Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 6.–9. júní 201452 Fólk
Mælir ekki
með leiklist
Keira Knightley prýðir forsíðu
nýjustu útgáfu tímaritsins Elle.
Í viðtali í blaðinu segir leikkon
an að hún myndi alls ekki mæla
með leiklist ef hún ætti dóttur.
„Ég myndi án efa segja henni að
gera eitthvað annað. 150 milljón
trilljón prósent myndi ég ráðleggja
henni að gera eitthvað annað.
Ef þú ætlar út í þetta þarf það að
vera algjörlega á þínum forsend
um. Unglingsárin eiga að fara fram
einhvers staðar annars staðar en í
sviðsljósi. Unglingar eiga fá tæki
færi til að gera mistök, detta í það
og klúðra málunum og þeir eiga
fá að gera það í friði.“ Keira segir
að þegar hún var unglingur hafi
verið erfitt að lesa í fjölmiðlum að
hún væri hræðileg leikkona, með
anorexíu og að fólk hataði hana.
Sætti fjárkúgun vegna
rasistabrandara
n Bieber baðst afsökunar n Fleiri myndbönd skjóta upp kollinum
N
ýlega birtist gamalt
myndband af söngvar
anum Justin Bieber þar
sem hann sagði niðrandi
brandara um þeldökkt
fólk. Myndbandið hefur vakið litla
lukku á meðal svartra í Bandaríkj
unum og víðar en Bieber var að
eins 15 ára þegar myndbandið var
tekið. Sá sem lak myndbandinu
beitti Bieber fyrst fjárkúgun án ár
angurs og vildi fá milljón Banda
ríkjadali eða 113 milljónir króna.
Bieber hefur beðist afsökunar en
The Sun greindi frá því í vikunni að
annað myndband væri til af söngv
aranum þar sem hann viðhefur
niðrandi ummæli um þeldökka.
Þöggun á 113 milljónir
Fyrir um tveimur mánuðum hafði
lögfræðingur samband við tals
mann kanadíska popparans í um
boði skjólstæðings síns. Sá bauð
Bieber og hans fólki að reiða fram
113 milljónir til að komast hjá því
að myndbandið færi í dreifingu.
Sá sem stóð að baki fjárkúguninni
hafði unnið að kvikmyndagerð
tengdri lífi eða tónlist söngvarans,
fann upptökuna á gömlu hörð
um diski og stal henni. Bieber og
talsmenn hans höfnuðu öllum til
boðunum en viku áður en mynd
bandið birtist var boðið komið
niður í 55 milljónir króna.
Baðst afsökunar og var
fyrirgefið
Skömmu eftir að myndbandið
birtist sendi Bieber frá sér opin
bera afsökun. Fljótlega eftir hana
hafði umræðan snúist honum í
hag og reyndist brandarinn slappi
stormur í vatnsglasi. Í bili. „Sem
ungur maður skildi ég ekki kraft
sumra orða og hvaða áhrif þau
gætu haft,“ sagði Biber í samtali
við TMZ. „Mér fannst í lagi að
segja brandara og endurtaka skað
leg orð sem þessi. Ég skildi ekki
á þeim tíma að þetta væri ekkert
fyndið og að ég væri að ýta undir
fáfræðina. Ég biðst innilega afsök
unar. Ég á vini af öllum uppruna
og sá vinskapur er mér mjög mikil
vægur. Ég bið alla þá sem ég kann
að hafa sært afsökunar. Ég var bara
krakki.“
Fleiri myndbönd og
Ku Klux Klan
Á þriðjudag greindi breska slúður
blaðið The Sun frá því að nýtt
og grófara myndband væri til af
söngvaranum. Þar notar hann N
orðið svokallaða aftur og gantast
með rasistasamtökin Ku Klux Klan.
Afsökunarbeiðni söngvarans er því
kannski ekki eins einlæg og hún
hljómaði í fyrstu.
Neikvæð ímynd
Bieber sló í gegn aðeins 15 ára
gamall og hefur síðan verið einn
vinsælasti tónlistarmaður heims.
Eftir að Biber eltist hefur ímynd
hans sífellt versnað en söngv
arinn hefur verið kærður fyrir
hraðakstur, ölvunarakstur og lík
amsárás. Þá steig nýlega ung kona
fram og fullyrti að Biber væri
barnsfaðir hennar en hann hefur
neitað því. n
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Justin Bieber Baðst
afsökunar en nýtt mynd-
band hefur skotið upp
kollinum síðan þá.
„Ég bið alla þá
sem ég kann að
hafa sært afsökunar.
Ég var bara krakki.
Ku Klux Klan
The Sun segir annað
myndband vera til
af söngvaranum þar
sem hann gantast
með Ku Klux Klan.
L
eikarinn Jonah Hill hefur beðist
afsökunar á því að hafa kallað
ljósmyndara sem hafði elt hann
heilan dag fagga eða „faggot“.
Hill var gestur í útvarpsþætti Howard
Stern þar sem hann ræddi um atvik
ið en fyrir skemmstu náðist mynd
band af því þegar Hill jós fúkyrðum
yfir ljósmyndarann. Hill virtist pirr
aður vegna atviksins er Stern spurði
hann út í málið. „Ég er pirrað
ur út af því að frá því að ég fæddist
og alla tíð hef ég barist opinberlega
fyrir réttindum samkynhneigðra.
Þessi maður var búinn að elta mig
heilan dag og segja við mig niðr
andi hluti. Segja niðrandi hluti um
fjölskyldu mína og einmitt til þess
að vekja þessi viðbrögð hjá mér. Ég
gerði á endanum nákvæmlega það
sem hann vildi,“ sagði Hill sem sagði
þetta þó ekki afsaka notkun á orðinu
sem væri misnotað á sorglegan hátt
daglega sama hvaða meiningu fólk
setti í það. „Ég á samkynhneigða ætt
ingja og eftir þetta viðtal er ég að fara
eyða deginum með einum besta vini
mínum sem er samkynhneigður. Ég
tek það glaður á mig að vera andlitið
fyrir herferðina „Hugsaðu áður en
þú talar“. Jonah Hill skaust hratt upp
á stjörnuhimininn fyrir nokkrum
árum en honum líka fylgifiskar þess
að vera frægur leikari illa. „Sko,
mér finnst nokkuð gaman að leika í
myndum en ég er ekki góður í því að
vera frægur. Bara alls ekki.“ n
Missti stjórn á skapinu
Jonah Hill kallaði ljósmyndara „fagga“ og baðst afsökunar
Jonah Hill Kallaði ljósmyndara
„fagga“ og dauðsá eftir því.
Ætlar aldrei að
gifta sig aftur
Fyrrverandi glamúrmódelið og
frumkvöðullinn Katie Price hét
því í viðtali á dögunum að gifta
sig aldrei aftur.
Price hefur gift sig þrisvar
sinnum, en síðasta hjónaband
hennar entist í fimmtán mánuði
en þá var hún gift stripparanum
Kieran Hayler.
Price sótti um skilnað eftir
að upp komst um framhjáhald
eigin mannsins með einni bestu
vinkonu Price. Hún er nú ólétt að
sínu öðru barni með Hayler, en
þau eignuðust soninn Jeff í fyrra.
„Ég vildi óska að hjartað réði
ekki hvernig mér líður, þá væri ég
önnur manneskja. En það verða
ekki fleiri giftingar hjá mér,“ sagði
Price.
Vildi ekki vera
í þættinum
Leonardo DiCaprio neitaði
að vera myndaður fyrir raun
veruleikaþáttinn Keeping up
with the Kardashians samkvæmt
vefsíðunni US Weekly. Bruce og
Brody Jenner mættu í afmæli
Frankies Delagado á sunnu
daginn og með þeim fylgdi upp
tökuvél. Leonardo neitaði að
vera á upptöku sem kæmi fram í
þættinum. „Hann vildi ekki láta
mynda sig fyrir þáttinn, hann
myndi reyndar ekki vilja láta
mynda sig fyrir neitt svona, hann
er ekki sérstaklega hrifinn af
myndavélum en allra síst myndi
hann vilja vera í þessum þætti,“
sagði ónafngreindur heimildar
maður í samtali við vefsíðuna.