Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Blaðsíða 11
Helgarblað 6.–9. júní 2014 Fréttir 11 n Fundargerðabækur vélhjólasamtakana segja söguna frá stofnun til 2012 n Einar Ingi var kosinn út í „Bad standing“ Í skýrslu greiningardeildar ríkis­ lögreglustjóra frá árinu 2008 þar sem lagt var mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi kemur fram að lögreglan hafði talsvert miklar áhyggjur af því að Hells Ang­ els næðu fótfestu á Íslandi. Þar sagði að Hells Angels hefðu lengi haft áhuga á því að ná fótfestu á Íslandi og að Fáfnismeðlim­ ir hefðu sótt það fast að fá að­ ild. Þar var tilgreint að vélhjóla­ samtök á borð við Hells Angels tengdust skipulagðri glæpastarf­ semi í nágrannaríkjum Íslands og væru stöðugt að auka umsvif sín og stækka markaðssvæði. „Þau hafa löngum verið umsvifa­ mikil á sviði fjárkúgana, ofbeldis og fíkniefnaviðskipta. Fyrir ligg­ ur að mörg þessara samtaka tengjast einnig vopnasmygli, skipulagningu vændis og man­ sali. Í nágrannalöndunum hefur ítrekað komið til blóðugra upp­ gjöra þessara hópa,“ segir í skýr­ slunni. Á þessum tíma stöðvuðu lögreglumenn komur erlendra Hells Angels­meðlima ítrekað á Keflavíkurflugvelli. Árið 2008 var ljóst að Fáfnismönnum var full alvara og vildu þeir gerast full­ gildir meðlimir. Fyrsta skrefið var að gerast stuðningsklúbbur deildar Hells Angels á Norður­ löndum og gekk það eftir. „Íslenski vélhjólaklúbbur­ inn Fafner MC­Iceland (Fáfnir) hefur nú gerst stuðningsklúbbur Hells Angels. Þar með hefur hópur manna, sem ítrekað hef­ ur komist í kast við lögin hér á landi, stofnað til formlegra tengsla við skipulögð, alþjóðleg glæpasamtök,“ segir í skýrslunni. Á næstu árum lagði lögreglan mikla áherslu á að berjast „gegn birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi,“ eins og segir í skýrslu ársins 2013 um sömu mál. Lögregla lagði upp úr því að stöðva komu Hells Angels­ meðlima en einnig að „raska starfsemi þeirra.“ Greint er frá því í skýrslunni að forystu­ kreppu hafi orðið vart innan ís­ lensku vítisenglasamtakanna og að allt benti til þess að umsvif klúbbsins væru minni en áður. Skýrslan kom út eftir að Einar Ingi Marteinsson, fyrrverandi formaður Hells Angels, var kos­ inn út úr samtökunum í „Bad standing.“ Þrátt fyrir þennan góða ár­ angur taldi lögreglan of snemmt að hrósa happi. Eðlilegast væri að horfa til þess að um millibils­ ástand væri að ræða og að líklegt væri að reynt yrði að blása aftur lífi í klúbbinn. Óttuðust lög­ reglan meðal annars átök milli Outlaws­samtakanna og Hells Angels. „Samkvæmt tiltækum upplýsingum tengjast félagar í þessum samtökum enn fíkni­ efnaviðskiptum, handrukkunum og fjárkúgunum,“ segir í skýrslu greiningardeildarinnar. n Lögreglan vaktar Telur líklegt að reynt verði að blása lífi í samtökin MC Iceland MC Iceland voru formlega gerð að Hells Angels- samtökum árið 2011. Hilmar Leifsson var í Hells Angels til ársins 2012 Á aðalfundi MC Iceland árið 2010 er tekið fram í fundargerðabók klúbbs­ ins að „Hilmar“ vilji halda í meðlim sem var við það að hætta í samtökunum. Fundurinn var þann 8. október árið 2010. Hilm­ ar er fyrsta nafn á mætingarlista fundarins en „ Hilmar“ sem um ræðir er Hilmar Leifsson. Það stað­ festir fyrrverandi Hells Angels­ meðlimur. „Hilmar beitti sér gegn mér í Hells Angels. Hann reyndi að fá meðlimi klúbbsins upp á móti mér en það gekk ekki hjá honum. Hann var í samtökunum til 2012,“ segir Sigmundur Geir Helgason, sem hætti í samtökunum þetta sama ár. Hann segir Hilmar hafa verið í samtökunum til ársins 2012, en Hilmar hefur áður haldið því fram að hann hafi hætt þátttöku í öllu því er tengdist MC Iceland og Fáfni áður en vélhjólasamtökin urðu formlega að Hells Angels, eða Vít­ isenglum. Fundargerðabækur sem DV hefur undir höndum gefa þó annað til kynna, en þar kemur nafn Hilmars fyrir og staðfestir Sig­ mundur að um var að ræða Hilm­ ar Leifsson. DV hefur fjallað mikið um Hilmar á undanförnum vikum í tengslum við innheimtuaðgerðir á bílaláni. Stefndi DV Árið 2013 stefndi Hilmar Leifsson ritstjórum DV fyrir meiðyrði fyrir að bendla hann við Hells Angels. Í dómsal kom þó fram að Hilmar hafði ekið um á mótorhjóli merktu Hells Angels. „Já, það þótti sniðugt á þeim tíma sem við vorum í Fáfni,“ sagði Hilmar. Hilmar var í mótor­ hjólasamtökunum Fáfni sem síð­ ar fengu inngöngu í Vítisengla. „Ég hætti þegar þeir fóru í þetta inn­ gönguferli. Það var í kringum 2007,“ hefur mbl.is eftir Hilmari sem sagð­ ist hafa prófað að ganga í Fáfni því hann hafði gaman af akstri mót­ orhjóla. „Ég hafði hins vegar ekki áhuga á frekari samskiptum og alls ekki að tengjast Hells Angels,“ sagði Hilmar, en fundargerðabækurnar afhjúpa tengsl hans við samtökin. DV var sýknað af kröfum Hilm­ ars og honum var gert að greiða sex hundruð þúsund krónur í málskostnað. Hilmar vill halda í meðlim Á aðalfundinum 2010 kemur fram að það er meðlimur sem Hilmar vill halda í. Um er að ræða sama meðlim og rætt er um hér til hliðar sem settur var á „High alert“ þegar hann, Ríkharður Ríkharðsson, kvaddi samtökin og gekk í önnur. Í dagbókarfærslunni segir: „Einar Boom á að ræða við hann og Hilm­ ar líka. Hilmar vill halda í hann.“ Settur út af sakramentinu Þann 5. janúar 2012 ber nafn Hilm­ ars aftur á góma. Þá er einn með­ limur Vítisengla orðinn „non contact“ það er að segja hafði ver­ ið settur út af sakramentinu. Mál­ ið tengdist deilum við Hilmar og kemur það skýrt fram í dagbókar­ færslunni en þar segir: Simbi [Sig­ mundur Geir, innsk. blm.] er non contact út af málinu með Hilmari. Billi talaði við Boom í S.O.D [Souls of Darkness, innsk. blm.] um að fara til Simba. Grímur fór til Simba. Grímur fer ekki aftur þangað.“ Báðu Hilmar um aðstoð Gegnumgangandi í dagbókunum eru umræður bæði um húsnæði Vítisengla við Móhellu í Hafnarfirði og fyrirhugaða House of Pain húð­ flúrstofu sem samtökin hugðust setja á laggirnar í Faxafeni í Reykja­ vík. Fjármálin varðandi Móhellu eru ítrekað rædd, samningsumleit­ anir við bankann og hvernig best sé að ganga frá því. House of Pain var á teikniborðinu hjá samtökun­ um í langan tíma og er oft verið að ræða um að stofnun stofunnar sé á næsta leiti. House of Pain er raunar alþjóðleg keðja á vegum Hells Ang­ els og hefðu íslensku samtökin rek­ ið stofuna undir sömu alþjóðlegu merkjunum. Þar átti einnig að selja varning sem tengdist samtökunum og freista þess að stofna svokallað­ an varnarsjóð eða „Defence fund“. Sjóðurinn átti að vera til halds og trausts kæmi til þess að meðlim­ ir eða samtökin þyrftu að eiga í kostnaðarsömum deilum, til dæm­ is ef kalla þyrfti til lögfræðinga. House of Pain virðist aldrei hafa náð að verða að veruleika þrátt fyrir viðleitni og vinnu sem lögð var í að koma henni á laggirnar. Í janúar 2012 sat Einar Ingi Mar­ teinsson, formaður samtakanna, í gæsluvarðhaldi. Það torveldaði uppgang House of Pain enn frekar. Þann 27. janúar 2012, á aðalfundi, ræddu aðrir meðlimir að ræða þyrfti við Hilmar Leifsson varðandi fjár­ mögnun til að kaupa eða leigja hús­ næði í Faxafeni. Í fundargerð þessa fundar segir: „Ingvar og Óskar ræða við Hilmar varðandi fjármögnun á Faksafeninu [sic].“ Hilmar kom því að innra starfi klúbbsins á þessum tíma og virðast meðlimir hafa treyst á hann varðandi aðstoð við fjár­ mögnun á verkefnum. Hilmar inn eða út? Í mars 2012 kemur nafn Hilmars aft­ ur fyrir í fundargerðabókinni. Þar velta meðlimir því fyrir sér hvort hann ætli að vera áfram meðlimur. Þar segir einfaldlega: „Hilmar það þarf að tala við hann inn eða út?“ og tekin var ákvörðun um að tveir með­ limir, Steini og Óskar, tækju verk­ efnið að sér. Fundurinn var haldinn þann 14. mars 2012 og er fyrir margt sögulegur en um er að ræða fund­ inn þar sem ákveðið var að víkja Einari Inga úr stöðu formanns líkt og greint var frá hér til hliðar. Tilraunir til að ná tali af Hilm­ ari Leifssyni báru ekki árangur á fimmtudag. n Var í Vítisenglum Hilmar Leifsson var í Vítisenglum til ársins 2012 samkvæmt fundargerðabókum Hells Angels á Íslandi. MynD SIgtryggur ArI „Hilmar það þarf að tala við hann inn eða út? Hells angelsDagbækurnar – 1. hluti – „Hilmar beitti sér gegn mér í Hells Angels“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.