð síma í mm (HxBxD) 123,8 x 58,6 x 7,6 142 x 72,5 x 8,1
Þyngd 112 grömm 145 grömm
Upplýsingar að mestu fengnar af Elko.is
Helstu upplýsingar um símana
flokka hvor og í fjórum er jafntefli.
iPhone hlýtur þó 16 atkvæði en
Samsung 14.
Samsung er með betri rafhlöðu
sem endist lengur og var það ein-
róma álit manna. Hann er með
betri skjá hvað varðar upplausn
og stærð auk þess sem myndavél-
in er tæknilega fullkomnari. IPho-
ne-síminn tekur hins vegar betri
og fallegri myndir að mati sér-
fræðinganna. Þá hefur hann yfir-
burði í hönnun og útliti og þá
mæla fleiri með honum fyrir ný-
græðinga. Hlaut iPhone tvö at-
kvæði þar en Galaxy ekkert, tveir
völdu jafntefli en iPhone nýtur vaf-
ans og fær þann flokkinn.
Þegar kom að því að gefa símun-
um heildareinkunnir þá rétt marði
iPhone 5S einvígið. Hlaut 8,12 í
meðaleinkunn á meðan Samsung
hlaut 7,97 í meðaleinkunn. n
iPhone 5S
Kostir:
„Frábær hönnun, frábær myndavél og
góður í hendi.“
„Einfaldleiki einkennir iPhone iOS. Um
hverfið er stílhreint, fallegt og staðlað
og auðvelt er að fikra sig áfram í öllum
valmyndum og forritum.“
„iPhone 5S er vel hannað og fallegt
símtæki. Apple hefur ávallt staðið sig vel
þegar kemur að uppfærslum á stýrikerfi,
úrvali af aukahlutum og framboði af
forritum í App Store.“
„Fer vel í hendi og er auðveldur í notkun.
Appverslunin er betri en fyrir nokkurn
annan síma. Nánast öll ný öpp og leikir
koma fyrst á iOS og mörg aðeins á iOS.
Myndavélin og skjárinn frábær, aflið
nógu mikið og uppfærslur í 4 ár. Frábær
heildarpakki og vel skiljanlegt að iPhone
5S sé vinsælasti snjallsími í heimi. Falleg
hönnun.“
Gallar:
„Lítill skjár, ekki hægt að breyta miklu,
allt þarf að gerast eftir höfði Apple.“
„iPhone 5S er eins og aðrir iPhonesímar,
gjarn á að safna rispum og verður því
sjúskaður fljótt ef hann er ekki í hlíf.
Rafhlöðuending hefur skánað frá eldri
útgáfum, hún er þó ekki á pari við aðra
síma á svipuðu verði og gerði lítið meira
en að duga mér daginn.“
„Of lítill skjár fyrir marga. Lélegt batterí.
Lokað stýrikerfi. Níu mánuðir síðan hann
kom á markað og iPhone 6 kemur í sumar
eða snemma í haust.“
Samsung Galaxy S5
Kostir:
„Frábær og stór skjár ásamt endalausum
möguleikum sem ekki bjóðast í iPhone.“
„Frelsi einkennir Androidstýrikerfið, þar
sem auðvelt er að sníða tækið að þínum
þörfum sem skilar sér í skilvirkari og
persónulegri notkun.“
„Galaxy S5 er gríðarlega vel búinn vél
búnaðarlega og Samsung gerði úrbætur
frá Galaxy S4 á helstu stöðum eins og
myndavél, rafhlöðuendingu og skjá ásamt
því að hann er ryk og vatnsheldur.“
„Frábær sími sem hefur flest allt það
sem góður sími á að hafa frábær, stór og
bjartur skjár. Góð myndavél.“
Gallar:
„Plast, ekki stórt stökk frá S4.“
„Ég skil ekki af hverju í ósköpunum það
þarf að pakka þessum flotta vélbún
aðarpakka í svona ódýra plastumgjörð
sem breytist/þróast lítið milli símtækja.
Stýrikerfið er hlaðið auka krúsidúllum frá
Samsung og er alls ekki jafn einfalt eða
fágað og samkeppnisaðilar bjóða upp á.“
„Leiðinleg
hönnun og
ljótur sími.
Of stór fyrir
marga. Fullt
af viðbótar
dóti virkar
ekki eða
illa. T.d.
fingrafara
lesarinn og
púlsmælir
inn.“