Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Page 2
Helgarblað 6.–9. júní 20142 Fréttir
Sverrir tattú sakaður um hótunarbrot vegna skiltis á landareign hans
É
g fékk í afmælisgjöf gefins
svona heimagert skilti sem
stóð á „No trespassing“. Það er
búið að vera mikið um innbrot
og þjófnað í sveitinni hjá mér.
Þetta var grínskilti sem stóð á „No
trespassing. Violators will be shot.
Survivors will be shot again“. Það
er nú ekkert sem bendir til að skot
ið verði með byssu. Þetta gæti alveg
eins verið til að taka mynd eða skjóta
baun,“ segir Sverrir Þór Einarsson,
húðflúrari og bóndi á Höfn í Hval
fjarðarsveit, í samtali við DV. Hefur
hann verið ákærður fyrir að koma
fyrir skiltinu inni á landi sínu og
hófust réttarhöld í málinu á fimmtu
dag. Bæði Sverrir og lögmaður hans
segja málið með ólíkindum.
Ákærður fyrir morðhótun
Sverrir segir að skiltið örlagaríka hafi
verið fimmtíu og einn metra inni á
landi hans og lögheimili. „Það var
ekki við sýsluveg eða þjóðveg heldur
á einkalóð sem ég bjó til inni á minni
lóð. Ég hélt að manni væri frjálst að
hafa hvað lesningu sem er inni á sínu
lögheimili. Ég er ákærður fyrir að
hóta að drepa landsmenn, að myrða
almenning. Þetta er alveg með ólík
indum. Ritfrelsi er farið og friðhelgi
einkalífsins. Þetta er alveg víðáttur
uglað,“ segir Sverrir. Að hans sögn
hefur skiltið ekki verið nágrönnum
hans til ama. „Þau hafa ekkert út
á þetta að setja, finnst þetta bara
fyndið. Þetta er bara brandari.“
„Heimskulegasta sem ég hef séð“
Fyrirtaka í réttarhöldunum gegn
Sverri vegna skiltisins hófst á fimmtu
daginn. Í samtali við DV er Hólmgeir
Flosason, lögmaður Sverris, á sama
máli og hann um fáránleika málsins.
„Það er verið að ákæra fyrir eitthvað
sem er sett fram í gríni inn á hans
eignarlandi og hefur ekki nokkra ein
ustu merkingu. Ég held að þetta sé
það heimskulegasta sem ég hef séð,
að gefa út ákæru í svona máli. Þegar
ég fór í skýrslutökuna með honum
á sínum tíma og sá hvað lág fyrir, þá
hugsaði ég með mér að lögreglan í
Borgarnesi þyrfti að fara að finna sér
einhver verkefni,“ segir Hólmgeir.
Gæti valdið ótta um velferð
Sverrir segir að sú túlkun að hann hafi
ætlað að skjóta með riffli óvelkomna
gesti algjöra firru. „Þegar ég fór í yfir
heyrslu var ég spurður hvað þetta
ætti að þýða, að ætla að skjóta fólk,
þá sagði ég að ég væri nú ekki ensku
sérfræðingur en hafi þó flett upp á
að taka ljósmynd á Google Translate
og þar stóð „shot a picture“. Það færi
bara eftir því hvað sá sem sæi þetta
væri rotinn í hausnum hvernig hann
túlkaði þetta. Svona skilti eru seld í
Tiger, eins og til dæmis: „Don´t mind
the dog. Beware of owner.“ Þetta eru
bara grínskilti,“ segir Sverrir.
DV hefur undir höndum ákæruna
sem lögreglustjórinn í Borgarnesi gef
ur út á Sverri. Þar kemur fram að með
því setja umrætt skilti á hlið á vegi sem
liggur um Höfn í Hvalfjarðarsveit hafi
hann haft í frammi hótanir. Orð skilt
isins eru íslenskuð og sagt að „þessi
orð eru til þess fallin að valda þeim
sem þau sjá ótta um líf, heilbrigði
eða velferð sína.“ Sverrir er sakaður
um brot á 233. grein almennra hegn
ingarlaga og getur slíkt brot varðað
allt að tveggja ára fangelsisvist. „Ég vil
ekki svara þér,“ svaraði Stefán Skarp
héðinsson, sýslumaður í Borgarnesi
og sá sem undirritar ákæruna, spurð
ur um málið.n
Varúð Skiltið sem Sverrir fékk í afmælis
gjöf reyndist örlagaríkt. Leið ekki á löngu
frá því að hann kom því fyrir þar til hann var
kærður fyrir hótunarbrot.
Ákærður fyrir grín
„Lögreglan í
Borgarnesi
þyrfti að fara að finna
sér einhver verkefni
Ákærður
Réttar höld yfir
Sverri, sem gjarn
an er kenndur
við tattú, vegna
skiltis sem hann
sett inn á landar
eign sinni hófust
á fimmtudag.
mynd Þormar ViGnir
GunnarSSon
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Vikunni stefnt fyrir myndbirtingu
n dæmdur ofbeldismaður vill rúmlega milljón n ritstjóri áhyggjulaus
B
aldur Freyr Einarsson og Ólafur
Már Jóhannsson hafa stefnt
fyrir hönd barna sinna El
ínu Arnardóttur, þáverandi
ritstjóra Vikunnar og núverandi rit
stjóra MAN, sem og blaðamanni Vik
unnar, Ragnhildi Aðalsteinsdóttur, til
greiðslu miskabóta vegna forsíðuvið
tals Vikunnar í mars á síðastliðnu ári.
Í því viðtali segir barnsmóðir þeirra
tveggja, Berglind Rós Þorkelsdóttir,
meðal annars frá því að hún hafi misst
forræði yfir sonum sínum tveimur.
Elínu og Ragnhildi er stefnt sérstak
lega vegna tilvitnunar úr dómi í for
sjármáli annars drengsins sem og fyrir
að hafa birt mynd af drengjunum og
þeir nafngreindir án leyfis forráða
manna. Baldur Freyr og Ólafur Már
eru forráðamenn drengjanna í dag.
Í viðtalinu við Berglindi Rós kom
fram að hún hafi kynnst Baldri Frey
í trúfélagi sem nefnist Kærleikurinn.
Hefur hann verið sérlega virkur í ýmsu
trúarstarfi eftir að hann var árið 2003
dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir
líkamsárás sem leiddi til dauða fórn
arlambsins. Hefur hann flutt mess
ur á Omega og var meðal skipuleggj
enda hinnar umdeildu Bænagöngu
árið 2007. Ekki náðist í Baldur Frey við
vinnslu fréttar og Ólafur Már neitaði
að tjá sig um málið.
Þess er krafist að Elín og Ragn
hildur greiði samtals tvær milljónir
króna, auk málskostnaðar, vegna
brota á friðhelgi einkalífsins. Í sam
tali við DV segist Elín ekki sérstaklega
áhyggjufull vegna málsins. „Ég er nátt
úrlega hætt hjá Birtíngi og ég er eigin
lega ekkert búinn að kynna mér þetta
eftir á að hyggja. Það hefur enginn
hringt í mig. Blaðamanna félagið seg
ir að það séu komin ný lög sem gera
það að verkum að útgefanda er skylt
að bera ábyrgð þannig að ætli þetta
liggi ekki bara hjá Birtíngi, svo ætli það
sé ekki ástæðan fyrir því að enginn sé
búinn að tala við mig,“ segir hún. n
ritstjóri Elínu er stefnt fyrir myndbirt
inguna þar sem hún var ritstjóri Vikunnar
er myndin af börnunum var birt. Hún er nú
í fæðingarorlofi sem ritstjóri tímaritsins
MAN. mynd SiGtryGGur ari
Lærdóms-
samfélag í
niðurníðslu
DV fjallaði á dögunum um leik
skólann EfriBjörtuhlíð, sem er í
mikilli niðurníðslu. Þekkt vanda
mál var í leikskólanum að börn
borðuðu flagnaða málningu. Í
tilkynningu frá leikskólastjórum
til foreldra vegna þeirra fréttar
er nauðsyn lagfæringa viður
kennd og sagt að sumarfrí verði
nýtt í framkvæmdir. „Enda þótt
að málning hafi flagnað af veggj
um í vetur þá finnst okkur mest
um vert að lærdómssamfélagið í
leikskólanum sé gott og að öryggi
barnanna sé tryggt. Við munum
gera allt til þess að svo verði
áfram,“ segir í tilkynningunni.
Mótmælir í
mastrinu
Hvalverndunarsinninn sem
hefur komið sér fyrir í körfu í
mastri hvalveiðiskipsins Hvals
8 í Reykjavíkurhöfn fær að vera
þar óáreittur, segir umsjónar
maður hvalabátanna í samtali
við RÚV. Um er að ræða rúmlega
þrítugan Þjóðverja sem segist
vera að mótmæla fyrirhuguðum
langreyðarveiðum. Hann ætlar
að vera í skipinu í tvo sólarhringa
til að vekja athygli ferðamanna
á hvalveiðum Íslendinga. Hann
hefur þeytt flautur og kveikt á
blysum til að vekja athygli á mál
stað sínum. Maðurinn var kom
inn upp í mastrið klukkan sjö
á fimmtudagsmorgun. Hann
birtir myndir af gjörningi sínum
á samfélagsmiðlinum Twitter.
Hvalveiðibátarnir fara ekki til
veiða fyrr en í næsta mánuði,
en starfsmenn þeirra sinna nú
viðhaldi um borð og leyfa mót
mælandanum að sitja þar áfram.