Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 72
Helgarblað 6.–9. júní 201416 HM 2014
Hvað veistu um HM?
1. Mario Kempes 2. Roger Milla, 42 ára og 39 daga 3. Lothar Matthaus 4. David Villa, Diego Forlan, Thomas Muller og Wesley Sneijder 5. Gabriel Omar Batistuta 6. Lukas Podolski 7. Jose Luis Chilavert
8. Ítalíu og Vestur-Þjóðverjar unnu Ítalíu 9. Egyptaland. 10. Portúgal og Holland. Portúgal vann. 11. Gestgjafar Brasilíu (héldu líka HM 1950) 12. Skoraði þrennu (á 69., 72. og 76. mínútu). Kiss er Ungverji.
13. Hlutkesti hefði ráðið því hver hefði orðið heimsmeistari. 14. Stuart Pearce, Chris Waddle, David Batty, Paul Ince, Frank Lampard, Steven Gerrard og Jamie Carragher.Svörin …
1–5 stig
Þetta er nú ekkert
sérstakur árangur. Eig-
inlega vandræðalegt.
Þú verður að kynna þér
sögu HM aðeins betur.
6–10 stig
Jújú, þú veist eitt og
annað, sérstaklega
ef þú nærð níu eða tíu
stigum. Þetta er nú
frekar snúið próf.
11–15 stig
Þú mátt eiga það að
þú ert flestum fróðari
HM. Þú hefur býsna
yfirgripsmikla þekkingu
á HM.
16–20 stig
Það er eiginlega
fáránlegt að vita svona
mikið. Þú ert gangandi
alfræðirit um HM!
21–25 stig
Þér er ekki viðbjarg-
andi. Leitaðu þér
hjálpar. Eignastu líf.
1 Hvaða Argentínumaður var kjörinn besti leikmaður HM 1978? 2 Hver er elsti leikmaðurinn sem spilað hefur á HM?
4 Fjórir leikmenn deildu með sér
gullskónum á HM í Suður-
Afríku 2010. Allir skoruðu
þeir fimm mörk í keppn-
inni. Hvaða leikmenn voru
þetta? (1 stig fyrir hvern)
10 Rússneski dómarinn Valentin Ivanov reif sextán sinnum upp gula spjaldið og rak fjóra leikmenn
af velli í 16-liða úrslitum á HM í Þýskalandi 2006. Viður-
eignin hefur verið kölluð „The Battle of Nuremberg“
síðan, eða „Baráttan um Nürnberg“. Tvær stórþjóðir í
evrópskri knattspyrnu áttust við? Hverjar eru þær og
hver vann leikinn? Eitt stig fyrir hvort rétt svar.
12 Hvað tók Laszlo Kiss sjö mínútur
að gera á HM 1982, sem
enginn hefur afrekað á
skemmri tíma á HM? Og
hverrar þjóðar er hann?
13 Hvað hefði getað gerst hefði úr-
slitaleiknum á HM árið 1966,
á milli Englands og Vestur-
Þýskalands, lyktað með 2–2
jafntefli eftir framlengingu?
14 Sjö enskir leikmenn hafa klúðrað víti í
vítaspyrnukeppnum á HM.
Tveir þeirra eru í leikmanna-
hópi Englendinga enn í dag.
Þú færð eitt stig fyrir hvert
rétt nafn. Þessi er erfið.
11 Aðeins ein þjóð hefur tekið þátt í
öllum lokakeppnum HM í
knattspyrnu, öllum 19 mót-
unum. Hvaða þjóð? Vís-
bending: Þeir hafa haldið
HM. Önnur vísbending: Þeir
hafa orðið heimsmeistarar.
8 Hvar var HM 1990 haldið og hvaða lið
sigruðu Vestur-Þjóðverjar í
úrslitum? (1 stig fyrir hvort)
9 Árið 1934 tók Afríku-þjóð fyrst þátt í loka-
keppni HM. Hvaða þjóð?
5 Spurt er um leikmann. Hann er einn þriggja leikmanna sem
afrekað hefur að skora þrjú mörk tvisvar
í lokakeppni HM. Hinir eru Sandor Koscis
og Just Fontaine. Þessi magnaði leik-
maður spilaði lengst af á Ítalíu þar sem
hann afrekaði að verða markahæsti leik-
maður A-deildarinnar árið 1995. Þá fékk
hann bronsskóinn á HM 1994. Hann lagði
skóna á hilluna árið 2005 eftir að hafa
leikið með liði í Katar. Hann varð meist-
ari á Ítalíu með liði sínu árið 2001. Hver er
maðurinn? (ath. Koscis er á myndinni)
7 Spurt er um leikmann. Hann var gríðarlega litríkur karakter og var
fyrirliði þjóðar sinn í tvígang á HM, annars
vegar árið 1998 og hins vegar 2002. Hann
var valinn í úrvalslið HM 1998, þegar Frakk-
ar unnu. Lengst af lék hann með liðum í
Suður-Ameríku, þar á meðal Velez Sarsfield
í Argentínu þar sem hann spilaði frá 1991 til
2001. Hann kom þó við á Spáni og í Frakk-
landi þar sem hann lék með Zaragoza og
Strasbourg. Í heildina lék hann 74 landsleiki
og skoraði í þeim átta mörk sem verður að
teljast magnaður árangur – sérstaklega í
ljósi þess að hann var langt því frá að vera
fremsti maður í liðinu. Hver er maðurinn?
3 Spurt er um leikmann. Þetta er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu HM
en hann var af mörgum talinn einn besti
leikmaður heims þegar hann var upp á
sitt besta á seinni hluta liðinnar aldar.
Það fékkst staðfest árið 1990 þegar
hann var valinn sá besti í heimi. Hann tók
þátt á fimm heimsmeistaramótum með
þjóð sinni. Hver er maðurinn?
6 Hver var valinn besti ungi leikmaðurinn á
HM 2006?