Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 67
Helgarblað 30. maí –2. júní 2014 Sjómannadagur 3
Nýtt meistaranám á Vestfjörðum
Nám tengt sjávarútvegi í stöðugri þróun
H
áskólasetur Vestfjarða hóf síð-
asta haust að bjóða upp á hag-
nýtt meistaranám í sjávar-
tengdri nýsköpun. Þetta er á
meðal þess sem kemur fram í Stafn-
búa, blaði auðlindadeildar Háskól-
ans á Akureyri. Háskólasetrið var sett
á laggirnar árið 2006 og hefur verið
lyftistöng í menntamálum á Vest-
fjörðum.
Námið er einstaklingsmiðað og
er markmiðið að nemendur séu vel
í stakk búnir til að koma sínum eig-
in hugmyndum á framfæri og fram-
kvæma þær.
Sjávarútvegsnám á Íslandi hefur
verið í stöðugri þróun undanfarin ár
og áratugi en er þó komið skammt á
veg miðað við hversu samofin sögu
þjóðarinnar greinin er. Sérstaklega
á efri námsstigum. Auk Háskóla-
seturs Vestfjarða býður Fisktækni-
skólinn í Grindavík upp á sjávarút-
vegstengt nám á framhaldsskólastigi.
Háskólinn á Akureyri býður upp á
grunnnám í sjávarútvegsfræðum
og grunn- og meistaranám í auð-
lindafræði. Þá býður Háskólasetur
Vestfjarða í samstarfi við Háskólann á
Akureyri upp á nám í haf- og strand-
svæðastjórnun. Til viðbótar býður
Háskólinn á Hólum upp á diplóma-
nám í fiskeldisfræðum.
Í samtali við Stafnbúa sagði Peter
Weiss, forstöðumaður Háskólaset-
urs Vestfjarða, að markmið námsins
sé meðal annars að skapa hvata fyrir
ungt og efnilegt fólk til þess að snúa
aftur heim. Einnig að sýna fram á að
sjávartengd nýsköpun sé fjölbreytt og
að gera þeim sem klára námið kleift
að afla sér og öðrum lífsviðurværis
á eigin forsendum. Tveir nemend-
ur hafa þegar hafið nám og eru þeir
að vinna verkefni á sviði kræklinga-
ræktar annars vegar og hins vegar á
sviði hönnunar úr fiskroði. n
asgeir@dv.is
Háskólasetur
Vestfjarða Hefur
verið mikil lyftistöng
fyrir menntamál á
Vestfjörðum.
MyNd NeMeNdafélagið Ægir
n Ljúffengur sjávargróður n Frægur veitingastaður kaupir söl
Auli og
maurungur
Þorskurinn er ein verðmætasta
og þekktasta fisktegundin sem
veiðist hér við land. Þorsk-
urinn sem hefur fræðiheitið
Gadus morhua hefur ótal mis-
munandi nöfn á íslensku. Á vef
Hafrannsóknastofnunar er að
finna sjávardýraorðabók og þar
kemur fram að þorskurinn er
einnig þekktur undir nöfnun-
um auli, blóðseiði, bútungur,
býri, fiskur, fyrirtak, golþorskur,
kastfiskur, kóð, maurungur,
murti, næli, sá guli, seiði, smá-
þyrsklingur, sprotafiskur, stút-
ungur, styttingur, særingur og
þyrsklingur.
Skóli sjávar-
útvegs í
Fjarðabyggð
Sjávarútvegsskóli Fjarðabyggð-
ar verður starfræktur í annað
sinn í sumar, en það er Síldar-
vinnslan á Norðfirði sem stend-
ur fyrir honum. Kennslan í
skólanum er hugsuð sem við-
bót við námsefni sem kennt er
í grunnskólum Fjarðabyggðar.
Samkvæmt frétt á vef LÍÚ þykir
kennslan ófullnægjandi með til-
liti til fræðslu um sjávarútveg.
Markmiðið sé að kynna iðnað-
inn fyrir nemendum og skýra
möguleika og tækifæri sem eru
til staðar. Nemendur fá laun á
meðan þeir eru í skólanum, í
samstarfi við vinnuskólann á
svæðinu. Hvert námskeið tek-
ur tíu daga og fá nemendur að
heimsækja fiskvinnslu, bræðslu
og skoða skip.
Sjávarútvegs-
fræði í sókn
Aðsókn í sjávarútvegsfræði
við Háskólann á Akureyri hef-
ur aukist á ný undanfarin ár
eftir að hafa dalað nokkuð í
kringum góðærið. Árið 2009
voru útskrifaðir fjórir sjávarút-
vegsfræðingar en aðeins einn
árið 2011. Nú í vor útskrifast
níu sjávarútvegsfræðingar og
má búast við því að þeir verði
enn fleiri að ári. Nýnemar hafa
verið í kringum 30 talsins síð-
ustu tvö ár.
Þ
að getur reynst land-
kröbbum þrautin þyngri
að fóta sig á dekki þar
sem ótal hugtökum er
fleygt framan í þá og hleg-
ið jafnóðum þegar upp kemst að
þeir hafa ekki minnstu hugmynd
um hvað þetta þýðir allt saman.
DV tók saman nokkur af þessum
orðum og orðasamböndum og
myndaði nokkurs konar Orðabók
sjómanna sem er að sjálfsögðu
engan veginn tæmandi en ætti að
geta komið einhverjum að gagni.
Þetta er allt frá einföldustu og al-
gengustu hugtökunum til þeirra
flóknari og sjaldgæfari.
Orðabók
sjómanna
n Vertu með tungutak þeirra á hreinu
Orðabók sjómanna
n Stjórnborði: Hægri hlið skips þegar
horft er fram
n Bakborði: Vinstri hlið skips þegar
horft er fram
n dekk: Þilfar
n Þilfar: Vatnsþétt gólf sem lokar báts-
eða skipsskrokki
n Stafn: Framendi skips
n ræs: Þetta er vakning úti í sjó. Ef
þú heyrir þetta öskrað er þér hollast að
hunskast á lappir.
n Karlinn: Þetta á við skipstjórann.
Karlinn í brúnni. Ef þú heyrir einhvern
segja: „Hvað sagði karlinn?“ úti á sjó þá er
það ekki einhver Gvendur úti í bæ heldur
skipstjórinn sjálfur.
n Stím: Ferð skips á áfangastað oftast
til veiða eða hafnar.
n lensa: Sigla undan vindi.
n Beitivindur: Þegar skipinu er siglt
skáhallt á móti vindi.
n Hífopp: Taka troll um borð.
n Troll: Fiskinet, botnvarpa, flotvarpa,
netpoki.
n Botnvarpa: Netpoki sem er dreginn
eftir sjávarbotni við fiskveiðar.
n flotvarpa: Varpa sem flýtur, dregst
ekki með botninum.
n Trossa: Mörg samtengd fiskinet.
n Netatrossa: Samhnýttar lóðir.
n að lenda í samförum: Þegar
tveir togarar flækja saman trollum sínum.
n Mávur: Vargur.
n fýll: Múkki.
n Kostur: Í landi
fer fólk í verslun og
kaupir í matinn. Fyrir sjóferð er
hins vegar tekinn kostur.
n Messi: Ekki Lionel, heldur matsalur
skipverja.
n að kasta:
Setja veiðarfæri í
sjóinn, troll eða nót.
n Kasta sér: Fara að sofa. Dregið af
„að kasta sér í koju“.
n fara í koju: Fara að sofa.
n Skaufi: Þegar það er lítill afli í trollinu.
„Var eitthvað í?“, „Nei, bara skaufi.“
n að græja sig á lögninni: Stund-
um þegar lína er dregin er hún óklár. Þá er
greitt úr henni þegar hún er lögð aftur.
n að taka það óklárt: Er mikið
notað á togurum. Það er þegar trollið er
tekið um borð og eitthvert vesen er á því.
Menn grínast með þetta þegar sjómenn
drekka líka. Þegar búið er að innbyrða
ákveðið magn áfengis verða menn hetjur
og taka það óklárt.
n eins og múkki í mannaskít:
Þegar einhver á dekkinu klúðrar málum.
n Brauðfótur:
Notað um nýliða á sjó sem á erfitt með að
halda jafnvægi.
n Nálablók: Sá sem er lægst settur á
dekki, sér um að þræða nálar fyrir hina.
n Heilalaust raflandi kjöt-
flykki: Sá sem nær ekki utan um starfið
– nýliði.
n Hífa, slaka, hringja á bíl:
Þegar menn eru ráðalausir er þetta kallað.
n afturfótafiðrildi:
Einhver sem er ekki að standa sig – nýliði.
n Hvað vilt þú upp á dekk?:
Á jafnan við um þá sem rífa kjaft, steyta
görn eða skipta sér af. Líkingin vísar til
liðleskju sem ekkert gagn er að á dekki.
n drullufokk:
Þegar menn eru að vinna við eitthvað sem
þeir kunna ekki.
n Kaldafýla:
Leiðindaveður.
n Pappakassi:
Sá sem kann lítið.
leiðindaveður
Togari í kaldafýlu.