Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 42
Helgarblað 6.–9. júní 201442 Sport
andstæðingur
Hættulegur
n Ísland mætir Bosníu í tveim mikilvægum leikjum n Aron Pálmars ekki með
V
ið förum í leikinn til að
vinna. Það er á hreinu,“
segir Aron Kristjánsson,
landsliðsþjálfari Íslands í
handknattleik. Á laugar-
daginn mætir Ísland Bosníu og
Hersegóvínu í fyrri umspilsleik lið-
anna um laust sæti á HM í Katar í
janúar á næsta ári.
Bosníumenn eru sýnd veiði
en ekki gefin. Þó svo að liðið hafi
ekki verið fastagestur á stórmótum
undanfarin ár hefur það kom-
ist nálægt því í nokkur skipti. Í
undankeppni HM sem fram fór í
fyrra mætti liðið Þjóðverjum í um-
spili um laust sæti. Þjóðverjar unnu
fyrri leikinn nokkuð auðveldlega, 36–
24, en Bosníumenn rúlluðu yfir það
þýska í síðari leiknum, 33–24. Þjóð-
verjar, sem eru ein sterkasta hand-
knattleiksþjóð Evrópu, þótt þeir hafi
kannski ekki náð sér á strik á undan-
förnum misserum, unnu því sam-
anlagðan þriggja marka sigur, 60–
57. Bosníumenn komust í umspilið
gegn Íslandi með því að vinna sinn
undanriðil en í honum voru Eist-
lendingar, Portúgalar og Lettar. Liðið
lék sex leiki og vann fimm þeirra, en
eini tapleikurinn, á útivelli, var gegn
Portúgal, 26–25.
Kaflaskipt frammistaða
Ísland hefur nýlokið þremur
æfingar leikjum gegn Portúgölum.
Á Aroni má heyra að frammistað-
an hafi kannski, á heildina litið, ekki
verið jafn góð og hann hafði vonast
eftir. Einn leikurinn, sá eini sem Ís-
land tapaði, var notaður sem próf-
steinn á óreyndari leikmenn lands-
liðsins. Aron segir í samtali við DV
að hann hefði viljað sjá meiri eld-
móð hjá þeim sem spiluðu þann leik.
„Það kemur að kynslóðaskiptum hjá
okkur og þá þurfa menn að vera klár-
ir.“
Hann segir bagalegt að hafa ekki
fengið að sjá skytturnar Sigurberg
Sveinsson og Róbert Aron Horstet.
Báðir séu meiddir. Þeir sem hafi spil-
að annan leikinn hafi sumir sýnt
að þeir geri tilkall til þess að vera í
landsliðinu, en með aðra hafi komið
í ljós að þeir eigi nokkuð í land.
Aron segir að aukið fjármagn
þyrfti að koma til svo hægt væri að
halda úti verkefnum fyrir leikmenn
sem banka á landsliðsdyrnar – eins
konar b-lið. Það kosti peninga og
þeir séu af skornum skammti en
aftur á móti sé mikilvægt að auka
breiddina í landsliðinu.
Alex snýr aftur
En hvað hina tvo leikina áhrærir seg-
ir Aron að hann hafi verið ánægður
með vörnina þrjá hálfleiki af fjórum.
Þegar liðið hafi spilað á sínum sterk-
ustu mönnum hafi spilamennsk-
an verið nokkuð góð. „Það vantaði
upp á markvörsluna í þessum leikj-
um og það þarf að lagast fyrir Bosn-
íuleikina. Sóknarlega fannst mér við
spila okkur í færi í langflestum sókn-
um. Þar vantaði kannski stundum
herslumuninn, til að klára sóknirnar.
Markvörður Portúgala var að verja
mjög vel.“
Alexander Petersson er kominn
aftur í landsliðið eftir nokkuð langa
fjarveru. Aron segir mjög mikilvægt
að fá hann aftur í liðið, og fá leiki til
að slípa við liðið menn eins og hann
og Arnór Atlason. Að því leytinu til
hafi undirbúningsleikirnir verið afar
mikilvægir.
Fóru illa með Þjóðverja heima
Þótt Bosníumenn hafi ekki verið
fastagestir á stórmótum að undan-
förnu hafa þeir á að skipa góðu liði,
að sögn landsliðsþjálfarans. Þeir eru
hættulegur andstæðingur. Aron seg-
ir að þeir geti verið mjög erfiðir heim
að sækja, í Sarajevó. Leikurinn fari
fram í sjö til átta þúsund manna höll
og þar sé jafnan góð stemming. Hann
bendir á að Þjóðverjar hafi lent þar í
miklum hremmingum í fyrra, þegar
þeir töpuðu með níu mörkum eftir
12 marka sigur á heimavelli. „Liðið
þeirra er þokkalegt. Þeir eru líkam-
lega sterkir og með sterka vörn.“ Hann
segir að í liðinu séu menn sem hafi
orðið Evrópumeistarar með sínum
liðum í vetur og nefnir tveggja metra
skyttuna Nikola Prce, sem dæmi um
öflugan leikmann. Þá sé línumað-
urinn Vladimir Vranjes afar sterk-
ur. Þessir tveir eru í ungverska liðinu
Pick Szeged, sem varð Evrópumeist-
ari (EHF Cup) nú í vor. Þá séu nokkr-
ir ungir og efnilegir leikmenn í hópn-
um hjá Bosníu mönnum.
Aron og Aron meiddir
Aron segir aðspurður að Aron Pálm-
arsson muni ekki koma við sögu í
fyrri leiknum við Bosníu. Hann sé
meiddur en komi mögulega inn í
liðið í síðari leiknum. Kári Kristján
Kristjánsson er einnig meiddur eins
og markvörðurinn Aron Rafn Eð-
varðsson. Hann segir að aðrir séu
heilir.
Aron stefnir ótrauður á sigur í
leiknum úti. „Ef við lendum í vand-
ræðum þá þurfum við að takmarka
tjónið. Það er hægt að lenda í vand-
ræðum þarna ef markvörðurinn
þeirra dettur í stuð. Þeir eru fljót-
ir í fyrstu bylgju. Þetta er einfald-
lega hörkuverkefni. Bosníumenn eru
sýnd veiði en ekki gefin.“
Síðari leikurinn við Bosníu-
menn fer fram sunnudaginn 15. júní
í Laugardalshöll. Það lið sem bet-
ur hefur í viðureignunum tveimur
kemst á HM á næsta ári. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Illvígur Nikola
Prce er óárennileg
skytta.
Mættur Alexander Petersson
er snúinn aftur í landsliðið, eftir
nokkra fjarveru. Aron Pálmars-
son er aftur á móti meiddur.
Mynd ReuteRs
spá í spilin Íslensku þjálfararnir taka
viðureignina við Bosníumenn alvarlega.
„Liðið þeirra er
þokkalegt. Þeir eru
líkamlega sterkir og með
sterka vörn.
Enginn betri
en Ronaldo
Sænski knattspyrnumaðurinn
með stóra egóið, Zlatan
Ibrahimovic, er ekki vanur að
halda sig til hlés. Nú hefur hann
lýst því yfir að aldrei komi fram
betri knattspyrnumaður en Ron-
aldo. Þar er Zlatan ekki að tala
um Cristiano Ronaldo heldur
hinn brasilíska Ronaldo. „Hann
var átrúnaðargoðið mitt og full-
kominn knattspyrnumaður.“
Ronaldo var vissulega afbragðs
knattspyrnumaður því hann
skoraði meira en 350 mörk í um
500 leikjum fyrir félagslið sín.
Hann hætti knattspyrnuiðkun
árið 2011. „Að mínu mati verður
enginn betri en hann.“
Grátandi á
rauðu ljósi
Knattspyrnumaðurinn fyrrver-
andi Ryan Giggs, sem nýlega var
ráðinn aðstoðarmaður Louis
van Gaal, nýs stjóra Manchest-
er United, viðurkennir að hafa
brotnað saman eftir að hafa leik-
ið sinn síðasta leik sem atvinnu-
maður í knattspyrnu. Breskir
fjölmiðlar hafa eftir honum að á
heimleið frá Southampton, þar
sem United gerið 1–1 jafntefli í
lokaleik sínum í deildinni, hafi
hann grátið í bíl sínum á heim-
leiðinni frá flugvellinum – eftir að
hafa kvatt leikmennina. „Ég settist
inn í bílinn minn og bara grét. Ég
hélt ég væri ekki svona tilfinn-
inganæmur en ég er það greini-
lega.“ Giggs á að baki 23 leiktíðir
sem leikmaður Manchester
United. Á leiðinni heim af flug-
vellinum lenti Giggs á rauðu ljósi
og upp að honum renndi sam-
herji hans og vinur til margra ára,
Nicky Butt. „Ég gat ekki látið hann
sjá mig gráta svo ég veifaði hon-
um bara og sneri mér svo undan.“
Gátu ekki
boðið eins vel
Aron Pálmarsson mun yfirgefa
þýska meistaraliðið Kiel á næsta
ári ef samningar takast milli liðsins
og ungverska meistaraliðsins
Vezprém. Kiel segir sárt að missa
Aron, en forsvarsmenn félagsins
segjast ekki geta boðið honum jafn
háar greiðslur og Vezprém gerði.
„Við gerðum honum tilboð en gát-
um ekki keppt við tilboð Vezprém,“
segja þeir. Á næstunni mun skýrast
hvort Aron fer í haust til Ungverja-
lands eða haustið 2015, en hann á
ár eftir af samningi sínum við Kiel
þar sem hann spilar undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar.