Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2014, Side 8
8 Fréttir Helgarblað 6.–9. júní 2014
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
BOZZ
sturtuklefi
80x80cm
43.900
11.990
AGI-167 hitastýrð
blöndunar tæki fyrir sturtu
fáanleg með upp stút.
Rósetturog hjámiðjur
fylgja.
Fást einnig í 90x90cm á
kr. 45.900. Einnig eru til
rúnnaðir 90x90 klefar
á kr. 45.900
Sturtustöng og -brúsa fylgja.
GÆÐAVARA
Vatnslás og botnventill frá
McAlpine seldur sér á kr. 1.290
Friðrik
svarar Ólafi
Friðrik Arngrímsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri LÍÚ, er ósáttur
við orð sem bloggarinn og rit-
höfundurinn Ólafur Arnarson lét
falla í viðtali við DV í maí undir
fyrirsögninni „Þetta er ein leið til
þöggunar“. Friðrik sendi DV tölvu-
póst þar sem hann svarar Ólafi og
fylgir hluti hans hér á eftir.
„Í viðtalinu fer Ólafur enn og
aftur með rangt mál þegar hann
gefur í skyn að LÍÚ hafi kostað
rekstur netmiðilsins AMX. LÍÚ
hefur ekki greitt eina krónu til
reksturs AMX.
Ólafur getur þess ekki í við-
talinu að hann var dæmdur í
meiðyrðamáli sem ég höfðaði
gegn honum
fyrir að saka
mig um að hafa
ráðstafað fjár-
munum LÍÚ
með ólögmæt-
um hætti.
Eftirfarandi
ummæli Ólafs
voru dæmd
ómerk enda
talin meiðandi
og til þess fallin að sverta mann-
orð mitt og æru: „Mér er kunnugt
um, að einhverjir stjórnarmenn
LÍÚ viti ekki af stuðningnum við
fugladritið á AMX enda munu
greiðslurnar vera vel dulbúnar í
reikningum samtakanna. Því hef-
ur verið haldið fram við mig að
mögulega viti enginn í stjórn LÍÚ
um milljóna stuðning samtak-
anna við nafnlaus níðskrif á AMX
– að framkvæmdastjórinn hafi
einn ákveðið að nota fjármuni
samtakanna með þessum hætti“.
Ekki veit ég af hvaða hvötum
Ólafur Arnarson kýs ata þau góðu
samtök útvegsmanna sem ég
vann fyrir um árabil auri. Því síð-
ur er mér ljóst hvað rekur hann
til að reyna að níða mannorðið
af mér. Höfuðið bítur hann síð-
an af skömminni með því reyna
að gera sig að píslarvætti og kalla
það þöggun þegar brugðist er við
rætnum ásökunum hans.“
Ólafur Arnarsson
Auglýsingin gerð
í umtalaðri íbúð
Kaldhæðnislegt samhengi á bak við auglýsingu ríkisstjórnarinnar um „leiðréttinguna“
S
jónvarpsauglýsing um
skuldaniðurfellingar ríkis-
stjórnarinnar var tekin upp í
íbúð manns í Bústaðahverf-
inu sem átt hefur í deilum
við Dróma vegna skulda sem hvíldu
á íbúðinni. Auglýsingin er ennþá
sýnd í sjónvarpinu en hún var gerð í
aðdraganda þess að frumvörp ríkis-
stjórnarinnar um skuldaleiðréttingar
voru samþykkt á Alþingi í síðasta
mánuði.
Deilt á Dróma
Maðurinn, Björn Steinbekk Krist-
jánsson, hefur komið fram opin-
berlega í nokkur skipti á liðnum
árum og tjáð sig um viðskipti sín við
Dróma, meðal annars í fyrrahaust
þegar til stóð að bera hann út úr
íbúðinni. „Er virkilega betra að bera
fjögurra manna fjölskyldu út úr hús-
inu sínu þegar greiðsluvilji og geta
er til staðar og boð um bætur liggur
á borðinu? Fyrir hvern er slitastjórn
Dróma hf. að vinna? Af flestu að
dæma er það fyrir sjálfa sig með
40.000 kr. á tímann,“ sagði hann í
aðsendri grein í Fréttablaðinu sem
vakti mikla athygli enda hefur Drómi
sannarlega verið á milli tannanna á
mörgum á Íslandi á liðnum árum.
Í samtali við DV biðst Björn und-
an því að tjá sig um auglýsinguna.
Hending ein
Björn steig svo meðal annars fram í
aðdraganda þingkosninganna í fyrra
og lýsti því yfir á Facebook að hann
ætlaði sér að kjósa Framsóknar-
flokkinn. Þau skrif munu hafa verið
í kaldhæðni og tók hann færsluna út
af síðu sinni eftir að hún hafði vak-
ið athygli í fjölmiðlum, líkt og DV.is
greindi meðal annars frá.
Þrátt fyrir þessar tvær tengingar
hans við umræðuna um skuldir og
skuldsett heimili í kjölfar hruns-
ins, hann hefur deilt við Dróma um
árabil, og þrátt fyrir skrif á Facebook
um Framsóknarflokkinn þá var það
hending að íbúð þessa manns varð
fyrir valinu sem tökustaður fyrir aug-
lýsinguna; hending sem þó vissulega
verður að teljast vera nokkuð kald-
hæðnisleg í ljósi þess hvernig liggur
í málinu.
Tvö stórmál
Segja má að þessi tvö mál, aðgangs-
harka Dróma og annarra fjármála-
fyrirtækja gagnvart viðskiptavinum
sínum í kjölfar hrunsins, og loforð
Framsóknarflokksins um skulda-
niðurfellingar gagnvart íslenskum
heimilum séu skyld mál.
Kosningaloforð Framsóknar-
flokksins um skuldaniðurfærslur
árið 2013 skilaði flokknum að öllum
líkindum þeim völdum sem hann
nú hefur í stjórnarsamstarfinu með
Sjálfstæðisflokknum. Loforðið kom
beint inn í áralanga umræðu, sem
oft og tíðum og eðlilega var mjög
persónu- og tilfinningaleg, um
skuldsett heimili á Íslandi og virð-
ist hafa verið það svar sem margir
kjósendur leituðu eftir og uppskar
flokkurinn eftir því.
Sjónvarpsauglýsingin um
skuldaniðurfærsluna er svo
ákveðin staðfesting á því að loforð
Framsóknarflokksins hafi orðið að
veruleika þó vissulega séu efnd-
ir flokksins ansi langt frá því sem
lofað var þegar talað var um 300
milljarða eignaupptöku í þrotabú-
um fallinna banka á Íslandi. Aug-
lýsingin var tekin upp í aðdraganda
þess að frumvörpin um skulda-
niðurfellingarnar urðu að veruleika
og hefði hún ekki verið sýnd nema
af því að frumvörpin voru samþykkt
á Alþingi. Segja má að auglýsingin
hafi því ekki getað verið tekin upp á
meira lýsandi stað. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Fyrir hvern
er slitastjórn
Dróma hf. að vinna?
Rætt opinberlega um
íbúðina Auglýsingin um
skuldaniðurfærslu ríkis-
stjórnarinnar var tekin upp
í íbúð sem nokkrum sinn-
um hefur verið fjallað um
opinberlega vegna deilna
eigandans við Dróma. Hér
sést Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson kynna
leiðréttinguna í fyrra. MynD
SIgTRygguR ARI
S
kýrsla Sveins Óskars Sigurðs-
sonar, viðskiptafræðings og
fyrrverandi formanns Sjálf-
stæðisfélags Mosfellsbæjar,
um framsal eignaréttinda á lóðum
bæjarins, var tekin fyrir á bæjarráðs-
fundi á miðvikudaginn. Líkt og DV
fjallaði um á dögunum er greint frá
því í skýrslunni hvernig bæjarstjórinn
Haraldur Sverrisson og móðir hans
fengu óeðlilegt forskot þegar gefnir
voru út lóðaleigusamningar til þeirra
án umræðu í bæjarráði og bæjar-
stjórn skömmu áður en deiliskipulag
tók gildi árið 2005. Á þeim tíma sat
Haraldur í skipulagsnefnd og var
formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar.
Jón Jósef Bjarnason, fulltrúi Íbúa-
hreyfingarinnar í Mosfellsbæ, lagði
fram tillögu á fundinum um að
skýrslan yrði send sérstökum sak-
sóknara og óskað eftir athugun á
því hvort lög hefðu verið brotin. Vék
bæjar stjóri af fundi en tillaga tillaga
Jóns var felld og lögðu bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins fram bókun
um að ekkert nýtt hefði komið fram í
skýrslunni frá því að málið var yfir farið
af bæjarráði árið 2009. Það ár bókaði
bæjarráð að ekki hefði verið rétt stað-
ið að málum við uppskiptingu lands
samkvæmt deiliskipulagi á viðkom-
andi svæði, en ekki yrði séð að máls-
aðilar hefðu haft af því ávinning né
Mosfellsbær orðið fyrir tjóni. Í skýr-
slu Sveins Óskars eru færð rök fyrir
hinu gagnstæða og vísað í fjölda gagna
því til stuðnings. Að sögn Jóns Jósefs
hyggst hann sjálfur leggja fram kæru
til sérstaks saksóknara vegna málsins.
Í umræddri skýrslu kemur fram
að skömmu eftir útgáfu lóðarleigu-
samninganna árið 2005 hafi ein lóð-
anna verið framseld til þriðja aðila án
þess að það væri tilkynnt Mosfellsbæ
líkt og kveðið var á um í lóðarleigu-
samningnum sjálfum. Fyrir vikið hafi
mæðginin komist inn á fasteigna-
markaðinn fyrr en aðrir er lutu sama
deiliskipulagsferli og ekki þurft að
gangast undir sömu kvaðir og aðrir
lóðarleiguhafar, svo sem með tilliti
til byggingarréttar- og gatnagerðar-
gjalda. n
Saksóknara ekki send skýrslan
Sjálfstæðismenn felldu tillöguna
Vék af fundi Haraldur Sverrisson bæjar-
stjóri brá sér frá meðan bæjarráð ræddi um
mál tengd fjárhag hans.
Spurning DV: Hvernig var íbúð sem notuð
er í auglýsingum í sjónvarpi valin?
Svar: Ráðuneytið tók ekki þátt í að velja
íbúð sem notuð var í efni til þess að
kynna framkvæmd höfuðstólslækkunar
fasteignalána. Þessi atriði voru í höndum
kynningarfyrirtækis og auglýsingastofu.
Spurning DV: Hvar er auglýsingin sýnd?
Svar: Sjónvarpsauglýsingar eru sýndar
á RÚV og Stöð 2. Fyrri hluta kynningar á
aðgerðum til lækkunar höfuðstóls hús-
næðislána er að ljúka, en hann miðar að
því að kynna fólki réttindi þess og hvernig
eigi að sækja um. Seinni hluti kynningar
hefst í ágúst, en þar verður markmiðið
að minna fólk á að umsóknarfrestur um
höfuðstólslækkun rennur út 1. september.
Spurning DV: Hver er kostnaður við
auglýsingarnar?
Svar: Verkefnastjórn var falið að kynna
réttindi fyrir fólki í tengslum við höfuð-
stólslækkun fasteignalána. Heildarkostn-
aður vegna gerðar og birtingar kynningar-
efnis er áætlaður um 12 milljónir króna.
Kostnaður kynningarefnis 12 milljónir
Spurningar DV um kynningarefni vegna frumvarpa um skuldaleið-
réttingar og svör fjármálaráðuneytisins