Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Qupperneq 4
4 Fréttir Helgarblað 6.–9. júní 2014
Fjölbreyttar vörur
í öllum litum fyrir
bæjarhátíðina!
FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534
Selja hlut í
Framtakssjóði
Landsbankinn hefur selt 9,9 pró
senta hlut í Framtakssjóði Íslands
(FSÍ) og allan eignarhlut sinn,
27,6 prósent, í fjárfestingarsjóðn
um IEI eða Icelandic Enterprise
Invest, fyrir alls um sjö milljarða
króna. Icelandic Enterprise In
vest var stofnaður fyrr á þessu
ári af eigendum Framtakssjóðs
Íslands til að halda utan um er
lendar eignir sjóðsins. Fyrir
söluna var bankinn stærsti hlut
hafi í báðum sjóðum en er nú
annar stærsti hluthafinn með
17,7 prósenta eignarhlut í Fram
takssjóðnum. Núverandi hluthaf
ar keyptu hlut bankans.
Grætur daglega
„Guð minn góður hvað ég er búin
að gráta mikið,“ segir Ragnheiður
Arna Arnarsdóttir, móðir tveggja
barna sem barnaverndaryfirvöld á
Akureyri úrskurðuðu í 12 mánaða
fóstur 9. maí síðastliðinn. Akureyri
Vikublað greinir frá málinu. Ragn
heiður vill að börnin komi aftur til
hennar eða verði send til ættingja.
„Ég sem átti alltaf erfitt með að
gráta áður en börnin voru tekin af
mér vissi ekki að það væri hægt að
gráta svona mikið. Ég er búin að
gráta á hverjum degi síðan 9. maí
síðastliðinn þegar úrskurður féll,“
segir Ragnheiður Arna.
Börnin voru vistuð fjarri for
eldrum sínum gegn vilja yfir
geðlæknis Sjúkrahússins á Akur
eyri. Ragnheiður hefur verið til
meðferðar hjá geðlækninum en
hann telur hana vera hæfan upp
alanda svo lengi sem hún fái
stuðning. Barnsfaðir hennar hefur
boðist til að hafa börnin sem vilja
vera saman á heimili móðurinnar.
Í Akureyri Vikublaði kemur
fram að barnaverndaryfirvöld
hafi í kröfum sínum lagt áherslu á
að bregðast við dræmri mætingu
barnanna í skólann. „Eitt dæmi
um að þau geri sér ekki grein fyrir
eigin valdmörkum er að þau hafa
nefnt við mig að dóttir mín hafi
fengið kókópöffs og jógúrt og það
sé ekki gott,“ segir Ragnheiður sem
segist úrvinda. „Það er teiknuð
einhver óhugguleg mynd af mér
því að ég er með geðsjúkdóm.“
Túlkun tölvupósta
ótækt sönnunargagn
n Fjórir sýknaðir í Aurum-málinu n Áfrýjun hlýtur að teljast líkleg
Þ
ótt sönnunarmatið sé frjálst
er sú leið ótæk að mati
dómsins að byggja sönnun
í málinu á túlkun á tölvu
póstunum sem eru, a.m.k.
að hluta, andstæðir framburði
ákærðu og/eða vitna fyrir dómi.
Önnur niðurstaða væri að mati
dómsins andstæð grundvallarregl
um um sönnun í sakamálum,“ segir
í niðurstöðu meirihlutans í þriggja
manna dómi Héraðsdóms Reykja
víkur í Aurummálinu.
Meirihluti dómsins, Guðjón St.
Marteinsson og Sverrir Ólafsson
sýknuðu þá fjóra sakborninga af
ákæru um meint umboðssvik og
hlutdeild í meintum umboðs
svikum. Arngrímur Ísberg skilaði
hins vegar séráliti og vildi sakfella
þrjá af sakborningunum, þá Lárus
Welding, Magnús Arnar Arngríms
son og Jón Ásgeir fyrir ákæruefnið.
Ívitnuð orð hér að ofan eiga við um
ákæruefnin sem beinast að Lárusi
Welding og Magnúsi Arnari og er
meðal annars grundvöllur fyrir
sýknunni.
Aurummálið snýst um sex millj
arða lánveitingu sem Glitnir banki
veitti eignarhaldsfélaginu FS38 ehf.
til að kaupa ríflega fjórðungshlut
fjárfestingarfélagsins Fons í skart
gripakeðjunni Aurum í júlí árið
2008. 2,8 milljarðar af láninu voru
notaðir til að greiða upp lán sem
Fons átti útistandandi hjá Glitni; 2
milljarðar voru greiddir inn á reikn
ing Fons félaginu til frjálsrar ráð
stöfunar og rúmlega 1.200 milljón
ir króna voru lagðar inn á reikning
Fons til að bæta tryggingastöðu fé
lagsins gagnvart Glitni banka en af
þeirri upphæð var einn milljarður
króna millifærður sama dag inn á
reikning í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann
essonar.
Lykilatriði í sönnunarfærslunni
Málatilbúnaður ákæruvaldsins í
Aurummálinu byggir að stóru leyti
á tölvupóstum sem orðið hafa þekkt
ir í umræðunni á síðustu árum. Í
tölvupóstunum ræða starfsmenn
Glitnis um viðskiptin með Aurum
bréfin, meðal annars við Jón Ásgeir
sem var einn af eigendum bankans
í gegnum FL Group. Einn tölvu
pósturinn kom til dæmis frá Einari
Erni Ólafssyni, framkvæmdastjóra
hjá Glitni, og var hann til Lárusar
Welding bankastjóra. Í þeim tölvu
pósti frá Einari mátti skilja orð hans
sem verðleggja ætti hlutabréfin í
viðskiptunum of hátt. „Mér finnst
hinn góði eigandi okkar aðeins setja
þig í erfiða stöðu með þessum mail.
Goldsmith er t.d. virði 1,5 en ekki
4,0 o.s.frv. En ég geri allt sem þú seg
ir mér að gera.“ Með hinum „góða
eiganda“ átti Einar Örn við Jón Ás
geir Jóhannesson. Annar tölvu
póstur frá Einari Erni var á þá leið
að hann skildi ekki af hverju Pálma
væru ekki bara lánaðir tveir millj
arðar í staðinn fyrir að fara út í við
skiptin með Aurumkeðjuna. „Verð
að viðurkenna að ég skil ekki af
hverju við lanum ekki bara palma
2.ma.kr. til að koma fyrir á cayman,
aður en hann fer a hausinn, I stað
thess að fara I alla thess goldsmith
aefingu“.
Sama á við um Jón Ásgeir
Rétt eins og meirihluti dómsins
taldi tölvupóstana í málinu ekki
gefa tilefni til sakfellingar gagn
vart þeim Lárusi og Magnúsi Arnari
taldi dómurinn sömu ástæður
liggja til grundvallar sýknudóms
yfir Jóni Ásgeiri. Orðrétt segir í
dómnum: „Ákærði Jón Ásgeir neit
ar sök. Ákæruvaldið sýnist einkum
byggja sakargiftir á hendur ákærða
Jóni Ásgeir á tölvupóstum og túlk
un þeirra um að hann hafi í krafti
áhrifa sinna í Glitni banka hf. haft
þau áhrif á ákærða Lárus og Bjarna
sem þar er lýst. Fjöldi vitna var
spurður um þetta fyrir dómi. Ekk
ert þeirra styður þá fullyrðingu í
ákærunni. Samkvæmt þessu, og
gegn neitun ákærða, er ósannað að
ákærði Jón Ásgeir hafi haft þau áhrif
á lánveitinguna í krafti áhrifa sinna
innan Glitnis banka hf. sem lýst er
í ákærunni. Á sama hátt og rakið
var að ofan er sönnun með tölvu
póstum eins og ákæruvaldið byggir
hér á, ótæk leið og andstæð grund
vallarreglum um sönnun í sakamál
um.“ Dómurinn telur því að vitnis
burðir fyrir dómnum vegi þyngra
en þau orð sem fram koma í tölvu
póstunum um of hátt verðmat á
hlutabréfunum og þrýsting hins
„góða eiganda“, Jóns Ásgeirs, í mál
inu. Annar tölvupóstur frá Jóni Ás
geiri sem vitnað hefur verið í fór til
Lárusar Welding í aðdraganda Aur
ummálsins: „Þetta eru mál in nenni
ekki að bögga ykk ur á hverj um degi
með þessu enda ætl ast ég til að CEO
þess ara fé laga vinni sín mál. Ef við
kom um þess um mál um frá þá er
borðið mitt hreint. Ann ars er kanski
best að ég verði starf andi stjórn ar
formaður Glitn is banka.“
Sérálit Arngríms Ísberg
Arngrímur Ísberg var hins vegar á
þeirri skoðun í séráliti sínu að sak
fella ætti bæði Lárus og Magnús
Arnar. Hann sagði: „Það er mitt mat
að með því að lána FS38 ehf. nefnda
fjárhæð með veði í bréfunum í Aur
um hafi ákærðu valdið verulegri
fjártjónshættu fyrir bankann. Þeir
hafi því misnotað aðstöðu sína hjá
bankanum og stefnt fjármunum
hans í verulega hættu. Lánið var al
gerlega án fullnægjandi trygginga
og þar af leiðandi var það veitt
andstætt reglum bankans.“ Að sama
skapi taldi hann að sakfella bæri Jón
Ásgeir en um þátt hans sagði hann
meðal annars : „Ákærða Jóni Ásgeiri
er gefin að sök hlutdeild í umboðs
svikunum fyrir að hafa með fortöl
um og þrýstingi hvatt til þess að lán
ið væri veitt. Þá er og komið fram
að hluti af láninu rann til ákærða
eins og lýst er í ákærunni. Í gögn
um málsins kemur fram að ákærði
hafði veruleg afskipti af þessari lán
veitingu og hvatti til hennar. Afskipti
hans voru langt um fram það sem
eðlilegt getur talist af manni sem
engri stöðu gegndi hjá bankanum
en fór með stóran eignarhlut í hon
um. Ekki er hægt að líta á afskipti
hans í öðru ljósi en því að honum
var ætlaður hluti af láninu eins og
rakið hefur verið. Ákærða hlaut þó
að vera ljóst að veðið, sem stóð til
tryggingar láninu, var á engan hátt
fullnægjandi.“
Áfrýjun líkleg
DV hefur ekki fengið upplýsingar
um það hvort embætti sérstaks sak
sóknara ætli að áfrýja dómnum í
Aurummálinu. Þó verður að telja
það líklegt í ljósi niðurstöðunn
ar. Hingað til hafa flest, ef ekki öll,
af stóru hrunsmálum sérstaks sak
sóknara farið fyrir Hæstarétt Íslands
eftir að dómur í héraði hefur fall
ið. Þá mun væntanlega koma í ljós
hvort Hæstiréttur tekur undir sjón
armið meirihluta héraðsdóms eða
Arngríms Ísbergs. n
„Samkvæmt þessu,
og gegn neitun
ákærða, er ósannað að
ákærði Jón Ásgeir hafi
haft þau áhrif á lán-
veitinguna í krafti áhrifa
sinna innan Glitnis banka
hf. sem lýst er í ákærunni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Sýknað í Aurum-málinu Héraðs-
dómur Reykjavíkur sýknaði á fimmtudag
fjóra menn af ákæru um meint umboðs-
svik og hlutdeild í umboðssvikum. Þrír
þeirra, Lárus Welding, Magnús Arnar
Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson,
sjást hér við aðalmeðferð málsins í maí.
Mynd SIgtryggur ArI